Morgunblaðið - 22.01.1999, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDSÞING
23.- 24. janúar.
að Borgartúni 6
(Rúgbrauðsgerðin)
HESTAR
Ný reglugerð um aðbúnað og heilbrigðiseftirlit hrossa að líta dagsins ljós
Skýr ákvæði um ábyrgð þeirra
sem hafa hross í sinni umsjá
Hestaeigendur mega búast við að þurfa
að breyta ýmsu í umhverfí hesta sinna,
bæði í húsum og í haganum, þegar ný
reglugerð um aðbúnað og heilbrigðis-
eftirlit hrossa tekur gildi á næstunni.
—
Asdís Haraldsdóttir kynnti sér drög að
reglugerðinni og telur að um leið og reglu-
gerðin verður gefín út ættu allir hestaeig-
endur og aðrir sem hafa umsjón með
hrossum að gera það sama.
MARGIR eru í óðaönn að breyta hesthúsum sínum þessa dagana. Vonandi
standast öll mál reglugerðarinnar er varðar rými fyrir hvert hross.
Dagskrá
Laugardagur 23. janúar.
09:00 Skráning og gögn.
10:00 Þingsetning.
10:30 Ræða. -Sverrir Hermannsson. Fiskveiðimál. -Jón Sigurðsson.
12:30 Hádegishlé.
13:30 Kosningar.
14:30 Framsaga um.
1. Fiskveiðimál.
2. Samfélagsmál.
3. Umhverfismál. Málstofur starfa.
18:30 Þorramatur.
Sunnudagur 24. janúar.
10:00 Niðurstöður málstofa.
13:30 Kosningar.
13:00 Kjördæmamál.
14:00 Stjórnmálaályktun.
15:00 Þingslit.
Við boðum breytingar
FRJÁLSLYNDIFLOKKURINN
Hlíðasmára 10 Kópavogi.
sími 564-6050
v J
REGLUGERÐIN er nú til
umsagnar Dýraverndar-
ráðs. Hún hefur verið í
vinnslu í landbúnaðar-
ráðuneytinu, en sú staða kom upp
á dögunum að líklega þurfí bæði
landbúnaðarráðuneytið og um-
hverfisráðuneytið að koma að út-
gáfu hennar þar sem hross á lög-
býlum heyra undir landbúnaðar-
ráðuneytið en hross í þéttbýli und-
ir umhverfisráðuneytið.
En það liggur fyrir að með
reglugerðinni fá hestaeigendur
upp í hendurnar reglur um hvað-
eina er varðar aðbúnað og um-
hirðu hestanna. Þá er sama hvort
um er að ræða nauðsyn þess að
þeir hafi aðgang að hreinu vatni
eða hversu mikið rými hver hestur
þarf að hafa í flutningi, svo eitt-
hvað sé nefnt. En lítum nánar á
ákvæði reglugerðarinnar, en með
tilkomu hennar ætti ábyrgð
hrossaeigenda og allra annarra
sem meðhöndla hross að vera
skýr. Það ber þó að hafa í huga að
einhverjar breytingar gætu orðið á
þessum drögum þegar reglugerðin
kemur út í endanlegri mynd.
Eftirlit í höndum dýralækna
og búfjáreftirlitsmanna
Hvort sem landbúnaðarráð-
herra eða umhverfísráðherra eða
báðir fara með yfirstjóm þeirra
mála sem reglugerðin tekur til
mun yfirdýralæknir vera ráðherra
eða ráðherrum til aðstoðar og
ráðuneytis og hefur undir sinni
stjórn dýralækni hrossasjúkdóma
sem starfar samkvæmt erindis-
bréfi sem staðfest er af landbúnað-
arráðherra. Dýralæknir hrossa-
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
HÉR er rúmt um hestana og aðbúnaður góður, en búast má við að mörg hesthús uppfylli ekki kröfur
reglugerðarinnar um aðbúnað hrossa.
sjúkdóma skal stuðla að góðri
meðferð og heilbrigði hrossa í
samvinnu við dýralækna, ráðu-
nauta, búfjáreftirlitsmenn og
hrossaeigendur. Hann skal með al-
mennri fræðslu og leiðbeiningar-
starfi auka skilning á hrossasjúk-
dómum og vömum gegn þeim og
gera í samvinnu við dýralækna ár-
lega skrá um hrossasjúkdóma.
