Morgunblaðið - 22.12.1998, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1998
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Ásdís
LÍFEYRISSJÓÐIR starfsmanna ríkis og sveitarfélaga undirrituðu í gær samning við Kaupþing og Alþjóða
líftryggingafélagið. F.v. Ólafur Njáll Sigurðsson, forstjóri Alþjóða líftryggingafélagsins hf., Haukur Haf-
steinsson, framkvæmdasljóri LSR, Sigurður Einarsson, forsljóri Kaupþings hf., Jón G. Kristjánsson, fram-
kvæmdasljóri LSS, og Davíð Friðriksson, starfsmaður Alþjóða líftryggingafélagsins.
Lífeyrissjóðir starfsmanna ríkis og
sveitarfélaga stofna séreignadeild
Tryggir félögum
valfrelsi um aðild
9% hlutafjár í Fjárfestingarbankanum
skipta um eigendur
Sparisjóðir og
dótturfélög ráða
23% atkvæða
Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn
spáir minni
hagvexti
LÆKKUN vaxta í Bandaríkjunum
og víðar hefur aukið stöðugleika á
fjármálamörkuðum heimsins, en
hagvöxtur á næsta ári verður minni
en áður var áætlað. Þetta er mat Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins, IMF, í
nýrri skýrslu um ástand og horfur í
efnahagsmálum.
IMF áætlar að hagvöxtur verði að
jafnaði 2,2% á næsta ári í ríkjum
heims, en í skýrslu í september var
spáð 2,5% hagvexti. Þá telur IMF að
hagvöxtur í ár mælist 2,2% að jafn-
aði, sem er 0,2% meira en sjóðurinn
taldi áður.
IMF telur að dregið hafi úr hættu
á heimskreppu og er vaxtalækkun í
Bandaríkjunum og Evrópu einkum
þakkað að stöðugleiki og hagvöxtur
hafa aukist. En áhersla er lögð á að
ýmis hættumerki séu enn sjáanleg.
Þá segir í skýrslunni að útlitið sé
ekki gott í efnahagsmálum Japans,
Brasilíu og Rússlands og hafi raun-
ar versnað mun meira en búist var
við.
Spáð er 1,8% hagvexti í Banda-
ríkjunum á næsta ári, 2,6% vexti í
Frakklandi, 0,9% í Bretlandi og
6,6% í Kína. Spáð er 0,5% samdrætti
í Japan, 1% samdrætti í Suður-
Kóreu, 3,4% samdrætti í Indónesíu
og 8,3% samdrætti í Rússlandi. Þá
er spáð 1% samdrætti í Brasilíu.
í SAMRÆMI við breytingar á lög-
um um lífeyrismál, munu Lífeyris-
sjóður starfsmanna ríkisins (LSR)
og Ltfeyrissjóður starfsmanna sveit-
arfélaga (LSS) hefja rekstur sér-
eignadeilda um áramótin. Að undan-
gengnu útboði hafa sjóðirnir ákveðið
að fela Kaupþingi hf. rekstur sér-
eignadeilda sinna (S-deilda) og var
samningur þess efnis undirritaður í
gær jafnframt því sem samið var við
Alþjóða líftryggingafélagið um
tryggingasamninga.
Meðal markmiða með setningu
nýju laganna er að tryggja valfrelsi
um aðild að lífeyrissjóðum og sam-
setningu lífeyris. Þannig mun frá-
dráttarbærni lífeyrisiðgjalda og ið-
gjalda vegna ltfeyrissparnaðar
hækka úr 4% í 6% hjá einstaklingum
frá og með áramótum. Hækkunin
mun í mörgum tilfellum þýða að ein-
staklingar geta ráðstafað a.m.k. 2%
af tekjum sínum í frjálsan lífeyris-
sparnað og notið til þess skattafrá-
dráttar.
Hlutverk Kaupþings verður að
taka á móti þeim hluta iðgjaldsins
frá launagreiðendum einstakra sjóð-
félaga eða lífeyrissjóðunum sjálfum
sem renna skal til séreignar og ráð-
stafa hluta þess til greiðslu tiygg-
inga fyrir einstaka sjóðsfélaga. Sam-
hliða samningnum við Kaupþing hf.
gerir Alþjóða ltftryggingafélagið
hópvátryggingasamninga við LSR
og LSS um örorku- og líftrygginar
fyrir sjóðfélaga.
