Morgunblaðið - 12.12.1998, Side 79
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998 79
BRÉF TIL BLAÐSINS
Við viljum ekki
verða fórnarlömb
ölvunaraksturs
Rað-
greiðslur
Frá Leifí Steini Elíssyni:
NÝVERIÐ birtist í Morgunblaðinu
bréf frá Guðvarði Jónssyni og var yf-
irskrift þess „Hverjir búa við góð-
æri?“ Ég er hlynntur því að menn
komi skoðunum sínum á framfæri og
tel að það sé af hinu góða, að sem
flestir séu vel upp upplýstir um mál-
efni liðinnar tíðar og líðandi stundar.
Þegar menn taka sér penna í hönd
og skrifa bréf sem á að koma fyrir al-
menningssjónir er nauðsynlegt að
fara rétt með og falla ekki í þá
freistni að ýkja til þess að gera mál
sitt athyglisverðara. Þess vegna er
nauðsynlegt að leiðrétta útreikning
Guðvarðar og benda á að útskýringar
hans á viðskiptum þegar raðgreiðslm-
koma við sögu eru einhliða.
VISA ísland hefur um margra ára
skeið boðið viðskiptamönnum sín-
um, korthöfum og kaupmönnum, að
nota raðgi’eiðslur í viðskiptum. Hafa
þær reynst einkar vinsæll, öruggur
og ódýr kostur. Korthafar sem hag-
nýta sér raðgreiðslur VISA við kaup
á varanlegum munum greiða al-
menna skuldabréfavexti, lágan lán-
tökukostnað (2-3%) auk 120 kr.
færslugjalds. I sumum tilvikum þarf
að gi-eiða stimpilgjald (1,5%), sem
rennur til ríkisins.
Guðvarður tekur dæmi og heldur
því fram, sem alrangt er, að kostn-
aður vegna raðgreiðslna fyrir
100.000 kr. úttekt til 24 mánaða sé
45.000 kr. Hið rétta er að heildar-
kostnaður vegna slíks raðgi’eiðslu-
samnings, miðað við núgildandi
vaxtakjör (12,5% á ári) er 18.161 kr.
Þarna hefur Guðvarður því ýkt um
148%. Hann segir að í þessu tilviki
hefði staðgreiðsluverð verið 90 þús.,
þ.e. að 10% afsláttur hefði verið
veittur. Það er rétt, að stundum
veita kaupmenn staðgreiðsluafslátt,
en það er líka rétt að margir kaup-
menn líta á móttöku raðgreiðslu-
samnings sem staðgreiðslu, enda um
örugg viðskipti að ræða.
Hann tekur annað dæmi um að
maður kaupi sér bfl á eina milljón og
greiði hann með raðgreiðslum til 36
mánaða og heldur því fram að kaup-
andinn greiði að lokum 1 millj. og
400 þús. Einnig þar fatast Guðvarði
reikningslistin, því hið rétta er, að
miðað við núverandi vaxtakjör
greiðir kaupandinn 1.240.205 kr.,
þ.e. liðlega 240 þús. í kostnað í stað
400 þús., sem er 66,5% hærra en hið
rétta.
Líta má svo á að hinn rétt reikn-
aði kostnaður sé í raun greiðsla fyrir
nýtingu búnaðarins, hvort sem um
er að ræða sjónvarpið, ísskápinn,
hljómtækin eða hjónarúmið, fyrir
utan ánægjuna af því að geta notið
hins keypta fyrr en ella. Svo má ekki
gleyma því að sá sem staðgreiðir
missir væntanlega af ávöxtun þeirra
fjármuna sem hann innir af hendi
við kaupin.
Það er kaupandans að meta hvort
það hagræði sem af því hlýst að fá
vöruna afhenta strax sé þess virði
sem upp er sett, m.a. með tilliti til
hærra verðs vegna afborgunarvið-
skipta. Raðgreiðslur VISA hafa
einmitt leitt til þess að verulega fleiri
einstaklingar geta notið ýmissa lífs-
ins gæða fyrr en ella. Raðgi’eiðslur
VISA eru, eins og að var stefnt,
mjög hagkvæmur kostur þegar vör-
ur eru keyptar með afborgunum.
Virðingarfyllst.
LEIFUR STEINN ELÍSSON,
aðstoðarframkvæmdastjóri
VISA íslands.
: jCBi ^
VJvt
UNDIR-
■r FATALÍNA
■
■ H V
Kringlunni
S.553 7355 mieiini
Frá hópum 82 og 83 í Reykjuvík hjá
Sjóvá-Almennum:
VIÐ ERUM 2 hópar sem voru á
námskeiði ungra ökumanna hjá Sjó-
vá-Almennum í Reykjavík og í lok
nóvember. Við skoðuðum sérstaklega
ölvun ökumanna í umferðinni og eitt
af algengustu vandamálum ungra
ökumanna, of stutt bil milli bfla.
