Morgunblaðið - 22.12.1998, Blaðsíða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag Akureyrar
HINN 8. desember lauk hraðsveita-
keppni Bridsfélags Akureyi'ar. Sveit
Stefáns G. Stefánssonar vann örugg-
an sigur, hlaut 1.098 stig. Auk
Stefáns spiluðu í sveitinni Sigurbjörn
Haraldsson, Grettir Frímannsson og
Pétur Guðjónsson. Hörð barátta var
um annað sætið. Sveit Gylfa Pálsson-
ar hreppti silfrið með 1.040 stig,
þriðja varð sveit Prebens Pétursson-
ar með 1.039 stig og fjórða sv. Björns
Þorlákssonar með 1.005 stig.
Hinn 15. desember var spilaður
KEA-hangikjöts tvímenningur í til-
efni jólanna. Sigurvegarar urðu
Kristján Guðjónsson og Stefán G.
Stefánsson með 44 í plús, aðrir þeir
Pétur og Grettir með 38 og þriðju
Hjalti Bergmann og Sveinbjörn Sig-
urðsson sem hlutu 35.
Síðasta þriðjudag fyrir jól verður
opið hús hjá BA í Hamri og spilaður
Mitchel-tvímenningur.
Silfurstigamót á Akureyri
Árlegt íslandsbankamót Brids-
félags Akureyrar og íslandsbanka
verður haldið á Fosshóteli KEA
sunnudaginn 27. des. 1998. Þetta er
silíúrstigamót og keppnisformið verð-
ur Monrad tvímenningur (baromet-
er).
Spilamennska hefst kl. 10 stund-
víslega og stendur til kl. 18 með
matarhléi.
Verðlaun: Flugeldar og bikarar.
Þátttökugjald: 2.000 kr. á par.
Innifalið: Meðlæti með morgun-
kaffinu og molakaffi allan daginn.
Skráning hjá Stefáni, hs. 462 2468
til jóla og á mótsstað til kl. 9.45 spila-
daginn.
Aðsendar greinar
á Netinu
<g> mbUs
_ALUTAf= eiTTHXSAÐ NÝTT
ATVINNUAUG LÝ SINGAR
S J Ú KRAHÚ S
REYKJ AVÍ KU R
Lyflækningasvið
Yfirlæknir
Staða yfirlæknis smitsjúkdómadeildar Sjúkra-
húss Reykjavíkur er laus til umsóknar. Umsækj-
andi skal vera sérfræðingur í smitsjúkdómum.
Smitsjúkdómadeildin skiptist í legudeild og
göngudeild smitsjúkdóma, rannsóknarstofu
í veiru- og bakteríugreiningu, ráðgjöf og sýkla-
lyfjaeftirlit. Ætlast ertil að yfirlæknirtaki þátt
í kennslu og rannsóknarvinnu innan sérgrein-
arinnar.
Umsóknir um stöðuna med greinargóðum
upplýsingum um menntun, vísindarann-
sóknir og fyrri störf skulu sendar í tvíriti,
4- Jóhannesi M. Gunnarssyni, lækningafor-
stjóra Sjúkrahúss Reykjavíkur fyrir 20.
janúar 1999.
Fallegt og heimilislegt hjúkrunarheimili
í Mjóddinni
óskar eftir hjúkrunarfræðingum á næturvakt-
ir og sjúkraliðum í fullt starf og hlutastörf.
Um er að ræða störf nú þegar eða eftir sam-
komulagi.
Óskað er eftir fólki, sem getur sýnt áhuga,
lipurð og virðingu í mannlegum samskiptum.
Hjúkrunarheimilið Skógarbær er bæði fyrir
eldri og yngri einstaklinga sem þurfa sólar-
hringsumönnun og stuðning við að lifa farsælu
lífi þrátt fyrir fötlun og sjúkdóma.
Hjúkrunarheimilið Skógarbær gefurstarfsfólki
möguleika til að vinna í fallegu umhverfi við
gefandi starf við að móta nýja starfsemi.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri
Skógarbæjar, María Ríkarðsdóttir, s. 510 2100.
f Er mikið álag á skiptiborðinu?
Árstíðasveifla, námskeið, veikindi?
Láttu okkur svara í símann
Getum gefið beint samband í beina innanhússíma
Traust þjónusta, góð reynsla Verð frá 8.500 á mán.
Símaþjónustan Bella Símamœr
Sími; 520 6123 http'Jfkonmd.ssfsima
Blaðberi óskast
í Voga á Vatnsleysuströnd.
► I Upplýsingar hjá umboðsmanni í
I síma 424 6535.
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar
fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í
upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 53.000 eintök á dag.
Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru hátt
í 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
sos
Vegna veikindaforfalla vantar kennara við
Seljalandsskóla frá áramótumtil vors. Um er
að ræða samkennslu barna í 2.-4. bekk.
Áhugasamir hafi samband við skólastjóra í
síma 487 8917, 862 1415 eða formann skóla-
nefndar í síma 487 8903.
tilboð/útboo
íslenska járnblendifélagið hf
Útboð
Loftræsting ofnhús 3
íslenska járnblendifélagið hf. óskareftirtilboð-
um í loftræstikerfi fyrir ofnhús og spennistöð
vegna stækkunar verksmiðju félagsins á
Grundartanga.
