Morgunblaðið - 19.05.1999, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1999 4^
30 ára tímamót í
lífeyrismálum
I DAG, hinn 19.
maí, eru liðin 30 ár frá
því skrifað var undir
mjög merkan tíma-
mótasamning. Sá
samningur hefur bæði
beint og óbeint haft
áhiTf á lífeyri og þar
með afkomu fleiri Is-
lendinga en nokkur
annar samningur, sem
gerður hefur verið
hingað til. Hér er ég
að tala um kjarasamn-
ing aðila vinnumark-
aðarins um stofnun al-
mennu lífeyrissjóð-
anna, sem fulltrúar
vinnuveitenda annars
vegar og hins vegar aðildarfélaga
Alþýðusambands Islands innsigl-
uðu með undirskrift sinni þennan
dag fyi-ir 30 árum. Samningar tók-
ust eftir mjög langa og stranga
samningalotu. Þótt sumir vinnu-
veitendur hafí verið á móti samn-
ingnum er ljóst að mjög fljótlega
eftir undirskrift hans var almennt
viðurkennt að mikið framfai-askref
hefði verið stigið og því full ástæða
til að vinna heilshugar að fram-
gangi hans.
Ég leyfí mér að fullyrða að hefðu
þessir aðilar á mjög erfiðum tíma
ekki borið til þess gæfu að stíga
þetta skref, að margra ára vinna
síðar meir, sem að lokum leiddi til
lagasetningar um lífeyrissjóði,
hefði ekki skilað jafn
mikilvægri niðurstöðu
og raunin varð með
setningu laganna um
stai-fsemi lífeyrissjóða
nr. 129/1997. Kjara-
samningurinn 1969 var
því í raun og veru
homsteinn fyrir setn-
ingu lífeyrissjóðalag-
anna.
Landsmenn allir og
komandi kynslóðir
eiga þessum forsjálu
forystumönnum, sem
fyrir 30 árum börðust
hatrammlega fyrir því
að tryggja launamönn-
um viðunandi og
mannsæmandi laun eftir starfslok,
því mikið að þakka. A þeim árum,
sem og því miður enn í dag, vom
greiðslur almannatrygginga til eft-
irlaunamanna það lágar að með
öllu var óviðunandi. Samningurinn
tryggði að öllum almennum laun-
þegum var skylt að leggja fyi-ir til
efri ára 4% launa sinna. A móti
ábyrgðust vinnuveitendur að
gi-eiða 6% til viðbótar, svo til sam-
ans gerði þetta 10% iðgjald. Menn
sögðu sem svo að allir launamenn
skyldu eiga rétt til mannsæmandi
lífeyris. Það áttu ekki vera forrétt-
indi fárra og útvaldra, heldur allra
launamanna að geta eytt ævikvöld-
inu á sómasamlegan hátt og með
reisn.
Lífeyrir
Landsmenn allir og
komandi kynslóðir,
segir Þórir Hermanns-
son, eiga þessum for-
sjálu forystumönnum
mikið að þakka.
Með einstöku framtaki sínu voru
þessir frumherjar að setja af stað
þróun, sem ég get varla ímyndað
mér að þeir hafi séð nákvæmlega
fyrir, en hefur í dag komið litla
landinu okkar á blöð heimssögunn-
ar hvað varðar lífeyri við starfslok
sem dugar til eðlilegrar fram-
færslu. Nú horfa mörg önnur lönd
til okkar öfundaraugum og æ fleiri
þeirra leita eftir leiðsögn og aðstoð
til að koma af stað sambærilegu
tryggingakerfi og íslensku lífeyris-
sjóðimir eru í dag. Alþjóðabankinn
hefur lagt áherslu á að lífeyriskerfi
verði að byggjast á þremur stoð-
um, þ.e. almannatryggingum, líf-
eyrissjóðum og frjálsum viðbótar-
sparnaði.
Islenska lífeyriskerfið uppfyllir
að ýmsu leyti þessa forskrift Al-
þjóðabankans og vegur þar þyngst
skylduaðild að lífeyrissjóðum sem
byggja á sjóðsöfnun og samtrygg-
Þórir
Hermannsson
%
f^n FASTEIGNA rf
HHJ MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551 1540,
552 1700, FAX 562 0540
Netfang: http://habil.is/fmark/
Opið virka daga frá kl. 9-18.
