Morgunblaðið - 03.02.1999, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999 17
Námskeið um
sjálfsmat
GÆÐASTJÓRNUNARFÉLAG ís-
lands heldur námskeiðið Inn-
skyggnir-Sjálfsmat dagana 4.-5.
febrúar kl. 8.30-12.30 á Hótel Sögu,
þingsal D, 2. hæð.
A námskeiðinu verður lögð
áhersla á sjálfsmatslíkanið og notk-
un þess við mat á stjórnunarárangri
fyrirtækja. Fjallað verður um
ávinning af notkun Innskyggnis,
mismunandi aðferðir við fram-
kvæmd sjálfsmats og hlutverk
sjálfsmats í daglegri starfsemi fyr-
irtækja. Komið verður inn á tengsl
Innskyggnis við Islensku gæða-
verðlaunin. Þátttakendur þurfa að
vinna heimaverkefni.
„Þau fyrirtæki sem beita sjálfs-
mati eru m.a. að styrkja samkeppn-
isstöðu sína með því að fara á gagn-
rýninn hátt yfir alla helstu þætti í
starfsemi fyiirtækisins. Fyrii- þau
fyrirtæki sem hafa hug á að sækja
um Islensku gæðaverðlaunin 1999,
er um að ræða gott tækifæri til að
læra að nota Innskyggni.
Megintilgangur sjálfsmats er að
meta stöðu fyrirtækisins út frá nýt-
ingu kerfa, trúfestu stjórnenda og
þátttöku allra starfsmanna, að
varpa ljósi á forgangsatriði í um-
bótastarfí, að fylgjast með framför-
um og árangri fyrirtækisins og að-
stoða við stefnumörkun.
Sjálfsmatslíkön hafa yfirleitt ver-
ið þróuð sem grundvöllur einkunn-
argjafar fyrir gæða-verðlaun, og
svo er einnig með Innskyggni. Is-
lensku gæðaverðlaunin voru veitt í
fyrsta sinni Plastprent hf. á Alþjóð-
lega gæðadaginn 13. nóvember
1997. Verðlaunin eru veitt fyrir
framúrskarandi gæði á sviði rekst-
urs og stjórnunar," segir í fréttatil-
kynningu.
Leiðbeinendur: Guðrún Ragnars-
dóttir gæðastjóri Landsvirkjunar
og Haraldur Á. Hjaltason sviðs-
stjóri ráðgjafarsviðs VSÓ Ráðgjafar
hf. Síðasti skráningardagur er
mánudagurinn 2. febrúar. Skráning
og nánari upplýsingar eru veittar á
skrifstofa GSFÍ eða með tölvupósti
gsfiÉgsfí.is
Forstjóri BMW
sætir gagnrýni
London. Reuters.
HLUTABREF í þýzka bílafram-
leiðandanum BMW hafa hækkað í
verði vegna bættrar afkomu, en töl-
ur sem sýna það hafa horfíð í
skugga fréttar um að Bernd
Pischetsrieder forstjóri hafí sætt
gagnrýni hluthafa vegna taps á
Rover-deild fyrirtækisins í Bret-
landi.
Sala BMW í fyrra jókst um 5% í
60,1 milljarð marka úr 60,1 milljarði
marka 1997, en að sögn fyrirtækis-
ins verður hagnaður minni en 1997
vegna taps á Rover.
Framleiðsla Rover Group minn-
kaði um 5% í 497.574 bíla á árinu.
Hins vegar jókst framleiðsla BMW
um 5% í 706.426 bíla.
Að sögn Die Welt reiddust hlut-
hafar áframhaldandi tapi hjá Rover,
sem keyptur var 1994. Heimildar-
menn blaðsins sögðu að hluthafar
hefðu komizt að þeirri niðurstöðu á
einkafundi að bezt væri að forstjór-
inn segði af sér.
Die Welt hermdi að Wolfgang
Reitzle markaðsstjóri væri hugsan-
legur eftirmaður.
Hins vegar sagði talsmaður
BMW að ekkert væri hæft í frétt-
inni - enginn hluthafafundur hefði
farið fram í Berlín og Pischets-
rieder væri ekki undir þi-ýstingi.
í tilkynningu frá BMW sagði að
samkeppnisstaða Rovers væri að
batna og að ný framleiðsla og aukin
endurskipulagning mundu leiða til
■meiri ávinnings.
BMW hefur átt í viðræðum við
brezk verkalýðsfélög og embættis-
menn um framtíð hinnar sögufrægu
Rover-verksmiðju í Longbridge.
Þrátt fyrir úrbætur er framleiðni
minni þar en í öllum öðrum bfla-
verksmiðjum Evrópu. Óttazt hefur
verið að BMW loki verksmiðjunni.
