Morgunblaðið - 19.05.1999, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
frá stj drnarmy ndun
Ehud Barak vann yfir-
burðasigur í forsætis-
ráðherrakosningunum í
Israel. Sigrún Birna
Birnisdóttir er í Israel
og segir að stjórnar-
myndun gæti þó
reynst flókin.
EHUD Barak, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, vann stórsigur í
kosningunum sem fram fóru í Isra-
el á mánudag. Barak hlaut 56% at-
kvæða í kosningunum en andstæð-
ingur hans, Benjamin Netanyahu,
fráfarandi forsætisráðherra og for-
maður Likud-flokksins, einungis
44%. Þá hlaut Verkamannaflokkur-
inn 27 af 120 þingsætum en Likud-
flokkurinn einungis 19 þingsæti en
það er stærsti ósigur flokksins frá
árinu 1961.
Úrslitin eru greinilega mikið
áfall fyrir Benjamin Netanyahu,
sem hefur verið sakaður um að
kljúfa Likud-flokkinn á sama tíma
og Barak hefur tekist að sameina
Verkamannaflokkinn, enda til-
kynnti Netanyahu um afsögn sína
sem leiðtogi Likud-flokksins, innan
hálftíma frá því útgönguspár lágu
fyrir. Með afsagnarræðu sinni, sem
þótti óvenju göfugmannleg, tókst
Netanyahu þó að stela senunni og
jafnvel að endui'vinna eitthvað af
þeirri virðingu sem hann hefur
greinilega tapað á kjörtímabilinu.
Þá ýttu sérstakar þakkir hans til
Ariels Sharons utanríkisráðherra
undir vangaveltur þess efnis að
Sharon ætlaði sér leiðtogaembætti
flokksins og Limor Livnat sam-
skiptaráðherra ýtti síðan enn frek-
ar undir slíkar vangaveltur með því
að leggja til að Sharon tæki við for-
ystu flokksins þar til annað yrði
ákveðið.
Nýstofnaður Miðjuflokkur
Yitzhaks Mordechais, sem í upp-
hafi kosningabaráttunnar var spáð
allt að 12 þingsætum, hlaut einung-
is sex þingsæti í kosningunum.
Niðurstöður kosninganna verða því
að teljast mikill ósigur fyrir Mor-
dechai þótt sýnt hafi verið fram á
að hann hafi lagt manna mest af
mörkum til þess að koma Netanya-
hu frá völdum.
Shas, flokkur heittrúaðra gyð-
inga af austrænum uppruna, er
hins vegar óumdeildur sigurvegari
þingkosninganna. Flokkurinn sem
Stórsigur Baraks
Barak Netanyahu _
Verkamannaflokknum Likud afp=
Reuters
Benjamin Netanyahu.
NYKJORIÐ ÞING ISRAELS
Miðjufl.
\
Shinui
Ein þjóð
Meretz-
Hadass
(kommúnistar)
Samein.
arab. fl—x 1
Fl. verka- ^
lýðshr. — 2
AFS=.--------
Verkam.
flokkur
Þingkosningar
17. maí 1999
r Israel Ba'alya
7 17—Shas
Flokkur
— strangtrúaðra
4 — l'srael Beiteinu
Likúd
NRP-Flokkur
5 —trúaðra
3 — Þjóðar-
einingarfl.
lýtur forystu Aryeh Deris, sem ný-
lega var dæmdur til fjögurra ára
fangelsisvistar fyiir spillingu, jók
fylgi sitt um 70% frá síðustu kosn-
ingum og hlaut 17 þingsæti. Aukið
fylgi flokksins er fyrst og fremst
rakið til fylgistaps Likud-flokksins
en forsvarsmenn Shas halda því
einnig fram að áróður Shinui-
flokksins, sem berst gegn áhrifum
strangtrúaðra, hafí haft öfug áhrif
og þannig stuðlað að velgengni
flokksins. Shinui verður hins vegar
einnig að teljast til sigurvegara
kosninganna þar sem hann hlaut 6
þingsæti eftir að hafa komið ákaf-
lega illa út úr skoðanakönnunum í
upphafi kosningabaráttunnar.
Þá hlaut vinstriflokkurinn Mer-
etz níu þingsæti, ísrael Ba’alya,
stærsti flokkur rússneskra inn-
flytjenda, 7 þingsæti og Israel Bei-
teinu, flokkur rússneskra innflytj-
enda sem opinberlega studdi Net-
anyahu, fjögur þingsæti. NRP,
flokkur trúaðra og UTJ, flokkur
strangtrúaðra, hlutu hvor um sig
fimm þingsæti. Þjóðareiningar-
til öryggissjónarmiða
Fréttum af glæsilegum sigiá
Baraks var víða tekið með létti og
töluverðri eftiivæntingu. Þrátt fyr-
ir að Barak hafi verið ákaflega var-
kár í yfirlýsingum sínum í kosn-
ingabaráttunni og fremur hafi ver-
ið dregin upp mynd af honum sem
harðjaxli en friðarsinna, eygja
menn nú von um að friðarferlið við
Palestínumenn verði endurvakið,
enda kvaðst Barak í sigurræðu
sinni stefna á endurreisn „friðar-
ferlis sem tæki mið af öryggissjón-
armiðum“. Þá lýsti hann því yfir er
úrslit lágu fyrir í gærmorgun að
hann stefndi að því að kalla herlið
Israela heim frá Líbanon innan
eins árs en fréttaskýrendur telja
að hann muni ekki standa að brott-
flutningi Israelshers frá Líbanon
án þess að friðarsamningar við
Sýrlendinga liggi fyrir.