Samkvæmt samningunum fá sjóð-
félagar tvisvar á ári yfírlit um stöðu
sína í nafni LSR og LSS Þá mun
Kaupþing einnig setja upp sérstök
símanúmer er skráð verða í nafni
LSR og LSS þar sem svarað verður
í nafni sjóðanna auk þess sem sjóðs-
félögum verður boðið upp á almenna
ráðgjöf vegna lifeyrismála og tiygg-
inga án endurgjalds.
25% af hlutafé íslenskra aðalverk-
taka hf. (ÍAV) verða boðin til sölu
fyrir áramót eða hlutafé fyrir 350
milljónir króna að nafnvirði. Til sölu
verða hlutabréf í eigu ríkisins að
fjárhæð 210 milljónir króna að nafn-
verði eða 15% af heildarhlutafé og
hlutabréf í eigu Hamla, dótturfélags
Landsbankans, að fjárhæð 140 millj-
ónir að nafnverði eða 10% af heild-
arhlutafé. Sölutímabilið verður
óvenjustutt eða einungis þrír dagar,
frá 28.-30. desember.
Þessi sala á hlutabréfum í ÍAV er
fyrsti áfangi þess að hið opinbera
dragi sig úr rekstri félagsins. Stein-
grímur Ari Arason, aðstoðarmaður
fjármálaráðherra, segir að hlutafjár-
útboðið hafi verið í undirbúningi allt
þetta ár og með því sé langþráðum
áfanga náð við sölu ríkisfyrirtækja.
Fyrirhugað sé að halda sölu hluta-
bréfa ríkisins áfram á næsta ári og
þá er sala til almennings fyrirhuguð.
Ekki hefur þó verið tekin endanleg
ákvörðun um hve stór hluti verður
þá seldur eða hvenær eignarhaldi
ríkisins að félaginu lýkur.
Starfsmenn njóta sérkjara
Ákveðið var að_ standa þannig að
sölu hlutabréfa ÍAV hf. að bjóða
starfsmönnum fyrirtækisins að
kaupa hlut á föstu gengi eins og
tíðkast hefur um starfsmenn ann-
arra hlutafélaga sem ríkið hefur
selt. Er þeim boðið að kaupa allt að
VIÐSKIPTASTOFA SPRON, fyrir
hönd 6 sparisjóða og dótturfélags,
Sparisjóðabankans, hefur keypt hlut
í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins
hf., FBA, að nafnverði 612 milljónir
króna, sem er 9% af heildarhlutafé
bankans. Heildarsöluverðmæti hlut-
arins er 1.150.560 þúsund krónur.
Fóra kaupin fram á genginu 1,88.
Seljandi var Búnaðarbanki Is-
lands hf. og viðskiptavinir hans. Af
hlutanum var eignarhlutur IS-15,
fjárfestingarsjóðs Búnaðarbankans,
6,3%, og var hann allur seldur ásamt
atkvæðarétti. IS-15 er í eigu bank-
ans, ltfeyrissjóða og annarra stofn-
anafjárfesta.
Samkvæmt markaðsyfirliti Við-
skiptastofu Landsbanka íslands
nemur söluhagnaður bréfanna um
170-230 milljónir kr., hafi bankinn
keypt bréfin á sínum tíma á genginu
1,5-1,6 að meðaltali.
Hlutur SPRON og dótturfélaga í
FBA er nú samtals um 18% en
Kaupþing, dótturfélag Sparisjóð-
anna, á 9% og ræður að auki yfir 5%
atkvæðarétti fyrir aðra hluthafa.
Alls ráða því Kaupþing og Spari-
sjóðimir samanlagt yfir um 23% af
heildaratkvæðamagni í FBA.
Góð fjárfesting
Guðmundur Hauksson sparisjóðs-
stjóri kveðst ánægður með kaupin.
„Það má öllum vera ljóst að við höf-
um lýst áhuga á þessum banka og á
sínum tíma var viðræðum við okkur,
um kaup á bankanum, rift. Þetta eru
einfaldlega góð kaup og við erum að
kaupa það sem býðst til sölu. Síðan á
eftir að ákveða með framhaldið en
við teljum að bankinn sé góð fjár-
10% hlutafjár eða fyrir allt að 140
milljónir króna að nafnvirði á sér-
stöku tilboðsverði, en afgangurinn,
a.m.k. 210 milljónir eða 15%, fer í
tilboðssölu.
Gengi til starfsmanna er 1,75 og
er það jafnframt lágmarksgengi í til-
boðssölu. Hverjum starfsmanni er
heimilt að kaupa hlutabréf fyrir allt
að 500 þúsund krónur að nafnvirði
eða 875 þúsund að markaðsvirði.
