Morgunblaðið - 12.12.1998, Blaðsíða 77
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998 77 ^
LANDIÐ
VISTHEIMILIÐ Háholt.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Sex unglingar
dvelja í Háholti
HILMAR Kristjánsson afhendir Magnúsi Siguijónssyni lykla að húsinu.
Sauðárkróki - Síðastliðinn laugar-
dag var nýtt meðferðarheimili fyrir
unglinga að Háholti, í landi Garð-
húsa í Skagafii'ði, tekið í notkun.
I maímánuði árið 1997 hófust við-
ræður þáverandi Héraðsnefndar
Skagafjarðar og forstöðumanns
Barnaverndarstofu, Braga Guð-
brandssonar um byggingu nýs með-
ferðarheimilis fyrir unglinga í
Skagafmði, en um nokkurra ára
skeið hefði slíkt meðferðarheimili
verið rekið, fyrst að Stóru Gröf, en
síðan á Bakkaflöt.
I samningum Héraðsnefndar og
Barnaverndarstofu var ráð fyrir því
gert að heimamenn fjármögnuðu og
byggðu heimilið, en síðan yrði gerð-
ur langtíma leigusamningur við rík-
isvaldið og þannig yrði byggingar-
kostnaðurinn gi-eiddur. Endanlegt
samkomulag varðandi þetta var síð-
an undirritað 14. október 1997 en í
samkomulaginu kom einnig fram
stærð hússins, að það yrði reist í
landi Garðhúsa og að Barnaverndar-
stofa skuli tilnefna tvo aðila til að
vera byggingarnefnd til ráðuneytis.
í sama mánuði var skipuð bygging-
amefnd, en í henni áttu sæti: Magnús
Sigurjónsson, Hallgi-ímur Ingólfsson
og Sigurður Hai'aldsson en tilnefndir
af Barnavemdarstofu til ráðgjafar
vom þeir Sveinn Allan Morthens og
Ingvar Guðnason. Árni Ragnai-sson
arkitekt var fenginn til að hanna hús-
ið, Verkfræðistofan Stoð ehf. annaðist
burðarþols- og lagnahönnun og RKS
raflagnir og öi-yggiskerfi. Við útboð á
verkinu bámst fjögur tilboð og var
gengið að tilboði frá Stíganda hf. á
Blönduósi, en tilboð Stíganda hljóðaði
upp á tæpar 48 milljónir og var um
98,5% af kostnaðai'áætlun.
Við opnunina þágu gestir veiting-
ar en undir borðum tók fyrstur til
máls Jón Örn Berndsen, sem var
eftirlitsmaður með byggingarfram-
kvæmdum og lýsti hann húsinu og
framkvæmd allri. Kom fram í máli
Jóns að allar áætlanir hefðu staðist
fullkomlega, að vísu hefði óveður-
skafli í október síðastliðnum gert
mönnum erfitt fyrir og því yrði end-
anlegur frágangur utanhúss að bíða
næsta vors. Þá þakkaði Jón gott
samstarf við alla þá sem að verkinu
komu og árnaði vistmönnum og
starfsmönnum alls hins besta.
Styrkir byggðarlagið
Næstur tók til máls Hilmar Krist-
jánsson, framkvæmdastjóri Stíg-
anda hf., og þakkaði hann einnig
fyrir mjög gott samstarf við bygg-
ingaraðila og ekki síður nágranna,
sagði Hilmar að öll verk hefðu geng-
ið eins og best varð á kosið, áfalla-
og slysalaust og því tryði hann því
að farsæld fylgdi þessu heimili og
vistmenn þeir sem hér ættu eftir að
dvelja mundu una sér vel. Sagði
Hilmar að hér væri verið að skapa
nýja þjónustu og ný störf sem
styrkja mundu byggðarlagið því
væri hér á ferð gott framtak.
Þessu næst tók til máls Magnús
Sigurjónsson og rakti hann aðdrag-
anda þess að ráðist var í byggingu
vistheimilisins og samskipti Barna-
verndarstofu og Héraðsnefndar
varðandi þetta mál. Þakkaði Magn-
ús þeim Stígandamönnum mjög gott
starf og taldi að ekki hefði verið á
allra færi að skila svo góðu verki á
svo skömmum tíma og með jafnlitl-
um fyrirvara.
Að máli sínu loknu afhenti Magn-
ús sr. Gísla Gunnarssyni forseta
sveitarstjórnar Skagafjarðar lykla
að húsinu.
Sr. Gísli Gunnarsson tók þá til
máls og lýsti ánægju sinni með það
að nú væri komið að því að taka
þetta glæsilega mannvirki í notkun,
og hér væri verið að skapa allmörg
atvinnutækifæri í sveitarfélaginu
með þeirri þjónustu sem hér væri í
boði, en hins vegar væri það ekki
aðalatriðið, heldur væru Skagfirð-
ingar stoltir af því að geta lagt sitt
af mörkum til þess að geta stutt þá
sem á einhvern hátt hefðu orðið ut-
anveltu í lífínu til þess að ná fótfestu
á nýjan leik og skapa sér viðspyi'nu
til eðlilegs lífs í samfélaginu og að
dvölin hér mætti verða þeim til
góðs. Að þeim orðum mæltum af-
henti sr. Gísli Braga Guðbrandssyni
lykla hússins og þar með það til.
notkunar.
