Morgunblaðið - 12.12.1998, Side 78
78 LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
■yjÁj mp/ t&M AÐL4HA F/EtZ/ÓrMEÞMéZ'
Smáfólk
FOR ‘TRICK ORTREAT5" I 60T TCOELVE CANDf BAR5, FOURTEEN C00RIE5, AWD THREE TU0E5 OFTOOTHPASTE^ | 4 _ jllib © 1998 United Feature Syndicate, Inc. i dipn't eet A BICYCLE..
I t/-Z
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Sjónarspil Lyfju
Rótarendar seldir sem rautt ginseng
Frá Agnari Wilhelm Agnarssyni:
FRA ungum aldri starfaði ég við
fyrirtæki föður míns.heitins, Agn-
ars K. Hreinssonar, en fyrirtækið
bar sama nafn.
Fyrirtækið var
frumkvöðull hér-
lendis í að flytja
inn Rautt Eðal
Ginseng frá
Kóreu, en ég
hafði lesið allt
um ginseng sem
mér hefur þótt
Agnar wiiheim bitastætt, enda
Agnarsson hef ég verið mik-
ill áhugamaður
um þá ágætu lækningajurt um
langan aldur.
Fyrir nokkru hóf Lyfja og
Lyfjabúðir Hagkaups að kynna
Gintee, sem þeir kölluðu nýtt
Rautt Eðal Ginseng, sem þeir síð-
an auglýstu sem 3 x sterkara en
raunverulegt Rautt Eðal Ginseng
frá Kóreu. Með þessu háttarlagi
var ekki einungis verið að reyna
að stela þekktu vörumerki sem
hafði áunnið sér mikla viðskipta-
vild heldur ranglega verið að telja
neytendum trú um að um sömu
vöru væri að ræða, eini munurinn
væri að nýja varan væri þrisvar
sinnum sterkari og jafnvel betri
sem því næmi. I ljós kom að þessi
nýja vara var unnin úr svokölluð-
um úrgangsendum (scrap tails),
sem ekki er leyft að nota í rautt
ginseng frá Kóreu hvað þá Rautt
Eðal Ginseng. Ennfremur leiddu
rannsóknir Hollustuverndar ríkis-
ins í ljós að úrgangsendarnir inni-
héldu skordýraeitur yfir leyfileg-
um mörkum bæði í Þýskalandi og
Kóreu. Hér á landi vantar enn
sem komið er reglur hvað þetta
varðar fyrir náttúruvörur. Tekið
skal fram að Rautt Eðal Ginseng
frá Kóreu var rannsakað samhliða
af Hollustuvernd ríkisins og
fannst í því ekkert skordýraeitur.
Þegar þetta upplýstist varð það til
þess að Lyfja samdi við Eðalvörur
um að hætta að kalla Gintec vör-
una eðal og auglýsa hana 3 sinnum
sterkari og virtist þá málið sofna í
fjölmiðlum.
Neytendamál
Það er útaf fyrir sig gott að fyr-
irtæki geti sett niður deilur en ég
ætla, að fyrir neytendur ginsengs
skipti máli að vita sannleika máls-
ins, það er muninn á rótarbolnum
og öðrum plöntuhlutum, sem
stundum er reynt að drýgja afurð-
irnar með þegar þær eru malaðar
í hylki, til að hámarka
skyndigróða vafasamra framleið-
enda og óprúttinna söluaðila. í
bæði Kóreu og Kína nota grasa-
læknar eingöngu rótarboli en alls
ekki rótarenda, sem eru skornir af
og hent, þó þeir innihaidi ríflega
tvisvar sinnum meira af ginsen-
osíðum. Rautt kóreuginseng, sem
af mörgum er talið besta ginseng-
ið inniheldur 7 efnaflokka og þús-
undir virkra efna og efnasam-
Mismunandi hlutar
ginsengjurtarinnar
Blómin: Þroska fræ
í fyllingu tímans.
Laufin: Eru
notuð í jurtate.
Höfuð: Sagt hafa
mótvirkandi áhrif. Er
ekki notað með rótinni.
Rótarbolurinn:
Máttugasti hluti
jurtarinnar.
Stórar hliðarrætur
Smærri
hliðarrætur
Urgangs
rótarendar
banda. Eins og áður sagði inni-
heldur rótarbolurinn minna af
sumum ginsenosíðum en mun
meira af öðrum virkum efnum svo
sem súrum fjölsykrungum, sem
taldir eru hafa góð áhrif á áunna
sykursýki, auk ýmissa annarra
fjölsykrunga, sem sumir eru taldir
hafa góð áhrif á ónæmiskerfið
ásamt fituleysanlegum efnum,
sem sýnt hefur verið fram á að
hafa krabbameinshemjandi áhrif.
Þannig eru önnur innihaldsefni í
rótarendunum en í sjálfri rótinni
og samsetning þeirra ekki eins
góð. Abyrgum vísindamönnum
sem til þekkja og fjallað hafa um,
ber saman um að rétt samsetning
virkra efna skipti meira máli en
einhver massi af ginsenosíðum.
Þetta ættu lyfjafræðimenntaðir að
skilja. I Hávamálum stendur:
„Veit-a hinn, er vætki veit, marg-
ur verður af aurum api.“ I þessu
samhengi er það sérstakt umhugs-
unarefni að Lyfjabúðir Hagkaups
hafa boðað að „kýla niður lyfja-
verð“ með því að flytja inn eftirlík-
ingalyf.
Kóreumenn lýsa mismunandi
gæðaflokkum ginsengs á ljóðræn-
an hátt. Kóreska rauða ginsengrót-
in er flokkuð með eftirfarandi
hætti:
Heilar rætur.
Himneskur gæðaflokkur
(1. flokkur)
Jarðneskur gæðaflokkur
(2. flokkur)
Góður gæðaflokkur (3. flokkur,
jafnframt nefndur mannflokkur)
Hliðarrætur
Stórar hliðarrætur
Smærri hliðarrætur
Urgangs rótarendar
Grannir rótarendar
Hugtökin hliðarrætur og rótar-
endar vísa til minni rötarhluta
sem vaxa út úr rótarbolnum.
Blómin þroska fræ í fyllingu tím-
ans.
AGNAR WILHELM AGNARSSON,
Leifsgötu 28, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Fyrir „Grikk eða gjöÞ' fékk ég télf
stykki sælgæti, fjórtán smákökur
og þjrár tannkremstúpur.
Ég fékk ekki
reiðhjól...