Morgunblaðið - 22.12.1998, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 22.12.1998, Qupperneq 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1998 MORGUNB LAÐIÐ Hugheilar þakkir færi ég sonum mínum og tengdadœtrum, fjölskyldu minni og þeim mörgu góðu vinum, sem samglöddust mér á ýmsan hátt á áttatíu ára afmœli mínu í sept- ember sl. Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól og blessun sína á nýju ári. Kær kveðja, Lýdía Pálmarsdóttir, Eskihlíð 5. GLERAUGNABÚDIN HelmoutKreidier Laugavegi 36 SKIPTILINSUR 6 í PAKKA FRÁ KR. 3.000 Meðgöngufatnaður til hvunndags og spari Kíktu inn og skoðaðu verð og gæði Þumalína, Pósthússtræti 13 v/Skólabrú. Glæsilegur fatnaður Fallegar og góðar jólagjafir Munið gjafakortin vinsælu Eddufelli 2, sími 5571730 Opið i dagfrá hl. 10-20 og á Þorláksmessu fi'á kl. 10-23 RAYMOND WEIL GENEVE -18 karata þykk gullhúð, stál með eða án demanta - skelplötuskífa - órispanlegt gler, verð frá kr. 35.900,' HÖNNUN sem vekur heimsathygli Garðar Ólafsson úrsmiður Lækjartorgi, s. 551 0081 FASTEIGNASALA 4RA - 7 HERBERGJA HátÚn Mjög góð 4ra herbergja risibúð ásamt góðum bílskúr í þessu vinsæla bamvæna hverfi. Þrjú svefnherb. og stofa með suðursvölum. Upphitað plan og stétt- ar. Garður í rækt. íbúðin er laus nú þeg- ar. Áhv. 3,8 millj. Verð 7,9 míllj. 3694. Uppl. gefur Þorri í gsm 897 9757. Kringlan Glæsileg ca 100 fm 4ra herb. íbúð á jarðh. innst í botnlanga I þessu góða, rólega hverfi. Sérinng. Parket á allri íbúðinni. Tvö stór svherb. og tvær stórar stofur. Allt nýtt á glæsil. baðherb., sturta og baðkar. Sólpallur í suður. (b. er hjólastólafær. íb. er laus nú þegar. Áhv. 5 millj. Verð 10,7 millj. 3569. Uppl. gefur Þorri í gsm 897 9757. í DAG VELVAKAMPI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Hraða- mælingar í ÁRATUGI hafa litlar breytingar verið gerðar á leyíilegum ökuhraða í borginni og þær breyting- ar sem gerðar hafa verið hafa lítið verið kynntar í fjölmiðlum. Þeim sem ekki hafa nýlegt ökuskírteini hefur því verið gert erfitt fyrir að kynna sér breyt- ingar og þar af leiðandi hafa flestir ökumenn ein- faldlega íylgt þeim hraða sem aðrir hafa viðhaft og þeir sem ábyrgir eru hafa reynt að viðhafa öryggi og aka eftir aðstæðum hverju sinni. Skilti sem sýna leyfi- legan ökuhraða hafa ekki verið áberandi. Þetta hefur lögreglan látið viðgangast athugasemdalítið í áratugi. En svo allt í einu, síðari hluta sumars, gerði um- ferðarlögreglan „átak“ í að mæla ökuhraða í borginni og sektaði ökumenn vægð- arlaust ef ekið var of hratt. Það er svo sem sjálfsagt mál, en ekkert tillit var tekið til þess hvort öku- manni hafði óvart orðið á að fara yfir löglegan hraða örskamma stund sem sam- svarar sekúndubroti og í lítilli umferð þar sem allir virtust aka á sama hraða eða hvort um var að ræða gróft brot þar sem krussað var milli akreina eða ekið og tekið fram úr á ofsa- hraða. Jafnvel virtist lög- reglan frekar vera á ferð- inni þegar umferðin var lítil og þótt allir virtust vera á sama hraða var