Þrátt fyrir glæstan sigur Baraks
og sterkari stöðu vinstri manna á
ísraelska þinginu en sést hefur í
áraraðir gæti stjórnarmyndun þó
reynst honum erfið. Fyrir kosning-
amar hafði hann marglýst því yfir
að hann vildi ná víðtækri sátt í
samfélaginu og mynda ríkisstjórn
með sterkum meirihluta. Nú liggur
hins vegar fyrir að slíkt er vart
mögulegt án þátttöku araba, Shas
eða Likud-flokksins.
Jafnvel þó Deri hafi látið af for-
ystu þingflokks Shas í gærkvöldi
og að það ætti að liðka fyrir þátt-
töku Shas í stjórnarmyndun er
ljóst að hugsanlegt samstarf við
Shas muni kosta vinstri menn
EHUD Barak, nýkjörinn forsætisráðherra ísraels, hefur m.a. sagst muna hefja friðarviðræður við Palestínumenn að nýju.
Keuters
Strangtrúaðir ótvíræðir sigurvegarar kosninganna f fsrael
Erfítt að útiloka Shas
flokkurinn, undir forystu Benny
Begins, og kommúnistaflokkurinn,
Hadass, hlutu þrjú þingsæti hvor
en flokkur verkalýðshreyfingarinn-
ar tvö þingsæti. Þá hlutu tveir
helstu flokkar araba fjögur og tvö
þingsæti.
Stefnir á friðarferli með tilliti
Sigurinn fremur rakinn
til óvinsælda Netanya-
hus en vinsælda Baraks
Tel Aviv. Morgunblaðið.
EHUD Barak, formaður Verkamanna-
flokksins og nýkjörinn forsætisráðherra
Israeis, hefur lagt á það áherslu í kosn-
ingabaráttu sinni að sameina þjóðina. Þá
hefur hann lofað átaki í efnahagsmálum
og iýst yfír vilja til að kalla herlið ísraela
heim frá Libanon og að hefja friðarvið-
ræður við Palestínumenn að nýju.
Þrátt fyrir að vinstri mönnum hafi létt
ákaflega eftir úrslit kosninganna og
margir bindi miklar vonir við kjör Baraks
í embætti forsætisráðherra er langt frá
því að allir kjósendur Baraks treysti hon-
um. þannig hafa margir vinstri menn
fremur fagnað falli Netanyahus en sigri
Baraks sem þykir hafa sýnt svo mikla var-
kárni í nýafstaðinni kosningabaráttu að
mörgum Israelum finnst þeir hafa keypt
köttinn í sekknum er þeir kusu hann sem
forsætisráðherra.
Barak er fæddur og uppalinn á
samyrkjubúinu Kibbutz Mishmar Hashar-
on árið 1942. Hann gekk í herinn árið
1959 þar sem hann þjónaði i hinum ýmsu
sérsveitum til ársins 1982 en þá var hann
gerður að yfirmanni skipulagsdeildar
hersins og síðan að yfírmanni leyniþjón-
ustunar. Arið 1991 varð hann æðsti yfír-
maður herafians og kom sem slíkur að
friðarsamningum við Jórdani og Palest-
inumenn. í kjölfarið var hann skipaður
innanríkisráðherra í ríkisstjórn Yitzhaks
Rabins og síðar utanríkisráðherra í ríkis-
syóm Shimonar Peresar.
Barak felldi siðan Peres í kosningum til
formanns Verkamannaflokksins árið 1997
og er hermennskuímynd hans talin hafa
átt stóran þátt í sigri hans. Þá ýtti það
mjög undir hetjuímynd Baraks er hann
var nýlega hreinsaður af ásökunum um að
hafa forðað sér af vettvangi í stað þess að
veita særðum hermönnum lið eftir að
hafa, sem yfirmaður herafians, orðið vitni
að slysi við heræfíngar.
Þá hafa stuðningsmenn Baraks bent á
að herkænska hans hafi ekki einungis bor-
ið ríkulegan ávöxt í kosningunum á mánu-
dag heldur hafi hann einnig náð undra-
verðum árangri innan Verkamannafiokks-
ins. Flokkurinn hafi verið sem höfuðlaus
her eftir morðið á Rabin og ósigur Peres-
ar í kosningunum árið 1996 og Barak hafi
tekist á skömmum tíma að sameina hann
undir sína stjóm. Stjórnmálakænska
Baraks getur þó ekki talist óbrigðul enda
er hann talinn hafa átt sinn þátt f ósigri
Peresar í forsætisráðherrakosningunum
árið 1996, er hann lagði á ráðin um hern-
aðaraðgerðina „þrúgur reiðinnar" sem
kostaði hundruð óbreyttra borgara í Lí-
banon lífið.
Flestir munu þó sammála um að Barak,
sem hefur B.Sc. gráðu í eðlis- og stærð-
fræði og M.Sc. gráðu í kerfisfræði, sé af-
burðagáfaður. Hann er hins vegar einnig
sagður hrokafullur og tortrygginn og þyk-
ir hafa sýnt ákveðna einræðistilburði frá
því hann tók við stjórn Verkamanna-
flokksins. Þannig hafa vinir hans og
stuðningsmenn verið skipaðir í trúnaðar-
stöður innan flokksins á sama tíma og
Peres, öðrum manni á lista flokksins, og
öðrum fiokksmeðlimum hefur verið ýtt til
hliðar.
'iy ííiök *V.an | .íí^ílujg