Morgunblaðið - 24.03.1999, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 24.03.1999, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Guðmundur Ingimar Jónsson múrari fæddist á Krakavöllum í Flókadal í Haganes- hreppi í Skagafirði 26. september 1914. Hann lést á Landa- kotsspítala 15. mars síðastiiðinn. For- eldrar hans voru Jón Sigmundsson, bóndi á Illugastöð- um í Fljótum, f. 15.6. 1890 á Vestari-Hól í Haganeshreppi, d. 27.11. 1962 í Kópa- vogi, og kona hans Margrét Arn- dís Guðbrandsdóttir, f. 20.7. 1895 á Steinhóli í Haganes- hreppi, d. 7.8. 1975 í Reykjavík. Þau slitu samvistum. Jón kvænt- ist aftur Sigríði Guðmundsdótt- ur, f. 18.8. 1895 á Saurbæ í Fljót- um, d. 9.7. 1985 á Siglufirði. Börn þeirra eru: Sigurlína Jónína, f. 31.1.1922, d. 1.2. 1994; Aðalbjörn Snorri, f. 16. 3. 1927, d. 9.8. 1979; Svavar Guðjón, f. 15.10. 1928; Ásgeir Hólm, f. 4.3. 1933; Anna Sigurbjörg, f. 10.3. 1936, d. 4. 12. 1993. Margrét giftist aftur, Guðna Stígssyni, f. Kæri tengdapabbi, nú sest ég niður og kveð þig með örfáum orð- um og þakka fyrir samverustund- irnar. FjTstu kynni okkar voru fyr- ir tuttugu og sex árum þegar við Sigurjón vorum í tilhugalífinu. Það var ekki laust við að ég fyndi fyrir feimni og virðingu í návist þinni. Þú varst ekki að segja neitt vanhugs- að. Þú varst mjög söngelskur og •*’tókst oft lagið þegar eitthvað stóð til meðan heilsan leyfði. Mikið var yndislegt að hlusta á Hamraborg- ina og Ókuljóð og munu þessi lög alltaf fylgja minningunni um þig. Þegar þú varst hættur að vinna við múrverkið og farinn að vinna í sundlaugunum vorum við Sigurjón að byggja okkar fyrsta hús og þú hjálpaðir okkur að leggja í svalirn- ar. Eg fór með þér um miðja nótt til að glatta þær, ég man hvað það kætti þig að lögreglan skyldi stoppa okkur í bakaleiðinni og spyrja okkur af ferðum okkar, en ekki nema furða þar sem klukkan var 5 að morgni. Nú þegar krókusamir eru að koma upp þá minna þeir á þig. Þú varst alltaf mjög stoltur þegar þú sýndir okkur þá þegar þeir voru að koma upp í garðinum þínum. Einnig man ég eftir því þegar þú varst hættur að vinna og settir nið- ur túlipana fyrir jólin sem þú hafðir sjálfur ræktað frá laukum. Þú hafð- ir mikla gleði af því að miðla öðrum af þeirri fegurð. Margar minningar koma upp í hugann þegar ég sest hér niður. Við minnumst þess þegar við vorum á leið með þér til Siglufjarðar og kom- ið var í Skagafjörðinn. Þá þuldir þú upp alla bæi á leiðinni þó að tölu- verður tími væri síðan þú varst þama á ferð. Þetta mundir þú frá því að þú varst vinnumaður á unga aldri í Skagafirðinum. A þeirri leið kom- um við við hjá bróður þínum honum Svavari í Öxl og fengum okkur kaffi- sopa. Þá var harmoníkan tekin fram á því stutta stoppi og mikið sungið. Mikið var ég ánægð þegar þú heimsóttir mig fyrstur manna þeg- ar ég flutti í Heiðargerði í haust. Búslóðin var ekki komin, en þú varst að athuga með okkur því nú yrði stutt að skreppa í heimsókn rétt yfir götuna. 20.4. 1881, d. 31.12. 1965. Börn þeirra eru: Guðbjörg, f. 17.8. 1918, d. 29.5. 1920; Sigrún, f. 7.6. 1921; Lára, f. 28. 6. 1922; Þórlaug Svava, f. 2.12. 1924; Friðrik, f. 11.9. 1927, d. 5.1. 