Morgunblaðið - 22.01.1999, Blaðsíða 58
i 58 FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
fBoivpmMíiMfe
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Grettir
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Er framlíf
sannað?
Frá Atla Hraunfjörð:
SVO GETUR maður haldið, því
haustið 1997 var haldin ráðstefna
parasálfræðinga og eðlisfræðinga og
annarra vísindamanna á sviði fyrir-
burðafræða í Basel í Sviss.
Yfirskrift ráðstefnunnar var:
Spumingin er ekki lengur sú, hvort
við lifum eftir líkamsdauðann, heldur
hvert við fórum eftir dauðann og
hvert ástand okkar verður.
Þessa yfírlýsingu gefa þeir vísinda-
menn, sem í rauninni eru þeh- einu
sem með réttu geta fullyrt þetta.
Fullyrðing þessi er sett fram eftir
margra ára rannsóknir og er full-
reynd sem vísindaleg niðurstaða.
Það þarf töluvert mikla hugarfars-
blindu til að sjá ekki það sem blasir
við augum manna. Þrátt fyidr það
geri ég ráð fyrir að andstaða við
þessa niðurstöðu verði mikil, sér-
staklega hjá þeim sem vilja og halda
að heimurinn sé annar en hann er.
A sama hátt voru fáir einstaklingar
færir um að bera skynbragð á kenn-
ingu Darwins um uppruna tegund-
anna og sólmiðjukenningar Kópem-
ikusar, Galíleós og Brúnós. Hvað þá
landrekskenningu A. Vegeners sem
sett var fram um 1912, en viður-
kennd um 1960 og til viðbótar fékk
einn af frumkvöðlum skammtafræð-
innar, Niels Bohr, lengi vel ekki þann
stuðning sem hann vænti. Kenningar
þessara manna vom hafðar að háði
og spotti af þeim einstaklingum er
betur þóttust vita.
Eitt er þó víst, að nokkuð hefur
mannviti og þekkingu þokað áleiðis
um getu mannsins í sköpunarverk-
inu og stöðu hans sem lífveru og sem
hluta af náttúrunni.
Dr. Helgi Pjeturss náttúmfræðing-
ur, jarðfræðingur og heimspekingur
sagði í byijun aldarinnar, að framlíf
væri staðreynd og byggði hann full-
yrðingu sína á vísindalegu hyggjuviti
og lestri og samanburði hundraða
framlífsbóka er gefnar vom út hér á
landi og erlendis á þeim tíma. Auk
þessa sagði hann, að tjáskipti framlið-
inna og lifenda færa fram með hugs-
anaflutningi. Niðurstaðan sem minnst
var á hér í upphafi og flestar rann-
sóknir þar á undan hafa einungis sýnt
fram á hvílíkur hugsuður dr. Helgi
var og hvað hann var langt á undan
sinni samtíð, en hann setti fram kenn-
ingar sínar í ritinu Nýall sem kom út
1919 og af og til fram til ársins 1947,
en hann lést árið 1949.
I stuttri samantekt lítur þetta út
sem hér segir um niðurstöðu vísinda-
manna og kenningar dr. Helga:
1. Hugsanaflutningur er viður-
kennd staðreynd.
2. Framlíf er viðurkennd stað-
reynd.
3. Allt líf er í efni, samkvæmt nið-
urstöðu líffræðinnar.
4. Staðhæfing: Þar sem allt líf er í
efni og framlíf er viðurkennd stað-
reynd, hlýtur framlíf að vera í efni.
5. Staðhæfing: Hugsanaaflið er
undirstaða alls lífs í alheimi.
Allar þessar fimm staðhæfingar
era settar fram í Nýal og er aðeins
eftir að fá tvær þeirra síðustu rann-
sakaðar og metnar af framsæknum
vísindamönnum. En eftir stendur
spurning lesendans: Hvar era fram-
liðnir, ef þeir era í efni, þar sem þeii-
era ekki á þessum hnetti? Já, hvar
þeir era, um það má lesa í Nýal og í
næsta lesendabréfi.
ATLI HRAUNFJÖRÐ,
Marargranni 5, Garðabæ.
Oskað er svara
um frið á jörð
Frá Guðrúnu Maríu Óskarsdóttur:
VIÐ íslendingar eram á síðari tím-
um friðsöm þjóð, án hers og vopna.
Það atriði gefur okkur mikla mögu-
leika á alþjóðavettvangi svo fremi
möguleikar þeir séu nýttir og vakin á
því athygli hve sérstaða okkar í
þessu efni er mikilvæg. Þessu verk-
efni hefur Astþór Magnússon m.a.
sinnt sérstaklega með stofnun sam-
takanna Friðar 2000. Svo sérkenni-
lega vildi til að fyrh' þessi jól virtist
sem friðurinn væri allt í einu borinn
á markaðstorgið, og útflutningur að-
eins háður sérstökum pólitískum
friðarstimpli núverandi stjórnvalda,
er ekki virðast telja að friðarboðar
geti haft samband út í heim gegnum
nútímatækni. Hinar lýðræðislegu að-
ferðir virðast ekki lengur í sjónmáli,
og skilgreining á „pólitík“ kann að
þurfa nýrrar útskýringar við, líkt og
túlkun kvótadóms Hæstaréttar.
Bræðumir á Bakka bára sólskinið
forðum inn í bæinn í húfum sínum,
en ekkert dugði til, við birtuauka
inni fyrir. Þeir lentu einnig í vand-
ræðum með að vita hver þeirra tók
fæturna hvenær uppúr vatninu.
Hætt er við því að álíka verði fyrir
þeim mönnum komið sem ekki gera
sér ljóst í tíma hve nauðsynlegt er
fyrir þjóðir heims að taka afstöðu til
síns nánasta umhverfis, hvort sem er
að vekja athygli á vanda bágstaddra
vegna stríðsátaka eða taka þátt í því
að stoppa í ósongatið á norðurhveli
jarðar með öllum mögulegum fyrir-
byggjandi ráðstöfunum, til lands og
sjávar. Því fyrr sem menn þora að
nota þann kjark og það þor, er þeim
hefir verið gefið, til þess ama, því
betra. Hver og einn íslenskur stjóm-
málamaður, sem ekki er hættur eða
er að hætta eins og nokkrir þeirra
nú um stundir, ætti að gefa íslensk-
um almenningi kost á því að skýra
afstöðu sína til friðarmála í heimin-
um. Fyrir hönd þein-a fjölmörgu ís-
lendinga ungra sem aldinna er gáfu
jólagjaffr til að gleðja bágstödd böm
á vegum Friðar 2000 fyrir þessi jól,
óskum við eftir opinberri afsökunar-
beiðni frá sýslumanninum á Kefla-
víkurflugvelli eða yfirmanni hans,
vegna atburða á aðfangadag, sem og
skýringum á hver ber ábyrgð á mis-
tökum þessum, og hvert framhaldið
verður.
GUÐRÚN MARÍA
ÓSKARSDÓTTIR,
sjálfboðaliði Friðar 2000 í Hafnarfirði.
NEI, ég held að enginn komi hingað lengur...
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsingasafni
þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er
með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.