Morgunblaðið - 09.02.1999, Qupperneq 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Sturtuklefar
Ifö sturtuklefamir eru fáanlegir
í mörgum stærðum og gerðum,
úr plasti eða öryggisgleri.
Ifö sturtuklefamir em trúlega þeir
vönduðustu á markaðnum í dag.
Ifö sænsk gæöavara.
VIÐSKIPTI
Microsoft end-
urskipulagt
Fæst í byggingavöruverslunum ym land allt.
I3ICMEGA
Fólínsýra
Takist fyrir þungun
og á meðgöngu.
Fæst í næsta apóteki.
New York. Reuters.
MICROSOFT-hugbúnaðarrisinn
mun innan skamms skýra frá víð-
tækri endurskipulagningu á fyrir-
tækinu, sem miðast að því að það
einbeiti sér meir að viðskiptavinum
sínum.
Endm-skipulagningin kemst á
dagskrá í sama mund og Microsoft
mætir vaxandi samkeppni á Netinu
og hefur orðið fyrir nokkrum áföll-
um í réttarhöldum, sem dómsmála-
ráðuneytið í Washington efndi til
gegn fyrirtækinu vegna ásakana um
hringamyndun.
Því er neitað að endurskipulagn-
ingin standi í sambandi við réttar-
höldin. Hugsanlegt er að skýrt
verði frá henni í þessari viku, en
starfinu er ekki að fullu lokið.
Steve Ballmer úr stjórn Microsoft
stjómar endurskipulagningunni,
sem sagt er að standist samjöfnuð
við tvær sögulegar breytingar, sem
áður hafa verið gerðar á rekstri fyr-
irtækisins - þegar Microsoft sagði
skilið við bandalag sitt við IBM 1990
og þegar fyrirtækinu var breytt 1995
svo að það gæti einbeitt sér að Net-
inu. Að sögn blaðsins Seattle Times
er búizt við að með endurskipulagn-
ingunni verði fyrirtækinu skipt í
fjórar deildir:
- Neytendadeild, sem mun ann-
ast Windows-, tölvuþjónustu- og
netviðskiptavini.
- Framkvæmdadeild, sem mun
annast viðskipti við stórfyrirtæki
sem nota Windows NT og fleira.
- Þróunardeild, sem mun reyna
að hleypa nýju lífi í samskipti
Microsoft við hópa fólks sem vinnur
við þróunarstörf og keppinautar á
Netinu eins og Sun Microsystems
hafa laðað til sín, til dæmis með
Java- og Jimi-kerfum.
- Þekkingarstarfsdeild á að ein-
beita sér að smáfyrirtækjum og
fólki sem starfar heima eða notar
farsíma í starfi og venjulegu skrif-
stofufólki sem notar Microsoft rit-
vinnslukerfi og annað tilheyrandi.
Eins og fyrirtækið er nú skiptist
það í framleiðsludeildir - þannig að
ein deild fæst við stýrikerfi, önnur
við fylgihluti o.s.frv.
Talið er að endurskipulagningin
leiði til þess að Microsoft fái aftur
að njóta starfskrafta Brads Silvers-
bergs, sem stjórnaði þróun
Windows 95 stýrikerfisins og hefur
verið í leyfi síðan 1997. „Microsoft
hefur leitað að rétta tækifærinu fyr-
ir Silverberg," sagði talsmaður fyr-
irtækisins.
Hagnaður Intel
eykst um 18%
Santa Clara, Kalifomíu.
HAGNAÐUR Intel, mesta ör-
gjörvaframleiðanda heims, jókst um
18% á síðasta ársfjórðungi vegna
aukinnar eftirspurnar eftir einka-
tölvum.
Hagnaðurinn jókst í 2,06 milljarða
dollara, eða 1,19 dollara á hlutabréf,
úr 1,74 milljörðum dollara, eða 98
sentum á bréf, ári áður.
Aukin sala Intels á rætur að rekja
til þess að sala á einkatölvum jókst
um 41% í desember. Fyrirtækið
kynnti hraðvirkari Xeron gjörva í
fullkomnar einkatölvur og lækkaði
verð á ódýrum Celeron kubbum.
„Mjög góður markaður er fyrir
einkatölvur og það treystir stöðu In-
tels,“ sagði fulltrúi Value Line Asset
Management, sem á um 300.000 In-
tel hlutabréf.
