Morgunblaðið - 22.12.1998, Side 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Golli
Thor Heyerdahl
á Bessastöðum
NORSKI landkönnuðurinn og
fræðimaðurinn Thor Heyerdahl
og kona hans Jacquelene komu í
gær til kvöldverðar á Bessastöð-
um í boði Olafs Ragnars Gríms-
sonar, forseta íslands, á fyrsta
degi vikulangrar heimsóknar
þeirra til íslands. Starfsmenn
forsetaembættisins sögðu að
Heyerdahl, sem er á níræðis-
„>aldri, hefði verið hress og skraf-
hreifmn. Hann færði forsetanum
útskorið grasker að gjöf, en fékk
sjálfur fslendingasögurnar í
enskri útgáfu.
Til kvöldverðarins voru auk
Heyerdahlshjónanna aðallega
boðnir háskólamenn og fræði-
menn sem rannsakað hafa sögu
landafunda norrænna manna.
Thor Heyerdahl mun flytja fyrir-
lestur við Háskóla fslands meðan
á dvöl hans stendur. Á aðfanga-
dag mun hann að öllum líkindum
dveljast á sveitabæ í nágrenni
Skálholts.
GÁTTAÞEFUR
CLUCCAGÆCIR
kom f gær
DAGAR TIL JOLA
Þingmenn
mótmæla
prófessorum
SAUTJÁN þingmenn Framsóknar-
flokks og Sjálfstæðisflokks hafa sent
frá sér yfirlýsingu þar sem þeir lýsa
furðu á því að 105 prófessorar við
Háskóla Islands skuli hafa skrifað
undir yfirlýsingu þess efnis að
breyta þurfi lögum um úthlutun fisk-
veiðiheimilda í kjölfar dóms Hæsta-
réttar. Segja þeir að með því séu há-
skólaprófessoramir að túlka dóminn
rangt og taka afstöðu í hápólitískum
deilum.
■ Saka/10
Fimm slasaðir í
hörðum árekstri
á Reykjanesbraut
FIMM manns slösuðust, þar af
þrír alvarlega, í hörðum árekstri á
Reykjanesbraut skammt sunnan
við Kúagerði á ellefta tímanum í
gærkvöldi.
Kallað var á aðstoð þyrlu Land-
helgisgæslunnar en hún var aftur-
kölluð þegar í ljós kom að ástand
hinna slösuðu var stöðugra en talið
var í fyrstu. Fjórir sjúkrabflar
komu á vettvang og tveir lögreglu-
bflar frá Hafnarfirði voru sendir til
aðstoðar Keflavíkurlögreglunni.
Töluverðar tafir urðu á umferð
vegna slyssins.
Skömmu eftir að áreksturinn
varð fór bíll út af veginum innan
við kílómetra frá staðnum, en ekki
urðu þá slys á fólki. Að sögn lög-
reglu var mikil hálka á veginum á
þessum slóðum.
Skömmu eftir klukkan ellefu í
gærkvöldi valt síðan bfll á Álfta-
nesvegi við Engidal.
Ökumaðurinn, sem grunaður er
um ölvun, slasaðist ekki en veitti
mótspyrnu þegar lögreglumenn
komu á vettvang og neyddust þeir
því til að beita úðagasi til að yfir-
buga hann.
Þúsund börn
í kirkju-
tröppum
ALLT að eitt þúsund börn sungu
saman í kirkjutröppunum við
Akureyrarkirkju á sunnudags-
kvöld og gengu síðan fylktu liði
að jólaþorpinu Norðurpólnum.
Voru þau að fylgja úr hlaði jóla-
pökkum sem sendir verða til
stríðshrjáðra barna í Bosníu.
Knútur Karlsson hjá Ferðamála-
miðstöð Eyjaíjarðar sagði að
enn væru að berast pakkar.
Landflutningar ílytja gám til
Keflavíkur en þar tekur
Cargolux við og flytur þá til
Brussel, þaðan verður þeim ekið
landleiðina til bæjarins Sanski
Most. Fólk á vegum Hjálpar-
starfs kirkjunnar sér um dreif-
ingu þeirra ytra.
