Morgunblaðið - 09.01.1999, Page 58

Morgunblaðið - 09.01.1999, Page 58
58 LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, JÓNÍNA J. BLUMENSTEIN, hjúkrunarheimilinu Eir, áður Tómasarhaga 45, lést miðvikudaginn 6. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Dóris Nílsson, Uno Nílsson, Nína Blumenstein, Ingimundur T. Magnússon og barnabörn. t Sonur minn, BERGUR ÓSKARSSON, Strönd, Rangárvöllum, andaðist á Landsspítalanum föstudaginn 25. desember síðastliðinn. Bálför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd vina og vandamanna, Óskar Jóhannsson. + GUÐBJÖRG SVEINSDÓTTIR frá Leirvogstungu, Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, lést fimmtudaginn 7. janúar. Útförin auglýst síðar. Vandamenn. + GUÐBJÖRG HELGA SIGURBJÖRNSDÓTTIR, síðast til heimilis á Kópavogsbraut 1A, Kópavogi, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju mánu- daginn 11. janúar kl. 13.30. Lind Ebbadóttir, Jón Ólafsson, Sigurveig Ebbadóttir, Haraldur Hansson, Gerður Ebbadóttir. Benedikt Ó. Sveinsson, barnabörn og fjölskyldur þeirra. + Faðir minn, BJARNI GUÐMUNDSSON verkstjóri frá Hesteyri, er andaðist á Hrafnistu, Reykjavík, mánu- daginn 4. janúar, verður jarðsunginn frá Neskirkju í Reykjavík mánudaginn 11. janúar kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er vinsamlegast bent á að láta Slysa- varnafélag (slands njóta þess. Ragnheiður Bjarnadóttir. + Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, hlýhug og styrk við and- lát elskulegs sambýlismanns míns, sonar, föður, tengdaföður og afa, PÁLSBJÖRNSSONAR, Blikahólum 10. Elísabet Kristjánsdóttir, Gunnhildur Arndís Pálsdóttir, Victor O'Callaghan, Inga Jóna Pálsdóttir, María Rán Pálsdóttir, Sólrún Edda Pálsdóttir, barnabörn, Gunnhildur Ingibjörg Gestsdóttir. INGVAR ÞÓRÐARSON + Ingvar Þórðar- son fæddist í Reykjavík 4. októ- ber 1907. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 27. desember siðastlið- inn. Foreldrar hans voru Þórður Þórð- arson, f. 21.1. 1874, d. 18.10. 1920, verk- stjóri við hafnar- gerðina í Reykjavík, og Guðrún Ingunn Sigurðardóttir, f. 29.11. 1879, d. 20.9. 1949, húsmóðir. Bæðu voru ættuð frá Eyrar- bakka. Systur Ingvars eru: Halldóra Guðrún, f. 12.8. 1902, d. 16.6. 1921; Guðný Þóra, f. 24.11. 1912, d. 3.12. 1994, hús- móðir í Reykjavík; Sigurveig Óla, f. 10.7. 1914, d. 7.7. 1994, húsmóðir í Reykjavík; og Sig- ríður Hildur, f. 2.5. 1920, kenn- ari í Reykjavík. Hinn 2.6.1934 kvæntist Ingvar Ingibjörgu Svövu Helgadóttur, f. 31.12. 1912, húsmóður. Hún er dóttir Helga Erlendssonar bónda á Hlíðarenda í Fljótshlíð og Kristínar Eyjólfsdóttur hús- freyju þar. Böm Ingvars og Ingi- bjargar era: 1) Dóra, f. 30.10. 1936, bankaútibússtjóri í Reykja- vík, maður hennar er Ólafur Oddgeirsson bifreiðastjóri og eiga þau eitt barn. 2) Helgi, f. 26.11. 1938, landpóstur á Hvols- velli, kona hans er Bára Sólmundsdótt- ir skrifstofustjóri og eiga þau sjö börn. 3) Kristín, f. 17.2. 1945, d. 8.11. 1987, maður hennar var Bragi Hannibalsson skrif- stofuvélavirki og eru böm þeirra þrjú. Ingvar fór snemma að vinna, m.a. við kolanámu í Dufansdal árið 1918. Hann vann við Vatnsveitu Reykjavíkur og Rafmagnsveitu Reykjavíkur, m.a. við Elliða- vatnsstöðina 1920. Hann vann við hafnargerðina í Reykjavík og var togarasjómaður um tíma. Hann tók bflpróf árið 1928 og hóf þá bifreiðaakstur m.a. hjá Mjólkursamsölunni, Litlabfl BSR og Hreyfli. Hann var vagnstjóri hjá SVR frá 1940-1947. Ingvar festi kaup á nýbýlinu Rauðu- skriðum í Fljótshh'ð árið 1948 og bjó þar í 14 ár. Árið 1962 fluttist Ingvar til Reykjavíkur. Hann hóf þá störf hjá Ohuverslun Is- lands og starfaði þar í 21 ár. Utför Ingvars fer