einn ökumaður tekinn út, en hinir sluppu. Þeir öku- menn sem vanist höfðu að fylgja þeim meðalhraða sem í gangi var (og höfðu komist upp með það árum saman) héngu allt í einu í lausu lofti. Allt í einu og án þess að það væri tilkynnt voru sett upp skilti sem til- kynntu hámarkshraða (þó aðeins á stöku stað við við- komandi götu) og öku- mönnum ekki gefinn tími til að tileinka sér þann fróðleik sem þar kom fram. Ganga mátti að því sem vísu að ef skilti var sett upp við ákveðna götu á þriðjudegi lá lögreglan í leyni við sömu götu daginn eftir. Engin aðlögun. Sá grunur liggur í loftinu að þeir sem teknir voru fyrir of hraðan akstur í þessari síðsumar-rassíu hafi verið saklausir einfeldningar sem í raun vilja virða lög og reglur, en höfðu ekkert við að styðjast. Hinir raun- verulegu ökuníðingar hafi sloppið og sleppi enn. Því að hvar er umferðarlög- reglan núna? Finnst henni virkilega að hraðinn sé kominn í lag? Hvers vegna komast ákveðnir ökumenn upp með það dag eftir dag, viku eftir viku og mánuð eftir mánuð að aka um göt- urnar á ofsahraða, skipta sífellt um aki-ein, þver- beygja fyrir næsta bíl fyrir aftan og troða sér fram fyrir án þess að sýna stefnuljós og svo mætti lengi áfram telja? Löghlýðinn ökumaður. Hverjir eru Breiðfirðingar? KRISTJÁN hringdi og bað Velvakanda að kanna fyrir sig hverjir væru Breiðfirðingar? Hann spurði vegna þess að fólk við Breiðafjörð vill ekki kalla sig Breiðfirðinga, heldur vill það kenna sig við staðinn sem það er frá. T.d. vilja þeir sem eru frá Snæfellsnesi láta kalla sig Snæfellinga, þeir sem eru frá Ólafsvík vilja láta kalla sig Ólafsvíkinga o.s.frv. Ólafur Liljurós HEFUR einhver undir höndum kvikmynd Rósku, Ólafur Liljurós, á mynd- bandi. Vinsamlegast hafið samband í síma 551 6713, Guðrún. Tapað/fundið Armband týndist GULLARMBAND týndist á Reynimel fóstudaginn 18. desember. Finnandi vinsamlega hafi samband við Byigju í síma 557 8447. Poki frá Tösku- og hanskabúðinni í óskilum I síðustu viku gleymdist poki með jólagjöfum í Bókabúð Steinars. Eig- andinn getur vitjað hans í Bókabúð Steinars, Berg- staðastræti 7. Gullhringur í óskilum ÚTFLÚRAÐUR gull- hringur með þremur fjólu- bláum ametyst-steinum fannst á Austurströnd, Seltjarnarnesi. Nánari upplýsingar í síma 561 3307. Svört hliðartaska í Holtagörðum SVÖRT hliðartaska týnd- ist í Holtagörðum sl. fimmtudag. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 569 1151 eða 555 3554. Svartur bakpoki týndist SVARTUR bakpoki með fatnaði í týndist mánu- dagskvöldið 14. desember annaðhvort á Hlemmi eða í leið 4. Skilvís finnandi hafi samband í síma 568 6972. Silkitrefill týndist SILKITREFILL, brúnn/- svartur/ljós, týndist í sl. viku í miðbænum, Hafnar- stræti, Aðalstræti. Skilvís finnandi hafi samband í síma 551 3774. Gleraugu týndust GLERAUGU, lesgleraugu með brúnni umgjörð, tjmd- ust líklega í Smáranum, Holtagörðum eða í Skeif- unni. Finnandi vinsamiega hafið samband við Erlu í síma 552 1696. GSM-sími týndist NOKIA GSM-sími týndist fóstudagskvöldið 11. des., að öllum líkindum á Kaffi- barnum 22 v/Laugaveg. Finnandi vinsamlega hringið í síma 551 2707. Morgunblaðið/Halldór. 