Morgunblaðið - 09.01.1999, Page 28

Morgunblaðið - 09.01.1999, Page 28
28 LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Harka færist í ísra- elsku kosningabaráttuna Jerúsalem. Reuters. Reuters BENJAMIN Netanyahu, forsætisráðherra fsraels, heilsar stuðnings- mönnum sínum úr Likud-flokknum fyrir utan embættisbústað sinn. HARKA er þegar farin að færast í kosningabaráttuna í ísrael, aðeins nokkrum dögum eftir að boðað var til kosninga 17. maí næstkomandi. Stærsta dagblaðið í Israel, Yedioth Ahronoth, lýsti í gær persónulegum árásum frambjóðenda hvers á ann- an sem „ærumeiðingastríði“, en þeir hafa nú ráðið bandaríska áróðurs- meistara til að leggja línurnar í bar- áttunni. Israelska lögreglan rannsakar nú fullyrðingar um morðhótun á hend- ur Amnon Lipkin-Shahak, íyrrver- andi yfírmanni hersins, sem hefur ákveðið að bjóða sig fram til emb- ættis forsætisráðherra og stofna nýjan miðflokk. Að sögn stuðnings- manns Lipkins-Shahaks var hann á atkvæðaveiðum á fjölfómum úti- markaði í Tel Aviv á fímmtudag, þegar maður með höfuðfat bók- stafstrúargyðinga kallaði til hans: „Næsta byssukúla mun lenda í höfðinu á þér.“ Lipkin-Shahak var skjólstæðing- ur Yitzhaks Rabins, fyri-verandi forsætisráðherra Israels, sem var skotinn til bana árið 1995 af bók- stafstrúarmanni sem var andsnúinn friðarumleitunum við Palestínu- menn. Rógur og lygar Lipkin-Shahak segist vilja sætta ágreining meðal ísraelsku þjóðar- innar, sem hann sakar Benjamin Netanyahu forsætisráðherra um að draga fram. Hann hóf kosningabar- áttu sína á miðvikudag með því að ráðast á forsætisráðherrann. „Net- anyahu er hættulegur ísrael. Net- anyahu verður að fara,“ sagði hann á fréttamannafundi. Likud-flokkur Netanyahus segist til þessa hafa sniðgengið Lipkin- Shahak, þar sem hann hafi ekki enn kynnt stefnu sína. Spjótin hafa hins vegar beinst að Ehud Barak, fram- bjóðanda Verkamannaflokksins, sem þykir sigurstranglegri. „Barak snýr baki við sannleikanum“ segir í auglýsingum Likud-flokksins í dag- blöðum í gær, og vitnað var í þau meintu ummæli hans að hann léti ekki í ljósi friðsamlega stefnu sína vegna þess að hann vildi vinna sigur í kosningunum. Aviv Bushinsky, talsmaður Net- anyahus, fullyrti í gær að í auglýs- ingunum væri einfaldlega verið að nota eigin orð Baraks til að gefa sanna mynd af afstöðu hans. Neit- aði hann því að markmið Likud- flokksins væri að breiða út per- sónulegan róg eða kalla nokkurn lygara. Hann játaði því hins vegar að bandaríski stjórnmálaráðgjafinn Arthur Finkelstein hefði hjálpað til við að skipuleggja kosningabaráttu Netanyahus, en sagði að hann hefði fyrst og fremst einbeitt sér að „tæknilegum atriðum", eins og lýð- fræðilegum upplýsingum um kjós- endur. Stjórnmálaskýrendur telja þó að áhrif Finkelsteins séu mun meiri en Bushinsky vildi vera láta, og segja hann meðal annars hafa verið manninn á bak við áhrifa- miklar auglýsingar fyiir kosning- arnar árið 1996, þegar Netanyahu komst til valda, þar sem sýndar voru myndir af ísraelskum strætis- vögnum sem sprengdir voru af palestínskum hryðjuverkamönnum. Hverri atlögu svarað Ehud Barak sneri vörn í sókn á fundi Verkamannaflokksins á fimmtudag. „Mér