Morgunblaðið - 03.02.1999, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVTKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999 49
FÓLK í FRÉTTUM
KEVIN Kline heldur á skyndi-
búðingspottinum sem hann
hreppti í fyrra.
Jackson og
Hawn fá
skyndibúðing
GOLDIE Hawn hefur verið valin
kona ársins og Samuel L. Jack-
son karlmaður ársins hjá Skyndi-
búðingssamtökum leiklistar-
nema í Harvard. Hawn verður
hyllt með skrúðgöngu um
Harvard-torg 11. febrúar
áður en hún fær búðinginn
hefðum samkvæmt, en á
undan henni hafa leikkonur á
borð við Sigoumey Weaver, Juliu
Roberts og Michelle Pfeiffer
fengið að gæða sér á honum.
Jackson fær að seðja hungur sitt
nokkrum dögum síðar eða 18.
febrúar og fetar þar með í fót-
spor stórleikara á borð við Mel
Gibson, Harrison Ford og Robert
De Niro.
MYNPBÖNP
Skrýtin
dýr
Blessuð litlu dýrin
(All the Little Animals)_
H r a in a
★y2
Framleiðandi og leikstjóri: Jeremy
Thomas. Handritshöfundur: Eski
Thomas. Kvikmyndataka: Mike Moll-
oy. Aðalhlutverk: John Hurt, Christi-
an Bale og Daniel Benzali. (108 mín.)
Bresk. Skífan, janúar 1999. Bönnuð
börnum yngri en 16 ára.
HÉR segir frá Bobby, ungum
manni sem átt hefur við andleg
vandamál að stríða frá því hann lenti
í bílslysi í barn-
æsku. Eftir að
móðir hans deyr
flýr Bobby ok hins
grimma stjúpa síns
og leggst út. Hann
kynnist þá herra
Summers (John
Hurt), sérvitringi
sem helgað hefur
líf sitt því starfi að
jarða dýr sem orðið hafa fyrir bíl á
þjóðvegum landsins.
Þessi kvikmynd byggist á nokkuð
algengu þema, þar sem hún lýsir
bandalagi tveggja olnbogabarna í
grimmu samfélagi mannanna. Mynd-
in hefur hins vegar of marga galla til
að ganga upp sem slík. Hún býr til
sérkennilegan heim með sérkenni-
legum persónum sem þó reynast af-
káralegar fremur en áhugaverðar
þegar bakgrunnur þeirra er skýrður.
John Hurt sýnir traustan leik, en
túlkun Christian Bale á Bobby hefur
veika fleti, sem ef til vill má kenna
handritinu um. Þá er stjúpfaðirinn
illmenni sem skortir alla mannlega
og um leið trúverðuga eiginleika.
Söguefni myndarinnar ber vott um
frumleika, en því miður hefur ekki
tekist að vinna vel úr því.
Heiða Jóhannsdóttir
Dansað til
verðlauna
/ HIN rúss-
neska Karina
í Sarkissova hlaut
verðlaun á Prix de
Lausanne danshátiðinni
sem haldin var á sunnudaginn
pP var í Sviss. Hlaut Sarkissova verð-
laun ásamt þremur öðrum listdönsui-um
fyrir framúrskarandi listrænan árangur. Hér
sést Karina Sarkissova sýna listir sínar í
danskeppninni.
JAGGER RÚMFASTUR
ROKKSVEITIN Rolling Stones
þurfti að fresta tvennum tónleikum
í San Jose í Kaliforníu vegna þess
að Mick Jagger lá veikur í rúminu
með flensu og bronkítis, að sögn
skipuleggjenda tónleikanna. Hljóm-
sveitin átti að leika á San Jose-leik-
vanginum á föstudag og laugardag
en frestaði báðum tónleikunum
samdægurs. Voru þau boð látin út
ganga að tónleikarnir yrðu haldnir
eins fljótt og auðið yrði.
LAUGA
Forsýnd fimmtudaginn 4. febrúar kl. 9
ATH miðasala opnar kl. 16 í dag