Morgunblaðið - 22.01.1999, Blaðsíða 1
17. TBL. 87. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Okyrrð í Rúmeníu
Verjendur Clintons ljúka málflutningi
Segja forsetann
þegar hafa gold-
ið verka sinna
Washinirton. Reuters.
Verður
Mön sjálf-
stætt ríki?
London. The Daily Telegraph.
LAGT hefur verið til, að Manarbúar
segi sig úr lögum við bresku krún-
una og lýsi yfir sjálfstæði, gangi
Bretland í evrópska myntbandalag-
ið. Verður tillaga um það rædd á
Manarþingi í næsta mánuði.
Bretar keyptu Mön árið 1765 fyrir
70.000 pund, sem var að sjálfsögðu
geypifé í þá daga, og gerðu það til að
koma í veg fyrir mikið smygl, sem
þar var stundað. Lengst af hefur
æðsti ráðamaður á eyjunni verið sér-
stakur fulltrúi konungsvaldsins, en
nú kjósa Manverjar sér forseta, sem
jafnframt er forseti þingsins.
Ráðherrum í Manarstjórn líst
heldur illa á að slíta böndin við
Breta, enda eru eyjarskeggjar mjög
háðir þeim. Þeir benda líka á, að á
eyjunni sé allt í lukkunnar velstandi,
atvinnuleysi innan við eitt prósent en
hagvöxturinn 7%. Manarbúar geta
ákveðið sína eigin skatta og lög, en
undirstaða velmegunarinnar er sú
fjármálastarfsemi, sem tengist því,
að Mön er svokölluð skattaparadís
fyrir fólk og fyrirtæki víðs vegar að.
Þeir hafa því eðlilega miklar áhyggj-
ur af hugmyndum um samræmdar
skattareglur innan Evrópusam-
bandsins.
Það er David Cannan, fyrrverandi
fjármálaráðherra Manar, sem leggur
til, að eyjan verði sjálfstætt ríki, taki
Bretar upp evruna og hann vill, að
Manarpundið verði tengt dollara-
genginu. Segh- hann, að fjármála-
starfsemina í landinu verði að verja
með öllum ráðum.
-------4^4------
28 farast í
Nicaragua
Managua. Reuters.
TUTTUGU og átta fórust þegar
flutningaflugvél Nicaragua-hers
brotlenti í hlíðum fjalls á austur-
strönd landsins í gærkvöld. Voru
þrettán liðsforingjar úr hernum um
borð í vélinni, sem var byggð í Sov-
étríkjunum sálugu og er af gerðinni
Antonov An-26, auk fimmtán skyld-
menna sinna og komst enginn lífs
af. Ekki var vitað um orsök slyssins.
TALSMENN bæði stjórnvalda og
stjórnarandstöðu í Rúmernu
hvöttu í gær Emil Constantinescu,
forseta landsins, til þess að lýsa yf-
ir neyðarástandi haldi námamenn
áfram mótmælagöngu sinni í átt tii
höfuðborgarinnar Búkarest, en tii
harðra átaka hefur komið milli
námamanna og lögreglu síðustu
daga vegna mótmælanna. Hefur
almenningur í landinu nokkuð
slegist í lið með námamönnum sök-
um óánægju með kjör sín.
Reyndi rúmenska lögreglan í
gær án árangurs að koma í veg
íyrir fjöldagöngu námamannanna
sem krefjast 35% launahækkunar
og einnig, að hætt verði við lokun
fjölda náma. Beittu liðsmenn lög-
reglunnar táragasi gegn göngu-
mönnum en námamennirnir köst-
uðu grjóti og beittu bareflum.
Þurftu a.m.k. áttatíu að leita sér
læknishjálpar og var þar í flestum
tilfellum um Iögreglumenn að
ræða. Gavril Dejeu, innanríkis-
ráðherra Rúmenfu, sagði af sér í
gær vegna málsins og lét eftir-
maður hans í embætti það verða
sitt fyrsta verk að reka lögreglu-
stjóra landsins.