1983; María Ingi- björg, f. 26.10 1931; og Haukur Hafsteinn, f. 13.3. 1933, d. 16.6. 1968. Ilinn 29. mars 1948 kvæntist Guðmundur eftirlifandi eiginkonu sinni, Sigríði Antonsdóttur, f. I. 10. 1923 á Reykjum í Ólafsfirði. Foreldrar hennar voni Anton Grímur Jónsson, bóndi á Nefstöð- um í Holtshreppi í Skagafirði, f. II. 12. 1882 á Garði í Ólafsfirði, d. 26. 4 1931 á Siglufirði, og eigin- kona hans Jónína Stefanía Jónas- dóttir, f. 14.5. 1881 á Móskógum í Haganeshreppi, d. 24.4. 1955 á Skeiði í Fijótum. Guðmundur og Sigríður eiga fimm syni. Þeir eru: 1) Birgir, f. 5.11. 1947 í Reykjavík, múrari. Fyrrverandi maki Margrét Birna Hauksdóttir, f. 31. okt. 1948. Slitu samvistum. Ég þakka þér fyrir allt og allt með þessum örfáu línum.. Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með fijóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt, lit og blöð niður lagði, - líf mannlegt endar skjótt. (Hallgr. Pét) Þín tengdadóttir Kristín G. Elsku afi, þakka þér fyrir allar ánægjustundirnar sem við höfum átt saman. Mikið þótti mér gott að koma í heimsókn til þín og ömmu. Ég minnist þess þegar ég var lítil hversu gott var að skríða upp í fangið á þér. Eg sakna þín. Eg lifi’ í Jesú nafhi, í Jesú nafin’ ég dey, þó heilsa’ og É mér hafni, hræðist ég dauðann ei. Dauði, ég óttast eigi af! þitt né valdið gilt, í Kristí krafti’ ég segi: Kom þú sæll, þá þú vilt. (Hallgr. Pét) Kær kveðja. Svava Sigurjónsdóttir. í ljóði Vilhjálms Vilhjálmssonar segir: Eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Það er ekki spurning um aldur, maður verður alltaf jafn sleginn þegar maður fréttir um andlát þess sem maður þekkir. Nú er hann dáinn hann Guðmundur, pabbi hans Sigurjóns mágs míns, og mun hans sárt verða saknað af eiginkonu, ættingjum og vinum, enda glaðlyndur og elskulegur maður. Vil ég og fjölskylda mín votta eiginkonu hans, Sigríði, Sig- urjóni mági mínum, Kristínu syst- ur, svo og ættingjum öllum inni- lega samúð. Megi guð gefa ykkur styrk í sorginni. Sárt er vinar að sakna. Sorgin er djúp og hljóð. Minningar mætar vakna, svo var þín samfylgd góð. Daprast hugur og hjarta, húm skuggi féll á brá, lifir þó ljósið bjarta, Barn. Bryndís Ásta, f. 23.12. 1967, maki Bjarni Jóhannsson. Seinni kona Birgis er Ásdís Guðnadóttir saumakona. 2) Bragi, f. 21. sept. 1950 í Reykja- vík, húsasmiður og bóndi, maki Margrét Gísladóttir, f. 17.12. 1951, bóndi. Börn: Guðmundur Ingi, f. 16.8. 1975, Gísli, f. 22.4. 1977, Anna Sigríður, f. 26.9. 1980, d. 17.8. 1998, Kristín Birna, f. 18.9. 1982. 3) Anton Örn, f. 3.12. 1951 í Reykjavík, húsasmiður, maki Guðný Björg- vinsdóttir, f. 12.3. 1952, skrif- stofumaður. Börn: Guðmundur Örn, f. 19.3. 1974, Björgvin Örn, f. 2.9. 1977, Sigríður, f. 7.10. 1982. 4) Sigurjón, f. 9.2. 1953 í Reykjavik, rafvirki, maki Krist- ín Gunnarsdóttir, f. 26.2. 1955, hjúkrunarfræðingur. Börn: Anton, f. 21.7. 1980, Svava, f. 9. 6. 1986. Dóttir Kristínar, Sigur- björg, f. 8. 7. 1972, maki Rögn- valdur Erlingur Sigmarsson. Börn þeirra: Siguijón Öli og Agnes Rut. 5) Stefán, f. 30.8. 1957 í Reykjavík, húsasmiður, maki Stefanía Hjördís Muller, f. 9.6. 1951, skrifstofumaður. Barn: Haukur, f. 24. 10. 