Morgunblaðið - 12.12.1998, Qupperneq 92
MORGUNBLAÐID, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI569 1100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ&MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Metþátttaka var í hlutafjárútboði Búnaðarbankans hf. sem lauk í gær
Þriðji hver mað
ur skráði sig
ÚTLIT er fyrir að þriðjungur þjóð-
arinnar, eða um 90 þúsund einstakl-
ingar, hafi skráð sig fyrir hlut í út-
boði Búnaðarbankans hf. sem lauk í
—gær. Alls voru boðnar út 350 milljón-
ir króna að nafnverði á föstu gengi
2,15. Einstaklingum gafst kostur á
að skrá sig fyrir allt að 500 þúsund
krónum að nafnverði eða tæplega 1,1
milljón kr. að söluverðmæti.
Að sögn Arna Odds Þórðarsonar,
forstöðumanns markaðsviðskipta
Búnaðarbankans, er Ijóst að það
komi til verulegrar skerðingar og
áætlar hann að söluverðmæti hvers
hlutar verði um 8 þúsund krónur
þegar upp er staðið miðað við að 90
þúsund einstaklingar hafi skráð sig
fyrir hlut í bankanum. Hann segir að
farið verði yfir skráningarnar um
helgina og ættu niðurstöður að liggja
fyrir þegar á mánudag. Stefnt er að
skráningu hlutafélagsins á Verð-
bréfaþingi Islands í næstu viku.
Mikilvæg traustsyfirlýsing
Árni Oddur segir að búist hafi ver-
ið við mikilli umframeftirspurn en
enginn hafi átt von á þessari niður-
stöðu.
„Ljóst er að mikill fjöldi fólks vill
taka þátt í auknum umsyifum og
hagnaði Búnaðarbankans. Eg tel því
að stjómvöld ættu að flýta áformum
sínum um sölu bankans til almenn-
ings og annarra fjárfesta“.
Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, sagðist í samtali
við Morgunblaðið í gær gleðjast yfir
þessum áhuga almennings í útboðinu
sem hann sagði mikilvæga traustsyf-
irlýsingu á bankann. „Þetta sýnir
okkur að almenningur í landinu er að
gera sér betur ljóst hvernig íslensk-
ur hlutabréfamarkaður virkar og að
menn geti drýgt tekjur sínar með því
að kaupa hlutabréf í fyrirtækjum“.
Finnur telur útkomuna einnig bera
vott um að markmið ríkisstjórnarinn-
ar um dreifða eignaraðild í fyrirtækj-
unum hafi greinilega skilað sér. Að-
spurður um það hvort hinn mikli
áhugi á hlutafjárútboði Búnaðarbank-
ans gefi tilefni til að flýta einkavæð-
ingarferlinu, svarar Finnur neitandi.
Hann segir að upphafleg ákvörðun
ríkisstjómarinnar um að aðhafast
ekki frekar á þessu kjörtímabili
standi óbreytt. „Búnaðarbankinn hef-
ur verið að stækka og þessi hlutafjár-
aukning sem nú hefur átt sér stað
mun vafalaust efla fyrirtækið og auka
verðmæti þess enn frekar í framtíð-
inni. Hlutafjárútboðin í ríkisbönkun-
um þremur hafa öll gengið mjög vel
og ættu að kveða niður þær gagnrýn-
israddir sem vildu halda hlutunum
með óbreyttu formi. Þátttakan í
hlutafjárútboði Búnaðarbankans er
farsæll endir á góðu ári og ekki ólík-
legt að jólagjöfin í ár verði hlutabréf í
Búnaðarbankanum“, segir Finnur.
Vorlaukar
farnir að
gægjast upp
ALLRA bráðlátustu vorlaukar
em farnir að gægjast upp úr
moldinni í húsagörðum vegna
hlýinda sem verið hafa á Suð-
vesturlandi undanfarið. Jó-
hann Pálsson garðyrkjustjóri
segir að ekki sé óalgengt að
þetta gerist í hlýindaköflum í
desember.
Jóhann segir að gróandi sé
þó almennt ekki byrjaður. I
vesturbænum þykjast menn
hafa séð græna gróðurslikju
yfir KR-vellinum við Frosta-
skjól og sagði Jóhann að það
kynni að vera rétt, því þama
vestur undir sjó væri meira út-
hafsloftslag en þegar drægi
innar á nesið. Hann benti hins
vegar á að þegar jörð væri auð
og hlýindi mikil setti mosinn
græna slikju yfir velli.
Aðalframkvæmdirnar á veg-
um garðyrkjustjóra um þetta
leyti er grisjun skóganna í
Öskjuhlíð og Elliðaárdal og
farið verður að huga að sán-
ingu sumarblóma strax eftir
áramót.
105 prófess-
orar senda
áskorun
til Alþingis
HUNDRAÐ og fimm af rösklega
150 starfandi prófessorum í Há-
skóla íslands hafa undimitað yfir-
lýsingu vegna dóms Hæstaréttar í
máli Valdimars Jóhannessonar.
Þeir segjast þar telja að dómurinn
marki þáttaskil.