fram frá Hlíðarendakirkju í Fljótshlíð í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Margs er að minnast, er ég kveð mág minn Ingvar Þórðarson, er lést 28. desember sl. Ingvar var fæddur 1907 og var því í hópi aldamótakyn- slóðarinnar sem nú er óðum að hverfa sjónum okkar eftir langt lífs- starf í þágu lands og þjóðar, lífs- starf sem leiddi þjóðina til frelsis og sjálfstæðis og lagði grunninn að þeim miklu framförum og hagsæld sem þjóðin býr við í dag. Þessir hlutir gerðust ekki af sjálfu sér og margir þurftu mikið á sig að leggja í harðri lífsbaráttu og var Ingvar engin undantekning þar frá. Hann missti föður sinn aðeins 13 ára gamall og stóð þá móðirin ein uppi með allstóran barnahóp, sem öll voru á unga aldri. Ingvar varð því, sem óharðnaður unglingur, að fara að vinna erfíðisvinnu, sem var það eina sem bauðst í þá daga. Kom það sér þá vel hversu þrekmikill og vel gerður hann var bæði til munns og handa eins og oft er sagt. Ég minnist ennþá er hann sagði mér m.a. frá vinnunni við frumgatna- gerðina hér í Reykjavík og ekki síð- ur þátttöku hans í byggingu Reykjavíkurhafnar, sem voru stór- framkvæmdir á þeim tíma. En árin liðu og fjölbreytni í at- vinnuháttum jókst með stækkandi borg. Þá stundaði Ingvar á tímabili leigubílaakstur og það varð þess valdandi að systir mín, Ingibjörg Svava frá Hlíðarenda í Fljótshlíð, og Ingvar kynntust. Fyrir og um 1930 lágu nú vegir ekki til allra átta frá Reykjavík, en sæmilega greiðfært var þá orðið austur í Fljótshlíð. Fáir áttu þá einkabíla og ef fólk vildi eitt- hvað lyfta sér upp þá var oft tekinn leigubíll til ferðalaga og varð þá Fljótshlíðin oft fyrir valinu enda náttúrufegurð þar mikil. Einnig voru á þessum árum fastar áætlun- arferðir bifreiðastöðvanna í Reykja- vík að Hlíðarenda, en mest var flutt af Eyfellingum og Skaftfellingum, sem faðir okkar reiddi á hestum yfír óbrúuð vötnin austur að Seljalandi, en þar tók Brandur Stefánsson, oft nefndur Vatna-Brandur, við fólkinu og flutti það á bílum lengra austur. Margir bílstjóranna urðu kunn- ingjar og heimilisvinir okkar á Hlíð- arenda, því þeir komu þar svo oft. Þessir ungu og oft myndarlegu menn litu á fleira en fegurð fjall- anna. Augu þeirra hafa líka að sjálf- sögðu staðnæmst hjá heimasætunni systur minni, sem var ung og mynd- arleg stúlka. Á þessum árum hafði systir mín m.a. það hlutverk að líta eftir mér, litla bróður sínum 12 ár- um yngri en hún sjálf, sem áreiðan- lega var ekki alltaf eins þægur sem skyldi. Því oft gerðist það, þegar einhver kunningjanna bauð systur minni í bíltúr, sem þótti mikil upp- lifun í þá daga, að ég heimtaði að koma með og kom þá svipur á suma, en aldrei á Ingvar sem sagði þá gjarnan eitthvað á þá leið: „Það er bara gaman að hafa strákinn með.“ Kynni þeirra Svövu og Ingvars leiddu fljótlega til þess að þau trú- lofuðust og giftu sig litlu síðar og hófu búskap í Reykjavík. Hjóna- band þeirra var alla tíð mjög ástsælt og ríkti milli þeirra mikill skilningur og samhugur. Ég þekkti þetta vel, þar sem ég bjó hjá þeim fyrstu skólaárin mín í Reykjavík. Fram- koma þeirra gagnvart mér var líkust því að ég væri eitt bama þeirra. Enn eitt atvik úr bernsku minni varðandi þau er mér sérstaklega í fersku minni. En það var á tíu ára afmæli mínu eftir erilsaman dag, en foreldrar mínir héldu ætíð fyrir mig veglega afmælisveislu, þar sem m.a. næstu nágrönnum okkar var boðið. Þá var barið að dyrum og úti stóðu Svava og Ingvar með stóran pakka til mín. Þau sögðu mér að opna hann snarlega sem ég og gerði. Þá komu í ljós splunkuný „matrósaföt“, sem vissulega voru ekki algengur klæðnaður í sveitinni í þá daga. Mamma fór með mig til Reykjavík- ur