Morgunblaðið - 09.01.1999, Page 70
70 LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Reuters
ITALSKA sjónvarpskonan Alessia Merz baðar sig í mjdlk í tengslum við sýningu tískuhönnuðarins Enrico Coveri.
Guðað á
ítalska skjáinn
Ef sjónvarpið er spegill þjóðanna, þá eru
Italir óneitanlega dulítið klikk, segir
Kristinn Pétursson, fréttaritari í Róm. En
öllu virðist maður geta vanist, og eftir einn
sjónvarpsvetur formælinga og síðan orð-
leysis yfir allri vitleysunni erum við hjóna-
leysin hér í Róm orðin nokkuð samdauna
hneykslunarhellunum sem áður virtust
raða sér þétt á skjáinn líkt og rómverskt
mósaík og erum bara farin að hafa gaman
af - svo langt sem það nær.
HELSTU sjónvarpsstöðvar
ítah'u eru níu talsins. RAI er
öflugt ríkissjónvarp sem
sendir út á þremur sjálfstæðum rás-
um og innheimtúr afnotagjald, en hin-
ar eru gjaldfríar. Þrjár þeirra, Italia
1, Rete 4 og Canale 5, eru í eigu
Mediasets, fyrirtækis fjölmiðlaf-
urstans og forsætisráðherrans fyrr-
verandi, Silvios Berlusconi. Tvær,
TMC og TMC2, eru í eigu hans helsta
ieppinautar á afþreyingarmarkaðn-
um, Vittorios Cecchi Gori (en til sam-
ans eru þeir sagðir eiga og reka bróð-
urpartinn af kvikmyndahúsum lands-
ins). Níunda stöðin er svo Rete 4, tón-
listarstöð sem að mestu endurvarpar
útsendingum MTV útibúsins á Bret-
landi. Við þetta má svo bæta kapal-
og gervihnattastöðvum ef manni leið-
ist, auk staðbundinna stöðva og aug-
lýsingasj ónvarps.
Sjónvarpsefnið ... flott fljóð
Þrátt fyrir að hafa áður kynnst
sþænsku sjónvarpi og dálæti þess á
Ijóshærðum og fáklæddum konum og
skoppandi klappstýrum út um alla
þætti, þá tók okkur nú samt tíma að
kyngja karlrembunni í sjónvarpinu
héma. Hér virðast hávaxnar, ljós-
hærðar konur í flegnum og efnislitl-
um kvöldkjólum ekki vera síður
ómissandi hverjum þætti en ljósin og
upptökuvélamar, hvort sem þær eru í
híutverki þáttarstýra eða skrauts. Og
þetta er svolítið skrýtið í landi þar
sem fólk er svona yfu-höfuð dökk-
hært. Karlkynnirinn má hins vegar
vera lágvaxinn og þybbinn og jafnvel
nokkuð þætti þar sem ein mynda-
tökuvéhn staldrar við fagra fótleggi
þáttarstýrunnar eða eins gestsins - í
n^rmynd - og færir sig svo hægt upp
a við. En við verðum að muna að ítal-
ir eru miklir fagurkerar. Flest þessi
viðfóng nærmyndanna eru eldklárar
sjónvarpskonur en nær alltaf virðast
þær þurfa að vera í útliti eins og kyn-
systur þeÚTa Hollywood-störnur 6.
áratugarins. Flott fljóð, en öll steypt í
sama mótið.
Efni sjónvarpsstöðva er allstaðar
eins held ég, bara með mismunandi
efnisáherslur eftir þjóðum, héruðum
eða rásum. Fréttir, íþróttir, fræðslu-
efni, spjallþættir, vandamálaþættir,
skemmtiþættir, sápur og bíómyndir.
Hverslags afþreyingu viljiði?