I yfirlýsingunni segir meðal ann-
ars: „Dómur Hæstaréttar kveður á
um, að núgildandi lög um stjórn
fiskveiða brjóti gegn jafnræðisregl-
um í stjómarski-á lýðveldisins. Al-
þingi ber skylda til að hlíta dómi
Hæstaréttar og breyta þessum lög-
um á þann veg, að úthlutun fisk-
veiðiheimilda samrýmist ákvæðum
stjórnarskrárinnar um jafnræði
þegnanna gagnvart lögum og að
ákvæði laga um sameign íslensku
þjóðarinnar á nytjastofnum á Is-
landsmiðum sé virt.“
Þá kemur fram að þar eð kennslu
er lokið á haustmisseri hafi ekki
náðst í allmarga prófessora, einkum
þá sem em erlendis, til að leita eftir
því að þeir undirrituðu yfirlýsing-
una.
■ Yfirlýsing/11
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
GUÐMUNDUR Halldórsson, trillukarl í Bolungarvík, segir Gunnlaugi M. Sigmundssyni alþingismanni skoðanir sínar umbúðalaust.
Mikil óánægja trillukarla á Yestfjörðum með frumvarp sjávarútvegsráðherra
Grundvellinum kippt
undan rekstri smábáta
MIKIL óánægja er hjá smábátasjómönnum á
norðanverðum Vestfjörðum með frumvarp sjáv-
arútvegsráðherra um breytingar á fiskveiði-
stjómuninni og hafa þeir kallað á þingmenn kjör-
dæmisins einn af öðmm til fundar við sig til að
knýja á um afstöðu þeirra.
Það virðast einkum vera tvö atriði sem valda
áhyggjum smábátasjómannanna. Annars vegar er
það kvótasetning ýsu og steinbíts en útgerð
margra báta hefur byggst á frjálsri veiði þeirra
en þorskurinn verið nokkurs konar meðafli. Hins
vegar er afnám sóknardagakerfísins og úthlutun
heildaraflans á mikinn fjölda báta sem trillukarlar
*i'ullyrða að þýði að hver bátur fái aðeins 9-10
tonna þorskkvóta sem eigi að koma í stað mögu-
leika til frjálsra veiða í 40 daga á ári. Þetta segja
margir að kippi gersamlega rekstrargrandvellin-
um undan útgerð bátanna.
Vöxtur hefur verið í útgerð smábáta á Vest-
fjörðum, ekki síst í Bolungarvík. Þeir sem hafa
verið að kaupa báta, eldri báta eða nýsmíði, hafa
>rnn ekki öðlast veiðireynslu í ýsu og steinbít og
eiga því ekki von á kvóta í þessum tegundum.
Sumir segja að með þessu séu rekstrarforsendur
fallnar. Sjónarmið era reyndar aðeins mismun-
andi eftir stöðum. Þannig er áberandi minni ótti
við breytingarnar á Suðureyri en í Bolungarvík.
Helgast það væntanlega af því að Súgfirðingar
hafa mikið veitt af ýsu og steinbít og hafa því öðl-
ast allgóða veiðireynslu þegar til úthlutunar kem-
ur. Mikill vöxtur hefur aftur á móti orðið í smá-
bátaútgerð í Bolungarvík á þessu ári og þeir bát-
ar hafa enga eða litla veiðireynslu og fá því lítinn
ýsu- og steinbítskvóta.
Einn útgerðarmaður sem nýlega keypt úreld-
ingarrétt fyrir tæpar 11 milljónir segir að sú fjár-
festing verði væntanlega verðlaus með breyting-
um á lögunum.
Útgerð smábáta hefur verið
eini vaxtarbroddurinn
„Þetta er dauðadómur yfir þeim byggðum sem
byggja mikið á smábátaútgerð," segir Falur Þor-
kelsson, formaður Hörpu, sem er félag smábáta-
eigenda í Bolungarvík. Falur var í gær ásamt
25-30 félögum sínum á fundi smábátasjómanna
með Gunnlaugi M. Sigmundssyni, þingmanni
Framsóknarflokksins.
„Það er búið að taka frá okkur togarana og
kvótann og útgerð smábáta hefur verið eini
vaxtarbroddurinn hér í sjávarútvegi að undan-
förnu. Mennirnir hafa haft góð laun á sumrin
og fjöldi fólks fengið vinnu við að beita fyrir
aflahámarksbátana svo hægt hafi verið að gera
þá út með fullum krafti. Menn hafa verið að
láta smíða og kaupa hingað nýja báta sem enga
veiðireynslu hafa í ýsu og steinbít. Ég gæti trú-
að því að 10-11 bátar hér hafi möguleika til að
veiða 2.000 til 3.000 tonn af þessum utankvóta-
tegundum. Aformuð lagabreyting tekur ekki
einungis af þennan vaxtarbrodd heldur færir
okkur mörg ár aftur í tímann. Ég gæti trúað
því að veiðimöguleikar þessara báta í ýsu og
steinbít minnkuðu um 70-80% og það mun
fækka störfum í beitningu um 20-30. Þetta er
ekkert annað en aðför að landsbyggðinni,11 seg-
ir Falur.
■ Dauðadómur/12