Morgunblaðið - 19.05.1999, Page 44

Morgunblaðið - 19.05.1999, Page 44
■Ý4 MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN . Rýnir í skáp og gjallarhorn í skúffu ER NEMA von að hinn hógværi og hóf- stillti vinur allra, Davíð formaður, kætist yfir úrslitum alþingiskosn- inganna. Hann hefur gefið út tilskipun um •líiúlkun úrslitanna og fjölmiðlar landsins og álitsgjafar syngja allir gagnrýnilaust með, enda alger óþarfi að rýna nánar í hlutina þegar Dabbi hefur skýrt þá. Af því að Dabbi segir það, hlýtur það að vera satt, eða eins og sagði í góðum dægurlagatexta: „Af því að pabbi vildi það.“ Ef við leyfum okkur hins vegar þann munað að setja fréttaskýrand- ann og bókmenntagagnrýnandann inn í skáp í eitt augnablik og skoð- um úrslitin án gleraugna hans og ■íA'tjum Óla Björn gjallarhom hans niður í skúffu kemur margt forvitni- legt í ljós. Fréttaskýrendur gætu t.d. vakið athygli á þeirri staðreynd að Samfylkingin fær 44.377 atkvæði eða u.þ.b. 65% af atkvæðamagni Sjálfstæðisfiokksins í kosningunum. Og það er alveg sama hvaða freudísku bellibrögð- um menn beita, það fær mig enginn til ann- ars en vera stoltur af þessu fylgi, enda kom- inn úr flokki sem 23 þúsund manns kusu í kosningunum þar á undan. Kom sá ekki neitt og sigraði Af því að Dabbi seg- ir það eru hann og Steingrímur J. Sigfús- son sigurvegarar kosn- inganna. Ekki ætla ég að gera lítið úr því. En maður hlýtur að spyrja: Sigurvegarar miðað við hvað? Skoðanakannanir? Ef þær eru mælikvarðinn er Sjálf- stæðisflokkurinn töluvert langt frá því fýlgi sem skoðanakannanir gáfu honum mest, þegar honum var jafn- vel spáð hreinum meirihluta á Al- þingi. VG toppar hins vegar flestar kannanir og fær sex þingmenn eins og VG hafði í þingflokki óháðra fýr- ir kosningar. Kæti Davíðs ræðst sennilega mest af því að vinstri- menn náðu ekki að safna kröftum sínum í einn flokk og það er eðlilegt Kosningaúrslit Við í Samfylkingunni höldum ótrauð áfram, segir Heimir Már Pétursson, og höfum gaman af því. að sumir hverjir kætist með honum í því en gleði nokkurra annarra er torskildari. Ef menn vilja hins veg- ar greina kosningaúrslitin eingöngu út frá könnunum er alveg klárt að sigurvegari kosninganna er Frjáls- lyndi flokkurinn sem allir spekingar höfðu keppst við að þurrka út af þingi. Ef menn halda Davíð aðeins leng- ur inni í skápnum og láta umlið í Óla Birni neðan úr skúffunni ekki trufla sig gætu menn rekist á ansi merki- lega staðreynd varðandi kynjahlut- fall hinna nýju þingflokka. Skarpir fjölmiðlamenn og álitsgjafar gætu t.d. rekið tærnar í það að innan þingflokks Samfylkingarinnar eru níu konur og átta karlar. Aldrei áð- ur hefur verið til eins fjölmennur Heimir Már Pétursson þingflokkur kvenna á íslandi og aldrei áður hafa konur verið í meiri- hluta í svo stórum þingflokki. Af 26 þingmönnum Sjálfstæðisflokksins eru átta konur, af tólf þingmönnum Framsóknar eru þrjár konur og í sex manna þingflokki VG eru tvær konur. - Nú heyri ég lágvært tíst út úr skápnum og skúffunni um stærsta kvenfélag landsins en læt sem ég heyri það ekki, enda tak- mörk fyrir því hvað menn geta verið fyndnir. Innantökur og gefíð á garðana Pað hefur enginn reynt að draga fjöður yfir það að við í Samfylking- unni gerðum okkur vonir um að fá fylgi yfir 30% kjósenda. Margt varð til þess að það tókst ekki. Hreyfing okkar er ung og margir gerðu hana að