Morgunblaðið - 22.01.1999, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.01.1999, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Krafa um 15-20% hækkun á gjaldskrá tannlækna segir aðstoðarmaður ráðherra Segja deil- una snúast um greiðslur til forvama Ný gjaldskrá hefur tekið gildi eftir að slitnaði upp úr viðræðum tannlækna og heilbrigðisyfírvalda. Aðilar hafa nú ákveðið að setjast að samningaborði að nýju. HEILBRIGÐIS- og trygginga- málaráðherra hefur birt gjaldski-á fyrir tannlækningar veittar sjúk- lingum sem tryggðh’ eru samkvæmt almannatryggingalögum en ekki hefur verið hægt að greiða sjúkling- um hlut Tiyggingastofnunar ríkis- ins síðustu daga eftir að slitnaði upp úr viðræðum við Tannlæknafélag Islands. Gjaldskráin byggir á eldri gjaldskrá sem var í gildi. Aðilar hafa orðið ásáttur um að taka upp viðræður að nýju og verður fundur þeirra á mánudaginn. Að sögn Póris Haraldssonar, að- stoðarmanns ráðherra, hafa tann- læknar lagt fram kröfur um 15-20% hækkun á gjaldskránni. Börkur Thoroddsen, formaður samninganefndar tannlækna, segir að deilan standi fyrst og fremst um að dregið hefur úr greiðslum Tryggingastofnunar vegna for- varna en ekki um gjaldskrá eða laun tannlækna. „Laun í landinu hækkuðu um 3,65% í janúar og mér finnst eðlilegt að tannlæknar hækki sína gjaldskrá samkvæmt því en nú reynir á samkeppnislögin," sagði hann. „Þetta er neyðaraðgerð hjá okk- ur að gefa út gömlu gjaldskrána óbreytta,“ sagði Þórir. „Þetta er okkar aðferð til að tryggja að sjúk- lingar fái strax endurgreiðslu en síðan er í skoðun hjá ráðuneytinu í samstarfi við Tryggingastofnun með hvaða hætti þessum málum verður komið fyrir í framtíðinni." Sagði hann að meðal annars væri horft til þess að endurskoða og ein- falda gjaldskrá tannlækna en einnig kæmi útboð til greina. Fijáls álagning Það eru börn og unglingar, 17 ára og yngri, aldraðir, örorkulíf- eyrisþegar, fatlaðir og vistmenn sem dvelja til lengri tíma á sjúki’a- stofnunum og í þjónustuhúsnæði aldraðra, sem eiga rétt á endur- greiðslu frá Tiyggingastofnun vegna tannlæknaþjónustu. Benti Þórir á að engin verðlagsákvæði væru í gildi fyrir þá sjúklinga sem ekki falla undir sjúkratryggingu. „Það sem gerist núna um leið og samningssamband Tannlæknafé- lagsins og Tryggingastofnunar er slitið og gjaldski’áin er ekki lengur í gildi, sem um var samið, er að tannlæknar hafa núna frjálsa verð- lagningu á allri sinni þjónustu," sagði hann. „Þá er mikilvægt fyrir sjúklinga að spyrjast fyrir um verð.“ Þórir sagði að komið hafi fram krafa frá stjórn Tannlækna- félagsins um 15-20% hækkun á gjaldskrá en að sú krafa hafi ekki verið rökstudd. „Þeir neita að funda með samninganefndinni nema að gengið sé að kröfum um ákvarðanir á endurgreiðslum til sjúklinga og kostnaðarhlutdeild sem við teljum að ekki sé samn- ingsmál við tannlækna,“ sagði hann. Benti hann á að um síðustu áramót hafi verið gerð breyting á reglugerð um tannlæknaþjónustu sem feli í sér aukin réttindi á greiðslum til aldraðra, öryrkja og unglinga og munu greiðslur Trygg- ingastofnunar vegna tannlækna hækka um 70 milljónir á ári. Eðlilegt að greitt sé á stofunni Börkur Thoroddsen, formaður samninganefndar tannlækna, segir að samkvæmt álitsgerð lögfræði- stofnunar Háskóla Islands, sé tannlæknum heimilt að taka gjald fyrir sín verk. Heilbrigðisráðu- neytið greiði samkvæmt gjaldskrá en sjúklingurinn mismuninn. „Tannlæknar í Reykjavík sækja Úr GJALDSKRÁ fyrir tannlækningar veittar sjúkiingum sem tryggðir eru skv. almannatryggingarlögum T = tímagjald, kr. 1.400 og reiknast fyrir hverjar byrjaðar 10 mínútur. Nr. Gjaldliður Kr. ALMENNINGUR 001 Viðtal T 002 Bráðahjálp T 003 Skoðun (greining, skráning) T 004 Áfangaeftirlit T 013 Heildarröntgen, fullorðinn 7.690 014 Heildarröntgen, barn 3.915 030 Yfirborðsdeyfing, ein eða fleiri í sömu heimss. 