1991. Börn Stefaníu, Alvin Orri, f. 1. 11.1973, Brynjar, f. 29.11.1985, Birna, f. 12.5. 1976, maki Valdi- mar Tryggvason. Barn: Breki. Guðmundur verður jarðsung- inn frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. lýsir upp myrkrið svarta, vinur þó falli frá. Góða minning að geyma, gefur syrgjendum fró. Til þín munu þakkir streyma. Þér munum við ei gleyma. Sofðu í saelli ró. (Höf. ók.) Innilegar samúðarkveðjur frá Gunnari og Olöfu. Sigríður Gunnarsdóttir. Með fáum orðum vil ég kveðja fyrrum sveitunga minn. Náttúru- lögmálið verður ekki stöðvað og menn halda áfram að heilsast og kveðjast og ný kynslóð kemur og önnur kveður. Guðmundur I. Jónsson var tíðum heima á æskuheimili mínu, Tungu, ýmist sem gestur eða starfsmaður. Fósturbróðir minn, Hilmar, sonur hjónanna, var jafnaldri Guðmund- ar, aðeins tveggja vikna aldurs- munur. Þeir voru mjög samrýndir til flestra hluta, báðir harðduglegir og velvirkir, báðir músíkalskir, léku á harmoniku bæði fyrir dansi og öðrum uppákomum auk sjálfum sér til ánægju. Þeir voru léttir í lund, með æskufjör í æðum, enda oft uppátektasamir sem olli kátínu þeirra sem nærstaddir voru. Það var ósjaldan að þeir félagar fengu ýmis verk sem vinna þurfti í akkorði. Var hér um að ræða sveitastörf af öllum gerðum og lagði húsbóndinn, sem stýrði búi sínu með rögg og réttsýni þar mat á hve eðlilegt væri að þetta eða hitt verkið tæki langan tíma. Að sjálf- sögðu lögðu vinirnir metnað sinn í að ljúka hverju verki á sem skemmstum tíma, enda mun svo oftast hafa verið að það tók þá helming þess tíma sem þeim var ætlaður og höfðu svo fijálsan tíma til eigin þarfa sem eftir var. Guðmundur var traustur og trúr og góður félagi. Hann var meðal- maður á vöxt og svaraði sér vel, kattliðugur og snöggur til allra átaka. Eins og að líkum lætur rann tím- inn áfram og að því kom að Guð- mundur hleypti heimdraganum við sveitina okkar og hélt að heiman með nesti og nýja skó og leitaði á vit nýrra tíma og nýrra starfa. Hann hóf nám í múrverki og lauk því. Múrverk er erfitt og slítandi fag, en það varð ævistarf Guð- mundar meðan heilsan leyfði. Þeg- ar sambandi okkar lauk í sveitinni urðu samverustundir okkar strjálli, þótt ég fylgdist með og frétti af honum, ýmist úr nálægð eða fjar- lægð. En þegar ég byggði mína fyrstu íbúð var ég svo heppinn, að þá hafði múrarameistarinn að íbúð- inni tvo úrvals múrara í þjónustu sinni, sem voru þeir Guðmundur og bróðir hans, Snorri. Þessa gömlu vini mína og sveitunga fékk ég til að leggja gjörva hönd á þessa íbúð. Segja má að æfingin skapi meistar- ann. Auk þess voru þeir vandir að virðingu sinni og skiluðu hverju verki með sóma. Guðmundur var fæddur undir heillastjörnu, því lífshlaup hans var í gegnum tíðina fellt og slétt, en fullyrða má að mesta hamingja í lífi hans hefur verið þegar hann eign- aðist lífsförunaut sinn, Sigríði Ant- onsdóttur. Hjónaband þeirra var farsælt og bar ríkulegan ávöxt því þau eignuðust fimm efnilega syni sem eru sjálfum sér og foreldrun- um til gleði og sóma. Framtaks- semin er á lágu plani hjá mér, því ég var búinn að hafa það í huga um lengri tíma að heimsækja þau hjón, Guðmund og Sigríði, sem aldrei