Morgunblaðið - 22.12.1998, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga styður
samninginn um Sjúkrahús Reykjavíkur
Samhljóða stefnu-
mörkun félagsins
„AKVORÐUN um yfírtöku ríkisins
á rekstri Sjúkrahúss Reykjavíkur
er hárrétt ákvörðun og við styðjum
hana heilshugar," sagði Ásta Möll-
er, formaður Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga í samtali við
Morgunblaðið í gær. Félagið
samþykkti fyrr á árinu stefnu sína
í framtíðarskipan sjúkrahúsamála í
Reykjavík sem nefnd félagsins tók
saman en niðurstaða hennar er sú
að ábyrgð á rekstri Sjúkrahúss
Reykjavíkur skuli flutt til ríkisins.
„Það hefur lengi verið talað um
sameiningu eða ekki sameiningu og
teknar saman margar skýrslur en
engar ákvarðanir teknar fyrr en nú
og við fögnum henni mjög enda er
hún að verulegu leyti samhljóða
stefnu félagsins um framtíðarskipan
sjúkrahúsamála í Reykjavík,“ sagði
Asta Möller ennfremur.
Ásta sagði að eftir mikla um-
ræðu og skýrslugerðir um sjúkra-
húsamálin síðustu árin hefði stjórn
félagsins ákveðið að setja fram
stefnu félagsins í þessum málum
og kynna hana. Sjö manna nefnd
sem skipuð var fulltrúum frá
stjórn félagsins og hjúkrunar-
stjórn sjúkrahúsanna, tók skýrsl-
una saman og skilaði niðurstöðu
sinni í apríl. Hún var kynnt borg-
arstjóra, heilbrigðisráðherra og
fjármálaráðherra og sagði Ásta
þessa aðila alla hafa tekið hug-
myndunum vel.
„Stjóm félagsins er því mjög
ánægð með þennan samning ríkis-
ins og Reykjavíkurborgar nú enda
er byggt á sömu megin hugmynd-
inni, að ábyrgð á rekstri SHR verði
flutt til ríkisins og að það og Land-
spítalinn verði rekinn sem
parsjúkrahús,“ segir formaðurinn.
„I skýrslu Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga er parsjúki-ahús skil-
greint þannig: Hlutverk parsjúkra-
húss má skilgreina sem formlega
samvinnu tveggja sjúkrahúsa undir
einni yfirstjórn en með tveim fram-
kvæmdastj órum.“
Mögulegt að auka
verkaskiptingu
Ásta bendir á að í samningnum
um SHR sé ekki um sameiningu að
ræða heldur breytta yfirstjórn og
segir hún engar forsendur fyrir
því að Reykjavíkurborg, eitt sveit-
arfélaga, reki sjúkrahús. Hún seg-
ir að með þessu sé hægt að auka
verkaskiptingu sjúkrahúsanna til
dæmis með því að sameina þær
deildir sem veiti sérhæfðustu og
dýrustu þjónustuna við sama
sjúklingahópinn og auka megi
samvinnu milli annarra sérgreina.
I því sambandi bendir hún á
hversu vel hafi tekist til með flutn-
ing allra öldrunarlækninga sjúkra-
húsanna í Reykjavík á Landakots-
spítala.
í skýrslu Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga segir m.a. svo um
parsjúkrahús: „Með parsjúkrahúsa-
fyrirkomulagi væri unnt að sam-
hæfa starfsemi sjúkrahúsanna bet-
ur með tilliti til þjónustu, koma í
veg fyrir óþarfa, tvöfóldum á t.d.
vöktum, minnka yfirbyggingu í
stjórnun, auka hagræðingu
varðandi tækjakaup, samræma
upplýsinga- og tölvutækni og koma
í veg fyrir óþarfa kostnaðarsamar
fjárfestingar. Skipulag á samdrætti
yfir sumartímann yrði auðveldara
sem og skipulag á biðlistum."
Hefði mátt kynna
fyrst, meðal starfsmanna
Hún kveðst ekki óttast að hags-
munir hjúkrunarfræðinga við SHR
verði fyrir borð bomir. „Nei, ég hef
hitt fjölmarga hjúkrunarfræðinga
og mér heyrist mikil ánægja í röð-
um þeirra með þessa ákvörðun.
Margir lýstu því samt yfir að kynna
hefði mátt þessa ákvörðun fyrst
meðal starfsmanna. Það gildir bæði
um hjúkrunarfræðinga á SHR og
Landspítala enda fundum við það
þegar við kynntum skýrsluna að
þetta var það sem hjúkrunai--
fræðingarnir vildu.“
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Jólaljós kveikt á Iðubrú
JÓLASKREYTINGIN á bnínni yfir Hvítá, Iðubrú í
Biskupstungum, lýsir sannarlega upp skammdegið.
