Morgunblaðið - 19.05.1999, Qupperneq 28
28 MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Byssumað-
ur finnst
látinn
Lúxemborg. AFP.
ÞÝZKUR byssumaður, sem hafði
verið á flótta undan þýzku og
frönsku lögreglunni frá því um
helgina, sakaður um að hafa skotið
fimm manns til bana, fannst látinn í
Lúxemborg í gær, að því er emb-
ættismenn í Lúx-
emborg greindu
fi-á. Mun hann
hafa framið sjálfs-
morð.
Samkvæmt
upplýsingum sak-
sóknaraskrifstof-
unnar í Lúxem-
borg fannst mað-
urinn, Gunter
Hermann Ewen,
andaður á hótelherbergi í Strassen,
einu úthverfa Lúxemborgar. I tvo
sólarhringa höfðu herskarar lög-
reglumanna kembt í gegn um skógi
vaxið landsvæði á mótum Þýzka-
lands, Frakklands og Lúxemborgar
í leit að Ewen, sem talinn er hafa
skotið fjóra aðfaranótt sunnudags í
bænum Dillingen í Saarlandi. Að
því loknu hafi hann ekið yfir landa-
mærin til Frakklands og skotið þar,
í bænum Sierck-les-Bains, einn til
viðbótar.
Hann flúði í stolnum bíl, sem
fannst yfirgefinn við Montenach,
þrjá km frá Sierck-les-Bains, en af
því ályktaði lögreglan að Ewen
væri enn þar á svæðinu.
Talsmaður saksóknara í Saar-
briicken, höfuðborg Saarlands,
sagði líkur benda til að ástæðu
morðanna væri að leita í hefndar-
fýsn. Einn þeirra sem Ewen skaut
fyrst var Frakki, sem hafði af og til
starfað sem uppljóstrari iyrir lög-
regluna. Mun hann hafa ljóstrað
því upp, að Ewen hefði staðið á bak
við röð innbrota á síðasta ári.
Giinter Her-
mann Ewen.
Stuðningur við Sergej Stepashín eykst
Ovissa um heilsu
Borísar Jeltsíns
Stepashín varar
þingmenn við
Moskvu. Reuters, AFP.
ÝMISLEGT þótti benda til þess í
gær að dúman, neðri deild rússneska
þingsins, myndi samþykkja tilnefn-
ingu Sergejs Stepashíns í embætti
forsætisráðherra í atkvæðagreiðslu
sem fram fer í dag. Óvissa var um
heilsu Borís Jeltsíns Rússlandsfor-
seta sem mætti ekki á fund með for-
sætisráðherra Spánar sem ráðgerð-
ur var í gær. Talsmaður spænsku
stjómarinnar sagði að Jeltsín væri
með lungnakvef en það var ekki
staðfest í Kreml.
Jeltsín olli miklu uppnámi í
dúmunni þegar hann vék Jevgení
Prímakov úr embætti forsætisráð-
herra og tilnefndi Stepashín í emb-
ættið í vikunni sem leið. Andstæð-
ingar Jeltsíns urðu ókvæða við brott-
vikninguna og hótuðu að hafna
Stepashín þótt það yrði til þess að
Jeltsín fengi vald til að leysa upp
þingið og boða til kosninga innan
þriggja mánaða.
Dregið hefur þó úr ólgunni eftir að
dúman hafnaði tillögu um að Jeltsín
yrði ákærður til embættismissis.
Stepashín ræddi í gær við forystu-
menn nokkurra þingflokka, sem eru
taldir líklegir til að samþykkja til-
nefninguna til að afstýra því að þing-
ið verði leyst upp. Forsætisráðherra-
efnið hefur tryggt sér stuðning mið-
flokks Níkolajs Ryzhkovs (NDR) og
talið er að flokkur þjóðemissinnans
Vladímírs Zhírínovskís og frjálslynd-
Reuters
Sergej Stepashín.
ir þingmenn samþykki einnig til-
nefninguna.
Kommúnistar og bandamenn
þeirra, stærsta fylkingin í dúmunni,
höfðu hins vegar ekki kynnt afstöðu
sína í málinu í gær. Níkolaj Kharít-
onov, leiðtogi Bændaflokksins, sem
er hallur undir kommúnista, sagði þó
að miklar líkur væru á því að tilnefn-
ingin yrði samþykkt.
„Hann ræddi öll þau mál sem við
höfum áhyggjur af,“ sagði Kharít-
onov eftir fund með Stepashín.
Ryzhkov kvaðst telja að margir
þingmenn styddu Stepashín til að
koma í veg fyrir pólitíska óvissu í
landinu og Vladímír Lúkin, einn af
forystumönnum fijálslynda flokksins
Jabloko, tók í sama streng.
