Morgunblaðið - 03.02.1999, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Göngum
óbundnir
til kosninga
Davíð lýsti því yfir í ávarpi sínu ,
að ekkert samkomulag hefði verið
gert milli stjórnarflokkanna um
áframhaldandi samstarf. Báðir
flokkar gengju þannig óbundnir til
kosninga en hins vegar væri þvi
ekki að neita að samstarfið
iunrpi
VIÐ skulum samt ekki henda spottunum, elskan, þeir geta komið sér vel aftur.
R E M I N Ci I O N
Fara vel með þig
Fáanlegar beintengdarjhleðslu
og með rafhlððum
Fást í raftækjaverslunum,
hársnyrtistofum og
stórmörkuðum um allt land
ORE4FINGARAÐIU
Sími: 533-1999, Fax: 533-1995
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýtt hús
rís við
Laugaveg
SKIPULAGS- og umferðar-
nefnd Reykjavíkurborgar hefur
samþykkt tillögu að tæplega
400 fermetra nýbyggingu á
þremur hæðum við Laugaveg
99 og verður húsið sem þar
stendur rifið. Nýbyggingin er
innan leyfilegs nýtingarhlutfalls
á lóðinni. Að sögn Brynjars
Guðmundssonar, en hann stend-
ur að framkvæmdum ásamt
Guðna Frey Sigurðssyni, er gert
ráð fyrir verslunarrými á tveim-
ur neðstu hæðunum en skrif-
stofu og aðstöðu fyrir starfsfólk
á þriðju hæð. Pétur Örn Björns-
son er árkitekt hússins og er
gert ráð fyrir að framkvæmdir
hefjist; fljótlega.
Sykursýki á Islandi
Tíðni fylgikvilla
með því lægsta
sem þekkist
Sykursýki hefur verið
til umræðu en ís-
lenskur læknir, dr.
Karl Tryggvason, veitir
forstöðu norrænum rann-
sóknarhópi sem hlaut eins
milljarðs styrk úr Novo
Nordisk-sjóðnum til að
sinna sykursýkirannsókn-
um.
Karl hefur óskað eftir
samstarfi við nýma- og
sykursýkilækna á Land-
spítala. Þjónusta við syk-
ursjúka þykir óvenju góð
hér á landi og á íslandi er
tíðni fylgikvilla af völdum
sykursýki með því lægsta
sem þekkist í heiminum.
Astráður B. Hreiðarsson
er yfirlæknir á innkirtla-
fræðiskor lyflækninga-
deildar Landspítalans en
göngudeild sykursjúkra fellur þar
undir.
„Karl hafði samband við Pál Ás-
mundsson, yfirlækni á nýrnadeild
Landspítala, áður en hann hlaut
þessa styrkveitingu og óskaði eft-
ir samstarfi við okkur. Við höfum
vissulega áhuga á því. Lengra er
málið ekki komið og það á eftir að
þróa alla fi-ekari útfærslu á vænt-
anlegu samstarfi okkar.“
Astráður segir að rannsóknir
Karls miðist að því að fínna
erfðavísi sem eykur tilhneigingu
til nýrnaskemmda af völdum syk-
ursýki og hér á landi eru til mjög
nákvæmar upplýsingar um syk-
ursjúka allt frá því göngudeildin
hóf starfsemi fyrir aldarfjórð-
ungi.
- Hvemig er þjónustu við syk-
ursjuka háttað hér á landi?
„Göngudeild sykursjúkra er 25
ára á þessu ári og með stofnun
hennar hófst skipuleg þjónusta
fyrir sykursjúka hér á landi fyrir
forgöngu Þóris Helgasonar yfir-
læknis. Um 4.000 heimsóknir eru
á deildina ár hvert. Hlutverk
hennar er að greina sykursýki,
ákvarða meðferð og veita sjúk-
lingum og aðstandendum þeirra
fræðslu um sjúkdóminn og með-
ferð við honum. Takmarkið er að
hjálpa sjúklingum að halda blóð-
sykri í jafnvægi og meðferðin mið-
ast ekki síst að því að fyrirbyggja
fylgikvilla."
