Morgunblaðið - 22.12.1998, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
f BJÖRGUNARSTÖÐINNI Líkn fór fram sýning á myndum úr starfi
deildarinnar sem hún er að koma sér upp. Gamlir munir voru til sýnis
ásamt nýjum búnaði hennar.
Morgunblaðið/Ólafur Jens Sigurðsson
HÁTÍÐARHÖLDIN hófust með messu í Ingjaldshólskirkju.
Afmælisfagnað-
ur Bjargar
á Hellissandi
Hellissandi - Slysavarnadeildin
Björg á Hellissandi er ein af elstu
starfandi deildum innan SVEI. Hún
var formlega stofnuð fyrstu daga
desembermánaðar árið 1928. Þá
hafði SVFI verið stofnað sumarið áð-
ur og var að hefja félagslega upp-
byggingu sína.
A Hellissandi voru menn fljóttr að
taka við sér og fógnuðu þessari nýju
hreyfíngu. Klettótt ströndin og
hættulegar varir heimtuðu flest ár
mörg mannslíf. Stutt var um liðið að
íbúar höfðu það fyrir augum að 40
menn tóku grafír sama daginn í
Ingjaldshólskirkjugarði vegna 11
manna sem fórust í Keflavikurvör-
inni. Þar máttu eiginkonur og böm
horfa á menn sína og feður drukkna
eða berjast til bana á klöppunum.
íbúar á Hellissandi hlutu því að taka
þessari hugsjón slysavarnanna fagn-
andi.
Slysavarnadeildin Björg stofnuð
Þegar SVFÍ hafði mótað félags-
lega uppbyggingu sína, að stofna
deildir vítt um landið, urðu íbúar á
Hellissandi fljótir að taka við sér.
Flestar fullorðnar manneskjur
gengu þegar í deildina og varð hún
mjög fjölmenn. Fyrsti formaður
hennar var kjörinn Olafur Jóhannes-
son formaður og hafnsögumaður,
síðai- fisksalj í Reykjavík. Trúnaðar-
maður SVFÍ á staðnum var hins veg-
ar Daníel Bergmann.
Þessir menn báðir fluttust héðan
fljótlega og þá kom það í hlut Bene-
dikts S. Benediktssonar kaupmanns
að taka þessa starfsemi uppá sína
arma og halda henni vakandi. Bene-
dikt gerði það fram á sjöunda ára-
tuginn en dró sig þá í hlé eftir að bú-
ið var að endurskipuleggja starfsemi
deildarinnar. Það var Hannes Haf-
stein sem líklega lagði granninn að
því. Björgunarsveit deildarinnar var
gefið meira svigrúm og sjálfstæði og
og Kvennadeildin Helga Bárðardótt-
ir var stofnuð. Helga Bárðai-dóttir
beitti sér fljótlega fyrir því að slysa-
vamaskýli var reist i Dritvík og veg-
ur var lagður niður á Djúpalónssand.
Var það mikið framtak á þeirri tíð.
Sjálfstætt unglingastarf fór líka að
starfa innan deildarinnar mjög fljót-
lega, eins mikilvægt og það er, því í
þeirra höndum er framtíð þessa
starfs fólgin.
Stóð af sér öldurót mikilla
þjóðfélagsbreytinga
Það er athyglisvert að Slysavarna-
deildin Björg stóð af sér það mikla
öldurót mikilla þjóðfélagsbreytinga
sem átti sér stað með seinni heims-
styrjöldinni og á næstu áratugum á
eftir og er enn öflug félagsdeild sem
nýtur stuðnings íbúanna og sjávarút-
vegsfyrirtækjanna á staðnum.
Brimbátur var sendur vestur á
Hellissand, búinn flothólfum, línu-
byssa og talstöð var send hingað og
heimild gefin til að hafa símstöðina
opna þegar bátar voru á sjó í slæm-
um veðrum. Fljótlega beitti deildin
sér fyrir sundnámskeiðum til að
auka sundkunnáttu sjómanna.
Ahrifa hennar gætti því furðu fljótt.
Afmælisfagnaður Bjargar
Sunnudaginn 13. desember minnt-
ist slysavarnadeildin 70 ára afmælis
síns. Hófust hátíðahöldin með messu
í Ingjaldshólskirkju þar sem sóknar-
presturinn messaði og kór og org-
anisti önnuðust söng. Unglingasveit
deildarinnar stóð virðulegan heið-
ursvörð í kirkjunni.