Constantinescu lét hafa eftir
sér að það myndi verulega draga
úr trú manna á þróun lýðræðis í
Rúmeníu ef stjórnvöld létu undan
kröfum námamanna, sem þeir
settu fram í krafti ofbeldisað-
gerða. „Þetta eru ekki lengur
mótmælaaðgerðir sem við er að
eiga heldur eru þetta grimmileg-
ar árásir á öryggissveitir og á yf-
irráð ríkisins."
DALE Bumpers, fyrrverandi öld-
ungadeildarþingmaður demókrata,
flutti í gærkvöldi lokaræðu verjenda
Bills Clintons í réttarhöldum yfir
Bandaríkjaforseta í öldungadeild
Bandaríkjaþings. Pordæmdi Bump-
ers hegðun Clintons í Monicu Lewin-
sky-málinu sem brot á hjúskapareið-
um forsetans og sem „hræðileg sið-
ferðisglöp“ - en sagði Clinton hins
vegar ekki hafa framið glæp sem
hægt væri að vísa honum úr embætti
fyrir.
Færði Bumpers rök fyrir því að
Clinton og fjölskylda hans öll hefði
þegar goldið mistaka forsetans og
sagði Bumpers m.a. að samskipti
Clintons við dóttur sína, Chelsea,
væru ekki söm og áður og yrðu e.t.v.
aldrei. Skammaði Bumpers fyrrver-
andi samstarfsmenn sína í öldunga-
deildinni fyrir að sýna þessu ekki
nægilegan skilning og samúð. Varaði
hann við því að yrði Clinton vísað úr
embætti fyrir brot sín ógnaði það
eðlilegum stjórnarháttum.
„Ó, mínir kæru félagar, ábyrgð
ykkar er svo gífurleg,“ sagði
Bumpers við þingmenn og benti
þeim að síðustu á að stofnendur
Bandarikjanna hefðu sett réttinn til
að höfða mál á hendur forseta til
embættismissis í stjómarskrána „til
að vernda hagsmuni almennings;
ekki svo refsa mætti forsetanum“.
Áður hafði David Kendall, lögmað-
ur Clintons, gert harða hríð að mál-
flutningi þeirra repúblikana úr full-
trúadeild Bandaríkjaþings sem sækja
málið gegn Clinton í öldungadeild-
inni. Sagði hann að þeir hefðu leitt
hjá sér efnisatriði sem sanna sakleysi
forsetans, svo langt hefðu þeir seilst í
tilraunum til að láta svo h'ta út að
Clinton hefði á óheiðarlegan máta
reynt að standa í vegi réttvísinnar.
Kvartaði repúblikaninn Henry
Hyde, sem fer fyrir sækjendum, yfir
því seint í gær að fá ekki tækifæri til
að hrekja rök verjenda .
-------------------
„Skapari“ Dollíar
Vill einrækta
fósturvísi
manns
Washington. Reuters.
SKOSKI vísindamaðurinn Ian
Wilmut, sem einræktaði kindina
Dollí, vill nú hefjast handa við rann-
sóknarverkefni þar sem gerð yrði til-
raun til að einrækta fósturvísi manns
með sömu aðferð og notuð var þegar
Dollí var sköpuð. Þetta kom fram í
The Wall Street Journal í gær.
Fósturvísana mætti nota sem
uppsprettu svokallaðra stofnfrumna
eða móðurfrumna, en það eru þær
ósérhæfðu frumur sem geta þróast í
hvers kyns frumur mannslíkamans.
Að sögn vísindamanna er ekki úti-
lokað að rannsóknir á þessum frum-
um gætu orðið til þess að þróa
mætti nýjar aðferðir til að með-
höndla sjúkdóma eins og sykursýki
í börnum og Parkinsons-veiki, eða
jafnvel lækna þá.
