Morgunblaðið - 22.12.1998, Page 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Demókratar
fylkja sér
um Clinton
Þrátt fyrir að demókratar séu afar ósáttir
við framferði Bandaríkjaforseta sýndu
þeir honum táknrænan stuðning um helg-
ina er fulltrúadeildin hafði samþykkt tvær
ákærur á forsetann.
BILL Clinton Bandaríkjafor-
seti bar sig vei eftir að full-
trúadeild Bandaríkjaþings
samþykkti á laugardag að ákæra
hann til embættismissis og vísa mál-
inu tii öldungadeildai- Bandaríkja-
þings. Samþykkti fulltrúadeildin tvö
ákæruatriði af fjórum en forsetinn
lét það ekkert á sig fá og lýsti því yf-
ir á laugardagskvöld að hann hygðist
sitja í embætti fram á síðustu stund
kjörtímabils síns og krafðist þess að
endi yrði bundinn á „persónuíeg nið-
urrifsstjórnmál“.
Demókratar gengu út af þingi í er
ljóst varð að þeim yrði ekki gefinn
kostur á að greiða atkvæði um vitur
á forsetann. Demókratarnir héldu þó
í þingsal áður en gengið var til at-
kvæða. Fyrsta ákæruatriðið, um að
forsetinn hefði sagt ósatt og þar með
framið meinsæri er hann bar vitni
fyrir kviðdómi við yfirheyrslur
Kenneths Stairs, sérskipaðs sak-
sóknara, var samþykkt með 228 at-
kvæðum gegn 206. Greiddu þing-
menn eftir flokkslínum nema hvað
fimm repúblikanar greiddu atkvæði
gegn tillögunni og fimm demókratar
með henni. Gat The New York
Times sér þess til að hefði nýkjörið
þing, sem enn hefur ekki komið sam-
an, greitt atkvæði um málið kynni
niðurstaðan að hafa verið önnur, svo
mjótt hafí verið á mununum.
Þá var ákæruatriði um að í'orset-
inn hefði hindrað framgang réttvís-
innar með því að fá vitni til að segja
ósatt til að hylma yfir samband hans
við Monicu Lewinsky einnig sam-
þykkt. Munurinn var enn minni, 221
greiddu atkvæði með en 212 á móti.
Fimm demókratar greiddu atkvæði
með ákærunni en tólf repúblikanar á
móti.
Akæruatriði um meinsæri við yfir-
heyrslur í máli Paulu Jones var fellt,
229 greiddu atkvæði gegn því en 205
með. Að síðustu greiddi yfirgnæf-
andi meirihluti, 285 þingmenn á móti
148, atkvæði gegn fjórða ákæruat-
riðinu, um að forsetinn hefði misnot-
að vald sitt er hann neitaði að svara
nokkrum af 81 spurningu dómsmála-
nefndar fulltrúadeildarinnar. Aðeins
einn demókrati greiddi atkvæði með
ákærunni og 81 repúblikani gi-eiddi
atkvæði gegn henni.
„Ekki mikill
stuðningur við Clinton"
Þrátt fyrir að repúblikanar hefðu
sigur ríkti lítill fógnuður í herbúðum
þeirra. Þá lögðu nokkrir þingmanna
demókrata á það áherslu að þrátt
fyrir að þeir hefðu greitt atkvæði
gegn ákænmum á hendur forsetan-
um hefði það ekki verið fyrir stuðn-
ing við hann, heldur stjórnarskrána.
Með því að greiða atkvæði gegn því
að ákæra forsetann væru þeir ekki
síður að mótmæla því hvernig
repúblikanar hefðu haldið á málum.
Eftir atkvæðagreiðsluna hópuðust
ERLENT
Reuters
ÞINGMENN demókrata í fulltrúadeildinni gengu fylktu liði út úr þinginu á laugardag til að mótmæla því að
þeir fengu ekki að greiða atkvæði um vítur á forsetann.
demóki-atar að Hvíta húsinu, þar
sem Clinton og Hillary, eiginkona
hans, auk Als Gores varaforseta
bættust í hópinn. „Ég held ekki að
hér sé að finna mikinn stuðning við
Bill Clinton,“ sagði þingkonan Lou-
ise Slaughter. „Hann er ekki besti
demókratinn sem við höfum séð.“
Fleiri tóku í sama streng, sögðust
ekki mættir til að styðja forsetann,
þeir væru honum öskureiðir fyrir
framferði sitt. „Við eigum öll í ástar-
haturs-sambandi við forsetann.
Hann er heillandi og góður leiðtogi
en getur líka gert mann öskureiðan
og fráhverfan sér,“ sagði David E.
Skaggs.
