Morgunblaðið - 24.03.1999, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 24.03.1999, Qupperneq 54
54 MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1999 KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SÆVAR FRÍMANN SIGURGEIRSSON Dómkirkjan + Sævar Frímann Sigurgeirs- son fæddist í Reykjavík 4. september 1940. Hann lést á heimili sínu 23. febrúar síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Háteigskirkju 5. mars. Við höfðum heyrt af myndarleg- um ungum Húnvetningi sem væri að trúlofast einni af fallegu frænk- unum okkar á Hvammstanga, henni Marsý Dröfn. Mörgum árum seinna, er þau voru orðin ráðsett hjón með börn og bú og flutt til Reykjavíkur, kynntumst við þess- um manni, sem var hann Sævar Sigurgeirsson, sem nú er látinn eftir langvarandi veikindi. Hann kom þá til starfa við fyrir- tæki föður okkar sem bifreiðar- stjóri en þá hafði hann þegar mikla reynslu af akstri stórra bifreiða, jafnt sumar sem vetur. Sævar varð strax vinsæll og eft- irsóttur bifreiðarstjóri og átti mjög farsælan feril þau ár sem hann starfaði hjá fyrirtækinu. Oft HANNES J. MAGNÚSSON Vegna mistaka féll niður borði fyrir ofan grein Indriða Ulfssonar um Hannes J. Magnússon í Morgunblaðinu á sunnudag, þar sem fram átti að koma, að um ald- arminningu væri að ræða. Hlutað- eigendur eru beðnir afsökunar á þessum mistökum. var beðið um að hann kæmi aftur að ári þegar sami hópur ráðgerði næstu ferð. Hann Sævar var líka einstaklega hress og skemmtileg- ur og hafði sínar ákveðnu skoðanir á mönnum og málefnum. Seinna fór Sævar að stunda leigubílaakstur hér í borg en alltaf leit hann inn til okkar hér í Borg- artúnið af og til. Síðustu þrjú sum- ur hefur hann komið aftur til starfa hjá fyrirtækinu, því eins og hann sagði fannst honum svo gam- an að fara út á landsbyggðina. Síð- ustu tvær langferðimar með er- lenda ferðamenn fór hann sl. sum- ar og var það meira af vilja en mætti þar sem hann var þá að verða mikið veikur af krabbamein- inu sem hann hafði barist við svo hetjulega í mörg ár. Við systkinin og fjölskyldur okk- ar þökkum Sævari trygglyndi hans við okkur alla tíð og þökkum honum vel unnin störf. Marsý frænku, börnum, tengdabörnum og barnabömum sendum við inni- legar samúðarkveðjur. Einnig til föður hans, Sigurgeirs, og tengda- móður, Helgu. Hvfl í friði kæri vinur. Gunnar og Signý Kristín. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Safnaðarstarf Áskirkja. Starf fyrir 10-12 ára börn kl. 17. Föstumessa kl. 20.30. Árni Bergur Sigurbjörnsson. Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldr- aða kl. 13-17. Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Orgelleikur á undan. Léttur málsverður á kirkjuloftinu á eftir. Mæðrafundur kl. 14-15.30 í safnað- arheimilinu. Starf fyrir 10-12 ára börn kl. 17 í safnaðarheimilinu. Grensáskirkja. Samverustund eldri borgara kl. 14-16. Biblíulest- ur, samverustund, kaffiveitingar. TTT-starf (10-12 ára) kl. 16.30. Hallgrúnskirkja. Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10-12. Passíusálmalestur og orgelleikur kl. 12.15. Starf fyrir 9-10 ára kl. 16.30. Starf fyrir 11-12 ára kl. 18. Föstuguðsþjónusta kl. 20.30. Dr. theol. Sigurbjörn Einarsson bisk- up. Háteigskirkja. Mömmumorgunn kl. 10-12. Kvöldbænir og fyrirbæn- ir kl. 18. Langholtskirkja. Starf eldri borg- ara í dag kl. 13-17. Allir velkomnir. Passíusálmalestur og bænastund kl. 18. Laugarneskirkja. Fundur „Kirkjuprakkara“ (6-9 ára börn) kl. 14.30. Fundur TTT (10-12 ára) kl. 16. Fundur æskulýðsfélagsins (13-15 ára) kl. 20. Neskirkja. Mömmumorgunn kl. 10-12. Páskaföndur. Ungar mæður og feður velkomin. