Morgunblaðið - 22.12.1998, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
PRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1998
Stefna til stuðn-
ings íslenskri
kvikmyndag'erð
SAMKOMULAGIÐ undirritað.
KVIKMYNDASJÓÐUR íslands
var stofnaður fyrir 20 árum. Hann
hefur gegnt mikilvægu hlutverki fyr-
ir þróun íslenskrar kvikmyndagerð-
ar. Mikilvæg þáttaskil urðu í starf-
semi sjóðsins hinn 19. desember síð-
astliðinn, þegar við fjármálaráðhen-a
rituðum undh’ samkomulag við full-
trúa samtaka kvikmyndagerðar-
manna um stuðning við Kvikmynda-
sjóð Islands í því skyni að efla ís-
lenska kvikmyndagerð. Kvikmynda-
gerðarmenn og stjórnvöld hafa sett
sér sameiginlegt markmið og er ætl-
unin að ná því á næstu fjórum árum.
Er ástæða tii að líta á þetta sam-
komulag sem mikilvægan lið í fram-
kvæmd á víðtækari stefnu til stuðn-
ings íslenskri kvikmyndagerð.
Mörg skref
A þessu afmælisári Kvikmynda-
sjóðs Islands hefur mai’gt gerst fyrir
tilstilli stjórnvalda til að styrkja for-
sendur íslenskrar kvikmyndagerðar.
Skemmtanaskattur hefur um
langt árabil verið þeim, sem reka
kvikmyndahús, þymir í augum.
Þessi tímaskekkja í skattheimtu rík-
isins hvarf loks úr lögum um mitt
þetta ár.
Innan Ríkisútvarpsins, sjónvarps,
hefur auknum fjármunum verið vai’-
ið til innlendrar dagskrárgerðar á
þessu ári. Samhliða ákvörðun um að
sjónvarpið flytjí í útvarpshúsið við
Efstaleiti, var sú stefna mörkuð, að
sjónvarpið byði meira út af dag-
skrárgerð sinni. Er innréttingum í
Efstaleiti hagað í samræmi við það. I
stað þess að í upphafi var talið, að
erfitt yrði að koma allri starfsemi
sjónvarpsins fyrir í útvai-pshúsinu
hefur hið gagnstæða komið í ljós.
Kvikmyndasafninu hefur verið
sköpuð mjög góð starfsaðstaða í
Hafnarfirði og á þessu ári hefur það
efnt til kvikmyndasýninga í Bæjar-
bíói, sem safnið hefm’ undir sinni for-
sjá. Ný vídd hefur þannig bæst við
innlent kvikmyndalíf, sem nær ekki
að þroskast nema það styðjist við
safn og aðstöðu til sýninga í tengsl-
um við það. Kvikmyndamennt eflist
með nýjum Listaháskóla Islands,
sem nú hefur verið hleypt af stokk-
unum og rektor ráðinn.
íslensk stjórnvöld standa að fullu
við allar skuldbindingar við erlenda
sjóði eins og Eurimages og Norræna
Samkomulagið um að
efla íslenska kvik-
myndagerð markar
ánægjuleg tímamót,
segir Björn Bjarnason,
og er mikilvægur liður
í víðtækari kvikmynda-
stefnu.
kvikmynda- og sjónvarpssjóðinn,
sem báðir eru góðir bakhjarlar ís-
lenski-a kvikmyndagerðannanna. Á
þessu ári veitir Eurimages-sjóðurinn
til dæmis 60 milljónir íslenskra
króna til þriggja leikinna íslenskra
kvikmynda í fullri lengd. íslendingar
fara með forystu í norrænu sam-
starfi á næsta ári. Eitt af markmið-
um okkar á þeim vettvangi er að efla
Norræna kvikmynda- og sjónvarps-
sjóðinn en samningur um hann renn-
ur út í lok næsta árs. Verður lögð
áhersla á að hann starfi áfram og
eflist.
Viðræður hafa farið fram við full-
trúa bandaríska Miramax-fyrirtæk-
isins um leiðir til að það hefji kvik-
myndagerð hér á landi. Hefur nefnd
skipuð fulltrúum menntamálaráð-
heri’a, fjármálaráðherra og iðnaðar-
og viðskiptaráðherra rætt, hvemig
stjómvöld geti komið til móts við
fyrirtækið, ef það tekur ákvörðun
um að hefja hér starfsemi. Er gert
ráð fyrir heimild ráðuneyta til að
taka á málinu í fjárlögum næsta árs,
en líklegt er, að þörf sé á sérstakri
lagasetningu til að taka á þessu við-
fangsefni.
Mikilvægt samkomulag
Það vom fulltrúar Samtaka ís-
lenski-a kvikmyndaframleiðenda,
Samtaka kvikmyndaleikstjóra, Fé-
lags kvikmyndagerðarmanna, Fram-
leiðendafélagsins og Samtaka höf-
unda kvikmyndahandrita, sem rit-
uðu undir samkomulagið um stefnu-
mörkun til að efla íslenska kvik-
myndagerð með okkur fjármálaráð-
herra laugardaginn 19. desember.
