Morgunblaðið - 12.12.1998, Qupperneq 74
_ 74 LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
YFIR30 RETTA GLÆSILEGT
AUSTURLENSKT HLAÐBORÐ!
13. NÓVEMBER TIL 23. DESEMBER
Verö kn á mmm
Bjóðum 10 - 25 manna hópum í skemmtilegan sal
á efri hæð Sjanghæ.
Tilboðsverð fyrir hópa er kr. 1.900,- og mánudags- til
fimmtudagskvöld fylgir Egils jólamjöður með.
Hlaðborðið er í boði öll kvöld eftir kl. 18:00.
hádeginu kl. 11:30 -15:00,15 rétta lítil útgáfa á kr. 1.100,-
-kítryétrfkai vcíiírrgatfctír/íá i Íflartidí
Laugavegi 28b Sími S51 6513 - 552 3535 - Fax 562 4762
greind,
skapgerð
ofurviðkvæmni
eigin
wmm
tm
^WfiSSOH
steingrímur ST. th. S,GURÐSSC
* ’i r £ 1 k,1 .
sli t /I ^ JL
J .1 W
m
Lífsbók Steingríms er allt í
senn: hrífandi, átakanleg, fjör-
leg, sorgleg, nýstárleg, hneyksl
anleg, listaverk, iðandi af
mannlífí, full af sögum af
af fólki og fyrirbærum! En
umfram allt hárbeitt sjálfs-
krufning flókins persónuleika
mvi
FRÉTTIR
Jólasýning
Arbæjarsafns
1998
KERTASNÍKIR og Hurðaskellir
koma í heimsókn í Arbæjarsafn
sunndaginn 13. desember en þá
verður jólasýning frá kl. 13-17. Seg-
ir í fréttatilkynningu að þá sé viss-
ara fyrir börn og fullorðna að halda
fast um kertin sín því hér séu alvöru
jólasveinar á ferð, jólasveinar sem
stela og stríða.
Einnig er margt annað til
skemmtunar í Arbæjarsafni. I Ar-
bænum eru krakkar að skera út
laufabrauð, síðan er það steikt og
gestum boðið að bragða á. I skemm-
unni eru tólgarkerti steypt og jóla-
tré vafið í lyng í baðstofunni. í Há-
bæ er verið að sjóða hangikjöt, í
Miðhúsi eru prentuð jólakort og í
Komhúsi er föndrað. Kl. 14 er
messa í safnkirkjunni og kl. 15 verð-
ur dansað í kringum jólatré á torg-
inu. Krambúðin er opin, þar fást
kerti og spil og sitthvað fleira en í
Dillonshúsi er boðið upp á heitt
súkkulaði og smákökur.
Lúsíuhátíð
í Norræna
húsinu
LÚSÍUHÁTÍÐ verður haldin í
Norræna húsinu sunnudaginn 13.
desember. Dagskráin verður með
hefðbundnu sniði; Lúsía og þernur
hennar og stjörnustrákar syngja
sænsk lúsíu- og jólalög undir stjórn
Mariu Cederborg. Þau munu koma
fram tvisvar, fyrst kl. 14 og aftur kl.
16.
Aðgöngumiðar verða seldir í Nor-
ræna húsinu dagana áður og við
innganginn. Miðinn kostar 250 kr.
fyrir börn og 500 kr. fyrir fullorðna
og eru veitingar innifaldar í verð-
inu. í kaffistofu Norræna hússins
verður boðið upp á piparkökur auk
safa fyrir börnin og kaffi fyrir full-
orðna.
Það er Sænska félagið á íslandi
auk Norræna hússins sem standa
sameiginlega að Lúsíuhátíðinni. All-
ir eru velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
Aðventu-
skemmtun í
Hellisgerði
HAFNFIRÐINGAR hafa haldið
tvær aðventuskemmtanir af fjórum
í Hellisgerði. Næsta aðventusunnu-
dag verður yfirskriftin ærslajól en
áður voru það afa- og ömmujól og
unglingajól.
A ærslajólum flytur Grýla sjálf
jólahugvekju en hún kemur úr
Grýluhellinum í jólabænum við
Fjörukrána. Jólakötturinn ætlar
einnig að fá að segja nokkur orð
enda aldrei langt undan þegar
Grýla er annars vegar. Eiríkur
Fjalar, einnig ærslasamur, verður
með jólaatriði og mestu ærsla-
belgirnir, jólasveinarnir Giljagaur
og Stekkjarstaur ólátast fyrir börn-
in. Leikskólabörn frá Alfabergi og
Vesturkoti syngja nokkur lög og
einnig Kvennakór Hafnarfjarðar.
Dagskráin hefst klukkan 15.
Basar í
KEFAS
KJ5FAS, kristið samfélag, heldur
basar sunnudaginn 13. desember kl.
14-17 á Dalvegi 24 í Kópavogi.
Þar verða m.a. til sölu
heimabakaðar kökur, smákökur,
skreytingar, lukkupakkar og ýmsar
fallegar gjafavönn-. Nýbakaðar
vöfflur með rjóma og rjúkandi kaffi
verður selt á 200 kr.
Lofgjörðartónlist verður leikin og
sungin. Allir eru velkomir.
HREGGVIÐUR Jónsson, forstjóri IÚ, afhendir Elísu Wíum og Jórunni
Magnúsdóttur styrk til Vímulausrar æsku.
Islenska Utvarpsfélagið
styrkir Vímulausa æsku
FORRÁÐAMENN íslenska út-
varpsfélagsins hafa ákveðið að í ár
verði engin jólakort send frá fyrir-
tækinii. Þeir fjármunir sem annas
hefði verið varið í hönnun, prent-
Nýkomið ekúi öiiskí
ÉttlötttaitH Hiniti
un og útsendingu jólakorta renna
óskiptir til samtakanna Vímulausr-
ar æsku. Að auki fá samtökin aug-
lýsingabirtingar í miðlum ítí til
stuðnings sameiginlegu átaki gegn
neyslu áfengis og annarra vímu-
gjafa yfir hátíðirnar.
Fyrir jólin standa samtökin
Vímulaus æska fyrir átaki þar sem
foreldrar eru hvattir til að halda
vímulaus jól og láta ekki áfengi
eða aðra vúnugjafa spilla jólagleð-
inni fyrir bömunum og sjálfum
sér. íslenska útvarpsfélagið leggur
sitt af mörkum til þess að þetta
átak verði sem árangursríkast.
Vímulaus æska hefur á undan-
förnum árum unnið markvisst
með foreldrum gegn neyslu
barna og unglinga á áfengi og
öðrum vímugjöfum. Samtökin
reka m.a. Fjölskylduráðgjöf og
foreldrasímann 581 1799 sem er
opinn allan sólarhringinn.