Morgunblaðið - 22.01.1999, Síða 53

Morgunblaðið - 22.01.1999, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999 53 i Pér féll aldrei verk úr hendi, varst mikið fyrir að hekla og nutum við góðs af því. Öll peysusettin, kjól- amir og húfurnar sem bömin okkar fengu ásamt dúkunum sem prýða heimili okkar. Það var ótrúlegt hvað þú varst minnug, sama hvort var á afmælis- daga, nöfn eða hvað sem var. Og auðvitað var gjafaskammturinn kominn til afmælisbarnsins á rétt- um tíma, sama hvort þú komst í af- mælið eða ekki. Allar þessar góðu minningar sem við barnabörnin eigum frá Hólm- garðinum urðu til þess að við stofn- uðum félagsskap sem nefnist Ömmu Gyðu félagið. Við vorum orðin fullorðin og vildum halda sömu tengslum og í gamla daga. Við höfum farið í útilegur þar sem allir afkomendur þínir mættu, börn, barnabörn og langömmubörn. Avallt var góð mæting og varð okk- ur tíðrætt um þig og þær minning- ar sem við eigum um þig. Að ógleymdum partíunum og óvissu- ferðinni þar sem við fullorðna fólkið hittumst og skemmtum okkur. Þú vildir alltaf hafa líf og fjör í kring- um þig og sagðir stundum að eng- inn hefði komið þótt gestagangur hefði verið mikill. Þetta lýsir því hvað þú varst mikið fyrir að hafa fólkið þitt í kringum þig. Ávallt varst þú í góðu skapi og hnyttin í svörum, óhrædd við að hafa orð á hlutunum og varst stundum svo beinskeytt að okkur gat sárnað. En við vitum það núna að þú hafðir oft- ast rétt fyrir þér. Nú ert þú komin til Inga afa og ástvina þinna sem á undan þér fóru og erum við alveg viss um að þar er glatt á hjalla. Við eigum eftir að sakna þín óskaplega mikið en vitum að tími þinn var kominn. Megi Guð vera með þér, elsku amma. Þín barnabörn, Inga Gyða, Anna Magna, Auður Björk, Bragi, Björn og fjölskyldur. Við systkinin ákváðum að setjast niður og minnast ömmu Gyðu, sem er látin eftir erfíð veikindi. Efst í huga okkar eru stundirnar sem við áttum með henni á aðfanga- dag jóla á árum áður, en við minn- umst þess dags varla án hennar. Oft horfðum við systkinin löngunaraug- um á jólagjafabunkann sem amma átti eftir að taka upp, en við vorum þá löngu búin að taka upp gjafirnar okkar. Ekki má heldur gleyma stundun- um á Hólgarðinum, en þar var oft setið tímunum saman og spilað á spil, drukkinn djús og borðað mat- arkex. Léttleikinn var þá ávallt í fyrirrúmi, en þrátt fyrir að amma þyldi illa að tapa var spilamennskan hennar líf og yndi. Allir muna sjálfsagt eftir orðum ömmu Gyðu þegar hún var að spila. Hún sagði iðulega setningar eins og: „Maðurinn á konuna,“ og fleira í þeim dúr, en þetta sagði amma þeg- ar hún tók slag með kóng ofan á drottningu. Spaugsemina í orðum ömmu skildum við systkinin miklu betur eftir því sem árin færðust yfir okkur. En ekki má gleyma tímanum sem við bjuggum hjá henni, en þá áttum við oft góðar stundir saman og kynntumst öll nánar. En auðvitað fengum við líka orð í eyra þegar það átti við, enda lá amma sjaldnast á skoðunum sínum. Nú tæpum þrjátíu árum eftir lát Inga afa, þá ertu komin til hans og sona þinna tveggja sem við fengum aldrei að kynnast. Elsku amma Gyða, hvíldu nú í friði. Megi guð vera með þér. Ingi, Jón Ólafur, Þorleifur og Magna. Mig langar að minnast ömmu minnar með fáeinum orðum. Gyða Gúmm, eins og hún