strax um vorið og þá var fyrsta alvöru myndin tekin af mér hjá Kal- dal, og auðvitað í matrósafötunum. Þessa mynd á ég ennþá. Ingvar stundaði ýmis störf í Reykjavík, eftir að þau Svava gift- ust, aðallega við akstur. Meðal ann- ars ók hann á tímabili hjá SVR. En á miðjum aldri hófu þau Svava bú- skap að Rauðuskriðum í Fljótshlíð og bjuggu þar í 15 ár með reisn. Þau gerðu mikið íyrir jörðina og efldu húsakost. Það var ánægjulegt að heimsækja þau þangað, eins og alls staðar annars staðar þar sem þau bjuggu. Þau fluttust síðan aftur til Reykjavíkur enda farin að full- orðnast og börn þeirra ýmist í skóla eða farin að stofna heimili. Ingvar vann á meðan aldur leyfði, en á síðari árum dvöldu þau á sumr- in á Hlíðarenda og bjuggu í því húsi er pabbi hafði síðast búið í. Þar var yfir þeim sama reisnin sem áður. Greiddu þau götu þeirra mörgu er þangað komu að skoða sögustaðinn fræga, og var þar oft gestkvæmt. Var gaman að koma í eldhúsið til þeirra og fá sér kaffisopa. Tvö sl. ár hafa þau lítið komist vegna heilsu sinnar. Þau héldu þó sitt heimili og studdu hvort annað til síðustu stundar. Ég þakka Ingvari liðin ár og bið honum Guðs blessunar í nýjum heimkynnum handan móðunnar miklu. Á þessari stundu er hugur okkar Sirríar og fjölskyldunnar hjá þér, elsku Svava. Við biðjum þér og bömum þínum, tengdabörnum og bamabörnum Guðs blessunar á ókomnum áram. Gunnar Helgason. ÞORHALLUR GUÐJÓNSSON + Þórhallur Guð- jónsson, húsa- og skipasmiða- meistari í Keflavík, fæddist í Grindavík 16. júlí 1931. Hann lést á Sjúkrahúsinu í Keflavík 25. des- ember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Keflavík- urkirkju 2. janúar. Hátíð ljóssins gekk í garð, en skugga bar á. Við mennimir ráðum litlu sem engu þegar komið er að úrslitastund, þrátt fyrir þekkingu og fæmi bestu manna. I skugga lífsins skín ljós, en okkur glepur sýn. Við sjáum ekki eins langt og við gjarnan vildum, við töldum ljósið slokknað en svo var ekki, það logar enn. Kæri vinur, íyrir rúmum 52 áram bar fundum okkar saman í héraðsgagn- fræðaskóla og fáum klukkustundum eftir að við vissum hvor af öðram myndaðist sam- band vináttu og góð- vildar sem staðið hefur fram að þessu og stendur vonandi áfram þótt með öðram hætti verði. Það kom fljótt fram að þú náðir góð- um tökum á því sem boðið var upp á í þess- um ágæta skóla og varst með bestu íþróttamönnum þá þrjá vetur sem við vorum þar við nám. Síðar varst þú á landsmælikvarða í þinni íþróttagrein í mörg ár og að lokum í forystu félagsmála á sviði íþrótta í þinni heimabyggð og fulltrúi í landssamtökum, þú varst mikill fé- lagsmálamaður. Þú stundaðir nám í skipa- og húsasmíði og tókst meist- arapróf í þeim greinum og starfaðir við smíðar alla tíð. Þú stofnaðir fé- lag um starfsemina og vorað þið eft- irsóttir til starfa. Það skiptust á skin og skúrir í rekstrinum, en ætla hefði mátt að betur færi en raun varð á vegna hæfileika þinna og drengskapar. Samhliða þessum rekstrarerfiðleikum bættust við hin miklu veikindi. Það kom fram í þessari hörðu baráttu manndómur þinn og fjölskyldu þinnar, þvílíkt æðruleysi og samstaða. Kæra Steina, það var aðdáunarverður styrkur sem þú sýndir í þessum erf- iðu málum. Þrátt íyrir allt þetta nú um stundir má ekki gleyma þeim yndislegu stundum sem þið hafið átt og miðlað til annarra. Til ykkar var alltaf gott að koma, það gleymist aldrei. Góði vinur, Halli, eins og ég kall- aði þig alltaf, ég þakka þér sam- fylgdina, samstarf til margra ára og allt það góða sem þú varst mér. Steinu, bömum ykkar og öðram ástvinum vottum við Allý dýpstu samúð. Guð blessi ykkur öll. Kristján Þór.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.