Af nunnum og prelátum
Spjallþættir ýmiss konar eru æði
'váisælir hér sem og vandamálaþætt-
ir, enda Italir gæddir heilbrigðri for-
vitni um náungann og samræðugóðir
mjög. I spjallþættina eru ósjaldan
fengnir stjórnmálamenn, sem okkur
íslendingum er engin nýlunda, en
líka nunniu-, prestar og prelátar, og
svo að sjálfsögðu þeir sem mest ber
á; sjónvarpsfólk úr öðrum þáttum og
af öðrum stöðvum. Fyrir utan sjón-
varps- og kvikmyndaleikarana og
aðra skemmtikrafta almennt, þá eru
það þáttastjómendur, danspíur og
aðstoðarfólk, hvort sem það kemur
úr skemmti-, fræðslu- eða fréttaþátt-
um, sem mynda sjónvarpselítuna
sem alltaf er í sjónvarpinu. Nema
hvað? Ég get ekki annað en dáðst að
atorku margra þeirra, því auk þess
að sjá um eigin þátt, stundum fleiri
en einn og ósjaldan oftar en einu
sinni í viku, eru þau þess á milli
mætt í aðra þætti sem gestir og/eða
skemmtikraftar. En aðdáun mín
vfe-ður ögn blendin þegar ég velti því
fyrir mér hvort þetta fólk hafi
nokkurn tíma aflögu til að kynnast
hvunndeginum ... - Jú, það hlýtur að
vera, og kannski eru það einmitt
sjónvarpsstjömumar sem hvað
skarpast skynja skil hins hversdags-
lega vemleika og hins tilbúna eður
tilfærða á skjánum, þar eð þær lifa
þá og hrærast í tveimur heimum.
Líf sjónvarpsþátta er hér mislangt
eins og gengur og gerist. Helst eru
það skemmtiþættirnir sem em
skammlífir enda oftast mikið í þá
lagt og þurfa mikið áhorf. Mörgum
þeirra er svosem ekki ætlað að lifa
lengi og því eru framleiddir eins kon-
ar þemaþættii- sem sjónvarpað er
vikulega í ákveðinn tíma. Spjallþætt-
imir tóra lengur enda einfaldari í
sniðum og langt frá því að umræðu-
efnin þrjóti.
Umgjörð frétta og tengdra þátta í
ítölsku sjónvarpi er sérstaklega veg-
leg og ekki síst íburðarmikil í
skemmtiþáttunum. Og það er ekki
að furða, því hér sem annarstaðar
þarf auðvitað að keppa um áhorfend:
ur. En það kemur líka annað til. í
Róm er hið víðfræga og risastóra
kvikmyndaver CinecittA (Bíóborgin)
sem sjónvarpsstöðvamar hafa lagt
undir sig að miklu leyti eftir að kvik-
myndaiðnaður dróst saman. Þar hafa
stöðvarnar úr allt að tuttugu upp-
tökuverum að velja og sum hver á
stærð við Laugardalshöllina.
Hér er hlutverk stjórnenda
skemmtiþáttanna mun víðtækara en
við þekkjum, og reyndar aðstoðar-
fólks þeirra og skemmtikrafta, þar
eð þau sinna líka auglýsinga-
mennsku í þáttunum. Er ekki annað
hægt en að dást að fagmennsku
þáttastjórnendanna, en slíkt er ör-
yggi þeirra í framkomu sem og allri
stjóm á framvindu þáttanna að lang-
ar útsendingar eru án feilspors.
Þetta era heldur engir aukvisar, oft-
ast reyndir leikarar og margir þeirra
með áratuga reynslu af sjónvarpi að
baki. Sá sem stýrir þættinum sem ég
segi frá hér á eftir er vel kynntur
fólki á þrítugsaldri, því hann sá lengi
vel um vinsælan bamaþátt. Paolo
Bonolis heitir hann og er öryggið
uppmálað.
Darwin og grínið
Eftirlætis þátturinn okkar þessar
vikumar heitir Ciao Darwin - Dag-
inn Darwin! getum við kallað hann -
á Berlusconi-stöðinni Canale 5. Nei,
þetta er ekki dýralífsþáttur sem við
horfum á með sunnudagsmorgun-
kaffinu, þótt vel væri. Og þó, dýralíf
kemur þessu að nokkra við hvað
okkur varðar, því þegar Darwin er
sýndur á laugardagskvöldum er
einmitt á sama tíma verið að sýna
þessar fínu dýralífsmyndir á þriðju
rás ríkissjónvarpsins, RAITRE, og
yfir á þær skiptum við í auglýsinga-
hléunum (og umsjónarmanninn sem
í útliti virðist vera ættaður úr
Neanderdal, í alvöra talað). Annars
tökum við léttmetið fram yfír fræðsl-
una þetta kvöldið.
