Morgunblaðið - 24.03.1999, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1999
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
*
Islandsmótið í dorgveiði haldið á Laxárvatni við Blönduós
Keppt í blíðskaparveðri
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
ÞAÐ voru jafnt háir sem lágir sem tóku þátt í dorgveiðinni.
Blönduósi - íslandsmótið í dorg-
veiði var haldið á Laxárvatni
skammt sunnan Blönduóss um síð-
ustu helgi í blíðskaparveðri. Kepp-
endur voru á fjórða tug og komu
yíða að af landinu. Dorgmeistari
íslands var krýndur Jón Sigurðs-
son úr Reykjavík en stærsta fisk-
inn veiddi Kristófer Rristjánsson
frá Blönduósi.
A þykkum ís Laxárvatns mátti
sjá margan áhugasaman veiði-
manninn beita öllum tiltækum ráð-
um til að fá lystarlítinn silunginn til
að taka beituna. Sumir beittu maís-
baunum en aðrir beittu rækju. Á
sumum línum hafði verið settur
spúnn nokkru fyrir ofan beitu til að
vekja athygli fisksins. Sessur af
ýmsu tagi voru notaðar, allt frá
hreindýraskinni upp í steinull og
allt þar á milli því sessur skipta
miklu máli í dorgveiði því samneyti
mannslíkama við ís í langan tíma
án góðrar einangrunar er erfið þol-
raun. Mótstjóri nú sem fyrr var
Bjöm G. Sigurðsson frá Dorgveiði-
félagi íslands en það var Ferða-
málafélag Austur-Húnavatnssýslu
sem sá um skipulag mótsins.
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
ÞÁTTTAKENDUR í fegurðarsamkeppninni. Efri röð f.v. Hrafnhildur Ó. Magnúsdóttir, Biskupstungum,
Karen Dröfn Kjartansdóttir, V-Landeyjum, Elín Ósk Jónsdóttir, Þorlákshöfn, Sif Gunnarsdóttir, Hvera-
gerði, Halla Rós Arnarsdóttir, Laugardal, Sigurbjörg H. Sigurbjömsdóttir, Vík. Neðri röð f.v. Linda Björk
Sigmundsdóttir, Selfossi, Sigurlaug Jóhannesdóttir, Selfossi, Elín G. Steindórsdóttir, Selfossi, Guðmunda
Á. Geirsdóttir, Kvíarhóli og Inga Birna Baldvinsdóttir, V-EyjaQallahreppi.
Morgunblaðið/Eiríkur P. Jörundsson
JÓLIUS Valgeirsson, starfsmaður Öryggisvörslunnar, við geymslu-
skúrinn þar sem þremenningarnir höfðu komið hreindýrunum fyrir.
Þrír ungir menn staðnir að verki
Drápu hrem-
dýr með boga
Hornafirði - Aðfaranótt sunnudags
voru þrír ungir Hornfirðingar
staðnir að því að hafa á laugardeg-
inum drepið tvö hreindýr með 22.
kalibera riffli og öflugum boga sem
þeir notuðu til að drepa a.m.k. ann-
að dýrið. Upp um athæfið komst
þegar Júlíus Valgeirsson, starfs-
maður Öryggisvörslunnar á Höfn,
kom að piltunum þar sem þeir voru
nýbúnir að koma dýrunum fyrir í
geymsluskúr sem faðir Júlíusar er
eigandi að.
Að sögn Júlíusar hefur oft verið
brotist inn í skúrinn og hefur hann
því fylgst með honum á eftirlits-
ferðum á nóttunni. Þremenning-
arnir flýðu af vettvangi á meðan
Júlíus hafði samband við lögi-egl-
una sem handsamaði þá skömmu
síðar og gerði vopnin upptæk. Fyr-
ir utan skúrinn var blóðslóð í
snjónum og rétt innan við dyrnar
lágu dýrin tvö á gólfinu. Bogann,
sem keyptur er í sporvöruverslun
hérlendis, hefur lögreglan áður
tekið af einum þremenninganna,
íúmlega tvítugum pilti, en hann
hefur þó jafnan fengið hann í hend-
Á GÓLFI geymsluskúrsins voru
blóðug ummerki eftir hrein-
dýradrápin.
urnar aftur. Með honum voru tveir
piltar á táningsaldri og hefur lög-
reglan margoft þurft að hafa af-
skipti ef piltunum. Þeir játuðu
verknaðinn við yfirheyrslur.
