Morgunblaðið - 22.12.1998, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Hernaðaraðgerðin „Eyðimerkurrefur“ tók 70 klukkustundir í framkvæmd
Hernaðarleg-
um markmiðum
náð en poli-
tískum ekki
London, Washington. Daily Telegraph, Reuters.
HERNAÐARAÐGERÐIN „Eyði-
merkurrefur" tók aðeins 70 klukku-
stundir í framkvæmd, en á þessum
stutta tíma fóru herflugvélar Band-
aríkjamanna og Breta í um 600
leiðangra yfir Irak, þar af 250 með
sprengjur, og 425 stýriflaugar voru
látnar rata að völdum skotmörkum.
Helmingi færri flugskeyti voru send
á loft í hinu 45 daga langa
Persaflóastríði 1991.
En þrátt fyrir að svo virðist sem
árásimar hafi skilað árangri í að
eyðileggja herstöðvar íraka og
meinta framleiðslustaði gereyðing-
arvopna, þá bendir ekkert til að þær
skiluðu Vesturveldunum nokkuð
áleiðis í að ná fram hinu víðtækara
pólitíska takmarki; að bola Saddam
Hussein frá völdum.
„Og allir komu þeir aftur“
Hver einasti árásarleiðangur var
farinn í myrkri í því skyni að setja
áhafnir herflugvélanna og óbreytta
borgara í írak í sem minnsta hættu.
Enginn særðist í liði bandamanna en
íraskir sjúki-ahússlæknar tilkynntu
um tugi látinna og hundruð slasaðra.
Aðgerðin öll var skipulögð sem
röð hámákvæmra árása á skotmörk
sem Bandaríkjamenn og Bretar
höfðu komið sér saman um. Ólíkt
stríðinu 1991 („Eyðimerkurstorms“-
aðgerðinni), þegar nokkrum óstýrð-
um flugskeytum var varpað á Irak,
var í þetta sinn eingöngu notazt við
tölvustýrðar fiaugar.
Stotmörkin sem sprengjur vora
látnar falla á vora tæplega eitt hund-
rað, flest í kringum Bagdad, Tikrit í
norðurhluta landsins og Basra í
suðri. Á sum var ráðizt oftar en einu
sinni. Meðal skotmarkanna voru 30
staðir sem taldir eru hafa tengzt
framleiðslu á gereyðingarvopnum,
33 flugvellir og hemaðarlegar
stjómstöðvar, 20 samskipta-
tæknistöðvar og 10 bækistöðvar
Lýðveldisvarðarins, úrvalsliðs Sadd-
ams Husseins forseta.
Að sögn var vísvitandi ekki ráðizt
á bækistöðvar herskylduhermanna.
Til þeirra var beint áróðursbækling-
um, sem varpað var úr flugvélum;
þeim var heitið að vera hlíft við árás-
um ef þeir héldu sig í búðum sínum.
En Lýðveldisvörðurinn, úrvalsliðið
sem Saddam Hussein hefur beitt
m.a. til að berja niður uppreisnartil-
raunir, fékk sinn skammt.
Hvað nákvæmlega kom út úr „að-
gerðinni Eyðimerkurref" verður að
bíða ýtarlegs mats á þeim skaða sem
hún olli, en Sir Charles Guthrie, yfir-
hershöfðingi brezka heraflans, sagði:
„Ef við hefðum sjálfir orðið fyrir öðr-
um eins árásum og Saddam hefur
núna þurft að þola, þá neyddist ég til
að tilkynna forsætisráðheiTanum að
ég myndi eiga í meiri háttar vand-
ræðum með að framkvæma hvers
konar hemaðaraðgerð, hvort sem er
til vamar eða árásar. Eg tel það góð-
an árangur, miðað við hvaða mæli-
kvarða sem er“.
Með því að hefja árásimar með
stýriflaugum frá bandarískum her-
skipum strax á miðvikudag tókst að
koma írökum á óvart. Með því að
byrja ekki leikinn með flugvélum
sem tóku á loft frá flugvöllum í
nágrannalöndum Iraks var komið í
veg fyiir hættuna á því að útsendar-
ar Iraksstjómar yrðu þess varir og
létu vita. Að sögn Guthries hers-
höfðingja reyndi Saddam að dreifa
Lýðveldisverði sínum í því skyni að
halda skaðanum í lágmarki en með
hinni óvæntu árás komst hann ekki
hjá því að verða fyrir töluverðum
skaða.
