Morgunblaðið - 19.05.1999, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fyrirlestur
um þriðju
leiðina í
stjórnmálum
Franskir fslandsvinir skipuleggja siglingakeppni til fslands sumarið 2000
Fjórtán skútur þegar
skráðar til þátttöku
Morgunblaðið/Kristinn
YANN Huchet og Dominique Taillefer voru staddir hérlendis um helg-
ina til þess að skipuleggja siglingakeppni á milli borgarinnar Paimpol
í Frakklandi og Reykjavíkur sumarið 2000.
PRÓFESSOR Anthony Giddens,
rektor London School of
Eeonomics and Political Science
(LSE), flytur opinberan fyrirlestur
í boði rektors Háskóla Islands á
morgun, fimmtudag, kl. 16 í stofu
101 í Odda. Fyrirlesturinn nefnist
„Third Way Politics“ (Priðja leiðin
í stjórnmálum) og verður fluttur á
ensku.
I fyrirlestrinum mun Giddens
byggja á kenningu sem hann setti
fram fyrir skömmu í bók sinni The
Third Way: The Reneal of Social
Democracy og lýsir „þriðju leið-
inni“ í stjórnmálum, handan öfga
hreinnar markaðshyggju og
hreinnar félagshyggju. I bókinni
sýnir Giddens fram á að þessar
tvær meginstefnur í stjórnmálum
20. aldar hafi runnið sitt skeið og
færir rök fyrir því að „þriðja leið-
in“ í stjórnmálum samtímans verði
að stefna að því að samþætta fé-
lagslegt réttlæti og hnattvætt
markaðshagkerfi.
Prófessor Anthony Giddens er í
röð fremstu félagsvísindamanna í
heiminum um þessar mundir.
Hann er höfundur um 30 fræði-
bóka um þjóðfélagsfræðileg efni
sem hafa verið birtar á 22 tungu-
málum. Giddens er einn af ráðgjöf-
um Tonys Blair, forsætisráðheira
Bretlands, og ýmsir aðrir stjóm-
málamenn hafa leitað fanga í kenn-
ingum hans, þ.ám. Bill Clinton,
forseti Bandaríkjanna. Prófessor
Giddens varð rektor LSE í árs-
byrjun 1997. Þar áður var hann
prófessor við Cambridge-háskóla
og félagi í King’s College. Fræðast
má nánar um feril hans og verk á
vefsíðunni www.lse.ac.uk/gidd-
ens/factfíle.htm
SIGLINGAKEPPNI á milli Frakk-
lands og íslands er nú í undirbún-
ingi hjá frönskum Islandsvinum frá
borginni Paimpol á Bretagne-skaga
í Frakklandi. Fjórtán skútur eru
skráðar í keppnina nú þegar og eru
nokkrir til viðbótar að undirbúa um-
sókn. Skipuleggjendur keppninnar
vænta þess að u.þ.b. 30 bátar taki
þátt í keppninni og um 300 manns
komi til Islands í tengslum við hana.
Keppnin hefur verið samþykkt af
Franska sportsiglingaráðinu og fel-
ur það í sér viðurkenningu á gæðum
hennar. Yann Huchet og Dominique
Taillefer frá ADEPAR-samtökun-
um (Assqciation pour la Développ-
ement d’Economique de Paimpol et
de sa Région) í Frakklandi sjá um
að skipuleggja keppnina og voru
þeir staddir hérlendis um helgina
vegna þessa. Að sögn Huchet og
Taillefer er Paimpol í daglegu tali
kölluð borg íslendinganna í Frakk-
landi en sjómenn frá borginni reru
á Islandsmið forðum daga. Þeir
segja að Paimpol hafi sterk tengsl
við Island og dæmi séu um að götu-
nöfn séu á íslensku auk þess sem
margsinnis hafi verið haldin
svokölluð sjómannahátíð, til minn-
ingar um sjómennina sem fóru til
íslands. Ennfremur segja þeir að
með keppninni vilji þeir ekki ein-
göngu minnast fornra tengsla land-
anna heldur vilji þeir einnig styrkja
menningarleg og efnahagsleg
tengsl borgarinnar við Island.
Keppnin hefst með brottför
skútnanna frá Paimpol 18. júní árið
2000 og er reiknað með að siglingin
til íslands taki milli átta til tíu daga.
Keppendur munu dvelja í Reykja-
vík um viku skeið og er ráðgert að
fara með þá í skoðunarferðir um
landið á þeim tíma. Að því loknu
munu keppendur sigla aftur til
Frakklands.
Island í tísku meðai Frakka
Huchet og Taillefer segja að mik-
ill áhugi sé fyrir siglingakeppnum af
þessu tagi í Frakklandi. Mikið sé um
að slíkar keppnir fari frá Frakklandi
og yfir Atlantshafið, eða suður á
bóginn. Leiðin til íslands sé hins
vegar óvenjuleg og nýstárleg. „Lönd
í norðri eru mjög vinsælir áfanga-
staðir meðal franskra ferðamanna
þessa stundina og satt best að segja
er Island í tísku núna. Okkur hefur
borist fjöldi fyrirspuma um þessa
keppni og fólk sem ekki tekur þátt í
henni óskar þess að koma til íslands
í tengslum við hana. Með því að
halda slíka keppni erum við líka að
anna eftirspum þess hóps ferða-
manna,“ segir Huchet.