Einn aðstoðarmaður demókrata-
þingmanns lýsti furðu sinni á stuðn-
ingnum við forsetann. „Þeim
[demókrötum] fellur ekki við forset-
ann. En repúblikönum hefur tekist
með prýði að sameina þá og reka í
fang hans.“
„Mitt á milli þráhyggju
og afneitunar“
Er atkvæðagreiðslan hófst ræddi
Clinton við séra Tony Campolo, sem
gaf forsetanum einnig góð ráð áður
en hann játaði samband sitt við Mon-
icu Lewinsky. Er Campolo yfirgaf
Hvíta húsið fylgdist forsetinn með
beinni útsendingu frá atkvæða-
greiðslunni og segja aðstoðarmenn
hans hann hafa einkum sýnt þvi
áhuga hvaða þingmenn greiddu ekki
atkvæði eftir flokkslínum.
Þá segja aðstoðarmennirnir Gore
varaforseta hafa stappað stálinu í
forsetann. Lýsti einn aðstoðarmanna
forsetans hugai’ástandi hans svo að
Clinton virtist vera „einhvers staðar
mitt á milli þráhyggju og afneitun-
ar“. Vinir Clintons segja hann bera
sig vel og vera sannfærðan um að
öldungadeildin dæmi hann ekki til að
víkja úr embætti. Hann taki herferð
repúblikana á hendur sér hins vegar
ákaflega nærri sér.
Þá mun honum hafa brugðið mjög
í brún er Robert Livingston, sem átti
að verða næsti forseti fulltrúadeild-
arinnar, sagði óvænt af sér á laugar-
dag. Joe Lockhart, talsmaður Clint-
ons, sagði hann hins vegar ekki ætla
að verða við áskorun Livingston um
að fylgja í kjölfarið og segja af sér
forsetaembætti.
Er Clinton hitti þingmenn
demókrata við Hvíta húsið á laugar-
dag ítrekaði forsetinn að hann ætlaði
ekki að segja af sér, heldur sitja
„fram á síðustu stund síðasta dags
kjörtímabils míns“. Sagði Clinton
Bandaríkjamenn nú standa frainmi
fyrir erfiðum verkefnum. „Til að
komast að réttri niðurstöðu verður
að ríkja andrúmsloft velsæmis og
kurteisi, einhver vottui- af góðri trú,
tilfinning fyrir réttum hlutföllum og
jafnvægi í því að dæma þá sem eru í
öðrum flokki en maður sjálfur. Við
eigum mikilvægt verkefni fyrir
höndum.“
Aukinn stuðningur
við forsetann
Af skoðanakönnunum að dæma
styður meirihluti bandarísku þjóðar-
inar Clinton enn. Samkvæmt könnun
NBC hefur stuðningur við forsetann
aukist úr 68% í 72% á fáeinum dög-
um og þeim sem vilja að forsetinn
fari frá hefm- fækkað um 10% og eru
nú 34%.
Samkvæmt könnun ABC og Was-
hington Post eru tveir þriðjuhlutar
Bandaríkjamanna sáttir við störf
Clintons. Þá hefur þeim fækkað á
hálfri viku sem telja að hann eigi að
segja af sér, eru 33% en voru 39% sl.
fimmtudag.
Algjör óvissa
um framhaldið
FLEST bendir til að í öldunga-
deild Bandaríkjaþings muni
réttarhöld í máli Bills Clintons
Bandaríkjaforseta hefjast fljótlega
upp úr áramótum. Öldungadeildin
breytist þar með í dómstól með Willi-
am Rehnquist, forseta Hæstaréttar,
sem dómara, en öldungadeildai-þing-
mennina hundrað sem kviðdómend-
ur. Jafnvel hefur verið rætt um að
þingmennimir verði látnir sverja eið
sem kviðdómendur skömmu eftir að
þing kemur saman eftir jólafrí 6. jan-
úar en réttarhöldunum yrði að því
búnu frestað til að gefa verjendum
forsetans tækifæri til að undirbúa
málsvöm sína. Hópur þingmanna úr
fulltrúadeildinni, líklega með Henry
Hyde, formann dómsmálanefndar-
innar, í forsæti, myndi gegna hlut-
verki saksóknara í réttarhöldunum.
Lögmenn forsetans sæju um vöm
hans ólíkt því sem var í fulltrúadeild-
inni, þar sem það vom fulltrúar
demókrata í dómsmálanefndinni er
héldu uppi vömum en lögmennimir
fengu að koma fram sem vitni.
