Morgunblaðið - 22.01.1999, Blaðsíða 19
MORGUNB L AÐIÐ
AKUREYRI
FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999 19
Morgunblaðið/Jónas Baldursson
FEÐGARNIR Sveinn og Bene-
dikt við húsið sem þeir eru að
smíða, en með þeim er
Sigurbjörn.
Fræðsla fyrir fatlaða
Fræðslu-
dagnr
FRÆÐSLUDAGUR, sem Fræðsla
fyrir fatlaða, FFA, efnir til verður
haldinn í samvinnu við Félagsþjón-
ustu Akureyrarbæjar, Sjálfsbjörgu
á Akureyri og Proskahjálp á Akur-
eyri næstkomandi laugardag, 23.
janúar, frá kl. 10 til 15 á Fosshóteli
KEA.
Lilja Guðmundsdóttir, formaður
Proskahjálpar á Norðurlandi
eystra, kynnir hlutverk trúnaðar-
manns fatlaðra, Þórgnýr Dýrfjörð,
Kristín Sigursveinsdóttir og Helga
Alfreðsdóttir, frá búsetudeild Akur-
eyrarbæjar, fjalla um margbreyti-
leika einstaklinga, félagslega og
frekari liðveislu og Gunnhildur
Bragadóttir, Hulda Magnúsdóttir
og Aðalbjörg Baldursdóttir fjalla
um liðveislu frá sjónarhóli notenda
og Kolbrún Guðveigsdóttir frá sjón-
arhóli liðveitenda. Þá verða fyrir-
spurnir og umræður. Þátttökugjald
er 1.000 krónur og er innifalið í því
matur og kaffi. Þátttöku þarf að til-
kynna fyi'ir kl. 12 næstkomandi
föstudag, 22. janúar, á skrifstofu
Þroskahjálpar á Akureyri eða í
Reykjavík.
-------------
Margar sýning-
ar í Grófargili
OPNUÐ verður sýning á færeyskri
list í Listasafninu á Akureyri á
morgun, laugardag, en gestir í
Grófargili geta valið um fjölda sýn-
inga sem opnar eru um helgina.
Vinabæjartónleikar verða í Deigl-
unni kl. 17 á morgun, laugardag, en
þar leikur Tríó Björns Thoroddsen.
Páll Sólnes sýnir í Ketilhúsinu og
ber sýning hans yfirskriftina
Lýrískar abstraktsjónir en hún er
opin frá kl. 14 til 18 um helgar og
eftir samkomulagi aðra daga. Sýn-
ing á verkutn eftir Erró er á Kar-
ólínu, Björn Gíslason og Orri Gaut-
ur Pálsson sýna þar einnig Jjós-
myndir og verk eftir Amý eru til
sýnis sem og eftir Frans Widerberg
í tengslum við sýningu Leikfélags
Akureyrar á Pétri Gaut. í Ljós-
myndakompunni sýnir Hlynur
Hallsson misheppnaðar myndir.
-----♦“♦-♦---
Bflasýning
KRAFTBÍLAR við Draupnisgötu 6
á Akureyri efna til bílasýningar á
laugardag, 23. janúar, frá kl. 11 tii
16. Sýndar verða ýmsar gerðir og
stærðir af MAN-vörubílum, m.a. í
fyrsta skipti á íslandi þriggja drifa
vörubíll með loftfjöðrum.
s
Ibúðarhúsið verður
flutt í Laufás
Grýtubakkahreppi. Morgnnblaðið.
ÞAÐ HEFUR færst í vöxt hin síð-
ari ár að byggð eru á bújörðum í
sveitum íbúðarhús, gjarnan þegar
ábúenda- eða kynslóðaskipti
verða. Byggð hafa verið hús sem
ekki er hægt að hreyfa úr stað, en
nú kann að verða breyting þar á
því næsta sumar verða tvö hús sett
niður á bújörðum í Grýtubakka-
hreppi sem ekki eru byggð á
staðnum. Annað húsið verður við
Bárðartjörn en hitt við Laufás.
Síðarnefnda húsið er í byggingu
hjá þeim Artúnsfeðgum, Sveini
Sigurbjörnssyni og Benedikti
Sveinssyni. Það er á tveimur hæð-
um, um 140 fermetrar að gi-unn-
fleti, og stefnt er að því að það
verði tilbúið til flutnings í Laufás í
lok júní. Það eru þau Þórarinn
Pétursson og Hólmfríður Björns-
dóttir ásamt syninum Pétri sem
eru eru að láta snu'ða þetta hús
fyrir sig. Ætlunin er að það standi
allnokkuð norðan við núverandi
prestsetur í Laufási. Tóti og
Hóbba, eins og þau eru gjarnan
nefnd, hafa í auknum mæli tekið
þátt í búskapnum í Laufási og var
þessi ákörðun um að færa þangað
íbúðarhús fyrir fjölskylduna tekin
í framhaldi af því.
FJÖLSKYLDAN í Laufási, Þórarinn, Hólmfríður og Pétur.
■■■ HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup
... . .......... ■