Að því loknu var haldið í Björgun-
arstöðina Líkn og þar fór fram bless-
un nýrrar og glæsilegrar tækja-
geymslu sem rúmar öll tæki deildar-
innar. Á 20 árum hefur tekist að láta
þann draum rætast að eignast hús-
næði sem rúmaði alla starfsemi
deildanna. Deildin er nú ágætlega
búin tækjum og henni var mikill
sómi sýndur þegar henni var falið að
taka á móti og annast um nýja hol-
lenska björgunarbátinn Björgu sem
staðsettur er í Rifshöfn.
Veisluhöld í
Björgunarstöðinni Líkn
Eftir að blessun húsnæðisins hafði
farið fram fór fram sýning á mynd-
um úr starfi deildarinnar sem hún er
að koma sér upp. Gamlir munir voru
til sýnis ásamt nýjum búnaði hennar.
Þá voru bornar fram veglegar kaffi-
veitingar. Formaður deildarinnar
stiklaði á nokkrum atriðum úr starfi
hennar og þakkaði öllum þeim sem
komu til þessarar hátíðar við erfiðar
aðstæður á jólaföstu og lögðu á sig
mikið erfiði til að koma afmælishá-
tíðinni í kring. Við það var unnið
fram á síðustu mínútu.
Mai’gt gamalla formanna deildai'-
innar var mætt til veislunnar, má
þar nefna Leif Jónsson hafnarvörð í
Rifi sem árum saman var aðaldrif-
fjöður deildarinnar, Kristin Jón
Friðþjófsson útgerðarmann i Rifi,
Sæmund Kristjánsson verkstjóra í
Rifi, Aðalstein Jónsson bifreiða-
stjóra á Hellissandi, Lúðvík Ver
Smárason kennara í Rifi og Þröst
Kristófersson hafnarvörð á Hell-
issandi. Þá var mætt Anna Olafs-
dóttir dótth Ólafs Jóhannessonar
fyrsta formanns deildarinnar ásamt
manni sínum; Ólafi Jónssyni, og syni,
Ólafi Kr. Ólafssyni sýslumanni í
Stykkishólmi.
Á þessum afmælisfagnaði voru
deildinni færðai- góðar gjafir og
kveðjur. Auk formannsins ðlafs Jens
Sigurðssonar tóku til máls, Erla
Kristinsdóttir fyrir hönd Kvenna-
deildarinnar Helgu Bárðardóttur,
Ólafur Kr. Ólafsson sýslumaður fyrh
hönd fjölskyldu sinnar, Ingi Hans
Jónsson flutti kveðjur frá Slysa-
varnafélagi íslands og Kristinn Jón-
asson bæjarstjóri flutti kveðjur bæj-
arstjórnar Snæfellsbæjar. Nýi
björgunarbáturinn Björg var til sýn-
is í Rifshöfn af þessu tilefni og gafst
gestum kostur á að skoða bátinn sem
er mikið öryggistæki á Breiðafirði og
umhverfis Snæfellsnes.
Hreinsibúnaður gaf sig
í Heilsugæslustöðinni
Verulegt tjón
eftir að flæddi
um gólf
Hvammstanga - Það var ófögur sjón
sem mætti starfsfólki Heilsugæslu-
stöðvarinnar á Hvammstanga á
fóstudagsmorgun. Kaldavatnsinntak
hafði bilað og um öll gólf flaut vatn.
Að sögn Guðmundar H. Sigurðs-
sonar framkvæmdastjóra, virðist sem
hreinsibúnaður hafi gefið sig um nótt-
ina og vatn farið óhindrað um alla
stöðina, um 700 fermetra. Slökkviliðið
var kallað út og gekk það ásamt
starfsfólki í að forða við frekara tjóni.
Vatni var fyrst dælt með dælubúnaði,
en síðan gengið í að sópa vatninu í hin
fáu niðurfóll sem í stöðinni eru.
Ljóst er að verulegt tjón hefm'
orðið og eru m.a. flestir innveggh' úr
spónaplötum og því mjög rakadræg-
ir. Hjá tannlækninum, Þórkötlu
Halldórsdóttur, hafði vatn flotið yfir
rafmagnsfjöltengi ,og allt rafmagn
farið af stofunni. Ekki er enn metið
hve miklar skemmdir hafa hlotist af
þessu óhappi, en nokkur tími getur
liðið þar til fullnaðarskoðun fer fram.
Lárus Jónsson læknir sagði að
stöðin yrði lokuð föstudag, en vonað-
ist til að starfsemi yrði með eðlileg-
um hætti strax á mánudeginum.
Morgunblaðið/KVM
Grundfirðingar
taka sporið
Grundarfirði - Danskennararnir Jón
Pétur og Kara stóðu fyrir dansnám-
skeiði fyrstu vikuna í desember.
Námskeiðið var vel sótt, sérstaklega
af yngri kynslóðinni. Að loknu nám-
skeiðinu var svo danssýning í
íþróttahúsinu þar sem á fjórða hund-
rað manns voru saman komin til að
sýna eða horfa á dansana og var fólk
mjög ánægt með sýningu þessa.
