Morgunblaðið - 22.12.1998, Síða 37

Morgunblaðið - 22.12.1998, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1998 37 í’ðeðlisfræðingur segir ekkert benda til minnkandi goss í Grímsvötnum Morgunblaðið/Oddur Sigurðsson _ _ Morgunblaðið/Oddur Sigurðsson SIÐDEGIS á laugardag var gosmökkurinn tignarlegur á að líta. :i samband )roa og upp- mis gosefna gosið í Grímsvötnum ?fur fallið í byggð bæði lan. Þá telja vísinda- p verði af þeirri stærð- yaldi miklu tjóni. Morgunblaðsins á sunnudag. „Það hefur verið hrein hending að það gerð- ist því það er sjaldgæft að það sjáist glóð í sprengigosum í vatni en ljós- mynd Rax sýnir að einhverjar slettur geti náð upp á yfirborð öðru hverju,“ sagði Magnús Tumi. Hann taldi ekk- ert benda til aukinnar hættu á hlaupi frá því gos hófst, en hvernig sem það færi yrði hlaupið aldrei meha en sem nemur því litla vatni, sem var í Grím- svötnum þegar umbrot hófust. Hálfur rúmkílómetrí af vatni og ís er í Grím- svötnum en um það bil 3 rúmkílómetr- ar hlupu úr því árið 1996 að því er fram kom í Morgunblaðinu á laugar- dag. Um helgina féll aska í Suðursveit og vottaði fyrir öskufalli í Öræfum. Bændum var gert að hýsa búpening en að lokinni efnagreiningu í gær var tilkynnt að þótt töluverð mengun bær- ist með öskukornum væri búfénaði ekki talin stafa mikil hætta af vegna mikillar úrkomu og lítils öskufalls í byggð. Því var bændum í Suðursveit heimilað að hleypa skepnum út í gær en þeir minntir á að hýsa þær og brynna með fersku vatni, þar til mæi- ingar fara fram, falli aska að nýju. Búist við ösku frá Skjálf- anda að Langanesi Guðmundur Hafsteinsson, veður- fræðingur á Veðurstofu íslands, sagði i samtali við Morgunblaðið síðdegis í gær, að öskufalls hefði orðið vart víða á Norðurlandi, allt frá óverulegu magni á Sauðárkróki og austur um til Bárðardals. Tilkynningar hefðu borist frá Akureyri, Svarfaðardal og Bárðar- dal um gráa öskuslikju á snjónum. Ai- mannavarnir báðu fólk að fylgjast með veðri og veðurspám og var bændum sérstaklega bent á að fylgjast með til- kynningum frá yfirdýralækni. Síðdegis í gær sagði Guðmundur Hafsteinsson að svo virtist sem vind- urinn væri að snúa sér og væri von á að aska mundi berast í hánorður á næstunni. „Við fréttum frá flugmanni, sem var að koma frá Egilsstöðum, að það virtist leggja öskustrók í hánorður að Herðubreið. Það er sú staða, sem við búumst við að verði í nótt og þá má búast við ösku frá Skjálfanda og að Langanesi," sagði hann. Guðmundur sagði að nú í dag væri búist við að vindur snerist til vestanáttar og þá mætti búast við öskufalli á Norðaust- ur- og Austurlandi. Hann segir þó erfitt að áætla útbreiðslu öskunnar, þar sem vindur sé breytilegur eftir hæð. Sé vindur í um 5 km hæð ráðandi megi búast við mestu öskufalli á Aust- urlandi og Norðausturlandi en vindur í lægri loftlögum gæti borið ösku í átt að Norðurlandi. Guðmundur sagði að spáð væri ákveðnum vindi og þar sem grófasta askan fellur fyrst til jarðar en fínni aska berst lengra sagði hann að ekki þyrfti að koma á óvart þótt örlaði á ösku allt út að annesjum nyrðra. Sverrir Elefsen, hjá vatnamælinga- deild Orkustofnunar, fór austur að Skeiðará í gær að.koma þar íyrir sjálf- vhkum