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 15-17. Umsjón Kristín Bögeskov, djákni. Kyrrðar- stund í kapellu kl. 20. Lestur, tón- list og bæn. Orgelleikur Reynir Jónasson. Prestur sr. Halldór Reynisson. Seltjarnarneskirkja. Kyrrðar- stund kl. 12. Passíusálmalestur, söngur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður í safnaðar- heimilinu. Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr- aðra, opið hús í dag kl. 13.30-16. Handavinna og spil. Fyrii'bæna- guðsþjónusta kl. 16. Bænarefnum er hægt að koma til presta safnað- arins. TTT í Ártúnsskóla kl. 16-17. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur málsverður í safnað- arheimilinu á eftir. „Kirkjuprakk- arar“ starf fyrir 7-9 ára börn kl. 16. TTT starf fyrir 10-12 ára kl. 17.15. Æskulýðsstarf á vegum KFUM og K og kirkjunnar kl. 20. Fella- og Hólakirkja. Helgistund í Gerðubergi á fimmtudögum kl. 10.30. Grafarvogskirkja. KFUK fyrh’ stúlkur 9-12 ára kl. 17.30-18.30‘. Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl. 16.30. Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára börnum í dag kl. 16.45-17.45 í safnaðarheimilinu Borgum. Starf á sama stað með 10-12 ára (TTT) kl. 17.45-18.45. Seljakirkja. Fyrirbænir og íhugun kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir vel- komnir. Tekið á móti fyrirbæna- efnum í kirkjunni og í síma 567 0110. Léttur kvöldverður að bænastund lokinni. Fundur Æsku- lýðsélagsins kl. 20. Vídalínskirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12. Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 14-16.30. Helgistund, spil og kaffi. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í hádegi í kirkjunni kl. 12-12.30. Æskulýðsstarf, eldri deild kl. 20-22 í minni Hásölum. Kl. 20-21.30 íhugun og samræður í safnaðarheimilinu í Hafn- arfjarðarkirkju. Leið- beinendur Ragnhild Han- sen og sr. Gunnþór Inga- son. Keflavíkurkirkja. Kirkj- an opnuð kl. 12. Kyrrðar- og bænastund í kirkjunni kl. 12.10. Samvera í kirkjulundi kl. 12.25, djáknasúpa, salat og brauð á vægu verði - allir aldurshópai'. Alfanám- skeið í Kirkjulundi kl. 19. Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 10 foreldramorgunn í safnað- arheimilinu. Samvera fyrir ung börn og heimavinnandi foreldra þeirra. Kl. 12.05 bænar- og kyrrð- arstund í hádegi. Tekur um 20 mín. en gefur mikið og skiptir máli. Prestarnir taka á móti fyrir- bænum í síma eða á staðnum. Kl. 17.30 uppskeru- og fjölskylduhá- tíð TTT og Kirkjuprakkara í safn- aðarheimilinu. Fjölskyldur og vin- ir krakkanna eru sérstaklega hvattir til að mæta. Kl. 20.30 Bibl- íulestur og umræður um Jóhann- esarguðspjall í KFUM & K hús- inu. Kletturinn, kristið samfélag. Bænastund kl. 20. Allir velkomn- ir. Hvítasunnukirkjan Ffladelfía. Oll dagskrá fellur niður í kvöld. Lágafellskirkja. Kyrrðar- og bænastundir alla fímmtudaga kl. 18 í vetur. Hólaneskirkja, Skagaströnd. Mömmumorgunn í Fellsborg kl. 10. Ytri-Njarðvíkurkirkja. Spila- kvöld aldraðra 25. mars kl. 20. ATVIIMIMUAUGLÝSIIMGA Grunnskólakennarar sérkennarar þroskaþjálfar Kennara vantar að Borgarhólsskóla, Húsavík næsta skólaár á yngsta stig, miðstig og unglingastig. Raungreinakennara vantar í fullt starf við skól- ann. Nývel búin raungreinastofa. Á unglingastig vantar kennara í ensku, dönsku, íslensku, samfélagsfræði og tölvukennslu og fleira. Sérkennara vantar í fullt starf og einnig þroska- þjálfa til starfa með fötluðum nemendum. 