var oft kölluð, var mikil kjarnakona og hafði mikil áhrif áhrif á mig og vafalaust á alla sem umgengust hana eitthvað að ráði. Á þessari stundu eni minning- ar mínar um hana eins og ósamsett púsluspil. Margir litlir bitar hver úr sinni áttinni og frá misjöfnum tíma koma upp í hugann og það er erfitt að koma á blað samfelldri hugleið- ingu. Úr bernsku minnist ég sunnu- dagssíðdaga í Hólmgarðinum, þeg- ar stórfjölskyldan komst ennþá fyr- ir í íbúðinni hjá ömmu. Þar áttum við frændsystkinin skemmtilegar stundir. Aldrei fengum við leið á að skoða myndaalbúmin eða fylgjast með spilamennsku fullorðna fólks- ins við borðstofuborðið. Amma virt- ist hafa lítið fyrir að slá upp veislu- borði á hverjum sunnudegi og gerði það eins lengi og húsrúm leyfði, en eftir því sem fjölskyldan stækkaði duttu sunnudagsheimsóknimar upp fyrir og annars konar samveru- stundir tóku við. Undanfarin ár hef ég átt mínar bestu stundir með ömmu við eld- húsborðið í Hólmgarðinum. Hefð- bundnar heimsóknirnar hófust yfir- leitt með kaffibolla og svo spurði ég: „Jæja, er einhver ólétt eða skilin." Og það stóð yfirleitt ekki á fréttum ef einhverjar voru. Allt vissi sú gamla. Og hún hafði þvílíkt stálminni að leitun er að öðru eins. Hún átti u.þ.b. sjötíu afkomendur og hún mundi ekki aðeins afmælis- daga barna, bamabama og bama- bamabama, heldur afmælisdaga flestra makanna líka. Hún ólst upp á Laugaveginum og bar út Morgunblaðið í gamla aust- urbænum þegar hún var unglingur. Einnig aðstoðaði hún mömmu sína við skúringar í versluninni Brynju. Mörgum áratugum síðar þuldi hún upp fyrir mér sögur af fjölskyldum sem bjuggu í gömlu húsunum sem enn standa í gamla bænum og af eftirtektarverðum karakteram sem urðu á vegi hennar á þessum áram. Það var eins og að fletta upp í sögu- bókum að tala við hana um liðna tíð og margar skemmtilegar sögur átti hún í handraðanum um minnisverða samtímamenn, ættingja og vini. Iðulega fór hún með vísur sem pabbi hennar hafði ort við hin og þessi tækifæri, en hann var mikill hagyrðingur. Amma hafði mjög ákveðnar skoð- anir á mönnum og málefnum og vorum við ekki alltaf sammála. Oft skiptumst við hressilega á skoðun- um og hún gleymdi ekki því sem sagt var þó svo hún hefði aðra skoð- un. Hún var mjög stríðin og ef hún fann að eitthvað fór í taugarnar á manni átti hún það til að endurtaka það lon og don, með glott á vör. Það kom fyrir, einu sinni eða tvisvar, að hún særði fólk með ónærgætnum athugasemdum en aðspurð sagðist hún hafa misst það út úr sér. Og víst er að það var öragglega ekki illa meint. Þau era óteljandi kvöldin sem við höfum spilað við eldhúsborðið og þá var amma í sínu besta formi. Hún fékk aldrei nóg af því að spila og eitt sinn fyrir fáum áram ákvað ég að gefa henni það í afmælisgjöf að spila eins lengi við hana og hún vildi, en um kl. 3 um nóttina var hún ekki aldeilis á því að hætta, þótt hún væri orðin grá í framan af þreytu. Um leið og hún tók sér spil í hönd lifnaði hún öll við og það kom ein- beittur glampi í augu hennar. Um leið og hún mokaði inn slögunum sló hún um sig með bráðskemmtilegum orðatiltækjum og það var stutt í hláturinn við eldhúsborðið góða og margar sögur fengu að fljóta með í spilamennskunni. Ef eldhús- veggirnir í Hólmgarðinum