Morgunblaðið - 22.01.1999, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999 45
Eining um
trausta for-
ystu - Rann-
veig í 1. sæti
Sifrurbjörg Eiríksdóttir, formaður
bæjarráðs Sandgerðisbæjar, skrifar:
Loksins! Nú er
komið að þessum
tímamótum. Fé-
lagshyggjufólk
sameinað. Mér hef-
ur fundist margt
líkt með gömlu
flokkunum og velt
fyrir mér hvers
vegna væri ekki
Sigurbjörg
Eiríksdóttir
löngu komið að
þessu.
I bæjarmálum hér í Sandgerði
álít ég að þetta sé staðreynd fyrir
löngu.
Eg hef í starfí mínu sem bæjar-
fulltrúi K-listans frá 1994 haft sam-
skipti við þingmenn kjördæmisins,
mismikil að vísu. En ég þarf ekki
mikinn tíma til að hugleiða hvem ég
vilji sjá leiða hið sameinaða afl.
Rannveig Guðmundsdóttir hefur
sýnt mér með verkum sínum, áhuga
á málefnum okkar hérna suðurfrá
og vilja til að verða okkur að liði, að
þar fer leiðtoginn.
Sem Vestfirðingm- þekkir Rann-
veig það að búa við tiltölulega ein-
hæfa staðhætti við sjávarsíðuna.
Suðurnesjamenn, styðjum baráttu-
konuna Rannveigu Guðmundsdótt-
ur til forystu í prófkjöri Samfylk-
ingarinnar 5.-6. febrúar næstkom-
andi.
Huldu
Ólafsdóttur I
forystusveit!
Ágústa Guðmarsdóttir sjúkraþjálfari
skrifar:
Hulda gefur kost
á sér í 1. eða 2.
sæti sem fulltrúi
Kvennalistans í
prófkjöri Samfylk-
ingarinnar. Hún
hefur starfað í
Kvennalistanum
frá upphafi og ver-
ið varaborgarfull-
trúi í 6 ár. Þar hef-
ur hún starfað af krafti í ýmsum
nefndum, m.a. atvinnumálanefnd.
Þar átti hún m.a. hugmyndina að
Brautargengi, sem er nám fyrir
konur með viðskiptahugmynd. Hug-
myndin ber vott um frjóa hugsun,
víðsýni og trú á konum til stjórnun-
ar og starfa. Hulda er traust, mál-
efnaleg, úrræðagóð og á auðvelt
með að vinna með fólki sem eru
góðir kostir stjórnmálamanns.
Hún hefur starfað ötullega að
vinnuvemdarmálum þar sem for-
vamastarf hefur verið í öndvegi.
Mál framtíðarinnar innan heilbrigð-
iskerfisins era forvamir og þar hef-
ur Hulda sérhæfða þekkingu.
Tryggjum Huldu 1. sæti Kvennalist-
ans í prófkjöri Samfylkingarinnar.
Nýjan mann
í öndvegi
Gestur Svavarsson málfræðingur
skrifar:
Það hefur heyrst
að í prófkjöri sam-
fylkingarinnar 30.
janúar nk. sé
spennan mest hjá
Alþýðuflokki. Það
virðist gleymast að
þeir sem kjósa í Al-
þýðubandalags-
hólfinu munu velja
nýjan leiðtoga Al-
þýðubandalagsins í Reykjavík. I
þessu prófkjöri er ungur maður
með mikla reynslu, Árni Þór Sig-
urðsson, aðstoðarmaður borgar-
stjóra, í framboði í 1. sæti Alþýðu-
bandalagsins. Arni Þór er maðurinn
sem vann þrekvirki í dagvistarmál-
um þegar hann sat í borgarstjórn
Reykjavíkur. Hann var formaður
stjórnai- LÍN þegar Svavar Gests-
son var menntamálaráðherra, á því
einasta tímabili þar sem staðið var
Gestur
Svavarsson
við lagaákvæði um lánakjör náms-
manna. Hann hefur gegnt mörgu
trúnaðarstarfi fyrir Alþýðubanda-
lagið og reynst ósérhlífinn baráttu-
maður.
