Morgunblaðið - 09.01.1999, Qupperneq 36
36 LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1999
MARGMIÐLUN
MORGUNBLAÐIÐ
Macintosh-
hátíð
í GÆR LAUK austur í San
Francisco mikilli hátíð Macintosh-
manna, árlegri svonefndri
Macworld-sýningu. Þar var saman-
komið margt Macintosh-manna,
sem hafa ástæðu til að gleðjast í
ljósi aukinnar velgengni Apple-
fyrirtækisins. Á sýningunni kynti
Steve Jobs, afleysingasljórnarfor-
maður fyrirtækisins, nýjar gerðir
af iMac-tölvunni og nýjar borðtölv-
ur meðal annars.
Apple-fyrirtækið, framleiðandi
Macintosh, hefur sótt verulega í
sig veðrið undanfarna mánuði eft-
ir að Jobs tók aftur við stjórnar-
taumum fyrirtækisins, en hann
var í hópi þeirra sem gerðu það
að einu helsta tölvufyrirtæki
heims á sínum tíma. Það var með-
al annars fyrir atbeina Jobs að
iMac-tölvan var smíðuð, en hún
hefur notið meiri vinsælda en
dæmi eru til um Macintosh-tölvu.
Gríðarleg sala á þeirri tölvugerð
hefur haft sitt að segja um að
hagnaður er af rekstri Apple
fimmta ársfjórðunginn í röð, en
áður var viðvarandi mikið tap á
rekstri fyrirtækisins.
Jobs kynnti meðal annars nýjar
gerðir af iMac-tölvum, með 266
MHz PowerPC-örgjörvum, 32 MB
innra minni og 6 GB hörðum diski.
Nýja gerðin verður seld á svipuðu
verði og fyrri gerð tölvunnar, en
eldri gerðin verður lækkuð í verði.
iMac-tölvan vakti ekki síst mikla
athygli fyrir framúrstefnulegt útlit
og lit á sfnum túna og nýjar gerðir
hennar þykja ekki síður eftirtekt-
arverðar þar sem þær eru í fimm
litum, gamli blái liturinn, rauðar,
grænar, fjólubláar og appel-
sínugular. Við kynninguna sagði
Steve Jobs að litur tölvunnar ætti
eftir að verða ein erfiðasta ákvörð-
unin sem tölvunotendur stæðu
frammi fyrir, enda fyndist þeim
flestum liturinn skipta meira máli
en „megahertz, gígabæti og annað
bull sem tengist því að kaupa nýja
tölvu“.
Jobs kynnti einnig nýjar gerðir
borðtölva, G3-tölva, sem verða
einnig óhefðbundnar í útliti, í hálf-
gagnsæjuin bláum kössum svipuð-
um og fyrsta gerð iMac-tölvunnar.
I þeim verða kopargerðir
PowerPC-, 300, 350 og 400 MHz
örgjörvar.
Nýtt stýrikerfi
Mestu tiðindin fyrir Macintosh-
notendur var þó tilkynning Jobs
um að nýtt stýrikerfi væri komið
út fyrir Macintosh, MacOS X.
MacOS X er aðallega ætlað fyrir
fyrirtæki, en Macintosh hefur
skort slfkt stýrikerfi til að standast
PC-samhæfðum tölvum snúning á
þeim markaði. Ætlun Apple var að
nota hluta af NeXT-stýrikerfinu,
sem átti margt skylt við Unix, í
nýtt stýrikerfi sem kallaðist
Rhapsody. Af því varð þó ekki, en
sum tækni úr NeXT-stýrikerfinu
er nýtt í MacOS X sem keyra mun
núverandi gerðir af Macintosh-
hugbúnaði betur en Rhapsody
hefði gert.
MacOS X kemur ekki á almenn-
an markað fyrr en undir lok árs-
ins, en Apple vill gefa þróundar-
deildum stórra viðskiptavina færi
á að vinna með stýrikerfinu nú
þegar. MacOS X hefur meðal ann-
ars forgangsstýrða fjölvinnslu og
minnisvernd fram yfir núverandi
gerð MacOS, 8.5.
Textílhönnuðurinn
Kaffe Fassett
heldur fyrirlestur um verk sín í
Háskólabíói, sal 2, laugardaginn 9.
janúar kl. 14.00.
Fyrirlesturinn er haldinn í tengslum við
sýningu á verkuin Kafle Fassett
í Hafnarborg. menningar- og iistastofnun
Halnarfjaröar.
Míðasala við innganginn.
Opnunartími 12-18 alla daga, nema þriðjudaga (lokað).