Merkilegt
brautry ðj endastarf
Bragi Guðbrandsson sagði hér
vera merkilegt brautryðjendastarf á
ferðinni enda í fyrsta sinn sem slíkt
heimili væri byggt utan Reykjavík-
ursvæðisins, og hefði þetta samstarf
ríkis og sveitarfélags vakið slíka eft-
irtekt að mörg sveitarfélög hefðu
komið og viljað gera viðlíka samning
eða eins, og ganga inn í „Skagafjarð-
armódelið“. Hefði það orðið til þess
að nokkrir slíkir samningar hefðu ‘
verið gerðir og nú í næstu viku yrði
opnað nýtt vistheimili í Borgarfirði.
Þá þakkaði Bragi samstarfið við eig-
endur Bakkaflatar, en vistmennirnir
sem þar dvelja nú auk eins verða
fyrstu vistmenn Háholts. Einnig
lýsti Bragi ánægju sinni með það að
Sveinn Allan Morthens hefði tekið
að sér að veita Háholti forstöðu, og
einnig kvað hann það dýrmætt fyrir
starfsemi eins og þá sem hér er rek-
in að eiga góða og jákvæða ná-
granna.
Bragi benti á að hér væru raunar
tvær stofnanir á einum stað, það er
meðferðarheimili og skóli, en skóla-
starf er hér rekið í tengslum við
Einholtsskóla í Reykjavík og annast 4^
kennsluna Kári Marísson.
Þessu næst blessaði séra Bolli
Gústavsson vígslubiskup húsið og
bað blessunar allri starfsemi sem
hér færi fram.
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra tók síðastur til máls og eins og
aðrir lauk hann lofsorði á það verk
sem hér hefði verið unnið og kvað
það ekki koma sér á óvart þó að þeir
Stígandamenn gætu skilað jafngóðu
verki á jafnskömmum tíma. Þá sagði
Páll það ánægjulegt að Sveinn AUan
tæki að sér forstöðu heimilisins,
hann hefði skilað góðu stai-fi sem
framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu
um málefni fatlaðra á Norðurlandi
vestra, og taldi að hér ynni hann
ekki síðra starf. Arnaði hann vist-
mönnum og starfsfólki allra heilla
og sagðist eiga þá ósk besta að allir
þeir er hér ættu heima næðu að
komast til hins besta þi-oska, hér
ættu þeir góða daga og fengju góðan
undirbúning undir lífið.
Heimilismenn að Háholti verða 6,
en starfsmenn 12 til 15.
Nýtt meðferðarheimili fyrir unglinga tekið í notkun í Skagafirði
Eldvarnafræðsla í
Laugargerðisskóla
Eyja- og Miklaholtshreppi - Nem-
endur í 3. bekk í Laugargei'ðisskóla
á Snæfellsnesi fengu fræðslu í eld-
vörnum sl. mánudag. Landssamband
slökkviliðsmanna hefur árlega efnt
til brunavai-narátaks fyrir jólin, með
stuðningi Brunabótafélags íslands.
Það var Hermann Jóhannsson
slökkviliðsstjóri í Borgarnesi sem
kom og fræddi börnin. Hann ræddi
mikilvægi þess að reykskynjari væri
á hverju heimili, hvai' hann væri best
staðsettur og að nauðsynlegt væri að
skipta um rafhlöðu á hverju ári. Her-
mann sagði ft'á því að reykur leitar
upp og í reykfylltu herbergi á að fara
niður á gólf og skn'ða. Máli sínu til
stuðnings, sviðsetti hann björgun úr
bruna og „bjargaði" einum nemanda
úr reykjarkófi.
Krakkarnir fengu „Eldheitar stað-
reyndir" sem er upplýsingabækling-
ur með eldvarnagetraun, og eiga
þeir að lesa hann heima og svara
getrauninni. Eftir fræðsluna fengu
börnin að setjast inn í brunabílinn og
prófa að sprauta vatni með slöng-
unni.
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
HERMANN Jóhannsson, slökkviliðsmaður, „bjargar“ Ólöfu Eyjólfs-
dóttur úr ímynduðum bruna.
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
LITLI kórinn söng á aðventuhátíðinni.
Aðventukvöld í Kol-
beinsstaðakirkju
»
Eyja- og Miklaholtshreppi - Að-
ventukvöld var haldið í Kolbeins-
staðakirkju á Snæfellsnesi á
fimmtudagskvöldið var.
Séra Guðjón Skarphéðinsson
bauð kirkjugesti velkomna og at-
höfnin hófst á því að nokkrir
nemendur úr Laugargerðisskóla
komu inn kirkjugólfíð syngjandi,
með kertajós í höndum. Þetta var
„Litli kórinn“ sem söng jólalög
fyrir viðstadda. Tendruð voru
kerti á aðventukransinum og síð-
an flutti kirkjukórinn fáein lög,
við undirleik Zuzanne Budai sem
er frá Ungverjalandi. Skólastjóri
Laugargerðisskóla, Guðrún Vala
Elísdóttir, flutti hugvekju þar
sem hún ræddi m.a. um gildi jóla-
gjafa og þess að gefa af sjálfum
sér. Steinunn Pálsdóttir tónlistar-
kennari söng síðau einsöng og
KVEIKT á aðventukertum.
nemendur úr tónlistarskólanum
spiluðu á gítar. A Snæfellsnesi er
starfandi lijónakvartett og sungu
hjónin „Grýlukvæði11.
Aðventukvöldið endaði á að all-
ir sungu saman jólasálminn
„Bjart er yfir Betlehem“. Sóknar-
nefnd Kolbeinsstaðahrepps bauð
gestum í kaffi í félagsheimilið
Lindartungu eftir athöfnina. ^