50% starf umsjónarmanns heilsdagsskóla Borgarhólsskóla er laust til umsóknar næsta skólaár. Reynt er að útvega starfsfólki niðurgreitt hús- næði. Samið hefur verið um sérkjör við hús- víska kennara. Styrkur vegna búslóðarflutninga er veittur. Borgarhólsskóli er einsetinn, heildstæður, grunnskóli að hluta til í nýjum, glæsilegum húsakynnum. Lögð er áhersla á samvinnu og markvisst þróunarstarf. Nánari upplýsingar veita Halldór Valdimars- son, skólastjóri, vs. 464 1660, hs. 464 1974 og Gísli Halldórsson, aðstoðarskólastjóri, vs. 4641660, hs. 464 1631. Umsóknarfrestur ertil 14. apríl og sendist til Halldórs Valdimarssonar, skólastjóra Borgar- hólsskóla, Skólagarði 1, 640 Húsavík. Utanríkisráðuneytið Þýðandi Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins óskar eftir að ráða þýðanda tímabundið til starfa við þýðingar á réttarreglum Evrópusambandsins. Krafist er háskólamenntunar og góðrar tungu- máiakunnáttu, einkum í ensku, og er staðgóð þekking á íslenskri tungu áskilin. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi reynslu af þýðingum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjár- málaráðherra og Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins. Nánari upplýsingar veitir Hildur Pétursdóttir, sími 560 9943, netfang hildurp@ees.is. Umsóknir er tilgreini menntun, fyrri störf og minnst einn meðmælanda, þurfa að hafa borist Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins, Rauð- arárstíg 25,150 Reykjavík, eigi síðar en 9. apríl næstkomandi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð- un um ráðningu hefur verið tekin. Litið verður svo á að umsóknir gildi í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur, nema annað sé sér- staklega tekið fram. Tölvuunnendur 20+ Spennandi atvinnutækifæri á netinu. Bónusar og ferðalög. Upplýsingar gefur Díana í síma 897 6304. Bessastaðahreppur Skólastjóri Vegna leyfis starfandi skólastjóra Álftanesskóla í Bessastaðahreppi, óskast skólastjóri til starfa í eitt ár frá og með 1. ágúst 1999. Reynsla við skólastjórnun er skilyrði. Umsóknum skal fylgja skrifleg umsögn frá fyrri og núverandi vinnuveitendum ásamt staðfest- ingu á menntun og starfsferli. Upplýsingar veita formaður skólanefndar, Snorri Finnlaugsson í síma 565 3225/894 3166 og skólastjóri, Erla Guðjónsdóttir, sími 565 3662/891 6590. Umsóknarfresturertil 22. apríl og skal skila umsóknum á skrifstofu Bessastaðahrepps, Bjarnastöðum, 225 Bessastaðahreppi. Skólanefnd Bessastaðahrepps. Símasvörun — símasaia Við ætlum að ráða starfskraft í fullt starf við sölu auglýsinga í síma og símasvörun fyrir mörg fyrirtæki. Starfið er unnið í dagvinnu og er framtíðarstarf á reyklausum, jákvæðum vinnustað. Reynsla af símasölu erskilyrði. Um- sóknirsendist í rafpósti til korund@korund.is eða í símbréfi á 562 9165. Frekari upplýsingar er að finna á slóðinni http://korund.is. Kórund ehf. - Markaðsdeild, Bella Símamær. Þverholti 15, Reykjavík.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.