varð af. Því eru þessi fátæklegu kveðjuorð fest á blað, með kærri þökk fyrir góð kynni á lífsleiðinni og ég veit að þú hefur fengið góða lendingu á hinni ókunnu strönd. Guð blessi þig og varðveiti. Um leið flyt ég Sigríði og sonum, svo og öðrum aðstandendum, innilegar samúðarkveðjur með þá vissu í huga að Hann sem öllu ræður varð- veitir sálu þessa meðbróður. Guðmundur Jóhannsson. í dag verður jarðsettur vinui' og félagi, Guðmundur I. Jónsson múr- ari. Guðmundur hefur átt við veik- indi að stríða undanfarin ár. Hon- um versnaði skyndilega í byrjun þessa árs svo augljóst virtist að hverju stefndi. Guðmundur hefur verið heilsuhraustur mestan hluta ævinnar og margur hefur orðið að lúta elli kerlingu áður en hann hef- ur náð 85 ár aldri. Fyrstu kynni mín af Guðmundi eru fremur óljós í minningunni. Þá var hann unglingur úti í Fljótum og ég barn, fimm ára gamall. Aðal- lega eru það angurværir tónar frá lítilli hnappaharmóniku sem Guð- mundur lék á af mikilli list að mér fannst, sem festust í undirmeðvit- undinni. Guðmundur gerðist ungur félagi í Ungmennafélagi Holtshrepps og var ritari á árunum 1933 og 1934, en um það leyti mun hann hafa flutt úr Fljótum og man ég ekki eftir honum þar í sveit fyrr en við vorum vinnufélagar við Skeiðsfoss- virkjun á árunum 1943-1945. Þá um haustið fluttum við nokkrir sem unnið höfðum við virkjunina til Reykjavíkur. Guðmundur var einn þeirra. Hann var svo heppinn að eiga móður og hennar fjölskyldu í Reykjavík sem hann gat búið hjá en við hinir þrír höfðum engan samastað þegar við komum til borgarinnar en vinnuna áttum við vísa. Guðmundur fylgdist með þessum húsnæðisraunum okkar og einn daginn færir hann okkur þau tíðindi að hugsanlega geti hann út- vegað okkur húsaskjól. Þetta reyndist vera skúr sem stóð á sjáv- arkampinum vestur í Selsvör, án lóðarréttinda og skorti raunar flest það sem kröfur má gera um hvað mannabústað varðar svo sem renn- andi vatn og hreinlætisaðstöðu. Þangað fluttum við þrír Fljóta- menn og þetta var okkar fyrsta heimili í Reykjavík. Enginn gerði kröfur varðandi eignarrétt sem hafði þann kost að við vorum ekki krafðir um húsaleigu. I norðanátt buldi brimaldan á þeirri hlið sem að sjónum sneri en það bárust hættur úr fleiri áttum. Nokkrum sinnum kom það fyrir að einkennis- klæddir menn kvöddu dyra á þeirri hlið sem sneri frá sjó og kynntu okkur stöðu okkar gagnvart rétt- vísinni og sú staða var vægast sagt ekki góð. Jafnvel svo að við gátum vænst þess að þetta heimili yrði horfið næsta kvöld þegar við kæm- um úr vinnu. Þetta var að sjálf- sögðu mikil reynsla fyrir unga sveitamenn en skúrinn stóð af sér mörg áhlaup og skýldi okkur til GUÐMUNDURI. JÓNSSON næsta hausts en þá hafði okkur tekist að útvega annað húsnæði. Síðan hefur hvílt ævintýraljómi yf- ir þessum stað og þar gerðust líka mörg ævintýri sem ekki verða sögð á þessum vettvangi. Það sem máli skiptir er að gerandinn að þessu Selsvararævintýri var Guðmundur Jónsson og tilgangurinn var að bjarga sveitungum sínum á örlaga- stundu og tókst það giftusamlega. Við Guðmundur hófum iðnnám 1946, hann í múraraiðn en ég valdi málarafagið og í Iðnskólanum vor- um við á svipuðum