Morgunblaðið - 22.01.1999, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 22.01.1999, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Niðurstöður í prófkjöri framsóknarmanna í Reykjavík voru tilkynntar í gær Finnur Ingólfsson í 1. sæti með 57,1% fylgi Prófkjör Framsóknar- flokksins í Reykjavík Atkvæði í sæti Atkvæði u 11.-15. janúar 1999 og ofar Hlutfall alls Hlutfall 1. Finnur Ingólfsson 996 57,1% 1.230 70,5% 2. Ólafur Örn Haraldsson 1.016 58,2% 1.227 70,3% 3. Jónína Bjartmarz 1.078 61,8% 1.251 71,7% 4. Vigdís Hauksdóttir 1.344 77,0% 1.344 77,0% 5. Alfreð Þorsteinsson 1.010 57,9% 1.010 57,9% 6. Arnþrúður Karlsdóttir 909 52,1% 909 52,1% Á kjörskrá voru 2.635, atkvæði greiddu 1.826 (69,3%). Gildir seðlar 1745, auðir og ógildir 81. Umhverfissamtök Islands stofnuð í Norræna húsinu í gær Morgunblaðið/Kristinn UMHVERFISSAMTÖK íslands voru stofnuð í gær og var Vigdís Finn- bogadóttir skipuð heiðursforseti samtakanna og Steingrímur Hermannsson kjörimi formaður. Þeim á vinstri hönd eru Guðmundur K. Magnússon, Gunnar G. Schram og Helga Guðnin Jónasdóttir. Stofnfélagar á annað hundrað NIÐURSTOÐUR í prófkjöri Framsóknarflokksins í Reykjavík lágu fyrir rétt fyrir klukkan 18 í gær. Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og varaformaður flokksins, lenti í fyrsta sæti, Ólafur Örn Haraldsson, þingmaður, í öðni og Jónína Bjartmarz, héraðs- dómslögmaður og formaður lands- samtakanna Heimili og skóli, í því þriðja. I íjórða sæti lenti Vigdís Hauksdóttir garðyrkjufræðingur, í 5. sæti Alfreð Þorsteinsson borgar- fulltrúi og Arnþrúður Karisdóttir kaupmaður í því sjötta. „Ég tel að niðurstaða þessa próf- kjörs sýni að hér sé um að ræða sterkan framboðslista til að fara með í kosningar í vor. Ég er ákaf- lega ánægður með þessa niðurstöðu og sérstaklega þakklátur fyrir þann mikla stuðning sem ég fékk og þakka mínum stuðningsmönnum og öllum þeim sem unnu fyrir mig í þessari baráttu," segir Finnur Ingólfsson. Finnur segist vera ánægður með það hlutfall sem hann hlaut í próf- kjörinu, 57,1%. „Ég tel það vera mjög gott. Það voru þrír sem börðust um fyrsta sætið á listanum, borgarfulltrúi í Reykjavík og varaþingmaður flokksins, þannig að ég held að það verði að teljast mjög góð niðurstaða. Ekki síst í ljósi þess að það voru miklar smalanir inn i flokkinn síðustu dagana áður en kjörskrá var lokað og ég átti lítið í þeim hópi sem þar kom inn,“ segir Finnur sem gaf kost á sér í 1. sæti hstans. „Stuðningur við þau málefni sem ég hef barist fyrir“ „Ég er fyrst og fremst glaður og þakklátur þeim sem studdu mig og unnu fyrir mig. En allra fyrst og fremst er þetta sigur framsóknar- manna í Reykjavík því meginmark- mið prófkjörsins er að sjálfsögðu að velja framboðslista sem menn telja sigurstranglegan. Með þessaif nið- urstöðu hafa framsóknarmenn í Reykjavík sýnt með áberandi hætti að þeir vilja að þessir tveir þing- menn ásamt því fólki sem þar á eftir kemur vinni áfram og sé á fi’amboðs- hsta. Þetta er stuðningur við þau málefni sem ég hef mest barist fyr- ir,“ segir Ólafur Öm Haraldsson þingmaður um niðurstöður próf- kjörsins, en hann hafði gefið kost á sér í 2. sæti listans. „Ég er glöð og ánægð yfir þeim stuðningi sem ég fékk í þessu próf- kjöri. Þetta er í fyrsta skipti sem ég tek þátt í svona og ég ht svo á að það séu þau málefni sem ég setti á odd- inn sem hafi haft ákveðinn sigur. Það eru fjölskyldumálefnin sem ég hef verið að vinna að á öðrum vettvangi í mörg ár. Þetta gat farið á alla vegu, en ég get ekki verið annað en ánægð með þessa niðurstöðu," segir Jónína Bjartmarz, héraðsdómslögmaður og formaður landssamtakanna Heimih og skóh, sem gaf kost á sér í 3. sætið og hlaut það. Framsóknarmenn