Morgunblaðið - 19.05.1999, Side 59

Morgunblaðið - 19.05.1999, Side 59
 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1999 M, BREF TIL BLAÐSINS Eru guðirnir geimfarar? Frá Atla Hraunfjörð: ERIK Von Daniken gaf út fyrir nokkrum árum bækur sem báru titla er vísuðu til þess að guðshug- mynd fyrri tíðar manna væri sprottin af heimsóknum annarra jarða íbúa til okkar jarðar. Hug- myndin byggðist að hluta til á því að mannkyn á svipuðu þroska- og menningarskeiði og við höfum nú náð, færi í heimsókn til jarðar sem komin væri áh'ka langt í menningu og tækni og var hér fyrir tvö þús- und árum og jafnvel lengra aftur í þróunarferli mannsandanns. Daniken gerir ráð fyrir getu mannshugarins til að hafa sam- band sín á milli með hugsanaflutn- ingi, eins og það er kallað, en rétt- ara er að tala um hugsanaflæði. Daniken gerði ekki ráð fyrir að hugsun flæði, þannig að vitrana- menn og spámenn sjái það sem er að gerast annars staðar í veröld- inni á öðrum hnöttum. Málið er að- eins það, að stilla inn á hugsanir annarra og jafnvel inn á hugsanir þroskaðra íbúa himingeimsins og jafnvel svo þroskaðra, að maður skilur ekkert af því sem maður sér og heyrir, líkt og kom fyrir bæði Jóhannes skírara og Esekíal, sem lýstu vitrunum, sem þeir áttu ekki hugtök yfir, né höfðu nokkra getu til að lýsa hvað þeir sáu. Einnig má geta þess að Hópí indíánar spáðu um hluti í framtíðinni sem þeir höfðu ekki þekkingu til að segja frá. En um það sem þeir skynjuðu verður nútímamaðurinn ekki í vandræðum með að finna samlík- ingu í samtímanum, til skýringar á sumu í þessum spádómum og vitr- unum. I stuttu máli er hægt að segja að nútímamaðurinn, þrátt fyrir tækni og þekkingu, eigi í erf- iðleikum með að meta stöðu sína í þróun framtíðarinnar, á meðan hann þverskallast við að viður- kenna skynjunarhæfni sína. Ekki verður erfitt að setja sig í spor nú- tímamannsins með skilning á því sem hanri sér og skynjar, ef honum heppnast að stilla sig inn á hugsan- ir háþroska veru sem er í það minnsta tvö þúsund og jafnvel allt að milljón áram á undan okkur í þróun hugar og samfélags og þroskun kærleikans í mannlegum samskiptum. Gera má ráð fyrir að milljónir samfélaga ástundi kær- Af íslensku menningarástandi í aldarlok Frá Úlfi Hjörvar: í MORGUNBLAÐINU frá 27. apríl næstliðnum má á síðu 39 lesa þessa fregn: „Tímarit Máls og menningar fagnar sextugsafmæli sínu í ár og efnir af því tilefni til ritgerðasamkeppni. Efnið er „Is- lensk menning í aldarlok." Lengd ritgerðanna skal vera sem næst 10 bls. í venjulegu tölvuútprenti. Skilafrestur er til 1. september og verða úrslit kynnt mánuði síðar. Ritgerðin póstsendist til Tímarits Máls og menningar, Laugavegi 18, 101 Reykjavík, undir dulnefni og skal nafn höfundar fylgja með í lokuðu umslagi. Pijár bestu rit- gerðirnar, að mati ritnefndar, verða birtar í tímaritinu í árslok. Veitt verða vegleg bókai’verðlaun fyrir þrjár bestu ritgerðirnar og fyrir þá bestu fær höfundur aukin- heldur peningaverðlaun að upphæð 50.000, auk ritlauna. Nánari upp- lýsingar veitir Friðrik Rafnsson, ritstjóri TMM.“ Þó að þarna standi bókar- en ekki bókaverðlaun verður að vona að það sé misritun; að „vinnings- hafar“ fái þó að minnsta kosti smá stafla af umframbirgðum forlags- ins, en sitji ekki uppi með sárt enni og kannski bara eina bók eft- ir Kúndera eða Kárason. En hitt er öldungis víst, að Mál og menn- ing fær þessa gulrót sína margfalt endurgoldna, enda er leikurinn til þess gerður. Menn skulu sanna til, að þegar að úthlutun kemur mun liðkast um loftungur fjölmiðla, og ekki trúi ég að nýfenginn vinur M&M, herra Matthías Johannes- sen, láti sitt eftir liggja, enda aldrei að vita nema forlag þeirra Andrésarsona verði látið gefa út „Helgispjöll“ eða „Hrafnkötlu ena meiri“ eða eitthvað enn annað. Hringekja ástarinnar verður áreiðanlega látin snúast á meðan eitthvað á annaðborð snýst. Allt er þetta dulítið hlægilegt, eða ögn grátlegt, og er undir ýmsu komið. En af öðrum sjónarhóli verður það alltént ekki skemmtilegt, heldur aðeins það sem það er: lítilsvirðing hrokafullra útgefenda við íslenska rithöfunda og samtök þeirra, en höfuðið af skömminni bítur rit- nefndin, akrahreppsnefndin, sem tekið hefur að sér að úthluta þess- um píningi Halldórs og Svavars, en í henni sitja þrír, ef ekki fjórir félagar í Rithöfundasambandinu, þar af einn fyrrverandi formaður þess. Og raunar er ekki viðbragða að vænta af Dyngjuvegi, ef dæma má af andanum í fréttabréfum þaðan, enda á nú líka að fara að halda þar hátíð þó að varla