Morgunblaðið - 09.01.1999, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1999 63
BRÉF TIL BLAÐSINS
Landssíminn svarar Víkverja
Frá Ólafí P. Stephensen:
VÍKVERJI skrifar um verð milli-
landasímtala og GSM-símtala í
dálki sínum þj-iðjudaginn 5. janúar
síðastliðinn. í tilefni af þessum
skrifum vill Landssíminn koma eft-
irfarandi á framfæri:
Víkverji greinir réttilega frá því
að kostnaður við millilandasímtöl
hafi lækkað mjög undanfarin ár.
Hann segir síðan: „Nú er Lands-
síminn búinn að vera á stöðugu und-
anhaldi í þessu máli en það undan-
hald byrjaði þó ekki að ráði fyrr en
sýnt var að fyrirtækið mundi fá
samkeppni á símamarkaðnum hér.“
Ef Víkverji skoðar tölur um
lækkun millilandasímtala undanfar-
inn áratug, sem birtust á miðopnu
Morgunblaðsins 7. janúar, verður
honum væntanlega ljóst að gjald-
skrá fyrir þessi símtöl hefur lækkað
jafnt og þétt undanfarinn áratug.
Ekki varð ljóst að Síminn fengi
samkeppni á þessu sviði fyrr en fyr-
ir fáeinum mánuðum.
Víkverji lítur jafnframt framhjá
því að eðli málsins samkvæmt geta
símafélög trauðla lækkað verð milli-
landasímtala einhliða. Verð milli-
landasímtala er háð gagnkvæmum
samningum milli símafélaga í mis-
munandi löndum. Verðlækkun
Landssímans á undanfórnum árum
er þáttur í alþjóðlegri þróun á fjar-
skiptamarkaðnum.
Víkverji talar í pistli sínum um
GSM kostnaður
í nokkrum löndum
Land, símafyritæki <<& ýP ^
Norequr, Telenor 161 237 398
Danmörk, Tele Mobil 192 257 449
ísland, Landssíminn 87 366 452
Finnland, Sonera 36 423 458
Bandaríkin, US West 119 510 629
Lúxemborg. PTT 478 190 668
Austurríki, MobilKom 215 475 690
Bretland, Cellnet 165 624 790
Japan, NTT 354 443 797
Ástralia. Telstra 313 490 804
Bretland, Vodaphone 173 659 832
Sviss, Natel 240 608 847
Grikkland, CosmOTE 145 707 852
Spánn, Movistar 200 654 854
Belgía, Belgakom 315 548 863
Svíþjóð, Telia 153 '771 924
OECD-meðaltal 311 620 930
Frakkland, FT 308 627 935
Italía, Tl 459 539 998
írland, EirCell 405 640 1046
Holland, KPN 391 687 1079
Þýzkaland, T-Mobil 237 960 1197
Portugal, TNM 555 789 1344
Nýja Sjáland, Bell South 316 1297 1613
Tékkland, Eurotel 837 843 1680
Unqverialand, Westel 449 1280 1729
Pólland, ERA 727 1133 1860
'slim-line"
dömubuxur frá
gardeur
OÓUtltV
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 5611680
okur á GSM-símtölum. Víst eru þau
enn talsvert dýrari en símtöl í al-
menna símakerfinu. Verðið mun
hins vegar án efa fara lækkandi eft-
ir því sem notendum fjölgar og
markaðurinn stækkar. Sé verð á
GSM-símtölum skoðað í alþjóðlegu
samhengi er erfitt að saka Lands-
símann um okur. Samkvæmt tölum
Efnahags- og framfarastofnunar-
innar (OECD), sem Morgunblaðið
er gjamt á að vitna í sem trausta
heimild, er heildarkostnaður við
ákveðna körfu GSM-notkunar, sem
stofnunin reiknar út, hvergi lægri
en á íslandi nema í Noregi og Dan-
mörku. Fastagjald fyrir GSM-síma
er hvergi lægra nema í Finnlandi.
Mættu ýmis önnur íslenzk þjón-
ustufyrirtæki (t.d. blaðaútgefendur)
vel við una ef vömr þeirra kæmu
jafn vel út úr alþjóðlegum saman-
burði.
Landssíminn lækkaði gjöld fyrir
GSM-símtöl tvisvar sinnum á síð-
astliðnu ári, þótt keppinauturinn
Tal hf. brygðist reyndar ókvæða við
í bæði skiptin. Það er því ekki rétt
hjá Víkverja að símafyrirtækin séu
sammála um að lækka ekki verðið.
Viðbrögð neytenda segja sitt um
þá fullyrðingu Víkverja að verið sé
að okra á símtölum úr farsíma. Um
áramótin voru 66.113 GSM-notend-
ur í kerfi Landssímans og 25.056
NMT-notendur. Að auki nota um
11.000 manns GSM-síma frá Tali
hf., samkvæmt tölum frá fyrirtæk-
inu. Þannig em rámlega 103.000
manns, eða tæplega 40% íslenzku
þjóðarinnar, sem eiga og nota far-
síma. Þetta er með því mesta sem
gerist í heiminum. Af tölum OECD
sést að þar sem verðið er lágt, eins
og á Norðurlöndunum, er notkunin
mikil. Þar sem verðlag er hátt, til
dæmis í Þýzkalandi, er notkunin
miklu minni og aðeins um 15%
Þjóðverja eiga farsíma. Útbreiðsla
farsímanna hér á landi sýnir að
neytendum þykir kostnaðurinn við
notkun þeirra sízt of hár.
Loks fullyrðir Víkverji að Lands-
síminn hafi lengi komizt upp með að
taka „óhæfilega hátt verð fyrir
þjónustu sína.“ Hér er aftur hollt að
horfa út fyrir landsteinana; sam-
kvæmt könnun Eurodata Founda-
tion og OECD frá síðastliðnu hausti
er símakostnaður heimila næst-
lægstur á íslandi af aðildarríkjum
samtakanna. Aðeins í Póllandi er
símakostnaðurinn lægri. í ríkjumj
þar sem samkeppni hefur ríkt á
símamarkaði árum saman, til dæm-
is í Bretlandi og Bandaríkjunum, er
símakostnaður heimila umtalsvert
hæiTÍ en á íslandi. Og svo vill til að í
þessum samanburði eru símtöl til
útlanda innifalin! Landssíminn hef-
ur því, þrátt fyrir skort á sam-
keppni, staðið sig harla vel í því að
tryggja neytendum lágt verð. Auð-
vitað hyggst fyrirtækið gera enn
betur í hinu nýja samkeppnisum-
hverfi.
ÓLAFUR Þ. STEPHENSEN’
forstöðumaður upplýsinga- og kynn-
ingannála Landssíma Islands,
Landssímahúsinu við Austurvöll.
Hefjum baráttuna af kraftii
í dag opnum við
prófkj örsmiðstöð
Nóatúni 17, 2. hæð
Upplýsingakerfi
KERFISÞROUN HF.
Fákafeni 11 • Sími 568 8055
www.islandia.is/kerlislhroun
Bubbi Morthens
Jóhannes eftirherma
og Geirfuglarnir
koma fram
Við opnum prófkjörsmiðstöð að Nóatúni 17
kl 15 í dag. Fjölmennum, njótum góðrar
dagskrár og og gerum prófkjörsbaráttuna
að öflugum upptakti að árangursríkri
kosningabaráttu jafnaðarmanna í vor.
forysta til framtíðar
Prófkjörsmiðstöð Össurar Skarphéðinssonar, Nóatúni 17, sími 562 4511
Stuðningsmenn