í Reykjavík nýjungagjamir „Ég er mjög ánægð með að hafa fengið 77% atkvæða í 1. - 4. sæti, en ég sóttist eftir 3. sætinu og er ekki alveg sátt við mína útkomu í sam- bandi við það sæti. Framsóknar- menn í Reykjavík virðast vera mjög nýjungagjamir því þetta er í annað skipti á fjórum árum sem nánast óþekktur aðili nær glæsilegu kjöri í prófkjöri. Að sjálfsögðu eru þetta vonbrigði en ég var hærri en Alfreð Þorsteins- son sem hefur verið í borgarmálun- um, svo upp á það get ég vel við unað, en ég sóttist eftir 3. sætinu en fékk það ekki,“ segir Vigdís Hauks- dóttir. Forystumenn gáfu flokksfólki línuna „Þetta er mjög afdráttarlaus nið- urstaða. Hvað sjálfan mig varðar þá var alveg Ijóst frá upphafi að aðkoma að þessu prófkjöri var mjög erfið, vegna j>ess að þingmennimn, Finn- ur og Ólafur Öm, vom búnir að gera kosningabandalag og Finnur er þai- að auki varaformaður flokksins og ráðherra. Þegar forystumennimir gefa flokksfólkinu hnuna með svona afdrifaríkum hætti þá má segja að úrslitin hafi að sumu leyti verið ráðin fyrirfram. Ég óska andstæðingum mínum til hamingju með þennan sigur og vona að flokknum gangi vel í kosningun- um í vor. Ég hef þó vissar áhyggjur af því að Finnur Ingólfsson sem leið- ir flokkinn fyrir Reykjavík fær ekki góða kosningu í 1. sætið. Hann er með 57,1% fylgi sem sýnir að hann er umdeildur og ég vona að honum takist að endurvekja traust á sér þannig að hann geti verið sannur foringi,“ segir Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi sem gaf kost á sér í 1. - 4. sæti en hafnaði í 5. sæti. Hissa á að vera kosin „Persónulega þá er ég ekki óánægð með þessa niðurstöðu. Ég hef aldrei fengið neitt á silfurfati svo það kemur mér ekki á óvart, en ég var að berjast við heila blokk sem vann saman og hafði bæði aðgang að ráðuneytum, Alþingi, fjármagni og styrkjum. Ég aftur á móti var ein og get ekki nýtt mér slíkt til að heilla kjósendur. Þegar svona blokk mynd- ast þá gefur það augaleið að það mátti hvergi kjósa mig. Ég furða mig mest á því að ég skyldi yfir höfuð vera kosin, en ég fæ á fimmta hundrað atkvæða í fyrsta og annað sætið í þessu karlaveldi, og ég kalla það stórsigur fyrir mig. Það sem mér finnst það versta er að fólk sem lengi hefur starfað fyrir flokkinn, hlýtur ekki kosningu. Það virðist borga sig fyrir menn að vera uppgötvaðir en það hefur komið fyr- ir í tvígang núna að tveir nýir aðilar, fyrir fjórum árum Ólafur Óm Har- aldsson og nú Jónína Bjartmarz, komi nýir inn og hljóti góða kosn- ingu. Þama er hætta á ferðum, segi ég- Að mínu mati er varaformaður flokksins að fá algera útreið og það segir meira en mörg orð að hann skuh ekki fá fleiri atkvæði,“ segir Amþrúður Karlsdóttir kaupmaður í Reykjavík. Hún gaf kost á sér í 1. - 3. sæti en hafnaði í 6. sæti. UMHVE RFISSAMTÖK íslands vom stofnuð í Norræna húsinu í gær að viðstöddu fjölmenni og gerðist á annað hundrað manns stofnfélagar í samtökunum. Meðal markmiða samtakanna er að vera málsvari þeirrar stefnu að auðlindir íslands til lands og sjávar verði ætið nýttar af varúð og með sjálf- bæram hætti, svo sem minnst spillist líf og land. Vigdís Finnboga- dóttir, fyrrverandi forseti íslands, var skipuð heiðursforseti samtak- anna og Steingrímur Hermannsson kosinn formaður stjómar. Umhverfissamtök íslands eiga að vera vettvangur fyrir alla þá sem vilja vinna að umhverfismálum og vernda þau lífsgæði, sem felast í náttúra Islands á láði, í lofti og legi. Meðal markmiða samtakanna er að stuðla að endurheimt landgæða, stuðla að því að viðkvæm svæði á hálendinu verði sem minnst skert á ókomnum árum, og stuðla að fram- kvæmd alþjóðasamninga um vemd- un umhverfis. Samtökin ætla að hafa samvinnu við eriend