Morgunblaðið - 22.01.1999, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999 25
Reuters
Neysla trefjaefna kemur ekki
í veg fyrir ristilkrabbamein
NIÐURSTÖÐUR nýrrar rann-
sóknar sem unnin var á vegum vís-
indamanna við Harvard-háskóla
og sjúkrahúss í Boston í Banda-
ríkjunum þykja kollvarpa kenning-
um sem breskur skurðlæknir,
Denis Burkitt, lagði fram fyrir
þrjátíu árum um að mikil neysla
trefjaefnaríks fæði geti komið í
veg fyrir krabbamein í ristli.
Rannsóknin er sú viðamesta
sem gerð hefur verið á kenningum
Burkitts en hann hélt því fram,
eftir að hafa rannsakað muninn á
þeim sjúkdómum sem fátækir íbú-
ar Afríku og vel stæðir vestur-
landabúar fá, að hátt hlutfall
trefjaefna í fæðu Afríkubúanna
verði þá gegn ristilskrabbameini.
Útbreiddi Burkitt á sínum tíma
kenningar sínar um víða veröld og
olli þannig því að fjöldi fólks
breytti mataræði sínu. Samkvæmt
niðurstöðum rannsóknarinnar nú
er mikil neysla ávaxta, grænmetis
og morgunkoms hins vegar alls
endis gagnslaus.
í rannsókninni var fylgst með
mataræði næstum níutíu þúsund
hjúkrunarkvenna á sextán ára
tímabili og sýna niðurstöður að
þeim konum sem neyttu trefja-
ríkrar fæðu var ekkert síður hætt
við að fá ristilkrabbamein, eða
byrjunareinkenni þess, heldur en
þeim sem ekki borða trefjaríka
fæðu.
Vísindamenn benda að vísu á að
konur og karlar bregðist mismun-
andi við neyslu trefjaefna og að
einungis konur hafi tekið þátt í
þessari tilteknu rannsókn. Samt
sem áður þykja niðurstöðurnar
sýna að enn eigi eftir að færa
sönnur á góð áhrif trefjaefna.
Zúlústríðs-
ins minnst
UM þessar mundir eru 120 ár lið-
in frá orrustunni við Isandlwana,
úrslitaátökunum í stríði Breta og
Zúlúmanna í Suður-Afríku. Hef-
ur þess verið minnst með ýmsum
hætti og meðal annars með því
að setja mannvígin á svið. Hér
liggja þeir í valnum, stríðsmenn
Zúlúa og hermenn úr konung-
lega velska herfylkinu.
--------------
Mannskæð
átök í
Indónesíu
Jakarta. Reuters.
TUTTUGU og fjórir hafa beðið
bana í tveggja daga átökum milli
kristinna manna og múslima í aust-
urhluta Indónesíu, að sögn lög-
reglustjóra landsins í gær. Þetta
eru mannskæðustu átökin sem
blossað hafa upp í landinu frá óeirð-
unum í Jakarta í maí sem kostuðu
1.200 manns lífið.
Lögreglustjórinn sagði að 22
hefðu látið lífið í óeirðum í borginni
Ambon og tveir á eyjunni Sanana.
Kveikt hefði verið í 88 íbúðarhús-
um, þremur moskum og þremur
kirkjum í Ambon.
Allt var með kyrrum kjörum á
götum Ambon í gær en fáir voru á
ferli og þúsundir manna leituðu
skjóls í byggingum lögreglunnar og
hersins í borginni.
Lögreglustjórinn sagði að stjórn-
mál væru ekki undirrót átakanna og
heimildarmenn í lögreglunni sögðu
að átökin hefðu hafist á þriðjudag
þegar drukkinn maður hefði kúgað
fé af strætisvagnastjóra í Ambon.
Til átaka hefði þá komið milli íbúa
tveggja hverfa og þau síðan breiðst
út.
BARTON^
astkassar
og skúffur
Bjóðum margar stærðir og gerðir af
plastkössum. Hægt að stafla upp,
hengja á vegg eða setja í hillur.
Ávallt fyrirliggjandi
V.
SUNDABORC 1 • SlMI 568-3300
...Látið blómin tala
Blómaverslanirnar
- fagmennska í fyrirrúmi
é>
ISLENSK
GARÐYRKjA
- okkar allra vegna!