Morgunblaðið - 22.12.1998, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
@9
+
Svar en
ekkert svar
LACOSTE
ekta jólagjöf
fma
GARÐURINN
-klæðirþigvel
KÆRI Palli; í grein
þinni í Mbl. 5. des. sl.
komst þú að þeirri nið-
urstöðu að veiting
einkaréttar til gerðar
miðlægs gagnagrunns á
heilsufarsupplýsingum
væri „slæm niðurstaða
bæði fyrir markaðinn
og fyrirtækið sjálft". Þú
byggðir röksemda-
færslu þína á sex stoð-
um, þ.e. á almennri þró-
un til afnáms sérleyfa, á
samanburði við einka-
leyfi lyfjafyrirtækja,^ á
lagalegri áhættu ís-
lenskrar erfðagreining-
ar, á hugsanlegri til-
komu annars áhugasams aðila innan
nokkurra ára, að núverandi vel-
gengni fyrirtækisins gerði slíka ný-
sköpun óþarfa, og að skattalögunum
bæri að breyta til að umbuna frum-
kvöðlum. Þetta var það sem grein
þín fjallaði um, en frekari „dýpt“
viðhorfa þinna í þessu máli, eins og
þú nefnir það, hefur til þessa dags
vissulega farið framhjá mér.
Um skattalögin erum við sam-
mála, en í grein minni í Mbl. 12. des.
sl. benti ég á brotalamir í öllum öðr-
um rökum þínum, svo og á þeirri
lausn sem þú telur heillavænleg-
asta, að ríkið ráðist í verkefnið og
greiði Islenskri erfðagreiningu fyrir
gerð þess.
I svargrein þinni í Mbl. 17. des.
sl., kemur ítrekað fram (mis)skiln-
ingur þinn á eðli verkefnisins og því
umhverfí sem Islensk erfðagreining
starfar í. Því vil ég aftur leyfa mér
að úskýra tvö atriði fyi’ir þér og
öðrum lesendum, í trausti þess að
þú kallir það ekki yfír-
læti og hroka.
Samlíking við
Hvalfjarðargöng
Þú segir Hvalfjarð-
argöngin ekki góða
samlikingu, þar sem
við komumst öll til
Akureyrar án þess að
nota göngin. Þessu er
nákvæmlega eins farið
með gagnagrunninn.
Vísindamenn geta auð-
vitað farið þær leiðir
sem þeir fara í dag, og
hafa gert í áratugi við
læknisfræðilegar rann-
sóknir. Öll gögn verða
eftir sem áður til staðar á sjúkra-
stofnunum um land allt. í mörgum
tilfellum verða þau á mun aðgengi-
/
Eg skil ekki, segir Jón
Gunnar Bergs, hvað
hefur hlaupið í fram-
kvæmdastjóra Nýsköp-
unarsjóðs.
legra formi en í dag, þ.e. tölvutæku
formi, sem mun auðvelda öllum vís-
indamönnum gífurlega að stunda
rannsóknir sínar. Með þessari sam-
líkingu má segja að í gerð gagna-
grunnsins felist endurbætur á öllu
vegakerfí landsins. Miðlægi gagna-
Jón Gunnar
Bergs
kirsuberjatréö
vesturgötu 4
grunnurinn verður aðeins eitt tæki
af mörgum sem nota má til þess að
vinna úr þessum gögnum.
í síðari grein þinni fullyrðir þú að
sérleyfi séu ekki til staðar í líftækni-
umhverfínu og í fyrri grein þinni
segir þú að lyfjafyrirtæki fái aðeins
einkaleyfi á niðurstöðum rann-
sókna. Vegna þessa vil ég benda á
að allt lyfjaþróunarferlið er háð röð
einkaleyfa, svo sem á aðferðafræði
og efnasamböndum. Veiting einka-
leyfa sem tryggja það að einn aðili
geti ekki notfært sér að kostnaðar-
lausu fjárfestingu annarra, er
grundvöllurinn fyrir tilvist líftækni-
íyrirtækja. Stöðug fjárfestingar-
vernd með einkaleyfum er það sem
allt gengur út á í þessu umhverfi.
Palli frumkvöðull og
Palli framkvæmdastjóri
Kæri Palli. Ég hélt að ekki gengi
hnífurinn milli skoðana minna og
þess Palla sem ég þekki, um ágæti
og mikilvægi markaðshagkerfisins.
Eg skil hins vegar ekki hvað hefur
hlaupið í þig eftir að þú settist í stól
framkvæmdastjóra Nýsköpunar-
sjóðs og vilt láta ríkið leysa alla
hluti. Enn hefur þú hvorki bent á
aðra leið, né svarað einu spurningu
minni: Ef Nýsköpunarsjóður hefði
bolmagn til, væri hann tilbúinn til
að fjármagna gerð gagnagrunnsins
með hlutafé, án þess að tímabund-
inn einkaréttur kæmi til, en hver
sem er fengi að nýta sér upplýsing-
arnar í viðskiptaskyni jafnharðan
og þær yrðu til? Ef þú kýst frekar,
vertu ávallt velkominn að svara því
yfir kaffi og kökum.
Höfundur cr framkvæmdastjóri
þróunarsjóðs íslcnskrar erfðagrein-
ingar.
BORÐOFNAR FYRIR SÆLKERA
Þeir eru notadrjúgir Dé Longhi
borbofnarnir. Þú getur steikt,
grillab, bakab, ristab og eldab
pizzu og margt fleira.
Val um eftirtaldar 7 gerbir:
DL-3 kr. 4.700,
4,8 Itr. 750W. Ristarbraub, hitar samlokur o.fl.
P 71 kr. 9.400,
7,1 Itr. 1300W. Grill 650W, pizzasteinn
W 81S kr. 8.400,-
I 12,5 Itr. 1000W. Grill 1000W,
12,5 Itr. 1000W. Crill 1000W,
eldunarhella 1000 W.
95-FL kr. 14.800,-
12,5 Itr. 1000W. Crill 1000W,
blásturselement 1050W.
E0-280 kr. 22.400,
Tilvalin jólagjöf til sœlkera
___ _ FYRSTA X FLOKKS
/FOmx
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420