Skipuleggjendur keppninnar
leggja mikla áherslu á að vandað sé
til alls undirbúnings. Þeir vilja að
keppendur og aðrir sem koma til
landsins í tengslum við keppnina
verði eins ánægðh' og unnt er. Þeir
vonast til að ef keppnin heppnist vel
geti hún orðið viðburður sem hald-
inn er annað hvert ár. Um þessar
mundh' vinna þeir einnig að undir-
búningi að því að kynna keppnina
fyrir frönskum fjölmiðlum, en þeir
era sannfærðir um að hún fái mikla
umfjöllun í frönskum fjölmiðlum.
Reikna þeir jafnvel með að einhver
af frönsku sjónvarpsstöðvunum
muni fylgjast með keppninni. Þeir
leggja áherslu á að svona keppni
geti orðið mjög góð kynning fyrir
Island, sérstaklega ef vel tekst til í
fyrsta sinn og keppnin verði haldin
reglulega í framtíðinni.
Vonast eftir íslenskum
keppendum
í ferð sinni hingað til lands
ræddu Huchet og Taillefer við for-
svarsmenn Reykjavíkur menning-
arborgar Evrópu árið 2000 og verð-
ur keppnin hluti af dagskrá hennar.
Þá er hugsanlegt að keppnin verði í
tengslum við sýningu um franska
sjómenn hér á landi sem opnuð
verður árið 2000.
Keppnin er fyrir áhugafólk um
siglingar. Að minnsta kosti fjórir
áhafnarmeðlimir eru á hverri skútu
sem era á bilinu 12-20 metra langar.
Vonast er til þess að íslenskir kepp-
endur taki þátt í henni og er sigl-
ingafélagið Brokey í samstarfí við
Frakkana.
Þorgeir Þorgeirson fær
nafni sínu breytt í Þjóðskrá
BOÐSENT umslag stflað á Þor-
geir Þorgeirson rithöfund barst
í póstkassann á Bókhlöðustíg 6b
um þrjúleytið föstudaginn 6.
maí. I umslaginu var orðsending
frá Davíð Oddssyni, ráðherra
Hagstofu íslands, um að verða
ætti við ósk Þorgeirs um að rit-
hætti kenninafns hans í þjóðskrá
verði breytt úr Þorgeirsson í
Þorgeirson. Þessi breyting var
gerð sex árum og tíu mánuðum
eftir að Þorgeir fyrst krafðist
þess að hún yrði gerð. Hann
hafði á þeim tíma ekki neytt
kosningaréttar síns, en þar sem
breytingin var gerð daginn fyrir
kjördag gat hann kosið í síðustu
Alþingiskosningum.
„Persónulega hef ég fengið
aftur full réttindi," sagði Þor-
geir í samtali við Morgunblaðið í
gær. „En hitt er annað mál að
þeir vankantar á kerfinu og það
miðaldafyrirkomulag, sem er í
kringum þessi mannanafnalög í
vörslu Þjóðskrár, er óleyst eftir
sem áður. Hagstofan hefur ekki
bara ráðuneytisvald, hún hefur
kansellívald eins og var héma í
konungsríki. Hún setur lög,
ákveður hegningar og framfylg-
ir þeim.“
Þjóðin þrautpínd
um einkamál sín
Þorgeir sagði að þjóðin væri
nánast þrautpínd undir þessum
lögum um einkamál sfn án þess
að aðhafast. „Þetta er hinn sanni
hundatamningaskóli, sem allir
em aldir upp við, og þeir, sem
hafa farið af stað
hafa flestir gefíst
upp af því að það er
svo erfítt við það að
eiga,“ sagði hann.
„Þetta er absolútt
vald, sem þessi stofn-
un hefur.“
I orðscndingunni
frá Davíð Oddssyni
til Hallgríms Snorra-
sonar, ráðuneytis-
stjóra Hagstofunnar,
dagsettri 6. maí, er
vitnað til þess að
samkvæmt manna-
nafnalögum sé Hag-
stofunni heimilt að
breyta ritun nafna í
þjóðskrá án þess að um eigin-
lega nafnbreytingu sé að ræða:
„Osk Þorgeirs lýtur að rithætti
kenninafns hans. I lögunum er
kveðið á um að menn skulu
kenna sig til föður eða móður í
eignarfalli. Nú er það svo að um
aldir hefur tíðkast að vikið hef-
ur verið frá þessari reglu með
ýmsu móti og hafa menn t.d.
kallað þann hátt afbrigðilegt
eignarfall. Þá eru margir sem
bera ættamöfn í þjóðskrá með
sama hætti og ósk Þorgeirs lýt-
ur að, hvort sem þau ættarnöfn
eru fengin með leyfisbréfi á sín-
um tíma eða áunnin öðmvísi og
teljast því hefðuð."