Þeir sem horfa til framtíðarinnar
munu kjósa Áma Þór í 1. sætið í
prófkjörinu.
► Meira á Netinu
Ólaf Björns-
son á þing
Pétur Hrafn Sigurðsson framkvæmda-
stjóri KKÍ skrifar:
I prófkjöri sjálf-
stæðismanna á
Suðurlandi býður
sig fram Ólafur
Björnsson, sem nú
býr á Selfossi
ásamt konu sinni
og fjórum börnum.
Ólafur hefur
komið víða við í at-
vinnu- og félags-
málum. Hann rekur eigin lögfræði-
stofu á Selfossi og í Vestmannaeyj-
um. Hann kemur einnig að rekstri
búsins að Úthlíð í Biskupstungum.
Atvinnumál og landbúnaðarmál á
Suðm-landi era honum því hugleikin.
Ólafur hefur látið til sín taka í fé-
lagsmálum. Hann hefur gegnt
margvíslegum trúnaðarstörfum fyr-
ir Sjálfstæðisflokkinn. Ólafur er
áhugamaður um íþróttir og var m.a.
formaður knattspyrnudeildar Sel-
foss. Reynsla hans og þekking af at-
vinnu- og félagsmálum gerir það að
verkum að Ólafur á erindi á þing.
Ég vil því jivetja Sunnlendinga til
að tryggja Ólaf í öraggt þingsæti og
velja hann í eitt af efstu sætum list-
ans.
► Meira á Netinu
Tryggjum
Vilhjálmi
brautargengi
Jón Yngvi Jóbannsson, bókmennta-
fræðingur, skrifar:
Ein besta sönn-
unin fyrir því að
samvinna vinstri-
manna skilar ár-
angri er velgengni
Röskvu í há-
skólapólitík síðasta
áratugar. Þar höf-
um við verið svo
lánsöm að velja til
forystu ungt og
Jón Yngvi
Jóhannsson
Pétur Hrafn
Sigurðsson
kraftmikið fólk sem hefur staðið
vörð um mikilvægi menntunar,
rannsókna og þróunar. f prófkjöri
samfylkingarinnar þann 30. janúar
gefst tækifæri til að efla eitt þeirra
til áframhaldandi góðra verka, Vil-
hjálm H. Vilhjálmsson sem býður
sig fram fyrir hönd Alþýðubanda-
lagsins.
Vilhjálmur sýndi það í tíð sinni
sem formaður Stúdentaráðs að hann
er baráttumaður og lét ekki slá sig
út af laginu í slagnum við ráðamenn
sem skorti dug og framtíðarsýn til
að forgangsraða menntamálum í
þágu framtíðarinnar.
Það er því Samfylkingunni til
framdráttar að við tryggjum Vil-
hjálmi H. Vilhjálmssyni brautar-
gengi innan hennar.
NIKCU
ént
Tannkremiö sem hjálpar pér að hœtta
að reykja með dagíegri notkun.
Kynning í IngólfsApóteki, Kringlunni
laugardaginn 23. janúar,
kl 12-16.
Mikill afsláttur!
íff laumirn þíntim
í Frjálsa IMsyrfssjóðítm, efsta og sCasrsta
séreignarfífeyríssjóó laiMfstns
Þaö er einfalt aö helja spamaö í Frjálsa llfeyrissjóðnum. Veldu þér leiö.
1. Þú sendir svarseöil bláa bréfsins sem þú fékkst í pósti.
2. Þú hringir í síma 540 5000.
3. Þú notar Internetið WWW. fjarvangur.is.
4. Þú ferð í Fjárvang Laugavegi 170, eða næsta útibú VÍS.
FRJÁLSI
LÍFEyRJSSjÓÐURINN
- til að njóta Ujsins
Frjálsi Kfeyrissjóðurinn
er [ vörslu Fjárvangs hf.
Omissandi
MEÐ ÖLLUM
ÞORRAMAT
'
m-MM
%
¥
Iymm
%
Karsnesþraut 96
200 Kópavogur
S ím i 554 i 5 8 8
Fax 554 2212