óvini sínum í kosningabaráttunni og sumir ónefndir lögðu nánast ekk- ert til málanna fyrir kosningar ann- að en spakmælaflaum um Samfýlk- inguna. Peir fengu ægilegar innan- tökur af málflutningi Samfylkingar- innar um jöfnuð, réttlæti og lýðræði og ætla að eyða fyrstu mánuðum nýs kjörtímabils í að jafna sig með því að gefa vinum sínum Landssím- ann og ríkisbankana á garðana, milli þess sem þeir berjast hetju- lega gegn því að velferðarþjónustan á íslandi standist samanburð við Norðurlöndin. Þeir reikna með að hafa náð sér að fullu í apríl árið 2003 og byrja þá aftur að smæla framan í kjósendur með loforðum um árangur fyrir alla. Skáphurð af hjörunum Nú er bankað kröftuglega á skáp- hurðina og skúffan nötrar öll af tjáningarþörf. En meistarinn og lærisveinninn verða að bíða aðeins lengur. Áður en ég sleppi þeim laus- um vil ég segja þetta án frammí- kalla: Alveg sama hvað þeir í skápn- um og skúffunni segja er komin fram öflugasta hreyfing félags- hyggjufólks sem til hefur verið í landinu. Hún mun taka sér þann tíma sem hún þarf til að skipuleggja sig í formlegum stjómmálaflokki, sem nú þegar er næststærsta stjómmálahreyfing landsins. Við þessi tíðindi verða bókmenntagagn- rýnendur og aðrir álitsgjafar að búa hvort sem þeim líkar betur eða ver. Við í Samíýlkingunni höldum ótrauð áfram og höfum gaman af því. Og svona rétt áður en skáphurðin rifnar af hjöranum og Óli Björn verður krónískt skúffaður langar mig að reka eina litla lygi ofan í manninn í skápnum. Þú sagðir Dabbi minn í miðri sigurvímunni í kosningasjónvarpinu að ég og for- maður Alþýðubandalagsins hefðum fullyrt að það hefði fjölgað í AJþýðu- bandalaginu við brotthvarf Stein- gríms og félaga. Segi það aftur hér og nú, þú varst að ljúga. Aðeins einu sinni vora gefnar út opinberar tölur um hreyfingar í félagatali Alþýðu- bandalagsins eftir aukalandsfund- inn í júli ‘98 og í þeim tölum kom fram að heldur fleiri höfðu sagt sig úr flokknum en gengið í hann. Að svo mæltu opna ég skápinn og skúffuna og óska ykkur guðs bless- unar. Höfundur var einn af frambjóðend- um Samfylkingarnnar. Yfir 1.400 notendur KERFISÞROUN HF. Fákafeni 11 • Sími 568 8055 www.islandia.is/keriisthroun Glæsibæ, Álfheimum 74 Sími 581 2022 SPEEDO. Áhyggjur af stefnu yfir- valda í tannheilbrigðismálum UNDANFARIN þrjú ár hefur Tryggingastofnun ríkisins mark- visst unnið að því að skera niður framlög sín til varna gegn tann- skemmdum. Þetta er mikið áhyggjuefni í ljósi nýlegrar sögu ís- lendinga sem heimsmethafa í tann- skemmdum. Heimsmet í tannskemmdum Aðeins er liðinn rétt rúmlega ára- tugur síðan tannskemmdir í íslensk- um bömum vora með slíkum endemum að eftir var tekið á al- þjóðavettvangi. Við voram slíkir eft- irbátar vestrænna þjóða að vísinda- menn tannlæknisfræða gerðu sér leið hingað til að skoða þessa undar- legu eyjarbúa með mikið skemmdu tennumar. Undanfarið hefur rofað mikið til í þessum efnum. Tannskemmdum meðal barna hefur fækkað mikið, þrátt fyrir óbreytta sykurneyslu. Tannvernd hefur verið tekin traustum tökum. Ekki þykir lengur eðlilegt að trassa að fara til tann- læknis. Ekki þykir lengur eðlilegt að gera þurfi við tönn í hvert sinn -/eline^ Fegurðin kemur innan frá Laugavegi 4, sími 551 4473 sem farið er til tann- læknis. Tímar reglu- legs eftirlits, öfiugra forvarna og góðrar tannheilsu eru í þann veginn að renna upp. Það eru