Jón Guðmundsson sölustjóri, lögg.
fasteignasali og Ólafur Stefánsson viðskiptafr.
og lögg. fasteignasali
Skúlagata
NÝBYGGING — LYFTUHÚS
Vorum að fá til sölu 2ja og 4ra herb. íbúðir í þessari glæsilegu nýbyggingu. (búðimar
verða til afhendingar í október nk., fullbúnar með öllum innréttingum en án gólfefna.
Lyfta er í húsinu. Sameign afhendist fullbúin m.a. lóð. Möguleiki á stæðum í bílahúsi.
Sjávarútsýni. Teikningar og allar nánari upplýsingar á skrifstofunni.
JL
ingu. Við erum því fyrirmynd á
þessum sviðum og uppfyllum skil-
yrðin um ess-in þrjú, sem standa
fyrir hugtökin um skylduaðild,
sjóðsöfnun og samtryggingu. Öll
þessi skilyrði þurfa að vera fyrir
hendi ef viðkomandi einstaklingur
á að geta séð fyrir sér á efri árum
með uppsöfnuðum spamaði og
áunnum tryggingum. Þvílík hug-
sjón að sjá svona langt fram í tím-
ann sem segir mér einnig að fmm-
herjamir vora fyrst og fremst að
hugsa um hag annarra en sjálfra
sín, því greiða verður iðgjald heila
starfsævi svo réttindi í lífeyrissjóði
skili eðlilegum tekjum eftirlauna-
manns til baka.
Vissulega er staðan í dag enn sú
að lífeyrir út á 10% lögbundna ið-
gjaldið er ekki nægjanlegur til að
standa undir nema allra brýnasta
framfærslukostnaði. Iðgjaldið þarf
að hækka umtalsvert til að hægt
sé að halda uppi ámóta tekjum og
fyrir starfslok. Með samningum
við stafsmenn hafa nokkrir vinnu-
veitendur, m.a. ríkið, komið til
móts við þessa þörf með hæma ið-
gjaldi. Opinberir starfsmenn fá nú
greitt 11,5% iðgjald frá vinnuveit-
anda á móti 4 prósenta framlagi
sínu til lífeyrissjóðs eða samtals
15,5%. Er það von mín og ósk að
fljótlega geti náðst um það almenn
sátt í þjóðfélaginu að alhr starf-
andi menn skuli greiða a.m.k. 15%
iðgjald til lífeyrissjóðs. Ég ætla
ekki að tjá mig um væntanlega
skiptingu iðgjaldsins milli starfs-
manns og vinnuveitanda umfram
það sem stendur hér, en afstaða
ríkisvaldsins hlýtur þó að leggja
töluvert línuna. Hver og einn get-
ur svo að sjálfsögðu bætt við lög-
bundinn sparnað sinn á ýmsan
hátt og þarf að gera það. Ég hv^fc
alla sem ekki hafa þegar gert það
að skoða stöðu sína vel, íhuga að
bæta við lífeyrissparnaðinn og
meta jafnframt með hvaða hætti
öðrum helst er hægt að tryggja
áhyggjulaust ævikvöld.
Sumir þeir er að málinu komu
fyrir 30 áram hafa flust um lífs-
skeið yfir móðuna miklu, en það
era margir enn starfandi með okk-
ur. Þeir sjá í dag mikinn árangur
starfs síns, sem seint mun hverfa.
Ég vil nú að lokum óska þeim og
okkur öllum hjartanlega til hap^.
ingu með daginn og þakka þeim
heilshugar fyrir stórkostlega fram-
sýni og ótrúlegt framtak.
Höfundur er formaður Landssam-
taka lífeyrissjóða.
n m m
1 ÍELAR
| Ármúla 29 - Rvk. Sími 588 4699 |
Vefsíða: www.oba.is
(ít.
FASTEIGNA <f
I tMJ MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 9-18. Netfang: http://habil.is/fmark/
FLETTURIMI 32 - 38
NÝBYGGING
NÝJAR ÍBÚÐIR í GRÓNU HVERFI
4\
Vandaðar 3ja - 4ra herb. íbúðir á frábærum útsýnisstað. Sérinn-
gangur i hverja íbúð. íbúðirnar afhendast fullbúnar en án gól-
fefna í nóv - des. 1999. Sameign og lóð frágengin. Ýmist suður-
eða vestursvalir. Stutt í skóla og alla þjónustu. Teikningar og all-
ar nánari upplýsingar á skrifstofu.