þykir leitt að for- sætisráðherrann er að draga kosn- ingabaráttuna niður í svaðið,“ sagði hann í ræðu sinni. Að baki hans héngu kosningaspjöld Verkamanna- flokksins, þar sem sjá mátti slagorð á borð við „Netanyahu er fyrir öfga- mennina, Barak er fyrir alla“ og „Of margar lygar í of langan tíma“. Framkoma Baraks í sjónvarps- þáttum undanfama daga þykir ákveðnari og valdsmannslegri en áður, enda hefur hann einnig ráðið til sín hóp af bandarískum áróðurs- meisturum. Þeirra þekktastur er ef- laust James Carville, sem stjómaði kosningabaráttu Bills Clintons Bandaríkjaforseta árið 1992. Haft var eftir Tal Silberstein, ein- um stjórnenda kosningabaráttu Baraks, að nú yrði horfíð frá þeirri aðferð, sem Verkamannaflokkurinn beitti með slæmum árangri í kosn- ingunum 1996, að svara ekki öllum skotum Likud-flokksins. „I hvert sinn sem Benjamin Netanyahu og áróðursvél hans gera atlögu munum við svara samstundis með gagnárás,“ sagði Silberstein. Dollí verður stoppuð upp VÍSINDAMENN hafa nú komist að niðurstöðu um hvernig best verður hægt að varðveita minn- ingu einræktuðu kindarinnar Dollíar. Þegar hún drepst hyggj- ast þeir stoppa hana upp. Roslin-stofnunin, sem einrækt- aði Dollí úr erfðaefni fullvaxinn- ar kindur árið 1996, tilkynnti í gær að komist hefði verið að samkomulagi við Þjóðminjasafn- ið í Skotlandi að það varðveiti Dollí handa komandi kynslóðum. Dollí fæddist fimmta júlí árið 1996 en vísindamenn tilkynntu ekki um tilvist hennar fyrr en sjö mánuðum síðar. Var þetta í fyrsta sinn sem tekst að einrækta spendýr úr erfðaefni annars spendýrs af sömu tegund. Vöknuðu strax áhyggjur vegna mögulegrar einræktunar manna og hefur hvarvetna verið deilt um siðfræðilegar hliðar þessara nýju tíðinda í vísindum. A hinn bóginn hefur einræktun gefið mönnum tækifæri á að þróa ný Iyf gegn ýmsum skæðum sjúk- dómum. Dollí hlaut nafn sitt eftir sveitasöngkonunni bandarísku Dollí Parton og ól sjálf af sér á í apríl á síðasta ári sem hlaut nafnið Bonní. Þjóðminjasafnið skoska gæti þurft að bíða nokkuð lengi eftir tækifærinu til að stilla kindinni sögufrægu upp á sýn- ingum því Dollí gæti enn átt fimmtán ár ólifuð eða svo. Sierra Leone Uppreisn- armenn segjast í stórsókn Abidjan. Reuters. UPPREISNARME NN í Sierra Leone lýstu í gær yfir stórsókn gegn herliði Vestur-Afríkuríkja, sem Nígeríumenn fara fyrir, í höf- uðborginni Freetown. Sam Boekarie, foringi uppreisn- armanna, sagði í samtali um gervi- hnött við Reutei's-fréttastofuna í gær að sóknin hefði haflst á fimmtudagskvöld. Sagði hann ekki lengur launungarmál að skærulið- ar hygðust reyna að ná nígerískri herstöð á Lungi-flugvelli í ná- grenni borgarinnar á sitt vald, en þar hefur Ahmad Tejan Kabbah, forseti landsins, hafst við ásamt nokkrum ráðherrum sínum síðan sveitir uppreisnarmanna héldu inn- reið sína í höfuðborgina á miðviku- dag. Leiðtogi uppreisnarmanna er Foday Sankoh, en Bockarie tók við forystunni eftir að Sankoh var tek- inn höndum. Fölsuð yfirlýsing Kabbah lýsti því yfír á fimmtu- dag að hann hefði náð samkomu- lagi við Sankoh um sjö daga vopna- hlé. Vísaði Bockarie fregnunum á bug í gær, og sagði að yfírlýsing Sankohs þar að lútandi, sem