tíma. Á þessum árum var starfandi karlakór innan Iðnskólans undir dyggri stjórn Jóns Isleifssonar. Það ríkti áhugi og góð samstaða innan kórsins. Æft var prógramm sem flutt var í nær- liggjandi kaupstöðum utan Reykja- víkur og endaði með söng í Gamla- bíói, en stærsta verkefnið var að syngja á Iðnskólaþingi Norður- landa sem haldið var í Reykjavík vorið 1949. Við Guðmundur sung- um báðir í kómum. Hann hafi tæra tenórrödd og er margt söngfólk í hans fóðurætt. Að loknu námi í Iðn- skólanum tóku nokkrir af söngfé- lögunum sig saman um að endur- vekja Iðnaðarmannakórinn en sú tilraun rann út í sandinn einfald- lega vegna þess að enginn tími var aflögu fyrir svo tímafrekt frí- stundastarf sem söngur er ef ár- angur á að vera góður. Flestir voru búnir að stofna heimili og fjölskyldu sem gerði kröfur um húsnæði. Það var ærið verkefni og ekki tími fyrir leikara- skap. Um og eftir 1950 var farið að úthluta byggingarlóðum inni í Sogamýri í svokölluðu Smáíbúða- hverfi. Ekki þurfti að greiða nein gjöld við úthlutun sem þýddi að flestir voru gjaldgengir án tillits til hvað þeir ættu margar krónur í buddunni. Raunar finnst mér nú að þetta hverfi hafi verið hannað fyrir unga blanka iðnaðarmenn sem af fyllsta ábyrgðarleysi voru búnir að stofna heimili og farnir að eiga börn. Við Guðmundur tilheyrðum þessum hópi manna. Eftir króka- leiðum fengum við úthlutað lóðum við Sogaveg. Og nú fórum við að byggja á bjartsýninni einni en hún hefur aldrei verið viðurkenndur gjaldmiðill innan íbúðalánakerfis- ins. Guðmundur byggði sitt hús á Sogavegi 20 og þar hefur þeirra heimili verið síðan. Þar ólust upp fimm dugmiklir strákar sem allir eiga nú sínar fjölskyldur, fjórir þeirra eru búsettir á höfuðborgar- svæðinu en einn þeirra er bóndi og trésmiður, búsettur í Vindási í Landsveit. Heilbrigð og velgerð börn er sá mesti auður sem foreldr- um getur hlotnast í lífinu, það á við um þau Guðmund og Sigríði á Sogavegi 20 og það mun hún Sigga finna enn betur þegar hún er orðin ein á Sogaveginum. Guðmundur var geðþekkur mað- ur í viðmóti, traustur og raungóður. Hann hafði fastmótaða skapgerð og lífsstíl og var ekki líklegur til að láta aðra stjórna gerðum sínum. Guðmundur átti aldrei bíl þrátt fyrir að hann stundaði vinnu á ýms- um stöðum, oft fjarri heimili. Einu sinni spurði ég hann hvort hann ætlaði ekki að kaupa bíl. Svaraði hann kersknislega að sér þætti of vænt um lífið, hann vildi ekki stofna því í hættu með því að fara að keyra bíl. Jafnframt gaf hann fylli- lega í skyn að þetta mál þarfnaðist ekki frekari umræðu. Eins og fram hefur komið hér að framan hafa fjölskyldur okkar Guð- mundar átt margt sameiginlegt í lífshlaupinu. Þar hefur vinátta og tryggð setið í fyrirrúmi. Við viljum því á þessari stundu þakka sam- fylgdina, óskum Munda góðrar ferðar yfir vegamót þess óræða sem bíður okkar allra. Siggu óskum við alls góðs á því æviskeiði sem framundan er. Við verðum vonandi þátttakendur í því með sama hætti og áður. Börnum hennar fjölskyldum þein-a og öðru vina- og venslafólki óskum við velfarnaðar um langa framtíð. Guð blessi ykkur öll. Hjálmar Jónsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.