Fyrsta áfanga verksins: Loftstokkar í spenni-
stöð, skal lokið eigi síðar en 15. mars 1999.
Öðrum áfanga verksins: Loftstokkar og tækja-
búnaður í ofnhúsi skal lokið eigi síðar en 25.
apríl. Síðasta áfanga verksins: Tækjabúnaður
á þaki spennistöðvar og stokkar utanhúss skal
lokið eigi síðar en 1. júní 1999.
Útboðsgögn eru á ensku og verða afhent hjá:
Verkfræðistofu Guðmundar og Kristjáns
hf., Laufásvegi 12, Reykjavíkfrá kl. 9.00
þriðjudaginn 22. desember 1998.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu íslenska járn-
blendifélagsins hf. á Grundartanga fimmtudag-
inn 14. janúar 1999 kl. 14.00 að viðstöddum
bjóðendum er þess óska.
TILKYNNINGAR
Victoría — Antik
Antík og gjafavörur — sígildar vörur kynslóð
eftir kynslóð. Gjafir sem ekki gleymast.
Antik er fjárfesting ★ Antik er lífstíll.
Sölusýning í dag og á Þorláksmessu kl. 14 til
20, Sogavegi 103. 15% jólaafsláttur.
Sími 568 6076 utan opnunartíma.
Geymið auglýsinguna.
Skrifstofa Hæstaréttar
íslands
verður lokuð á aðfangadag og gamlársdag.
HÚSNÆEJI ÓSKAST
íbúð með húsgögnum
óskast til leigu fyrir traust og gott fyrirtæki í
12—14 mánuði, frá janúar nk.
Ársalir ehf., fasteignamiðlun,
Lágmúla 5,108 Reykjavík,
sími 533 4200.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
SR
SR-MJÖL HF
Hluthafafundur
Stórn SR-mjöl hf. boðartil hluthafafundar
miðvikudaginn 30. desember 1998 kl. 14.00
í fundarsal á efstu hæð í Húsi verslunarinnar,
Kringlunni 7, Reykjavík.
Á dagskrá fundarins er:
Samruni SR-mjöls hf. og Jökuls hf. samkvæmt
fyrirliggjandi samrunaáætlun félaganna. Verði
samruninn samþykktur, þá felst jafnframt í
honum samþykki um hækkun á hlutafé SR-
mjöls hf. úr 947.000.000. í kr. 1.229.870.130.
Hækkuninni verður varið til greiðslu á öllum
hlutum hluthafa í Jökli hf.
Jafnframt er hluthöfum bent á, að skjöl, við-
komandi fyrirhuguðum samruna, skv. 5. mgr.
124. gr. hlutafélagalaga, hafa legið frammi á
skrifstofu félagsinsfrá 18. nóvember sl. auk
þess að hafa birst í Lögbirtingi. Skjölin munu
einnig liggja frammi á fundinum.
Stjórn SR-mjöls hf.
AT VI NNUHÚ5NÆÐI
Skrifstofuhúsnæði
150—250 fm óskast til leigu fyrir opinbera stofn-
un miðsvæðis í borginni, með aðgengi fyrir
fatlaða og má gjarnan vera laust sem fýrst.
Ársalir ehf., fasteignamiðlun,
sími 533 4200.
Til leigu Hverfisgata 14,
nýuppgert, um 400 fm skrifstofuhúsnæði, auk
100 fm bakhúss. Bílastæði fylgja. Leigutími
frá 1. febrúar 1999.
Upplýsingar í síma 896 5430, Rafn Einarsson.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
M. i </>
llifi
H.illvcigarstíg 1 • simi 561 4330
Áramótaferd
30. des.—2. jan. Áramóta-
ferð.
Farmiðasala í hina vinsælu ár-
amótaferð stendur yfir.
Farið á miðvikudagsmorgni í
Bása á Goðalandi við Þórs-
mörk og dvalið þar fram á
laugardaginn 2. jan. Boðið
verður upp á kvöldvökur og
gönguferðir undir leiðsögn
reyndra fararstjóra. Áramót-
um verður fagnað með flug-
eldum og glæsilegri áramóta-
brennu.
Upplýsingar um ferðir og
farmiðasala í helgarferðir
og lengri ferðir á skrifstofu
Útivistar í síma 561 4330.
Brottför og farmiðasala í
dagsferðir á Umferðarmið-
stöðinni.
Áramótaferðin er kynnt á
heimasíðu Útivistar:
centrum.is/utivist
FEBÐÁFÉLAG
@ ÍSLANDS
MÖRKINNIB - SlMI 568-2533
Áramótaferðin í Þórsmörk
30/12-2/1.
Brottför frá BSI, austanmegin,
miðvikudag 30/12 kl. 8.00. Pantið
og takið miða strax á skrifstofu,
Mörkinni 6, sími 568 2522, netf-
ang: fi@fi.is. Góð gisting i
Skagfjörðsskála. Það er mikil
upplifun að eyða áramótunum í
Þórsmörk.
Blysför frá Mörkinni 6 f
Elliðaárdal verður þriðjudag-
inn 29. desember kl. 18.00.
Glæsileg flugeldasýning Hjálpar-
sveitar skáta í lokin.
Gleðileg jól!
mbl.is