flutt var á útvarpsstöð stjómarsinna á fimmtudag, væri fölsuð. Leikinn hefði verið hluti af gamalli hljóð- snældu sem Sankoh sendi skæru- liðum í frumskóginum til að til- kynna um vopnahlé árið 1996. Reuters Flamengó til heimilisnota IRASKUR maður sýnir tvo upp- stoppaða flamengófugla á AI Gazil markaðnum í Bagdad. Þar eru fuglarnir seldir á sem svarar til ríflega 120 kr. ísl. en þeir þykja mikil híbýlaprýði í Irak. Fylgi bresku stjórnarinnar dalar nokkuð London. Reuters. TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, harðneitaði því í gær að sundrung væri komin upp í Verka- mannaflokknum og sagði Blair að einmitt hið gagnstæða væri uppi á teningnum því hann myndi ekki til þess að flokkurinn hefði nokkurn tíma verið jafn hugmyndafræðilega sameinaður. Útilokaði Blair jafn- framt að ríkisstjórn sín myndi skipta um stefnu vegna erfiðleika sem hún hefur mátt ganga í gegn- um að undanförnu. Skoðanakannan- ir tveggja breskra dagblaða sýndu í gær að stuðningur almennings við ríkisstjórnina hefur minnkað nokk- uð en fylgið er samt sem áður mik- ið, miðað við að nú eru tæp tvö ár liðin síðan Verkamannaflokkurinn komst til valda. Tveir ráðherrar og einn af helstu aðstoðarmönnum fjármálaráðherr- ans Gordons Browns neyddust til að segja af sér um jól og nýár vegna uppljóstrana um að Peter Mandel- son, ráðherra viðskipta- og iðnaðar- mála, hefði fengið 373.000 pund að láni frá Geoffrey Robinson, aðstoð- arráðherra í fjármálaráðuneytinu, og síðan reynt að halda því leyndu. Bæði Mandelson og Robinson sögðu af sér og einnig Charlie Whelan, talsmaður Browns, vegna orðróms um að hann hefði lekið fréttinni um Mandelson til fjölmiðla. Hafði ríkis- stjórnin fram að þessum tíma virst nánast óskeikul, a.m.k. var stuðn- ingur almennings afar stöðugur. Mandelson gat glaðst nokkuð í gær þegar lánastofnunin Britannia ákvað að fara ekki fram á lögreglu- P rannsókn á ráðherranum fyrrver- andi, en þegar Mandelson sótti um húsnæðislán hjá Britannia á sínum tíma láðist honum að geta einka- lánsins frá Robinson sem honum var þó skylt samkvæmt lögum. Ihaldsmenn standa í stað þrátt fyrir vandræði Blairs Skoðanakannanir sem The Ex- press og The Daily Telegraph birtu í gær sýna hins vegar að í kjölfar vandræðanna, sem hófust með af- sögn Mandelsons á Þorláksmessu, hefur fylgi stjórnarinnar minnkað. Könnun The Express sýnir að fylg- ið hefur fallið niður í 48%, eða um sjö prósentustig frá því í könnun sem gerð var skömmu áður en vandræðin hófust í desember. Er þetta í fyrsta sinn frá því Verka- mannaflokkurinn komst til valda í maí 1997, sem fylgi Blair-stjómar- innar fer niður fyrir 50%. Fylgis- tapið mældist ekki eins mikið í könnun The Daily Telegi-aph, er nú 52%, þremur prósentustigum minna en í síðustu könnun og segir blaðið að svo virðist sem Blair virðist ætla að takast að standa af sér þennan storm. Athyglisvert er að báðar kannan- imar sýna að Ihaldsflokkurinn virð- ist ekkert bæta stöðu sína þrátt fyr- ir áfóll ríkisstjórnarinnar. I The Ex- press mælist fylgi íhaldsflokksins meira að segja þremur prósentu- stigum minna en í síðustu könnun, er nú 24%.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.