Stýriflaugar vora notaðar til
árásanna fyrstu nóttina, einkum til
að eyðileggja hinn tæknilega full-
komnasta hluta loftvamakerfis
Iraka, sem hefði getað reynzt flug-
vélum bandamanna skeinuhætt. Á
fimmtudagskvöldið tók svo herflug-
vélaflotinn til óspilltra málanna, auk
þess sem flugskeytaregnið hélt
áfram. Lítið var að fá af nákvæmum
Biil Clinton Bandaríkjaforseti lýsti því yfir seint á laugardagskvöld að
loftárásunum á írak, sem hófust á miðvikudagskvöld, væri lokið. Hann
og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sögðu hernaðaraðgerðina
“Eyðimerkurref" hafa skilað góðum árangri.
VJ
TYRKLAND
200 km
/ Mosul
36. breiddarbaugur
Flugbarmssvæði
SÝRLAND
i Sulaymaniyay
%%
Kirkuk -/ÁYYiY
ví/ V ÍRAN
Tikrit
-
Balad 7® C A! Rashicf
Bagdad -/jy Ý
7/’/ / /77' y ■ *
33. breiddarbaugur
Flugbannssvæði
SAUDÍ ARABÍA
As Sarnawah //TTC •v-v'fíA 1
/////y1 Al Basrah
Hæfð skotmörk: 97
þarámeðal:
★ 18 hernaðarlegar
stjórnstöðvar
i 19 byggingar Lýðveldis- varðarins
éL 11 meintir framleiðslustaðir
gereyðingarvopna
t 8 venjulegar herbúðir
h 1 efnahagslegt skotmark, Al Basrah olíuhr.stöðin
vy TaMi
'////sWagk
lalyah
/ KÚVEIT
f / /. Ar Rumalyah ________
\C//////t .
</// '
-,..,,1,, --— - V™™
..
Heimild: Jane’s Information Group *í
Stýriflaugar
325 skotið frá
bandarískum
herskipum
90 frá B52
sprengjuflugv.
upplýsingum um þau skotmörk sem
sögð voru tengjast framleiðslu Iraka
á efna- og lífefnavopnum, en vitað er
að eitt þessara skotmarka var flug-
vélaskýli, sem talið var geyma
nýjasta leynivopn íraka: fjarstýrðar
flugvélar útbúnar með vökvadreif-
ingarbúnaði af sama tagi og notaður
er til áburðardreifingar úr lofti, sem
taldar era hafa verið smíðaðar með
það fyrir augum að nota þær til að
flytja lífefnavopn á borð við miltis-
brand.
Nákvæmt mat á áhrifunum
gæti tekið mánuði
Willian S. Cohen, varnarmál-
aráðherra Bandaríkjanna, og Henry
H. Shelton, yfirmaður bandaríska
herráðsins, sögðu á sunnudag að
sprengjuárásimar hefðu skemmt
mjög fyrir áætlunum íraka um
þróun nýrra langdrægra eldflauga.
En þeir sögðu annars fátt um það að
hve miklu leyti árásimar hefðu dreg-
ið úr möguleikum Iraka á vopna-
framleiðslu og hættunni sem talin er
stafa af Irak í sínum heimshluta, svo
lengi sem Saddam Hussein er við
völd, en þetta voru yfirlýst megin-
markmið „Eyðimerkurrefs".
Cohen og Shelton sögðu að
nákvæmt mat á því að hve miklu
leyti árásimar hefðu sett hömlur við
áætlanir íraka um framleiðslu á
kjama-, efna- og lífefnavopnum gæti
tekið vikur, ef ekki mánuði. Þeir við-
urkenndu jafnframt að reikna mætti
með því að írakar hæfust snarlega
handa við að gera við þann skaða
sem árásimar ollu.
Til viðbótar við að hafa stöðvað
(a.m.k. um sinn) eldflaugasmíðaáætl-
un Iraka sögðu Cohen og Shelton að
loftárásimar hefðu eyðilagt að miklu
leyti leyniþjónustu, kerfi upplýsinga-
söfnunar og samskiptatækni sem og
áróðursnet Saddam-stjómarinnar.