umhverf- issamtök og taka þátt í alþjóðlegum ráðstefnum um umhverfismál auk þess sem þau munu gangast fyrir ráðstefnum og fyrirlestram um efni sem starfssvið samtakanna nær til og fræðslu um umhverfismál og mikilvægi þeirra í þjóðfélagi nútíðar og framtíðar. Vigdís Finnbogadóttir sagði í ávarpi sínu að hún vonaðist til að samtökin yrðu öðrum félögum og samtökum til eftirbreytni og þau stefndu að því að verða leiðandi afl í umhverfismálum á íslandi. Sagði hún það heilaga skyldu hverrar þjóðar að spyrna fótum við þeirri þróun sem á sér stað í ofnýtingu náttúraauðæfa í heiminum og Is- lendingar ættu að vera þar í farar- broddi. Umhverfið njóti efans Steingrímur Hermannsson færði rök fyrir stofnun samtakanna í ávarpi sínu og sagðist hafa velt því mikið fyrir sér hvort þörf væri á slíkum samtökum. Svar hans var skýrt, mikil þörf væri á „regnhlífar- samtökum" sem þjónað gætu því hlutverki að vera umræðugrund- völlur fyrir öll þau umhverfissam- tök og félög sem þegar væra til. Sagði hann mikilvægt að fulltrúar þeirra félaga kæmu að því að móta stefnu samtakanna nýstofnuðu. Kosið var í sjö manna stjóm sam- takanna. Steingrímur var kjörinn formaður en aðrir sem kosnir vora í stjórn era Gunnar G. Schram pró- fessor, Guðfinna Bjamadóttir rekt- or Viðskiptaháskólans í Reykjavik, Júlíus Sólnes, fyrrverandi umhverf- isráðherra, Margrét Sigurðardóttir markaðsstjóri, Steinunn Sigurðar- dóttir rithöfundur og Óskar Magnússon stjórnarformaður Baugs hf. í varastjórn vora kosin þau Árný Erla Sveinbjömsdóttir jarðfræðing- ur og Einar Már Guðmundsson rit- höfundur. Andlát ÁRMANN JAKOBSSON ÁRMANN Jakobsson, fyrrverandi bankastjóri Útvegsbanka Islands, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur í gær, 84 ára að aldri. Ái-mann fæddist í Reykjavík 2. ágúst 1914. Foreldrar hans voru Jakob Guðjón Bjarnason vélstjóri pg Guðrún Sesselja Ár- mannsdóttir húsfreyja. Hann lauk stúdentsprófi frá MR árið 1932 og lög- fræðiprófi frá Háskóla íslands 1938. Ármann gerðist starfsmaður Út- vegsbanka Islands árið 1939 og starfaði hjá bankanum samfleytt í 45 ár, eða til ársins 1984. Fyrst var hann starfsmaður bankans á Akur- eyri, þá á Siglufirði og loks í Reykja- vík. Síðustu tólf árin var Ármann bankastjóri Útvegs- bankans. Á Akureyri og Siglufirði stundaði hann jafnframt mál- flutningsstörf. Hann var bæjarfull- trúi fyrir Alþýðubanda- lagið á Siglufirði og átti jafnframt sæti í fræðsl- uráði. Hann var í stjórn Fiskveiðasjóðs Islands um tíma, stjórn Sam- bands íslenskra við- skiptabanka og fieiri nefndum tengdum starfi bankastjóra. Eiginkona Ármanns Jakobssonar vai’ Hildur Sigríður Svavarsdóttir húsfreyja en hún lést árið 1988. Þau eignuðust tvo syni, sem báðir eru látnir, Jakob var aðstoðarmaður bankastjórnar Búnaðarbanka ís- lands og Svavar aðstoðarforstjóri Fiskveiðasjóðs íslands. Flutningabill ók á hross Selfoss. Morgunblaðið. EITT hross drapst þegar flutn- ingabíll á austurleið keyrði inn í hrossahóp á Suðurlandsvegi skammt vestan við Steina í gærkvöldi. Tvö hrossanna lentu á flutningabílnum og steindrapst annað þeirra og kastaðist út fyrir veg. Munaði litlu að það lenti framan á fólksbíl sem var í þann mund að mæta flutningabílnum. Hitt hrossið fannst ekki þrátt fyr- ir ítarlega leit lögreglu og bænda. Bílstjóra flutningabflsins sakaði ekki en honum var brugðið. Hann sagði höggið hafa verið þungt en hrossin stukku allt í einu inn á veginn eins og svartir skuggar og engin leið fyrir bflstjórann að beygja undan enda bfllinn stór og með aftanívagn. Hlið á girðingu með veginum var opið og áttu hrossin greiða leið út á þjóðveg- inn. Nokkrar skemmdir urðu á bflnum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.