Morgunblaðið/Björn Gíslason
Öskufall frá Grímsvatnagosi getur orðið á Norðaustur- og Austurlandi 1 dag
Flúoreitrun myndar gadd og
getur leitt skepnur til dauða
ASKA frá eldgosinu í Grímsvötnum
hefur víða fallið í byggð; um helgina
einkum í Suðursveit en í gær varð
ösku vart frá Skagafirði og austur í
Þingeyjarsýslur. Því er spáð að ösku-
fall geti orðið á Norðaustur- og Aust-
urlandi í dag. Flúor í eldfjallaösku
getur haft margvísleg áhi-if á skepn-
ur og jafnvel leitt þær til dauða. I
gær benti ekkert til þess að eldgosið
væri að minnka.
Flúor binst við öskukomin og er
■x gjaman meiri í fínkomaðri ösku. Því
getur sú aska sem berst langar leiðir
með vindi og fellur niður á ólíkleg-
ustu stöðum verið eins hættuleg eða
hættulegri skepnum en sú grófa aska
sem fellur nær gosstöðvunum.
Skepnur, jafnt sauðfé, hross og
kýr, geta fengið í sig flúor með beit
og vatni. Flúorinn getur valdið
kalkskorti í blóði og þar með dofa, að
sögn Sigurðar Sigurðarsonar dýra-
læknis á Keldum. Hann getur valdið
ertingu í maga og meltingarfærum.
Ef skepnumar taka inn mikið magn,
til dæmis með því að drekka vatn úr
pollum sem aska hefur safnast í, get-
ur myndast bráðaeitmn og skepn-
urnar drepist.
Gaddur í tönnum
Þá getur öskufall haft mikil áhrif
á ungar skepnur sem eru í tann-
skiptum. Flúorinn veldur því að
svokallaður gaddur vex á tönnunum
svo þær aflagast og misslitna. Ærn-
ar geta átt erfitt með að nýta fæðu
og jórtra og það getur leitt þær til
dauða. Flúoreitrunin getur haft
samskonar áhrif á bein kinda, til
dæmis í fótum.
Gaddur í tönnum getur komið
fram eftir mánuði eða jafnvei nokk-
ur ár. Sem dæmi má nefna að
nokkrir bændur í fremstu dölum
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
BORGAR Símonarson í Goðdöl-
um í Skagafirði notaði þjöl til að
sverfa gadd úr tönnum kinda
sinna eftir Heklugosið 1980.
Skagafjarðar urðu fyrir verulegu
tjóni af gaddi veturinn 1982-83
vegna öskufalls frá Heklugosi 1980.
Varð að opna sláturhús þá um vet-
urinn til að slátra kindum sem vom
svo illa farnar að ekki borgaði sig að
fóðra þær um veturinn. Bændurnir
reyndu að sverfa gaddinn og brjóta.
Borgar Símonarson bóndi í Goðdöl-
um sagði í gær að gaddur hefði ver-
ið að koma fram í fé þar í mörg ár
eftir öskufallið. Skepnur eru yfir-
leitt inni um þessar mundir, en frá
því eru þó nokkrar undantekningar.
Yfirdýralæknir ráðleggur búfjár-
eigendum að fylgjast vel með ösku-
falli næstu daga og taka fénað á hús
ef hægt er. Þar sem því verður ekki
við komið skal safna skepnunum
saman þar sem hægt er að fóðra
þær og brynna.
■ ÖskufalI/36
Sparisjóðir
og Kaupþing-
ráða 23%
ÍFBA
VIÐSKIPTASTOFA SPRON,
fyrir hönd 6 sparisjóða og dótt-
urfélags, Sparisjóðabankans,
hefur keypt 612 mki'. hlut að
nafnverði í Fjárfestingarbanka
atvinnulífsins hf., FBA.
Þetta svarar til 9% af heildar-
hlutafé bankans. Heildarsölu-
verðmæti hlutarins er 1.150.560
þúsund krónur. Fóru kaupin
fram á genginu 1,88.
Seljandi var Búnaðarbanki Is-
lands hf. og viðskiptavinh' hans.
Alls ráða Sparisjóðimir og
dótturfélag þeh-ra, Kaupþing,
nú samanlagt yfir um 23% af
heildaratkvæðamagni í FBA og
eru þau þar með orðin næst-
stærsti hluthafinn í bankanum á
eftii' ríkinu. Guðmundur Hauks-
son sparisjóðsstjóri segir kaup-
in góða fjárfestingu, en segir
óvíst um frekari hlutafjárkaup
Sparisjóðanna í bankanum.
■ Spaisjóðir/20