Skömmu eftir að fulltrúadeildin
samþykkti tvær ákærar á hendur
forsetanum á laugardagskvöld gaf
Clinton í skyn að hann væri reiðubú-
inn að fallast á lausn er fæli í sér að
öldungadeildin samþykkti á hann
vítur og honum yrði þar með ekki
vikið úr embætti. Svo virðist sem lið
Algjör óvissa ríkir í
bandarískum stjórn-
málum eftir að fulltrúa-
deildin samþykkti tvær
ákærur á hendur Bill
Clinton forseta. Lög-
menn forsetans undir-
búa vörn hans og þegar
er farið að ræða hugs-
anlega málamiðlun.
Miklar líkur eru þó
taldar á að réttarhöld
hefjist í öldungadeild-
inni í byrjun næsta árs.
forsetans muni reyna að sækja fram
á tveimur vígstöðvum. Annars vegar
með því að reyna að ná málamiðlun
um vítur og hins vegar með því að
taka upp harðskeytta lagalega vörn
á sem flestum sviðum. Meðal annars
hafa lögmenn forsetans velt því upp
hvort fulltrúadeildin hafi átt að bíða
fram yfir áramót með að greiða at-
kvæði um málshöfðun en þá tekur
nýkjörið þing til starfa. Þessi rök-
semdarfærsla kom íyrst upp í yfir-
heyrslum í dómsmálanefnd fulltrúa-
deildarinnar í nóvember er Brace
Ackerman, lagaprófessor við Yale-
háskóla, sagði það vera „mikil mis-
tök“ af hálfu þingmanna að gera það
eitt af sínum síðustu verkum að
greiða atkvæði um málshöfðun.
Ackerman var eitt þeirra vitna er
verjendur forsetans kölluðu íyrir en
þeir vildu á sínum tíma ekki gera
mikið úr þeim möguleika að þeir
myndu nýta sér röksemdafærslu
hans. Um helgina var hins vegar
greint frá því að verið væri að skoða
þennan lagalega möguleika.
Verði honum beitt kemur tvennt
til greina. Annars vegar væri hægt
að leggja fram tillögu við upphaf
réttarhalda í öldungadeildinni, þess
efnis að málinu beri að vísa frá þar
til nýkjörin fulltrúadeild hafi greitt
atkvæði um það að nýju. Hins vegar
gætu lögmenn forsetans leitað til
dómstóla og reynt að fá úrskurði
þingsins hnekkt. Er talið víst að slík
réttarhöld myndu taka langan tíma,
ekki síst þai’ sem menn væra þar
með komnir út í nýjar lagalegar
víddir, er ekki hafa áður komið til
kasta dómstóla.
Ekki er þó víst að til kastanna
komi þar sem margir hafa efasemdir
um lagalegt réttmæti slíkra raka.
MALSHOFÐUN A HENDUR CLINTON
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti á laugardag tvö ákæruatriði, sem
varðað gætu embættismissi, á hendur Bill Clinton Bandaríkjaforseta og
verður nú efnt til réttarhalda yfir forsetanum í öldungadeild þingsins.
FRAMGANGA MÁLSINS Á HENDUR CLINTON
Andstæðingar Clintons í Repúblikanaflokknum hafa meirihluta á Bandarikjaþingi en þingið
hefur samkvæmt stjórnarskrá rétt til að svipta Bandaríkjaforseta embætti gerist hann
sekur um “landráð, mútuþægni eða aðra alvarlega glæpi og afbrot”.
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
0 Laugardagur 12. desember 0 Laugardagur 19. desember
Dómsmálanefnd fulltrúadeildar-
innar samþykkir að grundvöllur
sé fyrir malshöfðun til embættis-
missis á hendur Clinton.
Pingmenn samþykkja í atkvæða-
greiðslu tvær af fjórum ákæmm sem
aómsmálanefndin hafði visað til
fulltrúadeildarinnar.
Fyrri ákæran
Clinton er sakaður um að hafa logið í
vitnisburði sínum í ágúst fyrir
rannsóknarkviðdómi Kenneths Starrs.
Seinni ákæran
Clinton er sakaður um að hafa staðið í
vegi réttvísinnar þegar hann reyndi að
breiða yfir samband sitt við Monicu
Lewinsky.
Öldungadeild Bandarikjaþings
1999 - Réttarhöld yfir Clinton
Öldungadeildin tekur mál
Clintons fyrir - heldur réttarhöld
yfir forsetanum þar sem
öldungadeildarþingmenn virka í
raun sem kviðdómur yfir honum.
0
7/7 að sakfella forsetann þarfstuðning tveggja
af hverjum þremur þingmönnum
öldungadeildarinnar.
Verði forsetinn sakfelldur verður hann að hverfa úr embætti og þá mun
varaforsetinn, Al Gore, taka við forsetaembættinu.