Ölvunarakstur
Samkvæmt könnun sem Sjóvá-Al-
mennar leggja fyrir okkur sem koma
á námskeiðin viðurkenna 45% okkar
að hafa ekið undh’ áhrifum áfengis.
Við vitum nú að neysla áfengis skerð-
h’ líkamlega og andlega hæfni okkai’
til að bregðast við þeim aðstæðum
sem upp kunna að koma, því megum
við aldrei aka eftir að hafa neytt
áfengis. Setjum okkur þá reglu að
skilja bflinn og bfllyklana eftir heima
þegar við förum að skemmta okkur.
Reynum að gera allt sem við get-
um til að koma í veg fyrir að vinir
okkar aki fullir, jafnvel beita þá
harðræði, þeir munu þakka okkur
það seinna.
Við hvetjum leigubflastöðvar til að
fleiri leigubílar séu fyrir hendi að
nætmdagi. Og ekki myndi skaða að
lækka verð á leigubílum. Við viljum
ekki verða sjálf „fórnarlömb" ölv-
aðra ökumanna og heldur ekki að
aðrir verði okkar „fórnarlömb". Okk-
ur þykir vænt um okkur sjálf, þess
vegna ökum við ekki ölvuð.
Bil milli bfla
Samkvæmt skýrslum hjá Sjóvá-
Almennum eru 26% allra tjóna í okk-
ar aldushópi vegna aftanákeyrslna.
Þar sem þessi tjón eru svo algeng og
oft verða slys við aftanákeyrslur vilj-
um við koma með nokkrar tillögur
um það hvernig draga megi úr þeim.
Bil á milli bíla þarf að lengja veru-
lega en auðvitað þarf það að vera
mislangt eftir hraða. Gott er að
fylgja 1001-1002-1003 reglunni en
hún gerir ráð fyrir að við séum 3
sekúndum fyrh- aftan næsta bfl. Ef
við erum nær, er veruleg hætta á
aftanákeyrslu.
Hafa þarf mun meira bil í hálku,
snjó og á blautum vegi en þegar að-
stæður eru bestar og ekki er nóg að
horfa á bílinn næst fyrir framan,
heldur þá bfla sem þar eru fyrir
framan.
Margar aftanákeyi’slur verða
vegna þess að við horfum eitthvað
annað og sjáum ekki þegar bfllinn
fyrir framan stöðvar. Því er um að
gera að fylgjast betur með umferð-
inni fyrir framan.
Við þurfum að muna að fylgjast
einnig vel með bflum sem eru fyrir
aftan okkur og ekki hemla snöggt
ÁFENGI hefur meiri áhrif á
hæfni okkar sem ung erum og við
þurfum minna af því til að verða
óhæf sem ökumenn en þeir sem
eldri eru og er það nógu slæmt
hjá þeim. (Myndin er sviðsett.)
nema brýna nauðsyn beri til. Við
þurfum að hafa bremsuljós alltaf í
lagi og fylgjast reglulega með þeim.
Að lokum minnum við ykkur á að
hafa ökuljós kveikt - alltaf.
F.h. hópa 82 og 83 í Reykjavík,
EINAR GUÐMUNDSSON,
forvarnarfulltrúi Sj óvár-AImennra.
LLOYII
SKÓR FYRIR KARLMENN
NYKOMIN SENDING
Litir: Svartir • Stærðir: 40-46
Tegund: Siesta • Verð kr. 12.990
Yfir 50 tegundir til
DOMUS MEDICA
við Snorrabraut • Reykjovik
Sími 551 8519
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
KRINGLAN
Kringlunni 8—12 • Reykjavík
Sími 5689212
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS • 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
ÍBÍM»
Helgartilboð
Stærðir 36-46
Verð áður kr. 7.995
Verð nú kr. 5.990
Ath. gildir um helgina eða meðan birgðir endast.
Opið laugard. kl. 10-20, sunnud. kl. 13-18
Sendum í SKÓUERSLUN
póstkröfu samdægurs KÚPAUOGS HflMRABORG 3 • SÍMI 55A 175fl
Kápurfrá
Hensel & Mortensen
Jólagjöfin
•t'^
Zr'jjjtjJujjáÍ
Innspr.borð og stólar 83.780 stgr.
Borð og stólar aðeins 137.300 stgr.
Opið í dag 10-18, sunnudag 14-17
VISA
□□□□□□
HUSGAGNAVERSLUN
f
BORÐSTOFUHÚSGÖGN f
NÝ SENDING - MIKIÐ ÚRVAL ^
36 raán. Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 565 4100 36 mán.