Brúin er 170 metra löng og var smíðuð 1957. Ný-
stofnað Framfarafélag Laugaráss og nágrennis átti
frumkvæðið að þessu framtaki.
Kostnaður við lýsinguna er 2-300 þúsund krónur
og þaðfé leggja félög, fyrirtæki og einstaklingar
fram. Oll vinna við verkið er gefin svo hreppssjóður
er látinn ósnertur. Það var Margrét Guðmundsdótt-
ir á Iðu sem tendraði ljósin.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
VINDLARNIR eru geymdir við kjörrakastig í sérstökum
vindlaskápum í verslun Nýkaups.
Matvöruverslunin Nýkaup hefur
sölu á Davidoff-vindlum
Geymdir með
sérstökum hætti
1 læstum skápum
MATVÖRU VERSLUNIN Ný-
kaup í Kringlunni hefur hafið
sölu á Davidoff-vindlum sem er
ein þekktasta vindlategund í
heiminum, og eru vindlamir
geymdir í sérstaklega raka-
stilltum hirslum til að varð-
veita þá með sem bestum hætti.
Davidoff-vindlar em handvafð-
ir í Dóminíska lýðveldinu fyrir
svissneskt fyrirtæki sem stend-
ur að framleiðslunni.
Árni Ingvarsson innkaupa-
stjóri Nýkaups segir að vindl-
ar þessir hafi verið seldir um
allan heim sem hágæðavara en
eingöngu fengist hérlendis í
fríhöfninni og á fáeinum veit-
ingastöðum.
Um tilraun að ræða
Nýkaup selur vindlana í
pökkum, frá fjórum vindium í
pakka til tíu, og er um tíu mis-
munandi tegundir að ræða, allt
frá smávindlum til vindla af
stærstu gerð. Tíu smávindlar í
pakka kosta 699 krónur en
fimm vindlar af stærstu gerð í
pakka kosta 4.998 krónur.
„Eðli málsins samkvæmt þurf-
um við að selja vindlana dýrara
en þeir em í fríhöfninni en ef
við beram okkur saman við
veitingastaði, sem starfa í sam-
bærilegu umhverfi, er verð-
munurinn á milli 20 og 40%.
Þarna er um tilraun að íæða
og við munum athuga á næstu
mánuðum hvemig til tekst, en
ef þetta gefst vel stefnum við
að því að hafa meira vömúrval
og selja vindlana í fleiri versl-
unum,“ segir Árni.
Hann segir að fyrirtækið
óttist ekki að þetta tiltæki veki
hörð viðbrögð þeirra sem berj-
ast gegn reykingum. „Til að
takmarka aðgengi geymum
við vindlana í læstum skáp
þannig að viðskiptavinir þurfa
að biðja um aðstoð hjá starfs-
manni til að geta keypt þá.
Þar að auki em vindlarnir
rækilega merktir með tóbaks-
varnamiðum og að óheimilt sé
að selja fólki yngri en 18 ára
tóbak," segir hann.
Fyrirtækið Niko hefur flutt
Davidoff-vindla hingað til lands
seinustu átta ár. Sigurður K.
Kolbeinsson, framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins, segir að
undanfarin ár hafi gætt vax-
andi áhuga á vindlum.
25% vindlareykinga-
manna konur
„Fólk hefur mikið til hætt
að reyka sígarettur og sér í
vindlum annan farveg til að
njóta tóbaks án þess að menga
líkamann að staðaldri. Áhugi
fólks á vindlum hefur farið
vaxandi og nú er talið að þeg-
ar litið er til alls heimsins séu
25% þeirra sem kaupa og
reykja vindla konur. Með auk-
inni eftirspurn hefur orðið
ljóst að vindlar þyrftu að fást í
almennum verslunum en menn
hafa lengi hikað því að þetta
er dýr vara, enda handgerð og
fá lönd í heiminum sem búa
við ákjósanlegt veðurfar til að
framleiða gæðavindla.
Nýkaup vill hins vegar auka
vömúrval og þjónustu og
sýndi áhuga að fyrra bragði,
þannig að við slógum til þó að
við hefðum ekki áætlað að
selja vindlana með þessum
hætti. Það er tryggt að vindl-
arnir séu geymdir við rétt
skilyrði og miðað við verslanir
í nágrannalöndum er verðið í
Nýkaupi hagstætt,“ segir Sig-
urður.
...IPAKKANN ÞINN
o
FjÖRÐUR
miöbœ Hafnarjjardar
■APF Útivislargíillar
verð frá kr. 11.500-
/ Gefðu góðan galla !
Jólagjöfin
fyrir kylfinginn
fæst hjá okkur!
%-Vtf
*S565 4533