Stepashín hótar
dúmunni uppgjöri
Stepashín varaði rússnesku þing-
mennina við því að hann myndi
krefjast atkvæðagreiðslu um tillögu
þess efnis að dúman lýsti yfir trausti
á stjórninni ef þingið hafnaði lögum,
sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
beitti sér fyrir í viðræðum um frek-
ari lán til Rússa.
Verði slík trauststillaga felld fær
forsetinn viku frest til að víkja
stjóminni frá eða leysa þingið upp
og boða til kosninga innan þriggja
mánaða.
Stepashín ávarpaði efri deild
þingsins í fyrradag og hét því að
skera upp herör gegn glæpum og
spillingu í landinu. Hann lagði enn-
fremur áherslu á mikilvægi þess að
tryggja Rússum ný lán frá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum.
Jeltsín með lungnakvef?
Talsmaður spænsku stjómarinnar
sagði í gær að Jeltsín hefði ekki mætt
á fund með Jose Maria Aznar, forsæt-
isráðherra Spánar, sem er í Moskvu,
en rætt við hann í síma. „Forsetinn á
við veikindi að stríða. Hann er með
lungnakvef og er í rúminu.“
Fjölmiðlafulltrúi Jeltsíns, Dmitrí
Jakúshín, vildi þó hvorki játa þessu
né neita í samtali við fréttaritara
Reuters. Rússneska fréttastofan
Interfax sagði hins vegar að Jakús-
hín hefði neitað því að forsetinn væri
með lungnakvef.
Fjölmiðlafulltrúinn sagði að
Jeltsín væri í bústað sínum nálægt
Moskvu og neitaði því að forsetinn
hefði átt að eiga fund með spænska
forsætisráðherranum. Spænskir
embættismenn sögðu hins vegar að
gert hefði verið ráð fyrir því að Azn-
ar ræddi við Jeltsín.
Ólga í Kongressflokknum
vegna afsagnar Gandhi
Nýju-Delhí. Reuters.
SU ákvörðun Soniu Gandhi að segja af sér sem
leiðtogi Kongressflokksins á Indlandi hefur
valdið miklu uppnámi innan flokksins og fjórir af
forystumönnum hans sögðust í gær ætla að láta
af embættum sínum ef hún yrði ekki forsætis-
ráðhemaefni flokksins í kosningunum í septem-
ber.
Fjórir aðalráðherrar indverskra ríkja, sem
eru undir stjóm Kongressflokksins, afhentu
Gandhi afsagnarbréf og sögðust ekki sjá neinn
tilgang í því að halda embættum sínum ef hún
færi ekki fyrir flokknum í þingkosningunum.
Sonia Gandhi, sem fæddist á Ítalíu og er ekkja
Rajivs Gandhis, fyrrverandi forsætisráðherra,
sagði af sér á mánudag eftir að þrír af forystu-
mönnum flokksins höfðu fuUyrt að hún væri ekki
fær um að stjórna landinu vegna erlends upp-
runa síns og reynsluleysis. Þeir skoruðu því á
hana að draga sig í hlé.
Einn þremenninganna, Sharad Pawar, fyrr-
verandi vamarmálaráðherra, kvaðst í gær
standa við áskorunina og aðeins hafa „hagsmuni
þjóðarinnar" að leiðarljósi.
Hundmð stuðningsmanna Kongressflokksins
söfnuðust saman við hús Gandhi í Nýju-Delhí til
að krefjast þess að afsögn hennar yrði hafnað og
þremenningunum refsað. „Sláið svikarana með
ilskóm... Kongressflokkur án Soniu er enginn
Kongressflokkur,“ hrópuðu þeir.
20 félagar í ungliðahreyfingu flokksins hófu
einnig mótmælasvelti í von um að fá Gandhi til
að falla frá ákvörðun sinni.
Afsögnin sögð kænskubragð
Gandhi lifði í nær algjörri einangran þar til
hún féllst á að taka við formennsku í Kongress-
flokknum í fyrra, sjö áram eftir að eiginmaður
hennar var myrtur. Hún hefur sætt harðri gagn-
rýni andstæðinga Kongressflokksins vegna er-
lends upprana síns og reynsluleysis frá því í síð-
asta mánuði þegar stjómarandstaðan varð
stjóm Atals Beharis Vajpayees að falli í at-
AP
STUÐNINGSMENN Soniu Gandhi, sem sagt
hefur af sér sem leiðtogi Kongressflokksins,
sameinuðust í Bombay í gær, þar sem þeir
hrópuðu lofsyrði í garð hennar og kröfðust
þess að hún drægi afsögn sína til baka.
kvæðagreiðslu á þinginu. Tilraunir hennar til að
mynda nýja stjórn fóra út um þúfur og boða
varð því til þriðju þingkosninganna á Indlandi á
þremur áram.