„Það má vera að Saddam reyni að
byggja aftur upp hernaðarmátt sinn,
rétt eins og hann hefur komið sér
upp fjölda nýrra bygginga - þar á
meðal íburðarmikilla forsetahalla -
efth- eyðileggingu Persaflóastríðsins
1991,“ sagði Cohen. „En við höfum
minnkað möguleika hans á að ógna
grannríkjunum bæði með
hefðbundnum og óhefðbundnum
vopnum.“
Sljómin sögð sterkari en fyrir
árásimar
En þrátt fyrir að svo virðist sem
árásimar hafi skilað hemaðarlegum
árangri, þá bendir ekkert til að þær
skiluðu vesturveldunum nokkuð
áleiðis í að ná fram hinu víðtækara
pólitíska takmarki; að bola Saddam
Hussein frá völdum.
Svo virðist sem Saddam sé að
árásunum loknum sízt með lakari
tök á valdataumunum í landinu en
áður. Hann vann sér inn velvilja
Frakka, Rússa og Kínverja, en allar
þessar þrjár þjóðir hafa fastafulltrúa
með neitunarvaldi í öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna. Og Palestínu-
menn á Vesturbakkanum, mótmæ-
lendur í Jemen, Sýrlandi og Jór-
daníu þustu út á götur og torg til að
lýsa stuðningi við Iraka.
Fréttaritari New York Times í
Bagdad hafði eftir erlendum sendi-
erindreka þar að sem hemaðarað-
gerð hefði þetta verið verkefni sem
gekk fullkomlega upp. „Mikilvæg
skotmörk voru hæfð, engar flugvélar
töpuðust og skemmdir utan settra
skotmarka vora sáralitlar. En þetta
var ekki bara hemaðaraðgerð. Aðal-
tilgangurinn var að veikja stjómina,
en hún er núna sterkari en nokkru
sinni. Hann er hetja meðal fjöldans í
arabalöndunum vegna þess að hann
stóð uppi í hárinu á Band-
aríkjamönnum. Hvaða harðstjóri
hefur haldið velli í stríðsástandi
svona lengi?“
Daglegt líf ósnortið
Daglegt líf truflaðist lítið á meðan
á árásunum stóð. Kaupmaður nokk-
ur sem blaðamaður New York Times
tók tali sagði að í samanburði við það
sem hann hefði upplifað í stríðinu við
Iran og í kjölfar innrásarinnar í
Kúveit 1991 væru þessar árásh-
„ekki meira ógnvekjandi en rign-
ing“-
„Bandarískur almenningur er
góður, en leiðtogamir eru slæmir,“
sagði kaupmaðurinn. „Þeir eru
kúrekar. Þetta snýst allt um Mon-
icu.“
Grimmdarverk Saddams Iraksforseta tíunduð
Sekur um hópmorð
og fjöldaaftökur
London. The Daily Telegraph.
ROBIN Cook, utanríkisráðherra Bret-
lands, tíundaði grimmdarverk Saddams
Husseins Iraksforseta á blaðamannafundi á
laugardag og sagði að Saddam hefði m.a.
gerst sekur um hópmorð á Kúrdum og shít-
um, fjöldaaftökur og pyntingar á fóngum
og morð á trúarleiðtogum shíta í suður-
hluta landsins.
Cook sagði að allir meðlimir Ba’ath-
flokksins, flokks Saddams, þyrftu að sætta
sig við þá reglu að það varðaði dauðadómi
að segja sig úr flokknum og lýsa yfir stuðn-
ingi við andstæðinga harðstjórans. Allir,
sem starfa við þróun gereyðingarvopna 1
Irak, þyrftu einnig að skrifa undir skjal þar
sem þeir viðurkenndu að það varðaði dauð-
arefsingu að hætta þessum störfum án
heimildar yfírvalda.
„Mörg dæmi eru um fjöldaaftökur á
valdatíma Saddams," sagði Cook. „I
nóvember á síðasta ári voru t.a.m. 568
manns teknir af lífi í einu fangelsi. Viku síð-
ar voru 80 foringjar í her Saddams teknir
af lífi. Á valdatíma sínum hefur Saddam lát-
ið drepa 40 ættingja sína og þegar hann
hefur ekki náð óvinum sínum í eigin landi
hefur hann sýnt að hann getur látið myrða
andstæðinga sína í öðrum löndum. Einn af
andstæðingum hans fannst myrtur í Stokk-
hólmi í tveimur ferðatöskum.“
Klerkar shíta myrtir
Cook sagði að Saddam hefði einnig látið
myrða forystumenn shíta-múslima í suður-
hluta landsins. Mirz Ali al-Gharawi, 68 ára
erkiklerkur, hefði t.a.m. verið ráðinn af
dögum í bíl sínum á vegi milli borganna
Karbala og Najaf í júní. Ökumaðurinn,
tengdasonur erkiklerksins og aðrir farþeg-
ar hefðu einnig verið skotnir til bana. Irösk
yftrvöld höfðu haft í hótunum við klerkinn
og krafist þess að hann hætti að stjórna
bænasamkomum shíta.