HELGA Pálsdóttir við tréð
góða.
fann hún gamalt spýtujólatré.
Þegar Helga fór að grafast
fyrir um uppruna trésins komst
hún að því að tréð var nærri
jafn gamalt skólahaldi í Hvol-
hreppi. „Ömmubróðir minn, Sig-
urður Einarsson, smfðaði tréð,
en hann fluttist hingað ineð
ömmu minni og afa árið 1908,
þeim Björgvini Vigfússyni sýslu-
manni og Ragnheiði Einarsdótt-
ur, en þau komu austan frá Hér-
aði og bjuggu áður á Keldhól-
um. Þetta sama ár var húsið á
Efra-Hvoli byggt og bjó Sigurð-
Morgunblaðið/Ingveldur Árnadóttir
FRÁ afhendingu tölvanna. Á
inyndinni eru f.v. Björn Karls-
son, umsjónarmaður tölvumála,
Halla Óladóttir, skólastjóri,
Eyrún Egilsdóttir, starfsmaður
Landsbankans, Inga Karlsdótt-
ir, útibússtjóri LÍ, Kristín Frið-
riksdóttir, starfsmaður LI og
Sigurður Sigurgeirsson, svæð-
isstjóri LI á Norðurlandi.
Grunnskólan-
um á Kópaskeri
gefnar tölvur
Kópaskeri - Landsbanki íslands hf.
á Kópaskeri afhenti 10. desember
Grunnskólanum á Kópaskeri tvær
mjög fullkomnar tölvur. Með þessu
framlagi er tölvubúnaður skólans
kominn í mjög gott horf.
Stjórnendur skólans og sveitarfé-
lagsins eru mjög ánægðir með þessa
höfðinglegu gjöf Landsbankans.
Steindór Sigurðsson, sveitarstjóri
Öxafjarðarhrepps, sagði af þessu til-
efni að svona framlag skipti miklu
fyrir fámennt sveitarfélag.
Dönsuðu í
kringum 90
ára gamalt
spýtujólatré
Hvolsvelli - Tæplega aldargam-
alt spýtujólatré skartaði sínu
fegursta á litlujólunum í Hvols-
skóla og vakti óskipta aðdáun
krakkanna.
Þegar farið var að huga að
undirbúningi litlujólanna kom
upp sú hugmynd að nota gamal-
dags jólaskraut í skólanum þetta
árið vegna þess að skólinn held-
ur uppá 90 ára afmæli sitt á
þessu skólaári. Kennarar undir-
bjuggu jólafóndur nemendanna
með þetta í huga og svo fór hver
og einn að athuga hvað til væri
gamalt og hvernig jólaskrautið
hefði verið í gamla daga.
Jólatré á háaloftinu
Fljótlega kom í ljós að fátt var
um fína drætti íþessum efnum,
enda var ekki mikið um glys og
prjál í gamla daga í kringum jól-
in, aðaltilbreytingin var að gera
vel við fólk í inat og einnig var
reynt að lýsa betur upp en venja
var til. Helga Pálsdóttir kennari
gafst þó ekki upp í leitinni að
gömlu jólaskrauti og uppá háa-
lofti hjá móður sinni, Ingunni
Sigurðardóttur á Efra-Hvoli,
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
NEMENDUR 1.-7. bekkjar dönsuðu í kringum jólatréð.
ur hjá þeim í mjög skamman
tíma, þannig að tré hefur hann
smíðað í kringum árið 1909.
Tréð var óvenju stórt og glæsi-
legt, enda hátt til lofts á Efra-
Hvoli. Tréð hefur ekki verið not-
að í tæp 60 ár, eða síðan móðir
mín flutti hingað.“
Sortulyng og kertaklemmur
Nokkrir komu síðan að því að
gera gamla jólatréð boðlegt fyrir
jólaballið. Ingvi Ágústsson hús-
vörður lagaði og bætti það sem
hafði aflaga farið í tímans rás.
Margrét Tryggvadóttir kenn-
ari týndi sortulyng til að setja á
greinaiuar, en faðir hennar,
Tryggvi Einarsson frá Miðdal,
renndi toppinn sem skreytti tréð
fyrir jólin 1945. Ólöf Kristófers-
dóttir kom með kertaklemmur
sem eru nokkurn veginn jafn-
gamlar trénu, en móðir hennar,
Lisbeth Zimsen, flutti þær með
sér upp í Borgarfjörð á fyrri
hluta aldarinnar. Nemendur í 1.-
7. bekk útbjuggu síðan annað
skraut á tréð, allt eftir gamalli
forskrift.