Hann segir að skipulegt eftirlit
sé haft með barnshafandi konum
sem eru sykursjúkar og einnig
með augum sykursjúkra. Þá er
sérstakt eftirlit á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur með sykursjúkum
börnum.
-Bent hefur verið á lága tíðni
fylgikvilla af völdum sykursýki
hér á landi. Hvernig hefur teldst
að ná þeim árangri?
„Flest bendir til að þakka megi
þennan góða árangur markvissu
eftirliti og meðferð við sykursýki,
ekki síst eftir stofnun göngudeild-
ar sykursjúkra.
Arið 1991 var skipuð nefnd til
að meta stöðu sykur- —--------------------
sýki á íslandi með Þjónusta við
hliðsjón af markmið- sykursjúka
um svokallaðrar Saint
Vincent-yfirlýsingar
sem Alþjóða heilbrigð-
Ástráður B. Hreiðarsson
►Ástráður B. Hreiðarsson er
fæddur á Akureyri árið 1942.
Hann lauk embættisprófi í
læknisfræði frá Háskóla ís-
lands árið 1969 og var við sér-
nám og rannsóknir í Danmörku
frá 1971-1981.
Hann hlaut sérfræðiviður-
kenningu í innkritla- og efna-
skipfnlækningum árið 1979.
Ástráður lauk doktorsprófi frá
læknadeild Árósaháskóla árið
1992.
Hann hefur verið starfandi
sérfræðingur á Landspítala frá
árinu 1981 og frá 1. júní sl. sem
yfirlæknir á innkirtlafræðiskor
lyflækningadeildar Landspítala
en hluti af henni er göngudeild
sykursjúkra. Ástráður hefur
verið dósent í klínískri lyfja-
fræði við Háskóla íslands frá
árinu 1987.
Eiginkona Ástráðs, Ásta B.
Þorsteinsdóttur alþingismaður,
lést 12. október sl. Börn þeirra
eru þrjú.
óvenju góð
isstofnunin og Alþjóða sykursýki-
samtökin stóðu að. í skýrslu
nefndarinnar kemur fram að
ástand mála hér á landi er óvenju
gott hvað varðar þjónustu við syk-
ursjúka, blóðsykurstjórnun og
tíðni fylgikvilla. Þar kemur einnig
fram að meðganga sykursjúkra
kvenna á Islandi hefur gengið
mun betur en þekkist víðast ann-
ars staðar.
Við erum með margfalt lægri
tíðni blindu af völdum sykursýki
en í sambærilegum löndum og
nýrnabilanir og aflimanir gang-
lima eru einnig sjaldgæfari en
annars staðar. Eitt af markmiðum
Saint Vincent-yfirlýsingarinnar
var að meðganga og fæðing meðal
sykursjúkra kvenna gekk eins vel
og hjá konum sem ekki eru með
sykursýki. Hér á íslandi höfum
við þegar náð þessu markmiði.
Fyrir nokkrum áratugum var
burðarmálsdauði hjá sykursjúk-
um konum allt að 30%. Þessi tala
var komin í 2,3% áratuginn
1980-1989 og frá árinu 1984 hefur
engin sykursjúk kona misst barn
á Islandi. Þessar niðurstöður hafa
verið kynntar erlendis og hlotið
mikla athygli.“
- Hefur verið gróska í íslensk-
um rannsóknum á sykursýki?
„Tvímælalaust. Með rannsókn-
um Þóris Helgasonar, sem birtust
í „Lancet" á sínum tíma, voru Is-
--------- lendingar með þeim
fyrstu til að benda á
orsakasamhengi milli
aukefna í matvælum
og sykursýki.
Merkar rannsóknir
hafa verið gerðar hér á landi á
augnsjúkdómum við sykursýki. Á
undanfomum árum hafa verið
gerðar hér athyglisverðar faralds-
fræðilegar rannsóknir á bæði teg-
und 1 (insúlínháðri) og tegund 2
(insúlínóháðri) sykursýki og um
þessar mundir eru í gangi a.m.k.
þrjár erfðafræðilegar rannsóknir
á mismunandi tegundum sykur-
sýki hér á landi.“