Morgunblaðið - 09.02.1999, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
4,38% vextir af viðbótar-
lánum Ibúðalánasjóðs
I íbúðalánasjóður
4\ drög að lánveitingu fyrir árið 1999
U m s ó k n i r Drög að lánveitingu
Fjöldi íbúða Heildar- verð m.kr. Við- bótarlán m.kr. Fjöldi íbúða Heildar- verð m.kr. Við- bótarlán m.kr.
Reykjavík 400 2.567,0 539,1 400 2.567,0 539,1
Kópavogur 30 210,0 44,1 30 210,0 44,1
Seltjarnarnes 5 35,0 7,4 5 35,0 7,4
Garðabær 15 135,0 28,4 15 135,0 28,4
Hafnarfjörður 200 1.600,0 336,0 150 1.200,0 252,0
Reykjanesbær 5 35,0 7,4 5 35,0 7,4
ísafjörður 90 630,0 132,3 90 630,0 132,3
Skagafjörður 15 105,0 22,1 15 105,0 22,1
Akureyri 150 1.050,0 220,5 150 1.050,0 220,5
Dalvíkurbyggð 3 21,0 4,4 3 21,0 4,4
Búðahreppur _!5 35,0 7,4 5 35,0 7,4
Austur-Hérað 5 35,0 7,4 5 35,0 7,4
Skaftárhreppur 2 14,0 2,9 2 14,0 2,9
Vestmannaeyjar 15 95,2 20,0 15 95,2 20,0
Rangárvallahr. 5 35,0 7,4 5 35,0 7,4
Samtals 945 6.602,2 1.386,5 895 6.202,2 1.302,5
SEÐLABANKI íslands hefur
staðfest ákvörðun stjórnar Ibúða-
lánasjóðs um að taka 4,38% vexti
af íbúðalánum vegna félagslegra
íbúðakaupa. Vextirnir eru breyti-
legir og, að sögn Gunnar S.
Björnssonar, formanns stjórnar
Ibúðalánasjóðs, ákvarðaðir árlega
miðað við fyrsta húsnæðisbréfaút-
boð á hverju ári. Meðalvextir
fyrsta útboðs þessa árs voru
4,15% en ofan á það bætist álag
vegna rekstrarkostnaðar viðbótar-
lánakerfísins hjá íbúðalánasjóði.
870 viðbótarlán hafa þegar verið
veitt 15 sveitarfélögum.
Lánað vegna 452 félags-
legra leiguíbúða
Á blaðamannafundi í gær var
kynnt að stjórn Ibúðalánasjóðs
hefur einnig ákveðið lánveitingar
vegna 452 félagslegra leiguíbúða
til sveitarfélaga og félagasamtaka.
Um er að ræða þrenns konar
lán til sveitarfélaga og tvenns kon-
ar til félagasamtaka.
423 m.kr. verða lánaðar með 1%
vöxtum til 50 ára til sveitarfélaga
til kaupa á um það bil 72 leiguíbúð-
um., 91 m.kr. verður lánuð með
3,2% vöxtum til kaupa eða bygg-
ingar á um 12 íbúðum og 35 m.kr.
til 50 ára með 2,4% vöxtum til að
breyta um 175 félagslegum eignar-
íbúðum, sem koma til innlausnar, í
leiguíbúðir. 11 félagasamtök sóttu
um lán til leiguíbúða. 268 m.kr. eru
veittar til 50 ára með 1% vöxtum til
kaupa eða byggingar á um 45 íbúð-
um og 937 m.kr. eru veittar til 50
ára með 3,2% vöxtum til kaupa á
um 148 íbúðum.
Fjölgun vegna kerfísbreytinga
en ekki aukinna útgjalda
Páll Pétursson, félagsmálaráð-
herra, og Gunnar S. Björnsson,
stjórnarformaður Ibúðalánasjóðs,
sögðu að ekki hefði verið veitt
meira fé til byggingar leiguíbúða
undanfarin átta ár. Gunnar stað-
festi að stór hluti fjárveitinganna
nú væri til kominn vegna kerfís-
breytinga á félagslega húsnæðis-
kerfinu, með tilkomu Ibúðalána-
sjóðs. Að teknu tilliti til kerfís-
breytingarinnar væri ekki um
mikla útgjaldaaukningu vegna
leiguíbúða að ræða.
Páll Pétursson sagði að 100%
lán í félagslega kerfinu hefðu ver-
ið afnumin, enda hefðu þau reynst
illa; því yrði að leysa vanda ein-
hvers hóps á annan hátt. M.a. í því
skyni hefði húsaleigubótakerfið
verið breikkað þannig að það nái
nú yfir öll sveitarfélög og allt
leiguhúsnæði. Nú er 65% félags-
legra húsnæðislána veitt í gegnum
húsbréfakerfíð í stað peningalána
með niðurgreiddum vöxtum áðui’.
Páll Pétursson sagði að félagsleg
húsnæðisaðstoð hefði að miklu
leyti verið færð yfír í samtíma-
greiddar vaxtabætur.