Skemmtiþátturinn Ciao Darwin
skartar öllu því sem mest æsir og
kætir í ítölsku sjónvarpi. Þar er
sungið, dansað og skopast að
Hollywood-hætti, léttklæddar, fag-
urlimaðar meyjar tipla um sviðið,
þrautir reyndar og keppni háð og
spennan mikil umfram allt.
I sjónvarpssal sitja tvö keppnislið
í stúku hvort andspænis öðru. Hvort
lið um sig skipa fímmtíu karlar eða
konur, en dómarar era tvöhundruð
áhorfendur af gagnstæðu kyni við
keppendurna sem greiða þeim at-
kvæði rafrænt að hverri þraut lok-
inni. Liðsstjórar eru svo einhver vel
þekkt andlit úr „bransanum", fólk
sem kann á miðilinn. Þema þáttarins
er að fá úr því skorið hvaða líkam-
legu einkenni kvenna og karla era
æskilegri og eftirsóttari en önnur og
líklegri til betri afkomu tegundarinn-
ar. Svarið er fengið með þvi að
leggja alls kyns þrautir fyrir liðin og
láta þau keppa í söng og limaburði.
Hér ganga að sjálfsögðu viðteknar
klisjur og goðsagnir ljósum logum:
Nú skal fá úr því skorið hvort höfðar
nú betur til hins kynsins, dökkhærð-
ar konur eða ljóshærðar, feitir karl-
ar eða grannir, giftar konur eða ást-
konur, suður- eða norður-ítalskir
karlmenn, íturvaxnar konur eða
mjónur, o.s.frv.
Þar eð kveðjan „ciao“ í heiti þátt-
arins er hvort tveggja notuð til að
heilsa og kveðja, má túlka þáttar-
nafnið sem óð til kenninga karlsins
um þróun tegundanna eða hitt, að
honum sé hreinlega gefíð langt nef.
Og þannig hafa þættirnir farið að
leiða mætti líkur að því síðarnefnda,
því úrslitin hafa oftast orðið þau að
hin ósköp venjulegri einkenni fólks
hafa sigrað viðtekna fegurðarímynd;
dökkhærðar konur, feitir karlar,
þéttar konur - með þeirri undan-
tekningu þó að karlar í norðri þóttu
eftirsóknarverðari en þeir suðrænu.
Urslitin eru semsagt gjarnan á skjön
við það sem oftast virðist talið eftir-
sóknarverðast.
Keppnin öll er mikið sjónarspil og
stigagjöf þannig háttað að úrslitin
ráðast ekki fyrr en í síðustu þraut-
inni. Þá situr einn fulltrúi frá hvoru
liðinu um sig í háu og sívölu glerbúri
og svarar þaðan spurningum þáttar-
stjómandans. Við hvert rétt svar er
vatni dælt inn í búr andstæðingsins
og svo náttúrlega á þann sjálfan sem
vitlaust svarar. Oftast ráðast úrslitin
ekki fyrr en vatnið nær báðum kepp-
endum upp að höku og þeir búnir að
setja upp sundgleraugu og öndunar-
pípur. Sannarlega kórréttur endir á
spennandi keppni.
Helstu stöðvamar era, eins og áð-
ur segir, gjaldfríar og reknar með
auglýsingatekjunum einum. Stjóm-
endur stöðvanna þurfa því að vera
uppfmningasamir og era ítalskir
framleiðendur sjónvarpsefnis sér-
staklega óragir við að flétta saman á
hugvitssamlegan hátt skemmtun og
auglýsingum og gylla með svolitlu
sexi. Til dæmis er ein þraut Ciao
Darwin! að giska á möskvastærð
sokkabuxna af tiltekinni gerð. Kepp-
andi frá hvoru liði um sig situr á stól
og fyrir hann ganga engilfríðar og
leggjalangar stúlkur klæddar sokka-
buxum að sjálfsögðu og sem stystu
pilsi. Ef keppendur eru karlmenn
mega þeir taka í læri stúlknanna og
þreifa sokkabuxurnar til skoðunar,
kvenkeppendur skoða hins vegar
handhægari sýni. I næsta þætti
verður att saman körlum með hár og
körlum með skalla og við eram þeg-
ar farin að hlakka til; skyldu skall-
arnir vinna?
Eitthvað af ítalska
sjónvarpinu að læra?