Héraðsdýralæknar og búfjáreft-
irlitsmenn skulu hver í sínu um-
REIÐULPU UTSALA
l/erddæmi
Úlpur frá sænska fyrirtækinu Kállquists
Full Season 8.900.- áöur JMrSLfiT-
Paddock 6.990,- áður ^9007-
Ranger 9.990,- áöur L&rSeUT
Convert 6.900.- áöur -ðrööílT
Úlpur frá enska fyrirtækinu Saddlecraft
Rye 5.500,- áður
Chilham 5.900.- áður 13t©0íjT
Chartwell 8.900.- áöur ISrSOÍU
Horka reiðbuxur frá Hollandi
Prestige
8.900,- áöur U-r0eOT-
Ármúla 38
108 Roykjavlk
SlmlsB88 18 18
Sendum f póstkrðfu um allt landl
dæmi hafa eftirlit með því að
ákvæðum reglugerðarinnar sé
íylgt. Þeir leita eftir áliti annama
sérfræðinga eftir því sem þörf
krefur.
Ekki má nota gaddavír í
gerði og sveltihólf
I 2. grein reglugerðarinnar er
fjallað um umhverfi hrossa. Þar
segir að það skuli vera þrifalegt. í
gerðum skal afrennsli vera svo
gott að ekki myndist svað og
skipta skal um yfirborðslag eins
oft og þörf krefur. Girðingar skulu
vera traustar og þannig gerðar að
þær valdi ekki slysum. Óheimilt er
að nota gaddavír í girðingar um-
hverfis gerði og hólf þar sem hross
hafa ekki aðgang að beit eða í að-
hald fyrir hross. Ávallt skal gæta
fyllstu vai-úðar við uppsetningu og
notkun rafmagnsgirðinga.
Frágangi taðþróa og haughúsa
skal þannig háttað að ekki valdi
hættu hvorki fyrir menn né skepn-
ur. Frárennsli frá salernum og
vöskum í hesthúsum skal leiða í
sérstaka rotþró. Um mengunar-
vamir er vísað til sérstakrar
flSTuno
SERVERSLUN
HESTAMANNSINS
Háaleitisbraut 68 i: • Austurver
Sími 568 4240
reglugerðar, nr. 48/1994 með síðari
breytingum.
Strangar reglur um aðbúnað
í hesthúsum
Aðbúnaði hrossa skal haga
þannig að þörfum þeirra og eðli sé
fullnægt hvort sem þau eru á húsi
eða á beit. í húsum þar sem hross
eru hýst skulu dyr og gangar vera
þannig frágengin að fljótlegt sé að
rýma þau í neyðartilfellum. Inn-
réttingar og annar útbúnaður skal
vera þannig að hross verði ekki
fyrir meiðslum eða heilsutjóni. í
byggingar og innréttingar skal
nota efni sem auðvelt er að þrífa
og sótthreinsa. Óheimilt er að nota
hættuleg efni, svo sem fúavarnar-
eða sótthreinsiefni, sem eru heilsu-
spillandi. Hrossum skal hleypt út
daglega nema óveður hamli.
Loftræsting skal vera góð og
koma skal í veg fyrir dragsúg í
húsum, en loftskipti næg til að
magn skaðlegra lofttegunda sé að
jafnaði innan viðurkenndra hættu-
marka.
I viðauka með reglugerðinni
kemur fram að hámark leyfilegs
magns eftirtalinna lofttegunda
skuli að jafnaði ekki vera meira en
sem hér segir: Ammoníak (NH 3)
10 ppm, koltvísýringur (CO 2)
3000 ppm og brennisteinsvetni
(H2S) 0,5 ppm.
Við hönnun loftræstikerfis skal
leitast við að lofthraði umhverfis
hrossin fari ekki yfir 0,2 m/sek.
)Hita- og rakastigi skal haldið
jöfnu og í viðauka I segir að raka-
stig í einangruðum húsum skuli