Verði um umframáskrift að ræða
skerðist hámarksnafnverð, sem
hverjum starfsmanni er heimilt að
kaupa fyrir, þar til heildarnafnverð
seldra bréfa er komið niður í 140
milljónir. Einn tíunda hluta kaup-
verðs skal greiða hinn 18. janúar
1999 en eftirstöðvar greiðast með
skuldabréfi til þriggja ára með einni
afborgun á ári í lok hvers árs.
Skuldabréfin era óverðtryggð og
bera ekki vexti.
Markaðsvirði ÍAV
2,5 milljarðar
A.m.k. 210 milljónir króna að
nafnvirði verða seldar í tilboðssölu
að viðbættum þeim hlutabréfum
sem ekki seljast til starfsmanna.
Ekki er ákveðið gengi í tilboðssölu
en ekki verður gengið að lægri til-
boðum en á genginu 1,75. Hverjum
tilboðsgjafa verður boðið að gera til-
boð í allt að 5% hlutafjár í félaginu.
Hvert tilboð getur því hæst numið
70 milljónum að nafnvirði en a.m.k.
festing, nú sem fýrr,“ sagði Guð-
mundur Hauksson.
Spurður um aðdraganda
kaupanna sagði Guðmundur að hann
hefði verið stuttur og kaupin ákveð-
in þegar möguleiki gafst á þeim fyr-
ir skömmu síðan.
Guðmundur sagði einnig aðspurð-
ur að Sparisjóðirnir væru ekki að
leita sérstaklega eftir frekari hlut-
um í bankanum.
Var keypt með
hagnað í huga
Arni Oddur Þórðarson, forstöðu-
maður markaðsviðskipta Búnaðar-
bankans, sagði að bankinn hefði
keypt hlut sinn á sínum tíma með
hagnað í huga, annars vegar í veltu-
bók og hins vegar inn í fjárfesting-
arsjóðinn ÍS-15, og nú hefði verið
rétti tíminn til að selja. „Þegar við
keyptum þetta töldum við að vera-
legt rými væri til hækkana á bréfun-
um, eins og raunin varð, og verðið
var einfaldlega það hagstætt nú að
við ákváðum að selja,“ sagði Árni
Oddur.
Hann sagði að það væri mikill
metnaður hjá starfsfólki og stjórn-
endum bankans að mæta arðsemis-
kröfu 60 þúsund hluthafa bankans
og viðskipti bankans með hluti í
FBA var hluti af honum.
Samkvæmt tilkynningu frá bank-
anum styrkir salan hagnaðarmynd-
un hans og rennir traustum stoðum
undir afkomuspá bankans. Bankinn
mun ekki endurskoða formlega þá
afkomu spá sem sett er fram í út-
boðs- og skráningarlýsingu vegna
viðskiptanna að því er kemur fram í
tilkynningunni.
122,5 milljónum að markaðsvirði.
Lágmarksfjárhæð tilboðs er þó 100
þúsund krónur að nafnvirði.
Umrætt gengi, 1,75, jafngildir
innra virði félagsins 30. júní sl. Að
því gefnu að allt hlutafé í útboðinu
seljist á þessu verði er markaðsvirði
þessa fjórðungshluta í ÍAV hf. ekki
undir 612 milljónum króna. Hins
vegar má vel reikna með hærra
verði í tilboðshluta útboðsins. í gær
hækkaði gengi bréfa í fyrirtækinu
um 4,7% og var lokagengið 1,78.
Samkvæmt því er heildarmark-
aðsvirði ÍAV 2.492 milljónir ki'óna.
fslandsbanki hf. og Landsbankinn
hf. annast sölu hlutabréfanna.
Áskriftir starfsmanna og tilboð
skulu hafa borist söluaðilum fyinr kl.
16 miðvikudaginn 30. desember nk.
og verða tilboð opnuð að viðstöddum
þeim bjóðendum sem þess óska. ís-
lenskir aðalverktakar hf. hafa fengið
staðfestingu ríkisskattstjóra fyrir
árið 1998 um að félagið fullnægi skil-
yi'ðum til þess að einstaklingar geti
dregið kaupverð hlutabréfanna ft’á
skattstofni.
Talsmenn íslandsbanka og
Landsbankans sögðust í gær vera
bjartsýnir á að hlutafjárútboðið
gengi vel og að allt hlutaféð myndi
seljast. Þá sögðust þeir eiga von á
því að fagfjárfestar létu meira að sér
kveða í tilboðshluta útboðsins en
einstaklingar miðað við fyrri
reynslu.
25% í Islenskum aðalverktökum seld milli jóla og nýárs
Markaðsverðið ekki
undir 612 milljónum