Morgunblaðið - 22.12.1998, Side 67

Morgunblaðið - 22.12.1998, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1998 67' Fonda mikið fyrir kántrý ►LEIKKONAN Bridget Fonda á í ástarsambandi við kántrý- söngvarann Dwight Yoakam en er ófáanleg til þess að ræða sambandið. „Eg ræði ekki um þá sem ég á vingott við vegna þess að þegar slitnar upp úr sambandinu endurupplifir maður það í fjölmiðlum,“ segir hún í samtali við Reuters. Svo mörg voru þau orð. 553 2075 ALVÖRU BIÓ! mpolby RfflFR/FNT 8THR8IA TJAUHB MÉ HLJÓÐKERFI í | UY ÖLLUM SÖLUM! ★ ★★ Kvikmyndir.is I DAG ER HELSTA OGN HINNA ILLU OKKAR EINA VON! http://www.blademovie.com Sumar deilur standast tímans tönn Hinir síungu sprellikarlar, Jack Lémmon og Walter Matthau fara á kostum í léttri og sprenghlægilegri gamanmynd um þá félaga Felix og Oscar sem hafa ekki hist í þrjátíu ár en nú þurfa þeir að ferðast saman I brúðkaup bama sinnal Sýnd kl. 5, 7,9 og 11. Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.20. b. i. 16. Tm C A R R E Y HEIÐA er að springa af orku og fjöri. MAGGA Stína leikur sér að eldinum. Rokk í skóinn BELLATRIX í jólaskapi. ' TOWLIST Lol'tkastalin n Gefðu mér rokk f skóinn Tónleikar í Loftkastalanum laugar- dagskvöldið 19. desember. Fram komu 200.000 naglbi'tar, Súrefni, Bellatrix, Unun, Botnleðja og Magga Stína. Áhorfendur fáir. Á LAUGARDAG héldu nokkrar helstu hljómsveitir landsins nú um stundir tónleika í Loftkastalanum undir yfirskriftinni Gefðu mér rokk í skóinn. Allar voru hljómsveitirnar að vekja athygli á nýlegum eða glæ- nýjum breiðskífum sínum, til að ýta undir sölu á skífunum og bara til að vera með. 200.000 naglbítar voru fyrstir á svið og stóðu sig með prýði þótt ekki hafi stemmningunni verið fyrir að fara í Loftkastalanum, áhorfend- ur ekki nema nokkrir tugir. Þeir fé- lagar ná gríðarlega vel saman og voru vel þéttir, ekki síst þegar kom- ið var út í lagið frábæra, Neðanjarð- ar. I því og reyndar svo víða í text- um þeirra félaga er grunntónninn myrkur í vonleysi sínu og tóm- hyggju. Afbragðssveit sem sendi frá sér fyrirtaks plötu í haust. Súrefni sendi einnig frá sér góða skífu fyrir jólin, en tónlist sveitar- innar er allfrábrugðin Naglbítanna og reyndar skáru þeir Súrefnisfé- lagar sig nokkuð úr í miðju rokkhaf- I inu. Þeir áttu í vandræðum með hljóð, ekki síst í öðru laginu sem hljómaði heldur sérkennilega á köfl- um. Þriðja lagið var frábær keyrsla og Arnar trymbill hreinlega fór á kostum. Gaman hefði verið að sjá sveitina á sviði með rafgítar í loka- laginu, en það bíður betri tíma. Bellatrixur voru yfirvegaðar og rólegar, enda ekki eins mikið í húfi og síðast er þær stóðu á sviði Loft- kastalans. Þær voru greinilega að skemmta sér ekki síður en áheyr- endum og skilaði sér vel út í sal; notaleg stund með Bellatrix! Crash var frábærlega vel útfært, hljóm- veggur og hamagangur, og Elíza í fínu formi. Er kannski til marks um hversu liðsmenn tóku lífinu létt að í Great Expectations var trymbillinn einhentur um stund og enginn kippti sér upp við það. Happy Go Lucky var kæruleysislegt vagg og velta, bráðskemmtilegt