Morgunblaðið - 24.03.1999, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Viðsnúningur í rekstri Ármannsfells hf.
Armannsfell ht.
Úr ársreikningi 1998
Rekstrarreikningur Miiijönir króna 1998 1997 Breyting
Heildartekjur Rekstrargjöld 1.301,1 1.215,0 1.050,9 1.051,5 24% 16%
Rekstrarafkoma fyrir fjármagnsliði Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld), nettó Óreglulegir iiðir, nettó Skattar 86,1 (22,0) 3,6 0 (0,6) (32,5) 5,9 0 ■32% -36%
Hagnaður (tap) eftir skatta 67,7 (27,2) -
Efnahagsreikningur Miiijónir króna 31/12*98 31/12'97 Breyting
| Eignir: |
Veltufjármunir 637,9 557,9 14%
Fastafjármunir 165,7 140,7 18%
Eignir samtals 803,6 698,6 15%
| Skuidir og eigið fé: | Skammtímaskuldir 559,7 409,5 37%
Langtímaskuldir 108,5 222,0 ■51%
Eigið fé í árslok 135,4 67,0 102%
Skuldir og eigið fé samtals 803,6 698,6 15% —
Sjóðstreymi og kennitölur 1998 1997 Breyting
Veltufé frá rekstri Milljónir króna Handbært fé frá rekstri Miiijónir króna Ávöxtun eigin fjár 17,7 147,3 66,87% 'mm—mammmmmmmm (16,8) (113,5) -33,99%
Hagnaður nam
67,7 milljónum
króna árið 1998
ÁRMANNSFELL hf. hagnaðist um
67,7 milljónir króna árið 1998 sam-
anborið við 27,2 milljóna króna tap
árið áður. Rekstrartekjur félagsins
voru alls 1.301,1 milljón króna en
rekstrargjöld 1.215,0 milljónir
króna, en sömu liðir voru 1.050,9
milljóna króna tekjur og 1.051,5
milljóna króna gjöld árið áður.
Niðurstaða efnahagsreiknings
var 803,6 milljónir króna. Helstu
breytingar á fastafjármunum voru
sala á fasteign og hlutafé trésmiðju
Eldhúss og baðs ásamt nýju hluta-
fé í Úlfarsfelli hf. í veltufjármun-
um er aukning á kröfum á kaup-
endur, sem skýrist af mikilli fyrir-
framsölu nýbygginga. Eigið fé hef-
ur hækkað verulega vegna hagnað-
ar ársins, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu.
Verkefni félagsins voru næg
mestallt árið. A meðal helstu verk-
efna voru Náttúrufræðahús Há-
skóla íslands, Gígjubrú, stöðvar-
hús á Nesjavöllum og endurbætur
og tengibygging fyrir Menntaskól-
ann í Reykjavík.
Félagið hefur tekið þátt í verk-
efnum um þróun nýs bygginga-
kerfis ásamt nokkrum öðrum inn-
lendum og erlendum aðilum, og
hefur verkefnið verið styrkt af
ESB. Búist er við því að nýtingar-
réttur þess verði eignfærður í nýju
hlutafélagi.
Verkefnastaðan þetta ár og fram
á næsta ár er góð, segir í fréttatil-
kynningu, og er gert ráð fyrir
hagnaði á yfirstandandi ári.
Aðalfundur félagsins verður
haldinn þriðjudaginn 13. apríl nk.
Samkeppni í
póstflutningum
VERSLUNARRÁÐ íslands
efnir til morgunverðarfundar í
Sunnusal Hótels Sögu fimmtu-
daginn 25. mars nk. frá kl.
8-9:30. Efni fundarins er sam-
keppni og hugsanleg einkavæð-
ing á sviði póstflutninga.
Samkeppni er þegar fyrir
hendi á sumum sviðum póst-
flutninga en ríkið hefur hins
vegar enn einkarétt á veruleg-
um hluta þeirrar starfsemi. All-
miklar breytingar hafa þegar
átt sér stað á þessu sviði, m.a.
með breytingum á póstlögum,
aðskilnaði póst- og símahluta
Póst- og símamálastofnunarinn-
ar, stofnun hlutafélagsins ís-
landspósts o. fl.
Á fundinum verður m.a. leitað
svara við eftirfarandi spurning-
um: Hvar er samkeppni fyrir
hendi á póstflutningamarkaðn-
um í dag, er samkeppni væntan-
leg í flutningi almenns pósts,
verður viðhaldið sérleyfi á til-
teknum sviðum póstflutninga og
mun ríkið selja íslandspóst hf.
til einkaaðila.
Framsögumenn á fundinum
verða: Einar K. Guðfinnsson,
formaður samgöngunefndar AI-
þingis Einar Þorsteinsson, for-
stjóri íslandspósts hf. Bjarni
Hákonarson, framkvæmdastjóri
DHL - Hraðflutninga ehf.
Fundargjald (morgunverður
innifalinn) er 1.500 kr.
MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1999
Frábær skemmtun!
SVARTLÆDDA
Konan
FYNDIN - SPENNANDI- HROLLVEKJANDI
Hinn aldraði Kipps vill segja sínum nánustu
frá atburðum sem gerðust þegar hann var ungur.
Hann rceður sér ungan leikara sér til aðstoðar, sem telur
hann á að bregða sér í hlutverk þeirra er urðu á vegi hans
og enn á ný magnast upp aláargömul draugasaga!
VlÐAR
Eggertsson
VlLHJÁLMLJR
Hjálmarsson
SVARTKLÆDDA KONAN er ekki bara dularfullt hryllingsleikrit
spennandi og skemmtilegt - heldur er það líka vel skrifað,
áhrifaríkt og tekur á taugarnar. (Vigdís Grímsdóttir)
Það ískrar í áhorfendum af hryllingsblandinni nýjungagirni“ ...Mb
„Ópin sem nístu gegnum merg og bein bera fagmanni vitni“ ...Dv
Pantaðu miða strax!
2 7. mars -31. mars - og
miðnœtursýning á föstudaginn langa
sími: 561-0280 - netfang: vh@centrum.is
og alla daga í miðasölu IÐNÓ - sími: 530-3030