Murtadaal-Burujerdi, 67 ára erkiklerkur,
var einnig skotinn til bana eftir að hafa
stjórnað bænasamkomu í Najaf í apríl.
Honum hafði verið skipað að hætta að
standa fyrir slíkum samkomum múslima
eftir að hann mótmælti afskiptum stjómar-
innar af trúmálum.
Allt að 150.000
Kúrdar myrtir
Talið er að leyniþjónusta írösku stjómar-
innar hafi ennfremur myrt andófsmanninn
og verkfræðinginn Qutaiba Ghazi Al-Sam-
arra í Dohuk í október 1996.
Hussein Kamel og Saddam Kamel,
tengdasynir Saddams, vom teknir af lífi í
febrúar 1996. Þeir höfðu flúið til Jórdaníu
nokkmm mánuðum áður og snera aftur til
íraks eftir að þeim var veitt sakarappgjöf.
Cook sagði að Saddam hefði gerst sekur
um hópmorð á shítum og Kúrdum. „Her-
ferðin gegn Kúrdum í Norður-írak varð um
70-150.000 manns að bana. I fyrirmælum,
sem einn af nánustu ættingjum Saddams
gaf, kom fram að taka ætti alla karla á aldr-
inum 15-70 ára af lífi. Rúmlega 1.200 þorp
voru lögð í rúst. Það var í þessari herferð
sem Saddam beitti efna- og sýklavopnum í
árás á þorpið Halabja þar sem hann drap
5.000 manns, en langflest þeirra vora konur
og börn þar sem karlmennirnir vora við
vinnu á ökranum."
Cook sagði að Saddam hefði einnig
framið hópmorð á shítum á fenjasvæðunum
í Suður-Irak og 150.000 manns hefðu
neyðst til að flýja þaðan eftir að ræktarlönd
þeirra vora þurrkuð upp.
Þúsundum hermanna
ætlað að vernda hann
„Auk hópmorðanna á minnihlutahópum í
eigin landi hefur Saddam auðvitað sýnt
nágrannaþjóðunum yfirgang. Saddam
hafði aðeins verið við völd í 12 ár áður en
gripið var til refsiaðgerðanna gegn honum
og stjórn hans. Af þessum tólf árum háði
landið stríð í níu ár. Ef refsiaðgerðirnar
hefðu ekki verið í gildi síðustu átta árin
hefði Saddam hafið stríð að nýju og hann
gerir sér fulla grein fyrir þeim fjandskap
sem hann hefur kallað yfir sig um Irak
þvert og endilangt með grimmdarverkum
sínum.“
Cook sagði að þúsundir íraskra her-
manna gegndu aðeins því hlutverki að
vernda Saddam fyi-ir írösku þjóðinni. Ur-
valssveitir hersins, Lýðveldisvörðurinn,
væra skipaðar 75.000 hermönnum og 8.000
þeirra væru í sérsveitum sem hefðu það
eitt að markmiði að vernda harðstjórann.
Saddam hefði einnig komið á fót sérstakri
öryggisstofnun, sem væri skipuð 2.000
mönnum og ætti að tryggja að Lýðveldis-
vörðurinn og sérsveitir hans snera ekki
baki við forsetanum.
Landsliðið pyntað
Cook sagði að stjórn Saddams beitti
óspart pyntingum til að refsa þeim sem
þora að gagnrýna hann og helsta pynting-
araðferðin fælist í því að berja iljar þeirra.
Sonur Saddams, Udai, hefði jafnvel fyrir-
skipað slíkar barsmíðar á öllu knattspymu-
landsliði íraks í fyrra þegar það tapaði leik
og missti þar með af tækifæri til að taka
þátt í úrslitamóti heimsmeistarakeppninn-
ar. Glorsoltnir hundar hefðu einnig verið
látnir ráðast á andófsmenn í íröskum fang-
elsum.