Aðsendar greinar á Netinu
v§> mbl.is
\LL.TAf= etTTHVAÐ A/ÝTT~
Lyftutónlist-
arfyrirtæki
selt
Seattle, Washinglon.
MUZAK, fyrirtæki sem er þekkt-
ast fyrir að útvega „lyftutónlist“,
verður selt samkvæmt samningi
sem hljóðar upp á 350 milljónir
dollara.
Audio Communications Network,
umsvifamesti leyfishafi muzak-
þjónustu í Bandaríkjunum, eignast
Muzak með því að greiða 250 millj-
ónir dollara og taka við 100 milljóna
dollara skuld. Seljandinn er Centre
Partners Management, verðbréfa-
fyrirtæki í New York.
Muzak tónlistar-, myndbands- og
skilaboðaþjónusta er veitt á 250.000
stöðum í Bandaríkjunum og í 15
öðrum löndum.
Samruni Volvo
og Scania í nánd?
Sérstök fyrirtæki
1. Heildverslun með innfl. á sérstakri vöru og er einnig með þrjár
verslanir í jafnmörgum bæjarfélögum. Gott tækifæri fyrir unglegt
fólk sem vill eignast arðvænlegt, skemmtilegt og gróið fyrirtæki
til framtíðar.
2. Lítil saumastofa sem framleiðir sérhannaðar vörur, jafnvel til
útflutnings. Er núna i heimahúsi. Geturtekið bíl, sumarbústaða-
lóð, húsvagn eða annað verðmætt sem greiðslu.
3. Lítil heildverslun með ýmislegt stelpudót til sölu strax. Góð að-
staða, selur mikið í apótek og stórverslanir.
4. Framleiðslufyrirtæki sem flytur inn sitt hráefni og framleiðir úr
því og er með námskeiðahald og smásölu. Rótgróið fyrirtæki
sem hefur verið í eigu sömu aðila frá upphafi. Skemmtilegt og
fjölbreytilegt fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk.
5. Áratugagamalt heildsölufyrirtæki sem að mestu hefur verið
í eigu sömu aðila frá upphafi. Mikið af frábærum umboðum
sem bjóða upp á enn meiri möguleika. Er löngu orðið landsþekkt
og sérlega vel kynnt. Svona fyrirtæki koma sjaldan í sölu.
6. Ein þekktasta fataverslun borgarinnartil sölu sem einnig er
á besta stað. Eigin innflutningur og sala, sérlega miðuð við
þá aldursflokka sem mest versla, ungt fólk og gamla táninga.
Svona fyrirtæki eru ekki oft á söluskrá.
7. Fataverslun við Laugaveginn til sölu. Eigin innflutningur með
mörg góð merki. Selst ódýrt.
8. Lítið snyrtilegt framleiðslu- og þjónustufyrirtæki sem framleiðir
úr plasti. Góð sjálfstæð vinna, öll tæki og áhöld sem til þarf,
fylgja með.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni
F.YRIRTÆKIASAlAIM
SUOURVE R I
SlMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Stokkhólnii. Reuters.
VERÐ hlutabréfa í sænska almenn-
ingsvagna- og vörubílaframleiðand-
anum Scania hækkaði um 2% á
föstudag vegna blaðafréttar um að
Volvo AB væri í þann mund að
bjóða í allt Scania fyrirtækið.
Volvo, sem hefur selt fólksbíla-
deildina Ford Motor Co. fyrir 6,45
milljarða dollara, vildi ekkert segja
um þá frétt Dagens Nyheter að
Volvo ætli að bjóða 55-60 milljónir
sænskra króna, eða yfir sjö millj-
arða dollara, í Scania.
Þó segja kunnugir að þeir hafi
ástæðu til að ætla að samkomulag
sé í nánd.
I síðasta mánuði keypti Volvo
13% hlut í Scania og lét í ljós áhuga
á að eignast afganginn. Þar með
yrði komið á fót fyrirtæki, sem yrði
annar helzti framleiðandi almenn-
ingsvagna- og vörubíla í heiminum
og mesti vörubílaframleiðandi Evr-
ópu.
Fálega tekið
Scania og Investor, sem á 45,5%
í fyrirtækinu, hafa tekið áhuga
Volvo fálega. Investor segir að
VOLVO
SCSANIA
Volvo hafi flækt viðræður er félag-
ið hafi átt við aðra aðila. Volvo
segir Scania hafi engan annan
kost en þann að sameinast Volvo
og sérfræðingar segja að aðalat-
riðið sé hvort verðið verði of hátt.