7-ÁE í Breiðagerðisskóla safnaði 5.883 kr. til styrktar Vímulausri æsku, foreldrasamtökum. Á myndinni eru í aftari röð f.v.: Sjöfn Pálsdóttir, Guðrún Arna Jóhannsdóttir og Sandra Ólafsdóttir. f fremri röð eru: Heiðrún Björk Gísladóttir og Jón Felix Sigurðsson. Víkverji skrifar... VÍKVERJA hefur borizt eftir- farandi bréf frá bóksala í Reykjavík í tilefni af umfjöllun í þessum dálki fyrir skömmu um bókasölu. Bréfið er svohljóðandi: „Ágæti Víkverji. Eg las hugleiðingar þínar á þriðjudag um bóksöluna fyrir jólin, alla afslættina og tilboðin. Þú undr- ast hvemig hægt sé að lækka verð bóka sem raun ber vitni um og hug- leiðir álagningu á bækur fyrst með tilkomu Bónuss o.fl. markaða sé nú hægt að lækka verðið svona gífur- lega. Allt á þetta sér afskaplega eðlilegar skýringar. Markaðimir - Bónus fremstur í flokki, bjóða til sölu bækur 3^1 vikur á ári hverju, 60-80 bókatitla með þessum gífur- lega afslætti, eingöngu til að veiða viðskiptavini inn í búðimar þennan stutta tíma, þessi viðskipti skipta þá engu máli. Þetta er bara þeirra aug- lýsingaaðferð: „Við emm menn litla mannsins." Hitt er svo annað mál að bækurnar sem era með mestum af- slætti eru stundum til í 3^4 tíma og fást svo ekki næstu 3-4 tímana, þær eru bara uppseldar í bili, „en þú getur fengið þessa eða þessa“. Afleiðingin er svo sú að bókabúðim- ar, sem veita þér þjónustu allt árið, neyðast til að elta vitleysuna." xxx SÍÐAN segir:“Söluþóknun bóka- búða er 30% og í desember tekst þeim í sumum tilfellum að betla 5-6% auka þóknun á einstaka bæk- ur - það er herkostnaður bókaút- gefenda, en bóksalinn situr uppi með skellinn. Um verðiagningu bókaútgefenda á sinni framleiðslu er mér ekki kunnugt. Bóksalinn er því í mörgum tilfellum að fá í sinn hlut 4-5% og stundum ekkert, þeg- ar verst lætur. En svo líða jólin og þeir sem fengu ranga bók í jóla- pakkanum eða fengu tvær eins þurfa að fá þeim skipt. Fara þeir nú ekki á harða hlaup- um í Bónus og fá bókunum skipt? Nei - þefr era oftast hættir bóksölu eða hafa ekkert úrval. Þeir kaupa ekki inn bækur eftir jól. Og hvert er þá farið? Jú, auðvitað í bókabúðina þar sem þeir fá þjónustuna. Þá eru bókabúðimar nógu góðar til að veita hana. Árangur þessarar vitleysu er að bókabúðirnar neyðast til að halda sér gangandi með sölu á alls konar dóti sem ekkert á skylt við bækur, en með misjöfnum árangri. Fyrir 15-20 árum vora í kringum 30 bóka- búðir í Reykjavík. Núna - innan við tíu. Hvað skyldu þær verða margar um næstu jól? Gleðileg bókajól! Borgar Jónsteinsson, Bókabúðinni Hlemmi." ÞÁ STENDUR eftir þessi spurn- ing: hefur þessi samkeppni á bóka- markaðnum fyrir jólin leitt til auk- innar sölu á bókum? Fá höfundar af þeim sökum meira í sinn hlut? Fá útgefendur meira í sinn hlut? Era það eingöngu bóksalarnir, sem verða að axla herkostnaðinn af sam- keppninni?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.