335 031 Deyfing á tannsvæði einnar tii þriggja tanna 515 032 Svæðisdeyfing 840 FORTANNLÆKNINGAR ______________________ ' ___ 104 Tannhreinsun, sýkla og tannsteinn fjarlægð T Í05 Tannhreinsun og pússaðar gamlar fyllingar T 108 Röntgen, bitewing I forvarnarskyni, hver mynd 1.050 110 Flúrlakkað, báðir gómar (tannhreinsun innif.) 3.705 111 Flúrpenslun, báðir gómar (tannhreinsun innif.) 2.015 TANNFYLLINGAR Ljóshertar fyllingar (sýruætaðar) Fram- og augntennur barna- og fullorðinstanna: 201 V. cl„ III. cl. 4.245 210 V.cí..íll.cí..i.cl. 4.245 Fram- og bakjaxlar: 214 Vcl. 4.245 Silfurfyllingar Fram- og augntennur, framjaxlar og fremri barnajaxlan 230 1 flötur 2.305 231 Viðbótarfylling í sömu heimsókn 1.845 232 2 fletir .. _ 3.845 233 3 fletir 5.000 234 4 fletir 5.580 235 Amalgamkróna, (rótarstifti ekki innifalið) 5.905 Bakjaxlar og aftari barnajaxlar: 241 Amalgamkróna, (rótarstifti ekki innifalið) ________________ 258 Stöðluð stálkróna 7.045 259 Stöðluð plastkróna 7.045 TANNHOLSAÐGERÐIR ryrsia 310 uuireinsun a roiargangi: Einn ganqur 3.455 til sottvarnar- og fyllingarefna og tækjabúnaðar miðað við þann grunn sem gjaldskráin byggir á. Vilja taka völdin af tannlæknum 311 Tveir gangar 4.055 312 Þrír til fjórir gangar 6.640 Rótfylling (guttaperca, silfurstifti, Ca(OH)2): 320 Einn gangur 3.455 321 Tveir gangar 4.055 „En deilan stendur ekki fyrst og fremst um gjaldskrá og alls ekki um laun tannlækna," sagði hann. „Hún stendur um það að Trygg- ingastofnun vill ráða meðferðinni. Hún vill taka völdin af tannlækn- 322 Þrír til fiórir gangar 6.640 TANNVEGSLÆKNINGAR 400 Rótarheflun, sjöttungsaðqerð 8.330 410 Tannholsskurður, tannholdsmótun, sjöttungsaðg. 11.145 MUNN - OG KJÁLKASKURÐLÆKNINGAR 500 Hæg tönn, rót dregin 2.000 um og fá að ráða hvað tannlæknar 501 Tonn, rót dregin (normal) 4.125 mega gera og hvað ekki. Við vilj- 505 Óhæg tönn, rót dregin 5.520 um gjarnan betra samstarf við STEYPT TANNGERFI Tryggingastofnun og minni skrif- Fram- og augntennur, framjaxlar: finnsku. Okkur finnst mörgum að 601 1 flötur 8.390 það séu gegndarlausar kröfur 602 2 fletir 11.185 gerðar frá Tryggingastofnun um 603 3 fletir 17.125 umsóknir og greinargerðir sem við 604 Gulivarp (onlay) 17.125 verðum að vinna í frítíma án þókn- Jaxlar: unar. Tannlæknar fá engar tekjur 605 1 flötur 8.390 nema þeir séu að sinna sínum 606 2 fletir 13.420 sjúklingum." 607 3 fletir 22.090 Nefndi hann sem dæmi að með 608 Gullvarp (onlay) 22.090 nýrri reglugerð ætti að draga úr HEILGÓMA- OG PARTAGERÐ forvörnum unglinga og að tann- 701 Stakur heilgómur 29.290 læknum væri ætlað að sinna þeim 702 Báðir gómar 50.975 sem eru 13 ára og eldri í 10 mínút- BITLÆKNINGAR ur á ári og láta það nægja að taka 921 Bitplata vegna tanngnísturs 9.785 af þeim tvær röntgenmyndir. 922 Bithlíf, hörð 27.025 Benti hann á að þetta væri sá ald- urshópur sem þambaði gosdrykki og þyrfti á auknum forvörnum og reglulegri flúormeðferð að halda. 923 Bithlíf, mjúk 20.265 924 Bitspelka við óstöðugan kjálkalið 27.025 ekki sínar greiðslur til Trygginga- stofnunar," sagði hann. „Sjúkling- ar greiða sína reikninga á tann- lækningastofunum og svo er það svo sem ekki okkar mál hvernig endurgi’eiðslu er háttað en þeir sem eiga rétt á endurgreiðslu fá hana hjá Tryggingastofnun eftir þeim reglum sem gilda þar. Mín skoðun er sú að eðlilegt sé að við- skiptavinir greiði sína reikninga á stofunum þó ekki nema til þess að veita okkur tannlæknum aðhald og að fólk viti fyrir hvað er verið að greiða en ekki að við séum að senda reikninga upp í Trygginga- stofnun án þess að fólk hafi hug- mynd um hvað var gert.