Framsóknarmenn
á Vestfjörðum
Tillaga um
Kristin H.
Gunnarsson
í fyrsta sæti
UPPSTILLINGANEFND Fram-
sóknarflokksins á Vestfjörðum hefur
samþykkt tillögu að skipan efstu sæta
á lista Framsóknarflokksins fyi'ir al-
þingiskosningarnar í vor. Tillagan
verður Iögð fyrir kjördæmisþing
framsóknarmanna 20. febrúai', sem
ákveður endanlega skipan listans.
Gerð er tillaga um að Rristinn H.
Gunnarsson alþingismaður skipi
fyrsta sæti listans, Ólöf Valdimars-
dóttir arkitekt annað sætið og Björg-
mundur Guðmundsson nemi þriðja
sæti listans.
Kristinn Jón Jónsson, formaður
nefndarinnar, segir að þar sem
Magnús Reynii- Guðmundsson á Isa-
fírði hafí ekki gefíð kost á sér í annað
sæti á lista uppstillinganefndai' væri
ekki gerð tillaga um hann. „Hann
býður sig eingöngu fí'am í fyrsta sæt-
ið og það er svo kjördæmisþingsins
að ákveða röðina,“ sagði Kristin Jón.
Nefndin vai' ekki samstiga þegar
gengið vai' frá tillögunni, að sögn
hans.
„Sú tillaga sem kom til atkvæða
var um Kristin í fyrsta sætið og Ólöfu
í annað sæti vegna þess að Magnús
gaf ekki kost á sér í annað sætið. Það
vai' þó kannski ekki fullreynt í sjálfu
sér, þannig að nú kemur til kasta
þingsins að spila úr þessu,“ segir
hann.
Björn Bjarnason menntamálaráðherra
Astæðulaust að gera
mikið úr tímaskorti
Morgunblaðið/Ásdía
EGILL Heiðar Anton Pálsson, formaður Nemendafélags Leiklistar-
skóla Islands, afhenti Ragnheiði Árnadóttur, aðstoðarmanni fjár-
málaráðherra, áskorunina.
Mótmæla flutningi
nemendaleikhúss
NEMENDAFÉLAG Leiklistar-
skóla íslands efndi til útifundar
við Lindarbæ í gær til að mót-
mæia flutningi skólans úr hús-
næðinu og samþykkja áskorun
um að um að húsið yrði afhent
• skólanum til umráða á ný. Egill
Heiðar Anton Pálsson, formaður
nemendafélagsins, segir að kom-
ið hafi verið aftan að Leiklistar-
skólanum í þessu máli og hann sé
nú húsnæðislaus á miðri skóla-
önn.
Fyrir tveimur og hálfu ári
keypti ríkið Lindarbæ af Verka-
mannafélaginu Dagsbrún og þá
strax var Ijóst að ríkið ætlaði að
nota húsnæðið m.a. undir skjala-
geymslur. Ráðgert er að Hag-
stofa Islands taki hluta húsnæðis-
ins 1 notkun en Leiklistarskólan-
um hefur verið lofað húsnæði á
Sölvhóisgötu 13, í kjallara Lands-
smiðjuhússins.
Egill sagði að nemendaleikhús
hefði verið í Lindarbæ í tæp 20
ár og leikhús hafi verið þar í 36
ár. Skólinn hafi strax lagt
áherslu á að fá annað húsnæði í
stað Lindarbæjar. Húsnæðið á
Sölvhólsgötu 13 sé engan veginn
tilbúið og var Nemendaleikhús-
inu þá boðið að fara með starf
sitt í Hafnarfjarðarleikhúsið en
það telja nemendur óaðgengi-
Iegt. Það sliti öll tengsl nemenda
við skólann og yrði auk þess mun
kostnaðarsamara fyrir skólann
og nemendur að halda starfinu
áfram þar.
Hallgrímur Snorrason hag-
stofustjóri segir að það hafi verið
ákveðið fyrir löngu að Leiklistar-
skólinn færi út með starfsemi
sina úr Lindarbæ í Landssmiðju-
húsið við Sölvhólsgötu. Þar
standi til að gera leiksvið en tafir
hafi orðið á framkvæmdunum.
Sú töf hafi þó ekki komið að sök
þar sem Leiklistarskólinn hafi
ekki haft áform um sýningar á
næstunni.
„Svo virðist sem áform Leik-
listarskólans hafi breyst og það
er alrangt sem fram hefur komið
í fjölmiðlum að komið hafi verið
aftan að skólanum í þessu máli,“
segir Hallgrímur.
BJÖRN Bjamason menntamálaráð-
hen-a svarar í pistli á heimasíðu
sinni 5. febrúar sl. framkomnum við-
brögðum við þeirri hugmynd sinni að
fimm manna framkvæmdastjórn
komi í stað eins varaformanns. Björn
segir að svipuð viðhorf og fram hafi
komið hjá Davíð Oddssyni forsætis-
ráðherra hafi einkennt umsagnir
margi-a um hugmyndina en Björn
segir að ekki sé ástæða til að gera
mikið úr tímaskorti fyrir landsfund-
inn. Hann gagnrýnir jafnframt túlk-
un Fréttastofu hljóðvarps á ummæl-
um Davíðs Oddssonar og segir að
ekki hafí falist andstaða við hug-
myndir sínar í orðum hans.