vatnshæðarmæli, sem jafn- framt mælh leiðni vatnsins, þ.e. magn gosefna í vatninu. Hann átti von á að uppsetningu lyki í dag. Almannavarnh ríkisins hafa bannað almenna umferð í 5 km radíus frá eld- stöðinni. Ferðir á Grímsfjalli eru sagð- ar lífshættulegar og bent á að gosaska geti stöðvað vélar farartækja sem þarna ei-u á ferð. Talsverð umferð hef- ur þó verið upp á jökulinn en mönnum hefur gengið misjafnlega að komast áleiðis. Þannig vai-ð hópur jeppa- manna frá að hverfa í um 30 km fjar- lægð frá eldstöðvum en aðrir komust mun nær. Öskufall í Gríms- vatnagosi C7 Ösku hefur víða orðið vart á Norðurlandi, frá Sauðárkróki til Bárðardaís. Siglufjörður % Raufarhöin Kópasker Sauðárkrókur Húsavík Akureyri Mývatn Búast má við öskufaili frá Skjálfanda að Langa- nesi miðað við síðustu veðurhorfur. Langanes • •' Þórshöfn, Vopnafjörður, -I! £ ýé Egilsstaðir / J wf ' / i v s Reykjavík 100 km W Grímsvötn 7 / c? • Höfn Um helgina féll aska í Suðursveit og vottaði fyrir öskufalli í Öræfum. Öskufall frá Sauðár- króki að Bárðardal ASKA frá eldgosinu í Grímsvötnum hefur víða fallið í byggð; um helgina einkum í Suðursveit en í gær varð vart ösku allt frá Sauðárkróki og austur í Bárðardal. Séra Einar Jónsson, prestur í Kálfafellsstað, sagði í samtali við Morgunblaðið að öskufall hefði komið yfir sveitina aðfaranótt sunnudags en því hefði slotað um hádegi. Grófasta askan féll á Breiðamerkursand og suðursandsbæina, sem kallaðir eru, t.d. Hala, Gerði, Reynivelli og Breiða- bólsstað. „Þetta voru engin ósköp en það sást á bílum og snjóhroða," sagði Einar. „Það sagði krakki á sunnan- sandsbæ að þetta væri eins og gott neftóbak.“ Fínni sandur þyrlaðist austur um sveitina og einnig vottaði fyrir ösku á Kvískerjum, austasta bæ í Öræfum. „Askan er gi-ábrún á litinn og það svíður undan henni í augu og andlit,“ segir Einar. Gunnhildur Ingimarsdótth á Jaðri í Suðursveit sagði að þar væri askan ekki meiri en svo að hún hefði ekki tekið eftir henni nema af því að það var snjór. „Það sér á snjó og bílum,“ sagði hún. Hún sagði að skepnur hefðu verið teknar inn strax á sunnu- dagsmorgun en þá gengu hestar úti á Jaðri. Síðdegis í gær var þoka yfir Suður- sveit og ekki sást upp á jökul en hún sagði að frá Jaðri hefði umbrotanna orðið þannig vart að sést hefðu eld- glæringar, ljósagangui- og bjarmi yfir fjöllunum. Brennisteinslykt í Bárðardal Elín Baldvinsdóttir i Svartárkoti í Bárðardal sagði að þar hefði vottað íyrh öskufalli í morgun og meira hefði komið ofan eftir hádegi. „Þá gránaði snjórinn og varð brenni- steinslykt, svo aska sást i sporum, hjólförum og slíku,“ sagði Elín. I Svartárkoti er aðeins sauðfé og það er allt í húsum, enda jarðbönn, eins og jafnan á þessum árstima í Bárðar- dal. Elín sagði að í björtu sæist upp á Vatnajökul frá Svartárkoti og strók- urinn hefði sést á sunnudag. „Við sá- um strók aftur þegar fór að birta og maðurinn minn tók eftir skýi, sem lá yfir suðurhimin, og taldi að í því myndi vera aska.“ Elín sagðist ekki hafa orðið vör við öskufall í Gjálpar- gosinu í Vatnajökli árið 1996, en þá hefði hins vegar orðið vart við ösku á Mýri, hinum megin í dalnum. *

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.