Javier Solana varar Serba við yfírvofandi loftárásum NATO
Serbnesk yfirvöld fresta
brottvísun Walkers
Pristina, Haag, Kaupmannaliöfn. Reuters.
STJÓRNVÖLD í Belgrad tilkynntu seint í
gærkvöldi að þau hefðu ákveðið að fresta
brottvísun Williams Walkers, yfirmanns eftirhts-
sveita Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu,
ÖSE, og létu þannig undan þrýstingi
Vesturveldanna. Hafði Walker ekki orðið við kröf-
um serbneskra yfii-valda um að yfirgefa landið en í
gærkvöldi rann út sá frestur sem þau höfðu gefið
honum til þess þar sem veru hans í landinu væri
ekki óskað. Knut Vollebæk, utanríkisráðherra
Noregs, sem fer með formennsku í ÖSE, átti í
gærkvöldi fund með Slobodan Milosevic, forseta
Júgóslavíu, sambandsríkis Serbíu og Svartfjalla-
lands. Líkurnar á loftárásum Atlantshafsbanda-
lagsins, NATO, á Serba aukast enn og í gær lýsti
Javier Solana, framkvæmdastjóri NATO, því yfir
að teldi bandalagið að árásir eða hótanir um þær
væru nauðsynlegar til að knýja fram pólitíska
lausn á Kosovo-deilunni, yrði gripið til þeirra.
Solana og Vollebæk lögðu í gær áherslu á „nýtt
pólitískt frumkvæði“ til að binda enda á átökin í
Kosovo. Eftir fund sem Vollebæk átti með Sol-
ana, hvöttu þeir til nýrra pólitískra lausna, sem
samtök á borð við ÖSE, NATO og Sameinuðu
þjóðirnar, svo og tengslahópurinn svokallaði, sem
Reuters
WILLIAM Walker, yfirmaður eftirlitsmanua
ÖSE, ræðir við blaðamenn í gær.
vann að lausn Bosníudeilunnar, gætu verið hluti
af. Þeir vildu hins vegar ekki tjá sig nánar um
það í hverju téð „pólitískt frumkvæði“ fælist.
NATO hefur lagt á það mikla áherslu að ekki
verði einungis bundinn endi á átökin í Kosovo
með hernaðaraðgerðum.
Á fundi sínum lögðu Vollebæk og Solana
áherslu á óháða rannsókn á fjöldamorðunum á
Kosovo-Albönum í þorpinu Racak í síðustu viku,
sem urðu til þess að auka líkumar á hernaðarí-
hlutun NATO. Þeir lýstu hins vegar engan ábyrg-
an á morðunum ólíkt Walker, sem sakaði
serbnesk yfirvöld um stríðsglæpi. Louise Arbour,
yfirmaður stríðsglæpadómstólsins í Haag, ítrek-
aði í gær kröfu sína um vegabréfsáritun til Serbíu
svo að hún gæti rannsakað hvernig dauða fólks-
ins bar að og hvort ásakanir Walkers ættu við
rök að styðjast. Arbour var neitað um vegabréfs-
áritun í byrjun vikunnar.
Finnskir réttarlæknar hófu í gær rannsókn á
líkum þeirra sem voru myrtir í Racek en Serbar
höfðu flutt þau til Pristina þar sem þeir hófu
krufningu í skyndingu, þrátt fyrir óskir ÖSE um
að beðið yrði með þær. Finnarnir hófu þegar rann-
sókn á líkunum, tóku m.a. röntgenmyndir af þeim,
en Serbar hafa sagt hina látnu hafa verið hryðju-
verkamenn sem hafi látist í átökum. Þá hefur
einnig verið gefið til kynna að Frelsisher Kosovo-
Albana, KLA, hafi myrt fólkið til að láta líta út fyr-
ir að serbneskar öryggissveitir hafi verið þar að
verki.
■ Markmið með/26