gætu tal- að myndi ég vilja vera viðstödd til að hlusta, því það má segja að sálin í húsinu hafi haft sína aðalbækistöð við eldhúsborðið. Þar hafa setið hundruð karla og kvenna í þau tæp fimmtíu ár sem amma hefur búið þar og ýmislegt verið látið flakka við mörg tækifæri. Undanfarin ár hefur heilsu ömmu hrakað, en síðast um jólin áttum við saman góða spilastund, og þrátt fyrir veikindin kom þessi skemmti- legi glampi í augu hennar og það er sá glampi sem ég mun alltaf sjá fyr- ir mér þegar ég hugsa til ömmu. Eitt augnablik var hún ekki lengur veik og gömul kona, heldur kapps- full spilamanneskja full af lífi, krafti og kímni. Það var ekkert gefið eftir og gömlu orðatiltækin létu ekki á sér standa. Síðustu dagana hennar á spítalanum var stutt í húmorinn og þó að líkaminn væri um það bil- að gefast upp var andinn sterkur og hugurinn hlýr. Hún kvartaði ekki þótt henni liði greinilega mjög illa og sýndi mikið æðraleysi og stolt. Hún var á leiðinni í ferðalag og það lagðist vel í hana. Nú er hún farin af stað og við sem eftir sitjum finnum til tómleika og saknaðar, vegna þess að við tímum ekki að missa hana úr lífi okkar. Það er undarlegt til þess að hugsa að geta ekki komið við í Hólmgarðinum, tekið í spil og feng- ið fréttir af fjölskyldunni með kaffí- bollanum. En minning hennar mun lifa með okkur og við gleymum henni aldrei. Elsku amma. Takk fyrir allt. Hvíldu í friði. Kristín og Valgerður. Elsku amma, nú ert þú farin til himna þar sem við vitum að afarnir okkar munu taka vel á móti þér. Einn daginn þegar við voram á leið í skólann var hringt og sagt að amma Gyða væri dáin. Hún var bú- in að vera mikið veik en samt var hún svo sterk en svo einn daginn kom kallið og allt var búið. Alltaf þegar við systumar kom- um í heimsókn til hennar, fengum við djús og kökur og spilin vora stokkuð. Uppáhaldsspilið okkar var olsen olsen, sem amma kenndi okk- ur þegar við voram litlar. Mikið eigum við eftir að sakna þess að fara ekki í Hólmgarðinn og spila. Fyrir nokkram áram fór hún með mömmu og mér norður, þá var ég að fara í sumarbúðir. Þetta var löng leið en við töluðum svo mikið saman að þessi ferð varð svo stutt en þó svo eftirminnileg og minntumst við oft á þetta ferðalag okkar. Það var alltaf sami húmorinn í ömmu og hún var alltaf mjög hrein- skilin. Seinustu dagar hafa verið mjög erfiðir en vonandi verður þetta allt í lagi. Hún amma okkar hefur nú kvatt þessa jarðvist og öðlast hvíld á himni. Minningarnar um ömmu eru margar og lifa þær áfram þó hún hafi kvatt okkur í hinsta sinn. Þórey Erla og Hulda Sigrún. Nú er hún Gyða frænka dáin. Gyða var móðursystir mín. Eg var einkabam en Gyða systir mömmu eignaðist 10 börn. Sem lítilli stelpu í sunnudagsbíltúr með foreldram mínum fannst mér alltaf spennandi að heimsækja Gyðu frænku, það var alltaf mikið að gerast á því heimili, einhver að koma eða fara og svo vinir í heimsókn. En heimilið var alltaf hreint og fínt og Gyða virtist ekki stressuð yfir öllu sem á gekk. Gyða var alveg sérstaklega sterk kona, hún tók lífinu eins og það var og gerði það sem þurfti á hverjum tíma. Eftir að maðurinn hennar, hann Ingi, dó og öll bömin fóra að heiman, fór Gyða út að vinna sem gangavörður í bamaskóla. Hún naut þess að vera innan um