Morgunblaðið - 09.02.1999, Síða 68
'68 ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HASKOLABIO
HASKOLABIO
iburðíWjjild™
Hagatorgi, sími 530 1919
KvikniyrT-||wð 400 Ur.
Mi i \ |oi Bi ac:k
gy
FERÐU i BÍÓ
Álfabakka 8, sfm* 58? 8900 og !5íi7 8905
www.samfilini.is
ANNA Fjóla Gísladóttir og Anton Corbijn í Perlunni á
laugardagskvöld.
FRIÐRIK Örn og Mark Seliger í góðum gír eftir matinn.
TÆKNIMENN Hasselblad komu með eitt og hálft tonn af
tækjabúnaði til landsins til að sýna skyggnusýninguna.
Fagstefna ljósmyndarafélagsins
Stemmning á
lj ósmyndahelgi
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
VEL fór á með þeim Önnu Svavarsdóttur og Sólrúnu Jónsdóttur, en
kvenljósmyndurum hefur fjölgað mikið á síðustu árum.
RUT Hallgrímsdóttir, Finnbogi Marinósson og Þór Gíslason kynntu
sér þær nýjungar sem sýndar voru á tækjasýningunni.
UM SÍÐUSTU helgi fór fram fag-
stefna Ljósmyndarafélagsins í Tón-
listarhúsi Kópavogs og Gerðar-
safni. Aðalskipuleggjendur fag-
stefnunnar að þessu sinni voru þau
Bára Kristinsdóttir, Friðrik Orn
Hjaltested og Kristján Maack. Að
sögn Kristjáns Maack ljósmyndara
heppnaðist fagstefnan vonum fram-
ar og var afar vel sótt af bæði fag-
mönnum og áhugafólki.
„Það voru allir mjög ánægðir
með dagskrána. Við vorum með
tvo fyrirlestra tveggja heims-
frægra ljósmyndara, þeirra Anton
Corbijn og Mark Seliger, og var
alveg fullt hús hjá þeim báðum.
Samhliða fyrirlestrunum var ljós-
myndasýning í Gerðarsafni sem
blaðaljósmyndarar og Ljósmynd-
arafélag Islands stóðu að. A neðri
hæð safnsins var siðan tækjasýn-
ing þar sem hægt var að sjá allt
það nýjasta sem hægt er að fá
tengt ljósmyndun."
Frægir en ólíkir
Kristján segir að það hafi verið
mjög skemmtilega ólíkar áherslur
hjá ljósmyndurunum Anton Cor-
bijn og Mark Seliger. „Þetta eru
tveir heimsfrægir ljósmyndarar
sem mynda sama viðfangsefnið,
frægt fólk, en nálgast það á mjög
ólíkan hátt. Corbijn er meiri
minimalisti en Seliger. Hann vill
hitta viðfangsefni sitt yfir tebolla
og fara síðan í göngutúr kringum
kaffihúsið og mynda viðkomandi.
Hans aðall er hversu persónulegan
stíl hann hefur. Hinn ljósmyndar-
inn, Seliger, er eiginlega andstæða
Corbijn. Hann hefur her manna í
kringum sig og vill skipuleggja allt
út í ystu æsar, fær ótrúlegustu hug-
myndir og framkvæmir þær.“
A sunnudeginum var skyggnu-
sýning á vegum Hasselblad-verk-
smiðjanna í Svíþjóð í tilefni 50 ára
afmælis þeirra og að sögn Kristjáns
var hún geysilega vel sótt. „Hún
var sýnd þrisvar á sunnudeginum
og fullt í öll skiptin. Meira en 100
erlendir fagljósmyndarar áttu
myndir á sýningunni og þarna voru
sýndar meira en 900 ljósmyndir á
15 mínútum með blandaðri tækni.
Það voru tuttugu sýningarvélar
sem blönduðu hljóð og mynd saman
og sýnt var á mjög stórum skjá.
Þessi sýning hefur farið út um allan
heim en kom núna til Islands og er
á leiðinni til Kína næst.“
A laugardagskvöldinu var síðan
hátíðarkvöldverður í Perlunni og
voru þar 70 manns samankomnir
og skemmtu sér vel. „Þetta er eig-
inlega í fyrsta skipti sem allt small
saman, bæði ljósmyndasýning, fyr-
irlestrar og kynning á íjósmynda-
vörum. Auðvitað hafa oft verið bæði
ljósmyndasýning og fyrirlestrar áð-
ur, en núna var þetta allt innan
ramma einnar helgi, sem að mínu
viti heppnaðist mjög vel,“ segir
Ki-istján að lokum.
GLUGGA
GRINDUR
úr furu með
færanlegum rimlum
DVERGSHÖFÐI
VAGNHÖFÐI
TANGARHÖFÐI
s
>
BÍLD8HÖFB1
VESTURLANDSVEGUR
iimrBFa
V, HÚSGAGNA-
■' C'HÖUJN
GEIRIehf
ehf.
Bíldshöfío 16 sími587 7666 fox5877665
nelfong: geiriehf@centrum.is