METSOLULEIKIR
dTÖLVULE IK JASAL A eykst
hröðum skrefum í takt við aukna
tölvueign. PC-leikir seljast sem
aldrei fyrr og sala á PlayStation-
leikjum er í hámarki. Nintendo 64
hefur einnig styrkt stöðu sína þó
enn sé hún nokkuð á eftir fyrrtöldu
tölvugerðunum.
I verslunum BT fengust þær
upplýsingar að söluhæstu leikir
ársins þar á bæ væm FIFA 99 í
PlayStation-heimum, Need for
Speed III hjá PC-vinum og Zelda
64 hjá Nintendo 64. Akstursleikir
em reyndar gríðarlega vinsælir og
þannig er slíkur leikur í fimmta
sæti hjá PlayStation og annar í tí-
unda. PC-vinir em hrifnir af Need
for Speed, því þriðji þannig leikur-
inn er í fyrsta sæti eins og áður
segir, og annar leikurinn í því
sjötta. Einnig má kalla Carma-
geddon, sem lenti í tíunda sæti,
akstursleik þó hann sé vissulega
heldur blóðugur. Nintendo 64
hentar einnig vel fyrir akstursleiki
og tveir slíkir em á listanum, en
annars em Nintendo-notendur
hrifnastir af skot- og ævintýra-
leikjum, hafa enda besta ævintýra-
leik seinni tíma, Zelda 64. Annars
var listinn yfir tíu söluhæstu leik-
ina þannig:
PlayStation
1. FIFA99
2. Tekken 3
3. Hercules
4. Tomb Raider 3
5. Gran Turismo
6. Crash Bandicoot 3
7. Mickey’s Adventure
8. Cool Boarders 3
Otrúlegur raunveruleiki
LEIKUR
Colin McRae Rally
Colin McRae Rally, leikur fyrir
PlayStation og PC samhæfðar
tölvur frá Codemasters.
KAPPAKSTURSLEIKIR eins
og Gran Turismo og TOCA hafa
verið ráðandi leikir á leikjamark-
aðnum en kannski verður breyting
þar á núna með Colin McRae Rally.
Ólíkt TOCA og Gran Turismo snýst
mikið af leiknum í Colin McRae
Rally um að keppa einn, við tímann
og við aðra keppendur sem eru
bæði langt á undan og langt á eftir.
Tölvan þarf því ekki að gera mikið í
einu sem hefur gert Codemasters
kleift að gera ótrúlega raunvem-
legan leik með einni þeirri allra
bestu stjórnun sem sést hefur í
bílaleik.
Ekki er þó aðeins hægt að keppa
einn heldur er hægt að velja svo-
kallað Arcade Mode þar sem þú
getur keppt.við helling af öðram
bílum, einnig býðst þér að velja
fulla bikarkeppni, tímakeppni og
fleira.
Ef það er vandamál að læra á
leikinn bjó Codemasters til eins-
konar rally-skóla með Coiin McRae
sjálfan sem kennara. Hann leið-
beinir þér í gegnum allar þrautirn-
ar sem eru á veginum og segir þér
hvenær þú ert tilbúinn. Hægt er að
velja skilyrðin sem maður keppir
við og einnig hvort bfllinn sé fjór-
hjóladrifinn, fram- eða afturdrifinn.
Bfllinn verður meira að segja smátt
og smátt drallugur á veginum sem
er miklu miklu skemmtilegra en
það ætti að vera.
Hægt er að velja úr átta bflum til
að byrja með en fleiri eftir að nokk-
ur borð hafa verið klámð.
Dæmi um þá miklu vinnu sem
Codemasters lagði í leikinn er að
hver einasti bfll í leiknum var laser-
skannaður til þess að ná nákvæmri
eftirmynd inn á tölvuna. Hver ein-
asti flötur á bílnum getur beyglast
eða dottið af sem skiptir miklu máli
fyrir raunsæi leiksins.
Annar stór þáttur er „shotgun“
leiksins, Nicky Grist, hann er fram-
sætismaður Colins í alvöranni og
hefur lesið inn allar tegundir af
beygjum og stökkum fyrir leikinn.
Ólíkt TOCA og Gran Turismo
þarf ekki að ná nema einhverju af
sex efstu sætunum sem er kær-
komin breyting frá næstum of erf-
iðum borðum, til dæmis í Gran
Turismo þar sem minnstu mistökin
geta kostað þig 4-5 sæti, og í
TOCA þar sem sama reglan gildir.
Hinsvegar er Colin McRae Rally
ekki beint léttur heldur og rally-
skólinn getur skipt sköpum í leikn-
um.
Colin McRae Rally hefur án vafa
sett nýjan staðal í kappaksturs- og
rally-leikjum til þessa, að minnsta
kosti í grafík og raunverulegri
hreyfíngu bflsins, leikur sem eng-
inn sem hefur nokkurn tímann haft
bíladelluna ætti að vera án.
Ingvi M. Árnason