lag, og loka- lagið, Ég fæ jólagjöf, hefði átt að gefa út á smáskífu fyrir jólin. Unun er með skemmtilegustu tónleikasveitum, en hentar kannski betur á knæpunni Skreiðstu-inn frekar en í Loftkastalaleikhúsinu. Líkt og jafnan er Heiða miðpunkt- urinn; í 34 mínútur er hún að springa af orku og fjöri, geislandi af gleði og skemmtan. Þegar Botnleðja kemur á svið er skipt um gír, keyrslugír. Botnleðju- drengir fóru rólega af stað í öflugu lagi, Ég drukkna hér og héldu fram stuðinu í Hentu í mig aur. Rophynol róðaði fólk niður áður en sett var á fullt aftur í Són sem fluttur var í framúrskarandi stuði. Rúsínan í pylsuendanum var síðan mögnuð útgáfa Botnleðjunga í Ave Maria, þótt stirðlega væri farið af stað. Þar er komin b-hliðin á jólagjöf Bella- trix. Magrét Kristín Blöndal mætti síðust til leiks með liðið sitt, Fót- vana FC. Frá fyrstu tónum var ljóst að menn ætluðu að leika sér að eld- inum og gerðu það; útsetningar fjöl- skrúðugar og framandlegar á köfl- um. Sum laganna öðluðust nýtt líf, önnur kannski annað líf en þeim var ætlað í upphafi, en líf engu að síður. Innblástur augnabliksins réð ferð og úr varð frábær skemmtun, nýjar hliðar og nýtt líf. Áheyrendur fáir, segir í inngangi þessarar frásagnar, og reyndar svo fáir að vakti nokkra undrun. í Loft- kastalanum á laugardag var blómi íslenskra rokksveita að segja allur saman kominn en fáir áheyrendur. Kannski var staðurinn ekki réttur, eða stundin, en þeir sem mættu fengu svo sannarlega eitthvað fyrir sinn snúð, fengu rokk í skóinn. Árni Matthíasson Hrein leiðindi Tala fallinna (Body Count) S p i‘ ii ii ii in y n il l/2 Framleiðsla: Mark Burg, Doug McHenry og George Jackson. Leikstjórn: Robert Patton-Spruill. Handrit: Theodore Witcher. Kvikmyndataka: Charles Mills. Aðalhlutvcrk: David Caruso, Linda Fiorentino, John Lcguizamo og Ving Rhames. 81 mín. Bandarísk. Háskólabíó, desember 1998. Bönnuð innan 16 ára. ÞETTA er enn ein sagan af ráni < sém misheppnast, sem sver sig í ætt við „Reservoir Dogs“, bestu mynd Quentins Trarantino. Hún er þó ekkert nema þynnku- legur skugginn af íyrirmyndinni og að flestu leyti óþolandi kvik- mynd. Leikara- skráin er óneit- anlega glæsileg en sú lýsing á ekki við neitt annað hér. Sagan drattast þunglamalega áfram og mínúturnar virðast ótrúlega marg- ar og langar. Sögupersónur eru hver annarri ömurlegri og hefðu auðveldlega drepið niður alla spennu ef einhverntíma hefði verið um nokkuð slíkt að ræða, sem auð- vitað fer víðsfjarri. Ýmsum þekkt- um kvikmyndaminnum er beitt af stökum aumingjaskap svo jaðrar við misþyrmingu á kvikmyndahefð- inni. Sem dæmi má nefna „þjóð- vegamyndir“ og „film noir“ sem augljóslega eiga að móta myndina. Þessi innantómi metnaður bætir sýndarmennsku við fjölmargar nei- kvæðar hliðar eins og heimskuleg samtöl, fáránlega persónusköpun og sorglega vondan söguþráð. „Body Count“ gæti hugsanlega átt eitt sér til ágætis, að standa sem dæmi um hvernig er hægt að klúðra kvikmyndum til að kenna manni að meta það sem betur er gert annars staðar. Guðmundur Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.