Morgunblaðið - 24.03.1999, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1999 43
Hin ódýru orð Eyþórs
Reykj avíkurflugvöll-
ur er ekki til óþurftar
og frá honum stafar
minna ónæði en frá
bílaumferðinni í borg-
inni. Ef eitthvað er
hægt að setja útá þenn-
an völl, þá eru það
einna helst litlu rellurn-
ar, æfinga- og kennslu-
flugið, sem farið hafa í
taugar þeirra sem í
námunda við völlinn
búa.
Flugvelli fyrir innan-
landsfiug verður vart
fundinn betri staður.
Við getum státað af
þessum velli frekar en
að hugleiða að leggja hann niður.
Borgarbúar ættu að fagna því að nú
hefur verið ákveðið að lagfæra völl-
inn, því með þeim framkvæmdum
verður völlurinn öruggari og þetta
mun tryggja tilveru hans um ókom-
in ár.
Þeir sem fmna vellinum allt til
foráttu eru þeir sem vilja fá úthlutað
lóðum í Vatnsmýrinni, svo byggja
megi á dýru landi dýrar blokkir.
Þeir sömu vilja líka fá að reisa
blokkaþyrpingu við Nauthólsvík og
þeir vilja fylla uppí Skerjafjörðinn
svo þar megi koma fyrir flugvelli.
Ef þessir menn fá að fylla uppí
Skerjafjörðinn og setjá þar flug-
völl, þá er spurning hversu lengi sá
flugvöllur fengi að standa áðuren
menn myndu heimta að fá að flytja
þann flugvöll og rýma fyi'ir íbúðar-
byggð.
Menn sem vilja breyta Vatnsmýr-
inni í blokkabyggð eru ekki að
hugsa um velferð íbúanna, þeir eru
að hugsa um dýrar blokkir á góðum
stað.
Einn þeirra sem svona hugsa, eða
að minnsta kosti einn
af þeim hugsuðum sem
þora að láta skoðanir
sínar koma fyrir sjónir
almennings, er sjálf-
stæðismaðurinn og
varaborgarfulltrúinn
Eyþór Arnalds. Hann
skrifar í Mbl. hinn 17.
febrúar sl. grein sem
hann kallar „Byggð í
Vatnsmýrinni“. Eg
bendi mönnum ein-
dregið á að lesa þann
pistil, sérstaklega
bendi ég mönnum á að
íýna í gáfulega frasa
einsog: „í miðborginni
geta legið mikil verð-
mæti sem ekki er hægt að taka sem
sjálfsagðan hlut. Sumar borgir hafa
þróast þannig að þær hafa orðið
ófysilegur kostur fyrir íbúðarbyggð.
Frægasta dæmið er Detroit, en þar
Byggðaþróun
Menn sem vilja breyta
Vatnsmýrínni í blokka-
byggð, segir Krisiján
Hreinsson, eru ekki að
hugsa um velferð íbú-
anna, þeir eru að hugsa
um dýrar blokkir á
góðum stað.
hrundi miðborgin þegar bflaiðnaður-
inn fékk samkeppni frá Japan. Ann-
að dæmi er Los Angeles, en mið-
borgarkjarninn þar er óbyggilegur
með öllu þrátt fyrir glæsibygging-
ar.“
Ef ég væri ekki kurteis maður
myndi ég hlæja opinberlega að
þessu kléna kjaftæði. Þarna skrifar
maður sem hvorki hefur vit á þvi
sem hann skrifar um né heldur þvi
sem hann langar að skrifa um.
Taki menn mark á skrifum manna
á borð við Eyþór Arnalds er ekki
von á góðu. Þarna klöngrast yfir
rústir Detroit og óbyggilegt glæsi-
byggingasvæði Los Angeles maður
sem vill eyða Vatnsmýrinni og fylla
Skerjafjörðinn. Þarna fer maður
sem er boðberi ótíðinda, þótt hann
trúi því líklega í hjarta sínu að hann
hafi heiminum eitthvað merkilegt að
færa.
Ef Eyþór Arnalds fær að ráða
ferð verður Vatnsmýrin að blokka-
byggð, Skerjafjörðurinn mun þá
verða flugvallarsvæði. Og í kjölfarið
munu menn að öllum líkindum fara
að hugleiða hvort Miklatún, Naut-
hólsvík, Oskjuhlíð og Fossvogs-
kirkjugarður geti ekki talist fýsileg-
ir kostir fyrir íbúðarbyggð.
Flokksbræður Eyþórs eru jú
þekktir fyrir vönduð vinnubrögð í
byggingarmálum miðborgarinnar,
Ráðhúsið, sem útlendingar halda að
sé frystihús, er eitt gleggsta dæmið
um ímgmyndaauðgi þar á bæ. Og
Eyþór mælir fyrir munn þeirra
manna sem reistu í Öskjuhlíðinni
dýrasta geisladiskasöluturn verald-
ar.
Treysti menn mönnum einsog Ey-
þóri Arnalds fyrir byggðarþróun í
Reykjavík, þá fýrst er voðinn vís.
I lok greinar sinnar segir Eyþór:
„Orð eru ódýr - verkin tala.“
Já, víst eru orð Eyþórs afskap-
lega ódýr, en ég kaupi þau ekki.
Höfundur er skdld.
Krislján
Hreinsson
SKOLI OG HEILSfi
- FPRA VEL SflMflN
Dr. 0. C. Mandal mun halda fyrirlestur
í boSi Pennans um heilsusamlegt umhverfi
nemenda og kennara \ skólum og
þa& sem efst er ó baugi í þeim efnum í
RÓiðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 26. mars
kl. 16.30. Fyrirlesturinn fer fram ó ensku.
Hð fyrirlestri loknum verður sýning á
húsgögnum og öðrum búnaði fyrir skóla
hönnuðum samkvæmt kenningum Dr. Mandal.
flllir eru velkomnir en skólastjórnendum,
kennurum, leikskólakennurum, arkitektum,
hönnuðum og starfsmönnum úr heilbrigðis-
stéttum er sérstaklega bent ó að hér er
einstakt tækifæri til að kynnast nýjungum
ó þessu sviði.
Sýningunni lýkur kl. 19.00.
Vinsamlegast tilkynnið
þótttöku í síma 540 2030.
Sknfótctubúnaður
Hallarmúla 2 - 105 Reykjavík - SÍmi: 540 2030
Vorið er komið í Soldis. Blómstrandi
pottaplöntur, afskorin blóm og silkitré,
auk blómapotta, kerta og fallegrar
gjafavöru.
Soldis er sérverslun með silkitré og silkiblóm.
Plöntur sem líta út fyrir að vera raunverulegar,
eru sígræn og alltaf jafn fallegar en þurfa hvorki
vatn né aðra umhyggju. Þú getur valið um
margar tegundir trjáa og blóma í öllum
stærðum og verðflokkum. Komdu í verslunina
í Kirkjuhvoli (við Dómkirkjuna) og líttu á úrvalið.
Opið mán.-fös. kl. 12-18
lau. kl. 11-14
Sími 551 2040