Þetta hafa verið skrýtin úrslit, en
koma kannski ekki á óvart. Sjón-
varpið segir okkui' - og sérstaklega
hér á Ítalíu - að konur eigi að vera
ljóshærðar, háar, grannar og ítur-
vaxnar, fáklæddar og fallegar. Og
konur keppast við að uppfylla skil-
yrðin í einni eða annarri mynd. En
svo er þetta bara allt saman mis-
skilningur; þær era svo ágætar eins
og þær eru og karlarnir allt í lagi
líka. Sigrar réttlætið þá að lokum í
beinni útsendingu, eða er bara verið
að friða lýðinn?
Þótt ég mælist ekki til þess að við
tökum upp suðræna karlrembu-
stefnu í íslensku sjónvarpi, þá meg-
um við án efa margt læra af því suð-
ur-evrópska; slaka á og sleppa fram
af okkur beislinu svona annað slagið.
Sjónvarp á að skemmta og því era
flest meðul leyfileg, þótt besta
blandan sé vissulega gagn og gaman.
Stutt
Borgarann
eða lífið?
►OPINBER afsökunarbeiðni
McDonalds-veitingahúsakeðjunn-
ar birtist í heilsíðuauglýsingum í
mörgum breskum blöðum á dög-
unum. „Við bjuggumst við að 25
ára afmælið með sértilboð á
Stóra-Mac yrði vinsælt en viðtök-
urnar komu okkur í opna skjöldu
og hafa valdið hráefnisskorti í
sumum veitingahúsunum." Á for-
síðum sumra blaðanna voru við-
töl við afar reiða viðskiptavini
sem misstu af afmælistilboðinu.
I Daily Star var sagt að uppþot
hefði verið í uppsiglingu í Leigh
þegar hópur jakkafataklæddra
viðskiptavina gekk berserksgang
vegna þess þeir fengu ekki aug-
lýsta fríborgara. Að sögn blaðs-
ins höfðu mennirnir króað fram-
kvæmdastjóra veitingahússins af
og hótuðu honum öllu illu ef þeir
fengju ekki borgarana tafarlaust.
Þurfti að kalla til lögreglu til að
hafa hemil á lýðnum á fleiri veit-
ingastöðum. Það vantar ekki eld-
móðinn í menn þegar hamborg-
ara ber á góma.
Opinber
hýðing
►ÍRANSKUR dómstóll hefur
dæmt tvo unglingspilta til opin-
berrar hýðingar fyrir að misbjóða
almennu siðgæði, en þeir höfðu
klæðst kvenmannsfötum í þeim til-
gangi að hafa fé af ungum mönn-
um. Samkvæmt blaðinu Daily Qods
voru piltarnir sem eru 15 ára hand-
teknir í almenningsgarði í borginni
Shiraz.
Gleymdi
lottóinu
►ELDRI þýskur borgari sem
vann 86 milljónir (króna) í lottó-
inu í október gleymdi miðanum.
Maðurinn hafði farið í frí stuttu
eftir að hann keypti miðann og
mundi ekkert eftir honum fyrr
en hann kom heim. Voru þá
væntanlega fagnaðarfundir hjá
þeim gamla og lottómiðanum.
Ætti að
halda sig á
jörðu niðri
►ÆVINTÝRAMAÐURINN Rich-
ard Branson var gagnrýndur harð-
lega af lestarfarþegum einnar
lestar hans þegar lestin varð bens-
ínlaus á leiðinni frá Newcastle til
Bristol. Lestin varð bensínlaus í
Birmingham, 141 km frá leiðar-
enda. Farþeginn John Parker var
ekki mjúkmáll þegar hann talaði
við fjölmiðla. „Ég held að Branson
ætti að einbeita sér að því að gera
eitthvað við þessar ömurlegu lestir
sem hann rekur í staðinn fyrir að
þeysast um heiminn í blöðru."
Klósettið
sprakk
►FJÖLSKYLDU í bænum
Monster nálægt Haag í HoIIandi
brá heldur betur f brún á
gamlárskvöld þegar klósettið á
heimilinu sprakk f loft upp. Að
sögn lögreglu hafði einhver hent
flugeldi í holræsið undir húsinu
með þessum afleiðingum.
Enginn særðist í sprengingunni
að sögn lögreglunnar, enda
enginn að nota salernið þegar
sprengingin varð.