Ekki jafnræði með borgumnum
í bréfí Davíðs er siðan sagt að
í fímm ár hafi Þorgeir reynt að
fá úrlausn í þessu máli fyrir
stjórnvöldum án ár-
angurs. Þetta hafí
orðið til þess að hann
hafi ekki neytt kosn-
ingaréttar síns í þrjú
síðustu skipti og
veigrað sér við því
að nýta sér heil-
brigðisþjónustu og
reyndar þjónustu al-
mennt, þar sem nafn
hans komi fram eins
og það sé ritað í
þjóðskrá.
„Það er ekki óum-
deilt málfræðilega
hvernig skýra beri
rithátt kenninafnsins
eins og Þorgeir ósk-
ar eftir að hann verði og rithátt-
urinn er þekktur í formi ættar-
nafns hjá mörgum einstakling-
um í þjóðskrá,“ segir í bréfí ráð-
herra. „Það er því ekki jafnræði
með borgurunum hvað þetta
varðar.“
í bréfinu er tekið fram að um-
boðsmaður Alþingis hafí í áliti
bent Þorgeiri á að hann geti
leitað réttar síns fyrir dómstól-
um og reynt þannig að komast
að því hvort lagasetning Alþing-
is um mannanöfn sé að þessu
leyti í samræmi við sljórnarskrá
íslands og alþjóðasamninga um
mannréttindi: „Eins og þetta
mál er sérstaklega vaxið þykir
mér ekki rétt að knýja manninn
til þess að leggja mál sitt fyrir
dómstóla. Að vel ígrunduðu máli
og með almennri skírskotun til
grundvallarmannréttinda um
jafnræði þegnanna fyrir lögun-
um hef ég komist að þeirri nið-
urstöðu að Þorgeir skuli njóta
vafans um hvernig meta skuli
málfræðilega ósk hans um ritun
kenninafnsins og heimila honum
breytinguna með því að túlka
lögin rúmt.“
Hafði notað Þorgeirson í fímm
ár þegar því var breytt
Þorgeir sagði að hann hefði
verið búinn að nota Þorgeirson
í fímm ár þegar því hefði verið
kippt til baka. Þorgeir leit svo
á að þar með hefði hann verið
sviptur kosningarétti og kjör-
gengi þar sem hann væri ekki
lengur skráður með sínu rétt-
mæta nafni í þjóðskrá. Á
heimasíðu sinni (centr-
um.is/~leshus) bendir Þorgeir
á að samkvæmt barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna séu börn
ekki eign foreldra sinna og það
sé ein forsenda þess að hann
hafni eignarfallinu í kenninafn-
inu.
Þorgeir sagði að vissulega
væri komin lausn á hans mál-
um, en hann væri ekki sáttur
við að það gerðist með sama
hætti og með tilskipun. Eftir að
hafa átt í máli sem þessu í hálf-
an áratug vildi hann halda
áfram þar til raunveruleg leið-
rétting fengist. Ef málið væri
að stjórnvöld væru orðin leið á
honum og vildu kaupa sér frið
dygði þetta ekki til: „Þeir
verða að borga meira fyrir
hann.“
Þorgeir
Þorgeirson
Ræddu
Kosovo
og Evr-
ópumál
UTANRÍKISRÁðHERRA
Halldór Ásgrímsson átti á mið-
vikudagskvöld fund í Brussel
með Joyce Quin, Evrópuráð-
herra Bretlands. Ráðherrar
ræddu stöðu mála í Kosovo, af-
stöðu Rússlands til málsins og
mögulegar aðgerðir Evrópu-
ríkja til að stuðla að endurkomu
Kosovo-Albana til sinna fyrri
heimkynna á ný. Fyrr um dag-
inn höfðu utanríkisráðherrar
Evrópusambandsins fjallað um
þessi mál.
Utanríkisráðherrann og
Evrópuráðherrann ræddu
einnig nánari tengsl Vestur-
Evrópusambandsins við Evr-
ópusambandið en þessi tengsl
eru á dagskrá leiðtogafundar
ESB í Köln 2.-3. júní nk. Hall-
dór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra lagði áherslu á gagnsemi
af aukaaðild Islands að VES og
ítrekaði að breyting á stofnana-
uppbyggingu mætti ekki verða
til þess að skerða þátttöku ís-
lands.
Utanríkisráðherra skýrði af-
stöðu ríkisstjórnar íslands til
Evrópusambandsins og lagði
áherslu á nauðsynleg og stöðug
skoðanaskipti íslenskra og
breskra stjórnvalda um stöðu
og þróun einstakra mála innan
Evrópusambandsins, einkum
og sér í lagi málefni er vai-ða
hagsmuni íslands svo sem sjáv-
arútvegsstefnu ESB. Breski
ráðherrann kvaðst telja slík
skoðanaskipti mjög jákvæð og
fýsileg.