Morgunblaðið - 19.05.1999, Page 58
MIÐVIKUDAGUR 19. MAI1999
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
TIL BLAÐSINS
Ljóska
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
„Hvað er svona
jákvætt við
hjónabandið?“
Frá Þórhalli Heimissyni:
FRÁ HAUSTINU 1996 hefur ver-
ið haldið námskeið í Hafnarfjarðar-
kirkju um hjónaband og sambúð
undir yfirskriftinni „Jákvætt nám-
skeið um hjónaband og sambúð“.
Gríðarlega góð þátttaka hefur ver-
ið á námskeiðunum og eru þátttak-
endur nú orðnir rúmlega 1.800 eða
900 pör síðan þetta hjónastarf
hófst. Námskeiðin hafa sömuleiðis
verið haldin á Akureyri og víðar
um landið á þessum þremur árum
sem liðin eru frá því þetta starf
hófst. Hefur Akureyrarkirkja nú
einnig haldið hjónanámskeið sem
byggist á þessum sama grunni,
bæði fyrir norðan og austan,
þannig að segja má að þetta starf
sé að breiða úr sér um land allt.
Eru námskeiðin haldin frá því í
september og fram í maí á hverju
ári.
Markmið námskeiðanna er að
veita hjónum og sambýlisfólki
tækifæri til þess að skoða samband
sitt í nýju ljósi, styrkja það og efla
og íhuga hvernig hægt er að taka
tíma frá hvort fyrir annað á já-
kvæðan hátt. Grundvallarspum-
ingin er „hvað er hægt að gera til
þess að styrkja hjónaband og sam-
búð“. Sjálfsstyrking er höfð að leið-
arljósi. Efnið er kynnt með fyrir-
lestrum og í samtölum en einnig
eru pörin látin vinna með ákveðin
samtalsverkefni. Segja má að í
raun og veru kannist allir við það
sem fjallað er um á námskeiðunum.
Stundum er bara gott að sjá hlut-
ina í nýju ljósi. Námskeiðin eru öll-
um opin og henta bæði þeim er
lengi hafa verið í sambúð eða
hjónabandi, og hinum er nýlega
hafa ruglað saman reitum. Enda
hefúr kjörorð námskeiðanna frá
upphafi verið „gerum gott hjóna-
band betra“. Aðeins 12 pör komast
á hvert námskeið og er fjöldinn
takmarkaður til þess að gott sam-
band og andrúmasloft myndist á
námskeiðinu.
Hvert námskeið stendur aðeins í
eitt kvöld. Nú er það auðvitað svo
að oft þarf frekari vinnu til að bæta
sambúð sem komin er í erfiðleika
og sum pörin koma einmitt á nám-
skeiðið vegna þess að þau eiga í
einhverjum erfiðleikum. Því er
boðið upp á einkaviðtöl við hjónin í
framhaldi af námskeiðinu, sé þess
óskað. Leiðbeinendur á námskeið-
inu eru undirritaður og sr. Guðný
Hallgrímsdóttir, prestur í Seltjam-
ameskirkju. Eins og fyrr segir
hafa þessi námskeið verið haldin
yfir veturinn og fullbókað hefur
verið með löngum íyrirvara. Sýnir
þessi mikla aðsókn þörfina á slík-
um sjálfstyrkingamámskeiðum
íyrir pör á öllum aldri. Enda bend-
ir aukin skilnaðartíðni til þess að
víða sé pottur brotinn.
Frá því í maí og fram í ágústlok
liggur námskeiðahaldið niðri en á
komandi hausti er ætlunin að
fjölga námskeiðunum og bæta við
framhaldsnámskeiðum þar sem
fjallað verður nánar um ákveðin
vandamál í sambúðinni. Verða þau
námskeið ætluð þeim sem þegar
hafa sótt grannnámskeiðin. Munu
þá ýmsir sérfræðingar leggja
þessu starfi lið.
En markmiðið verður enn það
sama, að styrkja hjónabandið og
sambúðina.
ÞÓRHALLUR HEIMISSON,
prestur.
'J ^ Æ $
o
“47 f
RER0N AND
SNOOPf ATTEMPT
TO REVIVE THE
ANCIENT R0MAN
6AME OF CARPS
AND AAARBLES..
Rabbi og Snati reyndu að
endurvelqa hina fomu
rémversku spila- og
marmarakúluleiki..
Áskorun til
Mannverndar
Frá Guðna Björgólfssyni:
ÞAÐ passar nokkurn veginn til að
íslendingar haldi upp á þjóðhátíð-
ardaginn 17. júní Anno Domini
1999 með því að hlekkjast fjötram
gagnagrunns á heilbrigðissviði. í
stað þess að senda hverjum og ein-
um eyðublað um úrsögn úr þessum
granni hefur Landlæknisembættið
valið þá leið að láta eyðublað þetta
liggja frammi á útvöldum stöðum
þar sem litlar líkur væra til að
menn nálguðust gögnin.
Áhrifaríkasta aðgerð Mann-
vemdar er nú að senda eyðublað
þetta ásamt leiðbeiningum inn á
hvert einasta heimili í landinu. Það
er með öllu ótækt að sitja með
hendur í skauti og aðhafast fátt eða
ekkert þegar markaðsöflin hafa
margfalda Vetrarbrautina í for-
skot.
Gætum að siðferðilegri skyldu
okkar þó ekki væri nema vegna af-
komenda.
Samkvæmt Gunnlaugs sögu
Ormstungu þóttu það tíðindi best
er orðið höfðu er kristni komst að í
landinu. Keyrum í jörð niður þau
öfl sem hreiðrað hafa um sig á
markaðstorgi hégómans og gert
lögin um gagnagrann að tíðindum
verstum í 1000 ár. Látum það
aldrei verða að slík afsiðun verði að
raunveraleika, að menn geri sér
líkneski af gulli úr DNA-sameinda-
keðju umvafinni bandarískum doll-
arasneplum; að manngildið verði
fyrir borð borið, að Islendingar
glutri niður sjálfstæði sínu fyrir
einskis nýtt fánýti.
GUÐNI BJÖRGÓLFSSON,
Reykhólaskóla, Króksfjarðamesi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í uppiýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.