hins vegar blikur á lofti. Hlutverk Trygginga- stofnunar ríkisins Ekki er hægt að lesa úr lagabálkum að lög- gjafinn hafi ætlað Tryggingastofnun rík- isins hlutverk í for- vörnum gegn tann- skemmdum. Engu að síður hefur sú stofnun á síðustu tveimur ára- tugum tekið sér það hlutverk með nokkrum myndugleik. Varnir gegn tannskemmdum hafa verið endur- greiddar af stofnuninni eins og aðr- ar tannlækningar. Þetta ber að lofa, því allir vita að betra er að verjast tannsjúkdómum en að gera við skaða sem orðinn er. Verst er að nú er myndugleiki þessi óðum að hverfa af Tryggingastofnun rík- isins. Framsýni með áherslu á forvarnir hefur undanfarin þrjú ár vikið fyrir stefnu sem leggur áherslu á endurgreiðslu fyrir viðgerðir á skaða sem orðinn er, en niður- skurðarhníf er beitt á forvarnir. Heilbrigðisyfirvöld og Tryggingastofnun ríkisins hafa með reglugerðum skorið niður framlög sín til endurgreiðslu fyrir forvamir í slíkum mæli að stórhættulegt má teljast fyrir tann- heilsu þjóðarinnar. Það er slæmt, þeir sem slíkt gera verða að sjálfsögðu að vera ábyrgir fyrir afleiðingum slíks niðurskurð- ar. Hitt er jafnvel verra að sú stefna að spara aurinn í forvörnum en eyða honum í viðgerðir mun ekki þykja gáfuleg þegar sagan er skoðuð. Hvað hefur verið skorið niður? Reglugerðir út gefnar af heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneyt- inu í desember 1996 og janúar 1999 um þátttöku Tryggingastofnunar ríkisins í kostnaði við almennar tannlækningar hafa takmarkað stór- kostlega aðgang fólks að endur- greiðslu íýrir forvamir gegn tann- skemmdum. Til að verjast tann- skemmdum þarf reglulegt og gott eftirlit með tönnum, fræðslu um tannskemmdir og vamir gegn þeim, skoruiýllur, tannhreinsun, flúormeð- ferð, gagngera skoðun og röntgen- myndun. Þátttaka Tryggingastofn- unar í öllum þeim forvömum sem hér era upp taldar hefur verið stór- lega skert og í mörgum tilfellum af- numin. Þeir sem vilja verjast tann- skemmdum skulu nú borga sjálfir. Tannheilsa forréttindi hinna efnameiri Endurgreiðsla fyrir forvarnir Tannheilbrigði Tímar reglulegs eftir- lits, öflugra forvarna og góðrar tannheilsu eru í þann veginn að renna upp, segir Sig- urður Rúnar Sæ- mundsson. Það eru hins vegar blikur á lofti. gegn tannskemmdum er augljós- lega vænleg til að bæta tannheilsu þjóðarinnar og færa til þess horfs sem nú þegar tíðkast í nágranna- löndum okkar. Stefna stjórnvalda í átt að minnkaðri endurgreiðslu fyrir forvarnir gegn tannskemmd- um stefnir í voða þeirri framtíð sem sumir voru farnir að sjá fram á. Tímum reglulegs eftirlits, öfl- ugra forvarna og góðrar tannheilsu þjóðarinnar. Minnkuð endur- greiðsla fyrir forvarnir gegn tann- skemmdum er til þess fallin að gera það að forréttindum þeirra efnameiri að búa við tannheil- brigði. Tannlæknar sem vinna störf sín á faglegum grundvelli munu að sjálfsögðu mæla með öflugum for- vörnum gegn tannskemmdum, eins og gert hefur verið hingar til. Mun- urinn er, eftir útgáfu reglugerða þeirra sem áður eru nefndar, að Tryggingastofnun endurgreiðir ekki fyrir forvarnirnar eins og áð- ur. Þeir efnameiri munu kaupa sér tannheilbrigði en hinir sitja eftir. Er slík mismunun í tannheilsu eftir efnahag það sem íslensk heilbrigð- isstjórnvöld stefna að? Höfundur er formaður Félags fsl. barnatannlækna. Sigurður Rúnar Sæmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.