nokkur maður, nema auðvitað Sigurður A., viti í rauninni hverju fagna skuli. En gleðilegt yi’ði ef stjórn RSÍ endur- nærðist svo í veislu sinni að hún snerist eftir hana margefld til varnar kjörum, og þá ekki síður sæmd félagsmanna. Þórshöfn í Færeyjum, 11. maí 1999 ÚLFUR HJÖRVAR. leikann í samskiptum sín á milli og má gera ráð fyrir að heilu vetrar- brautirnar séu bústaðir kærleiks- ríkra háþroska (guðlegra) vera svo milljörðum skipti að íbúatali, á hverjum byggilegum hnetti. Máltækið, sameinaðir stöndum vér, er lögmál sem þroskaðir ein- staklingar tileinka sér og þá með þá hugsun, að afl eins sé í öllum og afl allra í einum. Þannig eru samskipti þeirra við allt lífríki hins lifandi heims. Þeir koma alltaf fram sem einn maður, en á bak við hvem þann er nefnir sig, standa milljarðar af kærleiks- ríkum (guðlegum) verum. Þessar (guðlegu) háþroska verur leitast við að hafa áhrif á lífríkið vítt um geim, til notkunar kærleiks í mann- legum samskiptum, því annars fer mannsandanum frekar aftur, en fram á við. Hvert hugsandi manns- barn á að vita það í dag að öll erum við geimverur í þeirri merkingu að við búum á hnetti úti í geimnum, eins og aðrir sem telja má næsta víst að búi á öðrum jörðum í öðrum sólkerfum. Niðurstaða þessa máls sem snýi’ að upphafi gi-einarinnar, er að vissulega eru guðirnir geim- farar líkt og við sjálf og ekki sjálf- gefið að þeir hafi komið hingað í geimföi’um fyrr á öldum, heldur mjög líklegt að hugsanaflæði hafi átt sér stað og menn skynjað ýmis- legt sem þeir ekki skildu. Öll erum við mannanna böm með þá guðs- gjöf, eins og sagt er, að við getum skynjað eitt og annað, þótt sumir skynji meira en aðrir. Hnettir him- ingeimsins em verustaðir lífsins eins og við þekkjum úr okkar um- hverf. Við búum á hnetti. Eins og áður hefur komið fram, er það nú fullyrt af þar til kvöddum mönnum, að framlíf sé sannað og næsta skref vísindanna hlýtur að staðfesta að það fari fram á öðmm hnetti. Breskur rannsóknai’hópur, sem nefndur er Scole samtökin, sneri sér að rannsóknum á yfirskilvitleg- um fyrirbæmm og miðilssambönd- um á strangvísindalegan hátt árið 1992. Eitt af því sem þar kom fram var að stjórnandi rannsóknarinnar hinum megin frá (að handan) lýsti yfir óánægju með gömlu heitin „spíritistar eða andatrú" og sagði að framliðnir lifðu í efnisveröld og væra jafn efnislegir og jarðarbúar. Það sem fólk hefur haldið vera anda og eitthvað óefnislegt er hugsun íbúa á öðram hnöttum til okkar og tilraun þeirra til áhrifa og oftast er sú tilraun til góðs. Hugs- un er líkt og almynd að því leyti að hún birtist altaf í mynd þess er sendir hugsunina. Að lokum vil ég biðja fólk um að hugsa sér himingeiminn fullan af lífi og verastað fólks á mismunandi þroska- og tæknisviði, verastaði framliðinna bæði héðan og frá enn öðram jörðum og ekki hvað síst verastaði guðlegra vera. ATLI HRAUNFJöRÐ, Marargrund 5, Garðabæ. Sænsku bjálkahúsin frá Stemtat loksins fáanleg á Islandi Ferðaþjónustuhús og sumarhús 10,0 • 15,5 • 19,5 • 26,5 • 40,6 og 60,0 m2 Fjallstuga 26,5m2 10,0m2 Jabo Sýningarhús á horni Sóltúns / Hátúns — < /V/ mu Ármúla 36 - s. 581-4088 og 699-6303 Innilegarþakkir til hinna fjölmörgu. innanlands og utan sem sendu okkur hjónum hlýjar kveðjur d 90 dra afmœli mínu 9. maí sl. Guð blessi ykkur öll. Friðrik Einarsson. Hjartans þakkir sendi ég öllum, sem glöddu mig d 90 dra afmœli mínu. Guð blessi ykkur. Þórgunnur Guðjónsdóttir, Litlu-Hlíð. FALLEGA J)iíí/c^tWa/'/ia/i OKKAR J V, ■f G0.A Yfirbreiðslur Lífgar upp á gamla sófa og verndar nyja. Innilegar þakkirfœri ég öllum œttingjum mínum og vinurn er glöddu mig með gjöfum og heimsókn- um d 80 dra afmœli mínu þann 11. maí sl. Þakka sérstaklega frábœra aðstoð og hjálp starfs- stúlkna á 6. hœð hjúkrunarheimilisins Skjóls. Guð veri með ykkur öllum. Lilja Jónsdóttir. LONDON frá kr. 16.645 I SUMAR MEÐ HEIMSFERÐUM Heimsferðir bjóða nú beint leiguflug vikulega til London í sum- ar, en við höfum stórlækkað verðið fyrir íslenska lerðalanga til þessarar mestu heimsborgar Evrópu. Nú getur þú valið um að kaupa flugsæti eingöngu, flug og bfl eða valið um eitthvert ágæt- is hótel Heimsferða í hjarta London. Brottför alla miðvikudaga í sumar. Bókaðu strax og tryggðu þér lága verðið. Verð kr. 16.645 M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára, flugsæti og skattar. Verð kr. 19.990 Flug og skattur. HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is Fréttir á Netinu ^mbl.is ALLTAf= e/TTHV'AO NÝT7 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.