Ungfrú Suðurland verður valin 31. mars
Spænsk stemmn-
ing á Hotel Örk
Hveragerði - Það mun ríkja
spænsk stemmning á Hótel Örk
þegar Ungfrú Suðurland verður
valin úr hópi 11 stúlkna 31. mars
næstkomandi.
Stúlkumar sem koma víðsvegar
að af Suðurlandi hafa æft stíft und-
anfarið enda til mikils að vinna því
sigurvegari keppninnar í Hvera-
gerði mun verða fulltrúi Suður-
lands í keppninni um titilinn Ung-
frú ísland sem fram fer á Broad-
way í maí. Þema kvöldsins á Hótel
Örk mun verða spænskt, en stúlk-
urnar koma fram þrisvar: í
spænskum klæðnaði í dansatriði, í
baðfötum og í samkvæmiskjólum. I
ár verður í fyrsta skipti valin
Knickerbox-stúlka keppninnar en
ennfremur verður ljósmyndaíyi-ir-
sæta kvöldsins valin sem og vin-
sælasta stúlkan, fyrir utan þær
þrjár stúlkur sem hreppa þrjú
efstu sætin.
UMMIÐAPRENT
Þegar þig vantar límmiða
Skemmuvegi 14,200 Kópovogi. S. 58/ 0980. Fox 557 4243
Hlífðarefni undir
borðdúka
Uppsetningabúðin
Hverfisgötu 74, sími 552 5270.
-----------------
Egilsstaðir
VG opnar kosn-
ingaskrifstofu
Egilsstöðum - Vinstri hreyfingin -
grænt framboð á Austurlandi hef-
ur opnað kosningaskrifstofu á
Egilsstöðum.
Skrifstofan er til húsa í húsnæði
Upplýsingamiðstöðvar ferðamála
við tjaldstæðið á Egilsstöðum.
Skrifstofan verður meira og minna
opin fram að kosningum og munu
frambjóðendur verða til viðtals.
Skrifstofan var opnuð um helgina
og gestum boðið í kaffi og lesið var
úr ljóðum og flutt tónlistaratriði.
Erlendir ferðamenn hrifnir
af ferðamannafjósinu
Selfossi - Aðsókn í ferðamanna-
fjósið á Laugabökkum í Ölfusi
hefur verið með allra besta móti
það sem af er vetri. Svo virðist
sem markaðssetning síðustu ára
sé að skila sér.
Aukningin er helst hjá erlendu
ferðamönnunum sem hafa verið
að skila sér í ríkara mæli í fjósið.
Þessir erlendu ferðamenn ei-u
hér í svokölluðum „activity to-
urs“ þar sem fyrirtæki senda
starfsmenn sína í nokkurs konar
óvissu- og ævintýraferðir til
framandi landa og Island er eitt
af þeim löndum sem velya at-
hygli manna.
Ferðamannafjósið hefur slegið
í gegn hjá erlendu ferðamönnun-
um og hróður fjóssins spyrst víða
um heim og sem dæmi um að-
sóknina að íjósinu þá má geta
þess að þann dag sem blaðamað-
ur var staddur á vettvangi þá var
von á yfir 400 manns og öðru
eins um næstu helgar. Að sögn
Þorvaldar Guðmundssonar,
ferðaþjónustubónda, kunna
ferðamennirnir vel við að kynn-
ast kúnum og svo er ýmislegt
annað á boðstólum svo sem
kúrekadans, og Sóleyjarbarinn í
hlöðunni er líka vinsæll áningar-
staður.
Morgunblaðið/Sig. Fannar
ERLENDIR ferðamenn stíga kúrekadans í fjósinu.
Á BARNUM er borin fram „mjólk“.