Samkvæmt samkomulaginu skal
við það miðað, að framleiddar séu 5
leiknar íslenskar kvikmyndh- í fulh’i
lengd á ári og kvikmyndasjóður
standi undir 40% af kostnaðaráætl-
un, en miðað er við 100 milljóna
ki’óna meðalframleiðslukostnað á
hverri mynd. Er ætlunin, að heildar-
framlag framleiðslustyrkja vegna
þessara mynda verði allt að 200
m.kr. árið 2002.
Komi til þess að Menningarsjóður
útvarpsstöðva verði lagður niður er
gert ráð fyrir, að á næstu fjómm ár-
um eftir það verði veitt fé úr ríkis-
sjóði til að gera heimildarmyndir,
stuttmyndir, hreyfimyndir o.fl.
þannig að í lok tímans verði allt að
100 m.kr. til ráðstöfunar í þessu
skyni í kvikmyndasjóði. Eg hef lagt
frumvarp til nýrra útvarpslaga fram
á alþingi og þar er gert ráð fyrir, að
menningarsjóðurinn hverfi úr sög-
unni. Þar með fá útvarpsstöðvarnar
sjálfar umráð yfir þeim 10% af
ákveðnum tekjum sínum, sem þær
hafa orðið að láta renna í menningar-
sjóðinn. Svigrúm þein-a til að efla
innlenda dagskrárgerð ætti að
aukast í samræmi við það. Ákvæðið
um að stofna sérstaka nýja deild í
kvikmyndasjóði og aukið fjárhags-
legt svigrúm útvarpsstöðva styrkir
verulega stöðu kvikmyndagerðar-
manna á þessu sviði.
I samkomulaginu er lýst yfir því,
að náist ofangreind markmið, geti ís-
lensk kvikmyndagerð gegnt eðlilegu
hlutverki í íslensku menningarlífi.
í fjárlögum 1999 er 176,4 m.kr.
varið til Kvikmyndasjóðs Islands,
sem er 40 m.kr. hærri fjárhæð en
sjóðurinn hefur til ráðstöfunar á
þessu ári, skal 110 m.kr. varið til að
styrkja leiknar íslenskar kvikmyndir
í fullri lengd.
Gert er ráð fyrir að á árinu 2000
aukist framlög í kvikmyndasjóð um
30 m.ki'., 35 m.kr. 2001 og 30 m.kr.
2002. Verður því fjárveiting til kvik-
myndasjóðs 176,4 millj. kr. árið 1999,
205 millj. kr. árið 2000, 240 millj. kr.
árið 2001 og 270 millj. kr. árið 2002.
Við þessar fjárhæðh- bætast síðan
nýjai’ tölur, eftir að Menningarsjóð-
ur útvarpsstöðva verður aflagður.
Fjárveitingar til kvikmyndasjóðs
hafa næn-i því tvöfaldast á árunum
1995 til 1999. Nú hafa verið lögð á
ráðin um það, hvernig megi tvöfalda
sjóðinn á næstu fjórum árum. Einnig
hefur verið búið þannig um hnúta, að
um meginmarkmiðin ríkir góð sátt.
Höfundur er menntamákiráðherra.
Skíðakennarar
aðstoða við val
á skíðabúnaði
Ódýrir skíðapakkar:
Barnapakkar frá
kr. 12.600, stgr. 11.970
Unglingapakkar frá
kr. 17.000, stgr. 16.910
Fullorðinspakkar frá
kr. 23.000, stgr. 21.050
I ' úíá'J- 7 J
Eldri árgerðir af
skíðum og skíðaskóm
á allt að 60% afslætti.
, — . .
SALÚMÚM
A
Snjóbrettafatnaður
Snjóbretti barna
m/bindingum frá kr. 6.900
Snjóbretti m/bindingum
frákr. 26.200, stgr. kr. 24.090
Brettaskór frá kr. 9.400, stgr. kr. 0.930
Brettapokar frá kr. 4.200, stgr. kr. 3.990
Brettahanskar frá kr. 1.690
Brettagleraugu- mlkið úrval
Skíðaþjónusta, slípum,
brýnum og berum á skíði
Ármúla 40
Símar: 553 5320,
568 8860.
tc
nBHBani
E/n stærsta sportvöruverslun Ia n d sin s
é
í jólapakkann!
Cardinal 85 R
Bakpokar
Með stól. Verð frá 2.890,-
Ijf Handtöskur
Margar stærðir. Verð frá 2.490,-
Margar gerðir. Verð frá 1.950,-
Veiðisett
Stöng og hjól. Verð frá 3.290,-
Aukahlutir
Fjölbreytt úrval af aukahlutum
Þetta er aðeins lítið brot af
veiðivörum frá Abu Garcia sem
fást í öllum helstu sportvöru-
verslunum landsins.
ÆFAbu
Garcia
for life