“ Oheimilt að samræma gjaldskrá Sagði hann að gjaldskrá Tiygg- ingastofnunar væri byggð á út- reikningum á rekstrarkostnaði sem gerðir voru árið 1986 og hefur síðan fylgt vísitölu. „Það er sami rekstur á tannlæknastofu, hvaða sjúkling- um sem við erum að sinna, þess vegna hefur þessi gjaldskrá verið leiðandi og tannlæknar hafa margir fylgt henni í stórum dráttum en okkur er óheimilt að samræma gjaldskrána samkvæmt samkeppn- islögum," sagði Börkur „Laun í landinu hækkuðu um 3,65% í janú- ar og mér finnst eðlilegt að tann- læknar hækki sína gjaldskrá um það en nú reynir á samkeppnislög- in. Nú ætti fólk að geta gert verð- samanburð." Benti hann á að rekstrarkostnað- ur hafi hækkað verulega á undan- förnum árum með auknum kröfum • • Oryrkjabandalagið höfðar mál gegn Tryggingastofnun ríkisins Skerðing vegna tekna maka andstæð stjórnarskrá Skýjabólstr- ar sáust yfír gosstöðvum VEÐURSTOFUNNI barst síð- degis í gær tilkynning um að gosbólstrar sæust yfir Vatna- jökli, á svipuðum slóðum og gosið varð í desember s.l. Enginn órói sást á jarð- skjálftamælum en Veðurstof- unni þótti rétt að hafa samband við Fiugmálastjóm. Hún hafði samband við flugmenn sem voru á svæðinu og kváðust þeir sjá skýjabólstra á þessu svæði en ekkert kæmi upp úr jörðinni. Veðurfræðingar gátu svo staðfest, m.a. með athugunum á gervitunglamyndum, að þarna var aðeins um að ræða óstöðugt loft og fjallabylgjur en að eld- gos væri ekki hafið að nýju á þessum slóðum. ÖRYRKJABANDALAGIÐ hefur höfðað mál gegn Tryggingastofnun ríkisins á þeirri forsendu að óheimilt sé að skerða tekjutryggingu örorku- lífeyrisþega í hjúskap. Málið var þingfest fyrir héraðs- dómi Reykjavíkur í gær og er gerð sú krafa að viðurkennt verði með dómi að Tryggingastofnun hafi verið óheimilt að telja helming saman- lagðra tekna beggja hjóna til tekna lífeyrisþegans í því tilviki er maki líf- eyrisþegans er ekki lífeyrisþegi. í stefnunni er vísað til 65. greinar stjómarskrárinnar þar sem segir að allir skuli jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án nokkurrar mismun- unar. Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Öryrkjabandalagsins, kvaðst í gær líta svo að að grundvallarspurningin í máli þessu væri sú hvort skerðing sem þessi stæðist stjórnarskrá, jafn- vel þótt gerð væri í lögum. „Þá á ég fyrst og fremst við jafn- réttisákvæði stjórnarskrár, sem bannar að mismuna mönnum eftir stöðu þeirra,“ sagði Ragnar. „Þar á meðal er talað um að ekki megi mis- muna mönnum eftir hjúskapar- stöðu. Hann sagði að þar fyrir utan hefðu málsatvik verið þau að á tíma- bilinu 1994 til 1998 hefði yfir höfuð engin skerðingarheimild verið í lög- unum og heldur ekki reglugerðar- heimild til að gera slíka skerðingu. „Þessi réttur öryrkja til greiðslna úr Tryggingastofnun ríkisins telst til mannréttinda samkvæmt félagsrétt- indaákvæðum stjórnarskrárinnar," sagði hann. „Þegar af þeirri ástæðu er spurning um að láta á það reyna hvort það sé yfirhöfuð heimilt að skerða slík félagsréttindi vegna þess að þau eru mannréttindi.“ I stefnunni er vitnað til þess að Hæstiréttur Islands hafi í dómi írá árinu 1988 sett þá túlkunarreglu að lagaákvæði, sem takmarki mannrétt- indi, verði að vera ótvíræð. „Sé svo ekki, ber að túlka þau einstaklingi í hag, því að mannréttindaákvæði eru sett til verndar einstaklingum en ekki stjórnvöldum," segir í umrædd- um dómi Hæstaréttar. Aðrar leiðir reyndar til þrautar Ragnar kvaðst telja að reynt hefði verið til þrautar að fara aðrar leiðir: „Öryrkjabandalagið á ekki annað efth’ en að leita til dómstóla og láta reyna á rétt öryrkjanna þar.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.