Dagens Nyheter segir að 55-60
milljarða s.kr. tilboð í Scania tákni
að hlutabréf fyrirtækisins séu met-
in á 275-300 s.kr. Hlutabréf í
Scania hækkuðu um 5 s.kr. í 252,5
á föstudag. Bréf í Volvo lækkuðu
um 2,5 s.kr. í 218,5.
Flugleiðir
tapa ekki á
Gardermoen
FLUGLEIÐIR hafa ekki orðið fyrír
fjárhagslegu tjóni vegna þeirra tafa
sem hafa orðið á flugi um
Gardermoen, hinn nýja alþjóðlega
flugvöll Norðmanna í nágrenni Osló-
ar. Menn eru ekki á eitt sáttir um
ágæti nýja flugvallarins. Miklar tafir
hafa orðið á umferð um völlinn og er
talið að samanlagt tap félaganna
SAS og Braathens vegna þessa nemi
um 700 milljónum íslenskra króna
frá því að Gardermoen-völlurinn var
tekinn í notkun. Talið er líklegt að
félögin muni krefjast skaðabóta
vegna málsins.
Að sögn Margrétar Hauksdóttur
hjá Upplýsingadeild Flugleiða hef-
ur félagið ekki orðið fyrir beinúm
töfum né fjárhagslegu tapi af völd-
um þeirra umferðartafa sem eiga
sér stað á vellinum. „Reyndar voru
ákveðin byrjunarvandamál til stað-
ar fyrstu vikurnar eftij' að völlurinn
var tekin í notkun í fyrra meðan
menn voru að aðlagast nýjum stað
en síðan hefur þetta ekki haft nein
mælanleg áhrif á okkar flug. Erfið-
leikarnir núna virðast aðallega snúa
að flugumferð sem liggur frá vellin-
um og til Evrópu og snertir því okk-
ar rekstur ekki að neinu leyti.“
Aðalframkvæmdastjóri
Mirror Group segir af sér
London. Reuters.
DAVID Montgomery, aðalfram-
kvæmdastjóri Mirror Group plc,
hefur sagt af sér og afsögnin getur
auðveldað sölu blaðaútgáfunnar.
Eftirmaður Montgomerys verður
John Allwood fjármálastjóri, sem
einnig hefur stjórnað starfsemi út-
gáfufyrirtækisins í öðrum hlutum
Englands og Skotlandi.
Því hafði verið spáð að
Montgomery yrði neyddur til að
segja af sér á fundi í stjóm fyrir-
tækisins í gærmorgun ef hann segði
ekki af sér af fúsum vilja vegna
ágreinings hans og Sir Vietors
Blanks stjómarformanns.
Heimildarmaður sagði að
Montgomeiy hefði beðizt lausnar til
að koma í veg fyrir atkvæða-
greiðslu. „Honum var ljóst að hann
naut ekki trausts stjórnarinnar,“
sagði hann.
Mirror á æsifréttablaðið The Mir-
ror, mörg landshlutablöð og kapal-
sjónvarpsrásina Live TV. Hlutabréf
í fyrirtækinu hafa lækkað í verði í
eitt ár vegna óánægju með stefnu
Montgomerys og stjórn hans. Bréf-
in hækkuðu um 1% eða 1,5 pens í
208,5 eftir afsögnina.
Hindraði samruna
Hlutverk Montgomerys var talið
koma í veg fyrir að ekki náðist sam-
komulag um samruna í nýlegum
viðræðum Mirrors og Trinity, ann-
ars fyrirtækis sem gefur út lands-
hlutablöð.
í síðustu viku hafnaði Mirror
einnig tilboði frá Regional
Independent Media Group (RIM)
um 200 pens á hlutabréf, eða 913
milljónir punda. Mirror kvaðst þó
vilja ræða við RIM.
Nú er talið að RIM kunni að
leggja fram hærra tilboð eða að Tr-
inity samþykki nýjar viðræður um
samruna. Sum brezk blöð telja jafn-
vel að þýzka útgáfufyrirtækið Axel
Springer komi aftur til skjalanna.
Bréf í Mirror hafa lækkað úr 250
pensum í júní í fyrra þegar þýzki
risinn Springer AG útilokaði tilboð í
fyrirtækið. Verð bréfanna lækkaði í
136 pens í október en hefur hækkað
síðan vegna bollalegginga um sam-
runa.