Scholes og
Krasker
hætta hjá
LTCM
Grcenwich, Connecticut. Reuters.
í FRÉTTATILKYNNINGU frá
Long-Term Capital Management,
baktryggingarsjóðnum sem var
bjargað frá barmi gjaldþrots í fyri'a-
haust, segir að Nóbelsverðlaunahaf-
inn Myron Scholes og William
Krasker, tveii- af stofnendum sjóðs-
ins, muni láta af störfum.
LTCM undir stjórn Johns Mer-
iwether hélt velli eftir gífurlegt tap í
markaðsumrótinu í fyrra með hjálp
hóps þekktra banka. Scholes og
Krasker munu halda fjárfestingum
sínum í LTCM og verða áfram sjóðs-
félagar með takmarkaða ábyrgð.
Krasker starfaði áður hjá Solomon
Brothers og mun taka við ráðgjafa-
starfi hjá því fyrirtæki. Áður en
Krasker kom til starfa í Wall Street
vai- hann prófessor í Harvard
Business Sehool.
Scholes, sem fékk Nóbelsverðlaun
í hagfræði 1997 ásamt LTCM-félaga
sínum Robert Merton, snýr aftur til
Kaliforníu og mun flytja fyrirlestra
við Stanford-háskóla auk þess að
stunda ritstörf.
Utibússtjóri
hjá Búnaðar-
banka
ÞORSTEINN Ólafs hefur verið
ráðinn útibússtjóri Austur-
bæjarútibús Búnaðarbanka ís-
lands hf.
Þorsteinn
lauk prófí í
viðskipta-
fræði frá
Háskóla ís-
lands árið
1982 og varð
löggiltur
verðbréfa-
miðlari árið
1987. Þor-
steinn var
ráðgjafi hjá
Fjárfesting-
arfélagi Is-
lands hf.
1984-87 og forstöðumaður
Verðbréfaviðskipta Samvinnu-
bankans (síðar Samvinnubréfa
Landsbankans) 1987-96. Þorsteinn
var framkvæmdastjóri Handsals
hf. áður en hann réðst til Búnaðar-
bankans. Eiginkona Þorsteins er
Lára Kristjánsdóttir og eiga þau
þrjú börn.
Þorsteinn Ólafs
Hærra verð á gulli
vegna aldamóta?
Höföaborg, Suður-Afríku. Reuters.
ÓVISSA vegna aldamótanna kann
að stöðva langvarandi lækkun á
verði gulls, sem hefur valdið erfið-
leikum í greininni, að sögn sér-
fræðinga.
„Nýtt árþúsund og óvissa samfara
því kann að geta orðið til þess að gull
fái aftui- að skipa sinn réttmæta
sess,“ sagði Gerard Kemp, gullsér-
fræðingur BOE Securities, fulltrú-
um á alþjóðlegin námuráðstefnu.
Vegna fjármálakreppunnar í
Rússlandi og Asíu hækkaði gull ekki
í verði í fyrra og komst verðið ekki
yfir 300 dollara únsan eins og sumir
sérfræðingar höfðu spáð.
Þess vegna hefur verið um það
rætt í greininni hvort gull hafí glatað
því hefðbundna hlutverki sínu að
veita öruggt skjól á tímum umróts í
fjármálum og stjórnmálum.
„Þrátt fyrir stórtíðindi í fjármál-
um hefur gull ekki gegnt þessu hlut-
verki sínu nú,“ sagði Nick Farr-Jo-
nes, gullsérfræðingur verðbréfafyi'-
ii-tækisins Société Générale á fund-
inum.
Farr-Jones hefur spáð því að
meðalverð á gulli í ár verði 310 doll-
ai-ar únsan og hækki því úr 294 doll-
urum únsan í fyrra. Kvíði vegna
aldamótanna hefur hins vegar gert
að verkum að getum hefur verið að
því leitt að verð á gulli muni fara
hækkandi í desember.
Uggur um hugsanlegt hrun tölvu-
kerfis heims vegna þess að tölvur
muni ekki þekkja ártalið 2000 og
efnahagsleg áhrif sem það getur haft
getur orðið til þess að verð á gulli
hækki í yftr 350 dollara únsan, sagði
Farr-Jones.
^eacikósVrt og
ilndv«d*°6S'Íðan
I AvalU g6ms*tur
Finndu muninn!
ntom
Piri Piri
Herfur j)U séð nýja uppskriftabœklinginn okkar?
Profaðu holla og spennandi kjúklingarétti.
Veldu retta fnerkið, þaðgerir gœfúmuninn!
. , yoct.u verslun_