Morgunblaðið - 09.01.1999, Síða 35

Morgunblaðið - 09.01.1999, Síða 35
VIKU m LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1999 35 Nýbýlavegi 30 (Dalbrekkumegin), sími 554 6300 og Ármúla 7, sími 553 6540. Heimasíða: www.mira.is tjaldabaki eftir tónleika, eins og hon- um einum er lagið. „Þetta var eftir sýningu og allir voða þreyttir, hann er ekkert að reyna við mig. Hann er í sambúð með mjög góðri konu, Miröndu, sem ég kann ofsalega vel við. Hún er mjög fín manneskja, blátt áfram og eðlileg og með báða fætur á jörðinni. Hann er mjög lán- samur að eiga þá konu að. Þau búa nú í Dóminíska lýðveldinu og eiga von á öðru barni sínu.“ - En hvernig ganga strákamálin hjá þér sjálfri? „Veistu, að þau ganga bara betur en oft áður. Eg á góðan vin þarna fyrir vestan, sem er bassaleikari og heitir Neil Stubenhaus. Hann vinnur mikið við tónlist fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti og hefur unnið með ýmsum frægum söngvurum og tón- listarmönnum í Bandaríkjunum. En þú skalt nú samt ekkert vera að gera of mikið úr þessu. Segðu bara að hann sé góður vinur minn.“ - Það er dálítið annar tónn í þér núna varðandi þessi mál heldur en í tímaritsviðtali fyrir nokkrum árum þar sem þú sagðist bara ekkert skilja í því að strákarnir litu ekki við þér? „Já, það var dálítill „ein ég sit og sauma“ tónn í mér þá. Ég gerði nú heldur ekki mikið í því að komast á „sjens" og gaf ekki mikinn kost á mér. Ég var og er mjög lítið gefin fyrir samkvæmi og partí. I þessu starfi þýðir heldur ekkert að vera að djamma fram eftir allri nóttu. Maður verður að gæta þess vel að fá nægan svefn og muna eftir að taka vítamínin sín. Annars endist maður hreinlega ekki í þessum bransa til lengdar.“ Til gamans skal því bætt hér við að þegar grennslast er fyrir um Neil Stubenhaus á Netinu kemur í Ijós að hér er enginn smákarl á ferðinni í bandarísku tónlistarlífi. Hann er svokallaður „session-bassaleikari" og hefur spilað með og leikið inn á hljómplötur með stórstjörnum á borð við Barbra Streisand, Rod Stewart, Barry Gibb, Michael Bolton, Natalie Cole, Whitney Huston, Billy Joel, Dolly Parton, Quincy Jones og sjálfum Frank Sinatra. Hér eru þó aðeins örfá- ar stórstjömur nefndar sem Neil hefur unnið með, auk þess sem hann hefur leikið tónlist í fjölda frægra kvikmynda svo sem Good Fellas, Naked Gun, The Lion King, French Kiss, Men in black, Long Kiss Goodnight, Flashdance, Ghostbusters, Home Alone, Blues Brothers 2000 og ótal fleiri þekktra kvik- mynda. Þá eru ótaldir fjölmargir vinsælir sjónvarpsþættir og má þar nefna nokkra sem sýndir hafa verið hér á landi svo sem Cheers, Fraser, Friends, Murder She Wrote, Family Ties og marga fleiri. Upptalningin er ótrúleg og er áhugamönnum bent á að kynna sér feril Neils Stubenhaus á Netinu. ANNA Mjöll var treg til að lána okkur þessa mynd og hélt að fólk myndi misskilja uppstill- inguna, en hér er htín ásamt hjartaknúsaranum að tjalda- baki eftir tónleika. MEÐ vininum fyrir vestan, Neil Stubenhaus. ÞRÍR fílefldir lífverðir fylgdu söngkonunum við hvert fótmál í Moskvu. Verð kr. 12.9QQ SÖNGKONURNAR þrjár baksviðs og lengst til vinstri er tangódansari sem einnig tekur þátt í sýningunum. Á SVIÐINU með stórstjörnunni Julio Iglesias og hljómsveit. Heimsreisa Julio Iglesias 1998 Janúon Áslrak Sidney. Febrúan Ástrok Sydney, PeÉ, Melbourne, Brisbone, Adelaide. Hýja-Sjáland: Christchurch, Nopier. Mars: Japan: Tókýó. Brasilía: Rio De Joneiro, Mocelo. Apríl: Brasilía: Notol, Fortolezo, Belem, Recife, Curitibo, Soo Poulo, S.J. do Rio Preto, Uberlondio, Compinas. BondaríkkOúanáo. Moi: Argenlína: Buenos Aires, Cordoba. Úrúgvæ: Montevideo. Bandoríkin: Atlontic City. Júní: Ubanon: Beirút. Bússland: Moskva, St. Pétursborg. Lettland: Riga. Utháen: Vilnius. Júgóslavía: Belgrod. S/dven/o: Zagreb. MoMeóm'orSkopje. Júlí: Hawoii. Kono. Afónokó.’Monte Corlo. Ágúst: Bandaríkin: Missisippi, Georgio, New Jersey, Connecticut, Mossachusetts. Kanada: Ottowo, Ontario. Septcmber: Bandaríkin: New Orleons. Oktéber: ísrael: Tel Aviv. Noregur: Ósló. Sviþjóð: Molmö, Goutoborg, Stokkhólmur. Portúgal: Porto. Nóvember: íom/oríkkAtlanticCity. /C/'oo: Shanghæ. Ðesemben Perú: Umo. Argentína: Son Juon, Buenos Aires. Brasilía: Porto Alegre. Úrúgvæ: Pto. Este. okkur stelpumar. Hann bauðst með- al annars til að fara með okkur í skoðunarferð, sem við þáðum. Hann fór með okkur á ægifagra baðströnd og það var svo fallegt þama að þetta var eiginlega eins og að maður gæti ímyndað sér Paradls. Hann fór með okkur á veitingahús, sem var þarna við ströndina, og starfsfólkið þar kom hlaupandi og vildi allt gera fyrir kokkinn og ég tók eftir því að það var eins og fólkið bæri óttablandina virð- ingu fyrir honum. Menn vora alltaf að koma að spyija hvort hann vant- aði eitthvað og bugtuðu sig og beygðu fyrir honum. Ég sagði við stelpumar að mér fyndist þetta dálít- ið skrýtið og að kokkurinn væri greinilega ekki allur þar sem hann væri séður. Seinna komumst við að því að hann var svokallaður „cleaner", það er atvinnumaður á vegum stjómvalda, sem hefur það hlutverk að „hreinsa" í burtu óæski- lega menn í landinu. „Besti vinurinn" í Beirút var sem sagt fjöldamorðingi í þjónustu ríkisins. Anna Mjöll segir að það sé ómetan- leg lífsreynsla að ferðast svona um veröldina og yfirleitt sé sú reynsla já- kvæð. Þó megi finna nokkur dæmi um hið gagnstæða, sem kenni manni að aldrei sé of varlega farið: „Eins og til dæmis þegar við vorum eitt sinn á flottu Sheraton-hóteli í Rio De Jan- eiro í Brasilíu. Það var nuddstofa á hótelinu og ég ákvað að fá mér nudd til að slaka á fyrir tónleikana. Nudd- arinn var karlmaður og þegar ég kom inn í nuddstofuna læsti hann og stakk lyklinum í vasann. „Nú, þetta er svona klassa-nuddari, vill ekki láta trufla sig við vinnuna," hugsaði ég með mér. Dæmigerð ég, sein að fatta. Svo fór hann að nudda og mér fannst hann orðinn nokkuð nærgöngull. Þegar ég heyrði hljóð í rennilási hætti mér að lítast á blikuna. Ég sagði: „nei“, en hann sagði: ,jú“, og greinilegt að hann ætlaði sér að koma fram vilja sínum, hvað sem ég segði. Þótt undarlegt megi virðast var ég alveg róleg enda hugsaði ég með mér að ég yrði að halda ró minni, því svona menn geta auðveldlega brjálast og verið stórhættulegir. Ég reyndi að ýta honum frá mér og ýtti höndum hans af mér hvar sem þær lentu og teygði mig í fótin mín og klæddi mig á meðan hann var að ljúka sér af. Svo tók hann lykilinn upp úr vasanum og bað mig um að segja ekki neinum frá þessu og ég samþykkti það. Þá sagði hann: „Komdu aftur á morgun,“ og ég sagði bara já, um leið og ég skaust út um dyrnar. Ég fór beint upp á herbergi þar sem ég brotnaði gersamlega saman. Þetta var klukkan fimm og ég átti að vera mætt niðri í móttöku klukkan sex því það vora tónleikar um kvöldið. En það var haft samband við höfuðstöðvar Sheraton-hótelsins og gefin lögregluskýrsla og heilmikil lætí urðu út af þessu, en tónleikamir voru auðvitað haldnir eftir sem áður. „The show must go on“. En þetta er nú bara dæmi um óskemmtilegar uppákomur sem maður getur lent í ef maður er of bláeygur og passar sig ekki. Þær era sem betur fer fáar og þegar á heildina er litið er búið að vera mikið grín og mikið gaman þennan tíma.“ Góður vinur fyrir vestan Þegai- við förum í gegnum mynda- safn Onnu Mjallar rifjast upp ýmsar skemmtilegar sögur úr tónleikaferð- unum, sem ekki er hægt að fara nán- ar út í hér. A einni myndinni situr hún í fanginu á hjartaknúsaranum og ég bið um leyfi til að fá að birta þá mynd, en Anna Mjöll hefur ákveðnar efasemdir varðandi það. ,Á ekki fólk bara eftir að misskilja það eitthvað?" spyr hún og bætir við að Julio hafi nú bara verið að bregða á leik þarna að

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.