Sérfræðingar í indverskum stjómmálum lýstu
afsögninni sem kænskubragði af hálfu Gandhi,
sem er sögð vilja veikja uppreisnarmennina inn-
an flokksins og stuðla að því að deilan um þjóð-
emi hennar verði útkljáð fyrir kosningamar í
september. „Þetta er úthugsaður sjónleikur milli
hennar og stuðningsmanna hennar,“ sagði
stjómmálaskýrandinn Pran Chopra. „Þeir gráta
og hún kemur aftur. Þetta styrkir stöðu hennar
frekar meðal dyggustu stuðningsmanna flokks-
ins.“
Hætta á klofningi
Margir telja þó að Gandhi hafi tekið mikla
áhættu með þessu útspili og vara við því að deil-
an um þjóðemi hennar geti orðið til þess að Kon-
gressflokkurinn klofni. Indverskt dagblað skýrði
frá því að uppreisnarmennirnir þrír, undir for-
ystu Pawars, hygðust stofna nýjan flokk, Þjóð-
ernissinnaða Kongressflokkinn.
Pawar er talinn eiga heiðurinn af sigri Kon-
gressflokksins í heimaríki hans, Maharashtra, í
kosningunum á síðasta ári. Flokkurinn fékk þar
33 þingsæti, sem er tæpur fjórðungur allra þing-
sæta flokksins.
„Ég hygg að þetta séu mjög slæm tíðindi fyrir
Kongressflokkinn, hún tók ranga ákvörðun,“
sagði stjórnmálaskýrandinn Prem Shankar Jha
um afsögn Gandhi. „Þeir sem eyðileggja Kon-
gressflokkinn í Maharashtra era búnir að vera.“
Aðrir töldu að afsögnin yrði til þess að for-
ystumenn flokksins leystu deiluna um þjóðemi
Gandhi og treystu samstöðu sína. Pran Chopra
sagði hins vegar að auðveldara yrði fyrir Gandhi
að tryggja sér stuðning flokksins en að ávinna
sér hylli kjósenda, sem era reiðir Kongress-
flokknum fyrir að valda stjómarkreppunni í
landinu.
Ciampi
svarinn
í embætti
CARLO Azeglio Ciampi var í
gær svarinn j embætti sem tí-
undi forseti Italíu. Ciampi, sem
kjörinn var forseti síðasta
fimmtudag, hét því að gegna
skyldustörfum sínum af trú-
rækni við hátíðlega athöfn í
sameinuðu þingi í Róm.
Afdrifaríkur
orðrómur
AÐ minnsta kosti fimm manns
létu lífið í óeirðum sem brutust
út í Lagos, höfuðborg Nígeríu,
á mánudag eftir að orðrómur
hafði borist út um að Olusegon
Obasanjo, sem nýlega var kjör-
inn forseti landsins, hefði látist.
Ekki tókst að stöðva óeirðimar
fyrr en Obasanjo hafði flutt
ávarp í sjónvarpi til að fullvissa
fólk um að hann væri sprelllif-
andi.
Eiginmaður
Bhutto reynir
sjálfsmorð
LÖGREGLA í Pakistan stað-
hæfði í gær að Asif Ali Zardari,
eiginmaður Benazir Bhutto,
leiðtoga stjórnarandstöðunnar,
hefði reynt að fremja sjálfs-
morð í klefa sínum, en Zardari
afþlánar fangelsisdóm vegna
spillingarmála. Talsmenn flokks
Bhuttos, sem er fyrrverandi
forsætisráðherra í Pakistan,
sögðu hins vegar að hefði
Zardari orðið fyrir meiðslum
væri það áreiðanlega vegna
harðræðis lögreglunnar.
Páfinn 79 ára
JÓHANNES Páll páfi hélt í
gær upp á 79 ára afmæli sitt en
skv. venju
hélt páfinn
ekki upp á af-
mælið með
neinum form-
legum hætti
heldur sinnti
skyldustörf-
um sínum
eins og venju-
lega. Hann
hitti Gerhard Schröder, kansl-
ara Þýskalands, að máli og
ræddu þeir m.a. um Kosovo-
deiluna.
Dularfullur
sjúkdómur
SAMEINUÐU þjóðimar hafa
sent sérfræðinga á sínum veg-
um til borgarinnar Herat I
Afganistan til að rannsaka dul-
arfullan sjúkdóm sem valdið
hefur dauða þrjátíu og tveggja
á síðustu mánuðum. Ekki hefur
tekist að greina sjúkdóminn en
hann er helst talinn geta verið
einhvers konar skorpulifur.
Bretar og
Færeyingar
semja
BRETAR og Færeyingar skrif-
uðu í gær undir samkomulag
sem bindur enda á langvinnar
landgrannsdeilur landanna
tveggja og auðvelda fyrirhugað-
ar útsjávarolíuboranir í land-
helgi Færeyinga. Tony Lloyd,
ráðherra í breska utanríkisráðu-
neytinu, Anfmn Kallsberg, lög-
maður færeysku heimastjómar-
innar, og Niels Helveg Petersen,
utanríkisráðherra Danmerkur,
skrifuðu undir samninginn.
Jóhannes
Páll páfí