Orðrétt segir Björn: „Fréttastofa
hljóðvai'psins rangtúlkaði ummæli
Davíðs Óddssonar á þann veg, að
hann legðist gegn hugmyndum mín-
um og vísaði þar til orða hans í
Morgunblaðinu. Þar sagði Davíð, að
slíkar tillögur hefðu komið fram áð-
ur og þær væru athyglisverðar, hins
vegar væri stutt í landsfund og það
gæti orðið flókið að gera breytingu
af þessu tagi með svo skömmum
fyrirvara. Flokksfélög mundu þurfa
að fjalla um hugmyndina. Allir sjá,
að í þessum orðum felst ekki and-
staða við hugmyndina. Þegar ég
heyrði morgunfréttina hringdi ég í
fréttastofuna og mun hafa birst
leiðrétting á rangtúlkuninni á orð-
um Davíðs.
Má segja að svipað viðhorf og hjá
Davíð hafí einkennt umsagnir
margra um hugmyndina. 1 umræð-
um af þessu tagi er ekki ástæða til að
gera mikið úr tímaskorti. Unnt er að
bera hann fyrir sig, ef menn vilja fá
betra ráðrúm til að gera upp hug
sinn, en tímaskortur dugar ekki til
að afgreiða málið, sérstaklega þegar
leikreglurnar eru þannig, eins og í
Sjálfstæðisflokknum, að menn geta
borið fram tillögur um hvaðeina allt
fram að landsfundi og á fundinum
sjálfum, það er til dæmis enginn
framboðsfrestur til neinna embætta í
flokknum. Fundurinn er sá vett-
vangur, sem menn hafa til að taka
þessar ákvarðanir," segir Björn í
pistli sínum.
Menntamálaráðherra víkur einnig
máli sínu að Morgunblaðinu og seg-
ir: „Morgunblaðið birti forystugrein
um málið. Hún er ekki skrifuð úr
þeirri fjarlægð, sem oft einkennir
skrif blaðsins um Sjálfstæðisflokk-
inn, þegar það vill árétta, að tengsl
þess við flokkinn séu úr sögunni, það
líti á hann sem hvern annan stjórn-
málaflokk og taki afstöðu til málefna
en ekki flokka. Þessi forystugrein
um ræðu mína er skrifuð á þann veg,
að lesandinn gæti haldið, að Morgun-
blaðið væri einhvers konar samviska
Sjálfstæðisflokksins, sem stæði vörð
um fornar dyggðir hans og þess
vegna sætti það sig ekki við, að vara-
formannsembættið í Sjálfstæðis-
flokknum tæki breytingum í sam-
ræmi við breyttar kröfur. Hvers
vegna skrifar það ekki með sama
hætti um innri málefni annarra
stjórnmálaflokka?"
Bygging barnaspítala
í frekari kynningu
SKIPULAGS- og umferðamefnd
hefur-samþykkt að framkvæmdir við
Bamaspítala Hringsins fari í al-
menna kynningu og grenndarkynn-
ingu efth’ að úrskurðamefnd skipu-
lags- og byggingamála felldi leyfið úr
gildi. Jafnframt hefur skipulags- og
umferðaraefhd samþykkt breytingar
á Laugavegi 53, sem fela í sér að nýt-
ingarhlutfall byggingarinnar verður
innan leyfilegra marka samkvæmt
samþykktu aðalskipulagj.
Að sögn Guðrúnar Agústsdóttur,
formanns skipulags- og umferðar-
nefndar, lá einnig fyrir á fundinum
Breytt
nýting-arhlutfall
við Laugaveg 53
beiðni frá byggingamefnd bamaspít-
alans um að bæta fyrirlestrarsal við
bygginguna og bæta aðkomu að gjör-
gæslu fyrir sjúkrabíla. „Við afgreidd-
um þessi mál þannig að hvort tveggja
fer í almenna kynningu og grenndar-
kynningu,“ sagði hún. „Þannig að
byggingarleyfið hefur verið fellt úr
gildi og framkvæmdum frestað þar
til kynning hefur farið fram.“
Guðrún sagði að úrskurður hefði
einnig fállið um byggingarfram-
kvæmdir við Laugaveg 53 og var
samþykkt að kynna erindið í borgar-
ráði og byggingarnefnd. „Það var
talið að nýtingarhlutfall byggingar-
innar væri of hátt miðað við aðal-
skipulag en nú hefur því verið
breytt og er nú innan þess ramma,“
sagði hún. „Þetta var túlkunaratriði
um það hvort bílageymsla fyrir tutt-
ugu bíla væri opið- eða lokað rými
samkvæmt skipulagsskilmálum. Nú
er þetta opið rými og þá er nýting
innan aðalskipulagsrammans."