börnin og innan um annað fólk. Það sem mér er minnisstæðast um Gyðu, er hvað hún var alltaf vel til höfð og hrein og bein í fram- komu. Það var alltaf gaman að tala við hana, hún var lífleg og hress. Eg hef búið í Bandaríkjunum í yfir 20 ár. Eftir að móðir mín lést hafði ég meira samband við Gyðu en áður. Stundum þegar ég hringdi til henn- ar spjölluðum við um heima og geima í allt að klukkutíma í senn. Það var stutt í glettni og kímni hjá Gyðu, hún leitaði ávallt að því bros- lega í fari fólks og sjálfrar sín líka. Þegar ég sá Gyðu síðast í júlí síð- astliðnum var hún orðin lasin, en samt sem áður var hún tilbúin að taka á móti gestum, með kaffi og með því. Hún kvartaði aldrei, beit bara á jaxlinn og tók þátt í afmælum og veislum fram undir það síðasta. Gyða naut góðrar umhyggju frá öllum sínum börnum, bamabörnum og öðram aðstandendum. Ég votta þeim öllum mína dýpstu samúð i söknuði þeirra og veit að minningin um þessa sterku konu lifir með okk- ur sem nutum návistar hennar. Guð blessi minningu þína, Gyða mín. Jóna Ingvadóttir Ferrante. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA ÞÓRA SIGURJÓNSDÓTTIR, áður húsmóðir á Kaplaskjólsvegi 11, Reykjavík, lést á sjúkradeild Hrafnistu í Hafnarfirði mið- vikudaginn 20. janúar sl. Þorsteinn K. Ingimarsson, Steinþóra Ingimarsdóttir, Sigurjón Ingimarsson, Kristín I. Ingimarsdóttir, Jón I. Ingímarsson, Matthildur Friðriksdóttir, Friðrik Lindberg, Magnea Guðjónsdóttir, Ebbe Thomsen, Ragna Ögmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskulegur eiginmaður, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÓSKAR SUMARLIÐASON frá l'safirði, lést á Hrafnistu, Reykjavík, miðvikudaginn 20. janúar. Margrét Kristjánsdóttir, Magnús J. Óskarsson, Birna H. Garðarsdóttir, Veigar Óskarsson, Hallfríður Kristjánsdóttir, Kristján Óskarsson, Salóme Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, ÁGÚSTA BJÖRNSDÓTTIR, Hlíðarvegi 23, Kópavogi, sem andaðist í Sjúkrahúsi Þingeyinga föstu-. daginn 15. janúar, verður jarðsungin frá Kópa- vogskirkju í dag, föstudaginn 22. janúar, kl. 13.30. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Halla Lovísa Loftsdóttir, Páll Gunnar Loftsson, Ámundi Hjálmar Loftsson. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, DAVÍA GUÐMUNDSSON, Flúðabakka 2, Blönduósi, sem andaðist sunnudaginn 17. janúar, verður jarðsungin frá Blönduóskirkju laugardaginn 23. janúar kl. 14.00. Hrafnhildur Reynisdóttir, Jóhannes Harry Einarsson, Kristín Hólm, Herdís Einarsdóttir, Jóhannes Þórðarson, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur eiginmaður minn, fósturfaðir og afi, EYJÓLFUR EIRÍKSSON, sem andaðist mánudaginn 11. janúar, verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju laugardag- inn 23. janúar kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Sjálfsbjörg. Þórdís Sigurðardóttir, Þórdís Ágústsdóttir, Marteinn Karlsson og barnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð við andlát systur okkar og svilkonu, GERÐU IRENE PÁLSDÓTTUR, Hátúni 6B. Jarðarförin fór fram í kyrrþey þriðjudaginn 19. janúar. Kristel Pálsdóttir, Guðmundur Kristinsson, Helena Zoega, Ernst Pálsson, systkini og skyldfólk í Þýskalandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.